Dagblaðið Vísir - DV - 15.07.1995, Side 4

Dagblaðið Vísir - DV - 15.07.1995, Side 4
4 LAUGARDAGUR 15. JÚLÍ1995 Fréttir íslenska fyrirtækið ísbú hf. gerir það gott í Rússlandi: Þarna geisar kapítalism- inn í sinni villtustu mynd - segja forsvarsmenn ísbús hf. sem stundar ráðgjafarstarfsemi og útgerð á Kamtsjatka Fiskvinnslukonur að störfum á Kamtsjatka. íslendingar leggja nú til þekkingu á sviði sjávarútvegs á þessum slóðum. „Við sjáum fullt af smákrimmum í jogginggöllum en við verðum ekki varir við neina mafíu. Þama geisar aftur á móti kapítalisminn í sinni villtustu mynd,“ segja þeir félagar Bjöm Ágúst Jónsson og Jens Valdi- marsson sem eiga og reka fyrirtækið ísbú hf. Fyrirtækið sérhæfir sig í viðskipt- um við Rússa, nánar tiltekið á Kamt- sjatka, Sakhalineyju og Kurileyjum. Þar eru þeir með rekstur í sjávarút- vegi, matvælaframleiðslu og iðnaði auk þess að reka útgerð og ráðgjafar- þjónustu þar sem þeir flytja út ís- lenska þekkingu. Fyrirtæki þeirra er með skrifstofur í þremur löndum. Auk skrifstofu á íslandi eru skrifstof- ur á Kamtsjatka og í Víetnam. Veltan hjá ísbúi er rúmar 500 milljónir á ári en alls velta fyrirtæki sem þeir félag- ar eiga aðild að rúmum miUjarði ís- lenskra króna. Samstarf þeirra Jens og Bjöms Ágústs hófst á Patreksfirði fyrir rúmum áratug þegar þeir störfuðu saman að rekstri Hraðfrystihúss Pat- reksfjarðar þar sem Jens var fram- kvæmdastjóri tU margra ára. Upp úr því samstarfi stofnuöu þeir ísbú hf. Þeir segja mikla möguleika liggja í sjávarútvegi á þessum slóðum. „Við gerum þama út einn Unubát. Fyrir utan útgerðina höfum við átt þátt í að byggja sundlaug, fiskeldis- stöö og endurbyggja hótel. Við kaup- um og seljum fisk og höfum staðiö í timbursölu. Þama eru mikUr mögu- leikar eins og sjá má af því að ársafl- inn þama var yfir 3 miUjónir tonna árið 1992. Þarna er floti nýtísku veiði- skipa og línubátarnir þeirra jafnast á við bestu skipin okkar,“ segir Bjöm Ágúst. Veðurfar á svæðinu er líkt því sem gerist á íslandi og þeir eru sammála um að viðskiptin gerist með svipuð- um hætti. Þau byggi á kunningsskap og trausti á mUli manna. „Þetta gengur ekki út á mútur. Þetta byggir á því sama og hér uppi á íslandi, persónulegum tengslum, þar sem maður þekkir mann. Það verður að þekkja spottana sem á að kippa í ef menn ætla að ná árangri. Ef hægt er að tala um einhverja maííu á þessum slóðum þá er það gamla flokksapparatið," segir Jens. Allt til sölu Björn Ágúst segir varla tU þann hlut í þessu fyrrum kommúnistaríki sem ekki sé til sölu. „Maður fær það á tfifinninguna að þarna sé hreinlega allt til sölu. Ég kom inn á risastórt listasafn í Moskvu á dögunum sem var búið að breyta í sjoppu, svona eins og Kola- portið okkar, og allt var til sölu. Þetta væri sambærilegt viö að íslendingar settu upp Kolaport í Þjóðminjasafn- inu,“ segir Björn Ágúst. Þeir stofnuðu ísbú hf. árið 1974 en hófu rekstur á Kamtsjatka árið 1993. Þeir eru sammála um að halda áfram rekstri sínum í Rússlandi. „Við verðum þama meðan stætt er. Við teljum okkur hafa lært inn á þetta samfélag og meðan árangurs er að vænta af starfi okkar höldum við áfram að harka þarna," segja Björn Ágúst og Jens Valdimarsson semgeraútárússnesktsamfélag. -rt Forsvarsmenn ísbús hf., Björn Ágúst Jónsson og Jens Valdimarsson, eru með umfangsmikil viðskipti i Rússlandi. Þeir segja mikil tækifæri þar og telja sig hafa lært inn á samfélagið. í Rússlandi nútímans segja þeir nán- ast allt vera til sölu. DV-mynd JAK Alþjóðlegar sumarbúðir bama: Við lærum um aðrar þjóðir - og að halda friðinn Fremst á myndinni eru Elton, fararstjóri frá Brasilíu, og Þórný sumarbúðastjóri. Fyrir aftan þau eru, frá vinstri: Adam, Jonna, Vitor og Hilda. DV-mynd S Krakkamir í Alþjóðlegum sumar- búðum barna, CISV, fara heim nú um helgina. Alþjóðlegar sumarbúðir bama em starfræktar í fjölda landa um allan heim þar sem saman koma 11 ára börn frá hinum ýmsu löndum. Hér vom þær starfræktar í Álftanes- skóla undir stjóm Þómýjar Bjarkar Jakobsdóttur. 32 böm komu frá átta löndum, tveir strákar og tvær stelpur frá hveiju. Blaöamaður DV spjallaði við fjögur þeirra í gær. Þau vom Hilde frá Noregi, Jonna frá Þýska- landi, Adam frá Bandaríkjunum og Vitor frá Brasilíu. % Þjóöirnar eru líkar „Við krakkarnir erum ekkert ólikir," sagði Hilde, „húðliturinn er kannski öðmvísi en sálimar era líkar." í sumarbúðunum læra börnin einmitt að íbúar annarra landa séu eins og þau sjálf. Þær voru stofnaðar af bandarískum sál- fræðingi sem vildi að fólk gerði sér grein fyrir þessu svo að því þætti ekki fýsilegt að fara í stríð við aðr- ar þjóðir. Langur dagur á íslandi Um dvölina héma segir Hilde: „Við höfum farið að sjá Gullfoss og Geysi, farið í sund og málað grímur. Það hefur verið gaman.“ „Við höfum kynnst hvert öðru og plantað trjám," segir Jonna og Adam tekur í sama streng: „Við höfum eignast nýja vini og haft gaman af.“ Vitor býr í Brasilíu og er því óvanur kringumstæðum eins og eru hér: „Heima eru ekki eins mörg eldfiöll, þar er dimmt tólf klukku- stundir á sólarhring. Veturinn hjá okkur er eins og sumarið hjá ykk- ur.“ Lærdómurinn Um það sem krakkarnir hafa lært segir Hilde: „í sumarbúðunum höf- um við lært að stríð borgi sig ekki og að aðrar þjóðir séu eins og okk- ar.“ Jonna bætir við: „Við höfum lært um vináttuna og önnur lönd.“ „Það er auðvelt að eyðileggja en erfitt að byggja upp,“ segir Vitor. Börnin virðast einnig hafa lært ýmislegt um mannleg samskipti. „Viö lærum að semja frið við vini okkar,“ segir Adam. Krökkunum finnst leiðinlegt að skiljast. Hilde virðist hafa nokkra leikhæfileika til að bera og setur upp smáleikþátt þegar hún er spurð um heimfórina, snöktir og segir: „Ég vil ekki fara heim, ég vil ekki fara heim til foreldra rninna." En þaö er bara sagt í gríni og krakkarnir hlæja. Alþjóðlegu sumarbúðimar bjóða upp á margs konar starfsemi fyrir börn og unghnga á aldrinum ellefu til nítján ára auk þess sem farar- stjórar eru eldri. Hægt er að hafa samband ef menn vilja taka þátt. -GJ

x

Dagblaðið Vísir - DV

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Dagblaðið Vísir - DV
https://timarit.is/publication/255

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.