Dagblaðið Vísir - DV - 15.07.1995, Blaðsíða 6

Dagblaðið Vísir - DV - 15.07.1995, Blaðsíða 6
6 LAUGARDAGUR 15. JÚLÍ 1995 Stuttar fréttir Utlönd Sonur lego-kóngs deyr Godtfried Kirk Christiansen, sonur mannsins sem fann upp Legokubbana, er látinn, 75 ára aö aldri. Norski heim- skautafarinn Mónika Krist- ensen hefur farið fram á að heimskauta- stofnunin, sem hefur skipulagt ferðir hennar, verði tekin tii gjaldþrotaskipta þar sem ekki eru til peningar fyr- ir skuldunum. Ein kýr og þrjár kvígur í Brasil- íu drápust eftir aö hafa étiö 40 kiló af marijúana. Forefdrarmeðallátinna Ungur breskur blaðamaður, sem var sendur tii að skrifa um banaslys, komst að því að foreldr- ar hans voru meðal hinna látnu. Mngmennleiðír Þingmenn á Taívan eru ákaf- Iega leiðir margir hverjir yflr slagsmálum sem brutust út á þingfundi á fimmtudag. Björndrepurkindur Bóndi nokkur í Noregi hefur misst að minnsta kosti þrjátíu kindur í kiærnar á bjarndýri nokkru sem leggst á búfénað á Suður-Varangri. Tveir menn, Rússi og Letti, voru úrskurðaðir í gæsluvarö- hald í Danmörku eftir að 42 kíló af gullhálskeðjum fundust í fór- um þeirra. Hitabylgjavestra Níu manns og þúsundir naut- gripa hafa dáið i gífurlegrí hita- bylgju sem gengur yfir mikinn hiuta Bandaríkjanna þar sem hitastigiö komst t.d. í 41 stig í Chicago. Aflýsir öliu Boris Jeltsín Rússlandsfor- seti hefur aflýst öllum opinber- um embættis- verkum sínum fram til 24. júlí og aðstoðar- maður hans segir að hann verði væntanlega eina viku enn á sjúkrahúsi vegna hjartakrankleika. Viðræðumfrestað Ekkert varð úr friðarviðr;eðum milli Rússa og aðskilnaðarsinna í Tsjetsjeníu í gær. Reuter, NTB, Rítzau Bosníu-Serbar ráðast gegn griðasvæði SÞ í Zepa: Óttast um afdrif íbúa Srebrenica Hersveitir Bosniu-Serba hófu sókn að múslímabænum Zepa, einu af griöasvæðum SÞ í Bosníu, í gær. „Þetta er stórárás. Her Bosníu-Serba nálgast úr suðri,“ sagði heimildar- maður úr röðum starfsmanna Sam- einuðu þjóðanna. Heldur dró svo úr sprengjuhríðinni síðar. Árásinni á Zepa haföi almennt ver- ið spáð eftir að Bosníu-Serbar niður- lægðu SÞ með þvi að leggja undir sig griðasvæðið í Srebrenica fyrr í vik- unni. Aðeins tveimur klukkustundum áður en fregnir bárust af árásinni hafði Chris Gunnes, talsmaður SÞ, lýst því yfir að herflugvélar NATO væru á svæðinu. Heimildarmaðurinn, sem ekki vildi láta nafns síns getið, sagði enn frem- ur að fregnir hefðu borist um að þorp stæðu í ljósum logum. Starfsmenn hjálparstofnana SÞ sögðu í gær að þúsundir manna kynnu að hafa horfið í Srebrenica eftir fall bæjarins og að frásagnir af voðaverkum Serba yrði að taka al- varlega. „Ef við byggjum á því sem hefur gerst áður í þessu stríði og nokkrum ógnvænlegum viötölum, er ærin ástæða til að hafa áhyggjur af örlög- um þeirra þúsunda sem urðu eftir," sagði Kris Janowski, talsmaður flóttamannastofnunar SÞ. Reuter Tveir gæsluliðar SÞ gefa gamalli konu frá Srebrenica hressingu í sumarhitanum. Konan er ein þúsunda flótta- manna frá griðasvæði SÞ sem Serbar lögðu undir sig. Símamynd Reuter Viktoría Svíaprinsessa varð lögráða í gær: Lof ar að vera kónginum trú Þúsundir manna söfnuðust saman fyrir utan konungshöllina í Stokk- hólmi í gær til aö hylla Viktoríu prinsessu á átján ára afmælisdegi hennar. Prinsessan er nú oröin myndug sem þýðir að hún er vara- skeifa konungsins, fóður síns. Viktoría lofaði í fyrstu opinberu ræðu sinni að vera alltaf trú konungi sínum og þingi landsins og að virða stjórnarskrá Svíþjóðar. „Lögræðis- dagurinn hefur í fór með sér miklar breytingar þegar kemur að ábyrgð- inni,“ sagði Viktoría hátt og snjallt frammi fyrir tvö hundruð gestum í höllinni og sjónvarpsvélunum sem sendu beint út í tilefni dagsins. Faðir hennar, konungurinn, sem — Viktoría Svíaprinsessa er nú vara- skeifa kóngsins. Simamynd Reuter var íklæddur aðmírálseinkennis- búningi sínum, minnti prinsessuna á að henni bæri að aðstoða sig í því mikilvæga starfi sem það er að vera þjóðhöfðingi Svíþjóðar. „Ég ber mik- ið traust til starfa þinna í framtíðinni og fjölskyldan mun öll styðja þig og aðstoöa á allan hátt,“ sagði Karl Gústaf Svíakóngur. Viktoría fékk serafímoröuna í til- efni dagsins. „Hún er tákn um þá ábyrgð sem nú hvílir á herðum þér. Móðir þín og ég óskum þér alls hins besta. Megi guð vemda þig,“ sagði kóngur og kyssti dóttur sína á kinnina. „Kæri pabbi,“ svaraði Viktoría. „Takk fyrir serafimorðuna. Hún mun minna mig á aö ég á að standa konunginum og landinu okkar reikningsskil." TT Uppgangur í Wall Street: DowJones nálgast 5000 Dow Jones hlutabréfavísitalan í kauphöllinni í Wall Street heldur áfram uppskriöi sínu og nálgast 5 þúsund stiga múrinn. Þegar viðskipt- um lauk á fimmtudag stóð Dow Jon- es í 4727 stigum sem er enn eitt sögu- lega metið. Frá því bandaríski seðlabankinn lækkaði vexti hefur mikið fjör ríkt á verðbréfamarkaði um leið og gengi dollars hefur lækkað gagnvart helstu gjaldmiðlum eins og pundi, marki og jeni. Upgangur hefur sömuleiðis ver- ið í kauphöllunum í London, Frank- furt og Tokyo. Verð á olíu og bensíni á heims- markaði hefur verið stöðugt en þó örlítið lækkað síðustu daga. Verð á kaffi ’ældur áfram að lækka. -Reuter hallir og vöruverð erlendis 14800 Ddláf Iwm .4700 fll koo Í4400 úonn ÍAor\r\ . 4727,4« illll loitimiM nr-SE íoo 13400 ir 3300 (r 1 ^ 3447,2 A M J J 12250 0AX-40 2200 2100 SSr J | 12050 2000 ~ 'SSSS* 1__§ wmá A M J J 11118000;; Nlkkef „ """ | I - ' I 10000 HaneSeng ...' ' ’ ' - 9500 «S0S,«7 M J J 8500, 8000 7500 9742,44 M J J 380 370 360 ; 350 ; 340 ; 330 I 320 Á M J......J 3500 '--Ai' o--" : ;;.: . ; m g o o 2500 '' :, 1500 I ** í T kmÉMÍÍM, ', / A M 224« J J 200 150 100; 250 200< 150; J J 170,M M j J mmmI - MMMNHMMMMHMMMMHMMMHHHMHMMM f§§li 16,10 ^stunna Á M J J ■ 101::;:;::;: / ■> DV Viðurkennaveru kjarnavopna áGrænlandi Lars Emil Jo- hansen, for- maður heima- stjórnarinnar á Grænlandi, er reiöur og skúff- aður út í fyrri ríkisstjórnir Danmerkur eft- ir að honum var skýrt frá því á fimmtudag aö Bandaríkjamenn heföu viðurkennt aö hafa geymt kjamorkuvopn í herstööinni í Thule á árunum 1958 til 1965. Kjarnorkuvopnin voru til að verja herstöðina fyrir hugsanleg- um árásum Sovétmanna. Það var Niels Helveg Petersen, utanríkisráðherra Daimierkur, sem skýrði Johansen frá játning- um Bandaríkjamanna. Nakinn maður ræðsf á Mistjér a meðbaunadós Víkingasveit lögreglunnar í Miami á Flórída brást skjótt við þegar henni barst tilkynning um að nakinn ræjfingi raeð baunadós að vopni neitaði að yfirgefa sendi- bíl fullan af nýlenduvöru. Ræninginn réðst upphaflega fullklæddur til inngöngu í sendi- bílinn og reyndi að hrifsa með sér dós af svörtum baunum. Þegar löggan kom á vettvang neitaði þjófsi að gefast upp. Þess í stað fór hann úr öllum fötum og faldi sig milli baunadósanna. Eftir nokkurt þjark tókst löggu þó að fá manninn til að klæöa sig og gefast upp. Hann reyndist þá einnig vera meö hníf á sér. Kanili getur veriðskaðlegur munninum Þá er kanillinn kominn í hóp þeirrar matvöru sem getur verið skaðleg. Að minnsta kostief hans er neytt í of miklum mæli. Á þingi tannlækna í Handaiikjunum i vikunni kom fram að of mikill kanill getur valdiö sárindum í munni ogbólgum í bragölaukum. „Kanill er notaður sem bragð- efni í sífellt fleiri vörutegundir, svo sem tyggigúmmí, kökur, sæl- gæti og brauð,“ sagði Michael Siegel, aðstoðarprófessor í tann- læknaskólanum í Maryland. „Þeir sem venja sig á að tyggja hvern pakkann af kamltyggjói á fætur öðrum eða drekka eða borða mikinn kanil þurfa að hafa áhyggjur,“ sagði Siegel. LivUllmannvill skilaChirac heiðursorðunni Norska leik- konan Liv Ull- mann vill skila Jacques Chirac Frakklandsfor- seta aftur heið- ursorðu, sem Frakkar veittu henni, í mót- mælaskyni við þá ákvörðun Chiracs að hefjaaðnýjutilraunir meö kjarnorkuvopn í Suður- Kyrrahafinu. Að sögn sænska blaðsins Afton- bladet sendi Ullmann, sem er við kvikmyndaupptökur í Stokk- hólmi, handskrifaö símbréf til Frakklandsforseta þar sem hún mótmælti tilraununum og sagðist mundu skila orðunni fljótlega.; „Yrðir þú ekki fyrstur til aö mótmæla ef fiarlægt land tæki upp á því aö gera tilraunir meö kjarnorkumátt sinn í þínum heimshluta?" sagöi Ullmann, Kitz.au, Reuter

x

Dagblaðið Vísir - DV

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Dagblaðið Vísir - DV
https://timarit.is/publication/255

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.