Dagblaðið Vísir - DV - 15.07.1995, Side 8

Dagblaðið Vísir - DV - 15.07.1995, Side 8
8 LAUGARDAGUR 15. JÚLÍ 1995 Vísnaþáttur Öm Amarson Örn Amarson hét réttu nafni Magnús Stefánsson en tók sér skáldanafnið Öm Arnarson og gengur jafan undir því nafni í bók- menntasögunni. Örn ólst upp á Þorvaldsstöðum í Miðfirði eystra. Nam hann í unglingaskóla að Grund í Eyjafirði veturinn 1907. Örn tók gagnfræðapróf frá Flens- borgarskóla 1908 og kennarapróf árið eftir. Fyrst eftir það kenndi hann í átthögum sínum á Norður- landi 1909-10 og gerðist síðan skrif- stofumaður og sýsluskrifari í Vest- mannaeyjum 1911-1918. Eftir það var hann lengst af skrifstofumaður í Hafnarfirði og bókavörður þar ráðinn 1938 en gegndi því starfi skamman tíma sökum heilsuleysis. Örn varð landskunnur af nokkram kvæðum er birtust í Eimreiðinni 1920. Ljóöabók hans, Illgresi, kom fyrst út árið 1924 og sex sinnum síðan. Ekki hefur ganga Arnar verið nota- leg er hann kveður svo: Ei mun hraun og eggjagrjót iljum sárum vægja. Legg ég upp á Leggjabrjót. Langt er nú til bæja. Víst er að það sem Örn greinir frá í næstu vísu er gömul saga en ekki ný: Hávært tal er heimskra rök. Hæst í tómu bylur. Oft er viss í sinni sök sá er ekkert skilur. Ekki er þessi frásögn fýsileg: Mér var allt að ís og snjó. Oft var svalt í föram. Ekki skaltu undrast, þó andi kalt úr svörum. Hér er herhvöt hins hrausta sjó- manns: Þó að Ægir ýfi brá auki blæinn kalda, ei skal vægja undan slá eða lægja falda. Þessar tvær stökur Amar er Mýsuð nefnast í ljóðabók hans gætu allt eins verið trúatjátning Qósamanna: Mikið er um hjá mýi á skán með mælgi og látum skrýtnum. Það lofar þá mildi og miklar það lán að mega lifa í skítnum. Hver kúadilla er kostaland. Þá kenning er skylt að boða, að jörðin sé skýtur hafið hland og himinninn keytufroða. Einhver hefur kyngi þeirrar ræðu verið er Öm kveður svo um: Predikaði presturinn píslir vítisglóða. Amen, sagði andskotinn. Aðra setti hljóða. Var von þó meistara Erni blöskr- aði er hann kvað svo: Dýrt er landið, drottinn minn, dugi ekki minna en vera allan aldur sinn fyrir einni gröf að vinna. Öll eigum við okkar vitjunartíma: Herðir frost og byljabök. Ber mig vetur ráðum. Æfi mín er vörn í vök. Vökina leggur bráðum. Vísnaþáttur Valdimar Tómasson Enn er raun og mæða nærri Erni og í kvæðinu Skipbrot segir hann svo: Lífið bætir þraut við þraut. Þyngri er seinni vandinn: Aldan sú er bátinn braut bar mig upp á sandinn. Hjá tegund vorri mannkindinni togast vissulega á ást vor á dýran láðs og nýting þeirra. Svo kveður Öm í kvæði sínu um refinn er lengi hefur verið keppinautur okkar um bráöina: Viö elskum allt, sem lifir ef okkur skilist gat, að ef til vill gæti það orðið á einhvern hátt að mat. Hér er að lokum eitt stykki heimsádeila. Hræsni vex af hjálp og náð. Hrælund þrífst við auðinn. Örbirg stétt er auðvalds bráð. Úlfurinn étur sauðinn. Vanefndauppboð Vegna vanefnda fyrri uppboðskaupanda verður hluti kjallara fasteignarinnar Skipholt 37, þinglýst eign Efnaco hf. seld vanefndauppboði, sem haldið verður á eigninni sjálfri miðvikudaginn 19. júlí 1995 kl. 14.00. Uppboðs- beiðendur eru Gjaldheimtan í Reykjavík, Mosfellsbær, islandsbanki hf. og Djúpárhreppur. Sýslumaðurínn í Reykjavik, 10. júlí 1995. Pústþjónusta Traustur og ábyrgur aðili með full réttindi óskast til að taka að sér rekstur pústverkstæðis fyrir Bílavörubúðina Fjöðrina hf. Ýmis rekstrarform koma til greina. Umsóknareyðublöð fást afhent á skrifstofu fyrirtækisins. Skilafrestur er . . tii 25. júií. DÍIavörubúoin JFJðORIN, Skeifan 2 - sími 588-2550 Matgædingur vikunnar Buffalovængir og ostabrauð Þórhalla Sigmundsdóttir, matvælafræðingur og starfsstúlka í eldhúsinu á Hótel Eddu á Hallormsstað, er matgæðingur vikunnar aö þessu sinni. Þórhalla kveðst hafa mjög gaman af því að baka og þá sérstak- lega brauð. Hún starfaði í íslensku bakaríi í Boston síöastliðinn vetur og þar í borg smakkaði hún á Buff- alovængjunum sem hún býður lesendum DV upp á. „Þessi réttur, sem er bragömikill, er frá New York,“ segir Þórhalla. Buffalovængir 2 kg kjúklingavængir og læri 1/2 bolli smjör 3 til 4 tsk. cayennepiparsósa 1 tsk. edik olía Hitið smjörið varlega og setjið cayennepiparsósuna út í. Þijár teskeiðar era hæfilegar ef bragðið á að vera milt, fjórar eru hæfilegar fyrir meðalsterkt bragð og fleiri ef bragðið á að vera „hot“. Setjið edikið út í og takið af hitanum. Djúpsteikið kjúklingabitana þar til þeir verða stökk- ir eða í 10 til 15 mínútur. Þerrið fituna af kjúklingabit- unum og setjið þá samstundis á pönnu með smjörsós- unni og veltið smástund saman. Buffalovængir eru framreiddir með gráðostasósu og sellerístönglum. Gráðostasósa 1 lauf gráðostur 1/2 bolli majónes 3/4 bolli sýrður rjómi Blandað saman í matvinnsluvél stutta stund. Ostabrauð 2 bollar volgt vatn 2 pakkar þurrger 3 bollar hveiti 2 tsk. sykur 2 tsk. lint smjör 2 bollar cheddar ostur 2/3 bollar þurrmjólkurduft 3 til 3 1/2 bolli hveiti 2 tsk. salt Þórhalla Sigmundsdóttir. DV-mynd Sigrún Björgvinsdóttii 2 tsk. parmesanostur olía eða smjör Setjið vatnið, gerið og hveitið saman í skál og sláið þessu saman. Hyljið og látið standa á volgum staö í 30 til 45 mínútur. Setjið sykurinn, smjörið, ostinn, þurrmjólkina, hveitið og saltið út í og hnoöið þar til deigið hættir að klístrast við borðflötinn. Hnoðið í 8 til 10 mínútur. Látið deigið hvílast í 15 til 20 mínútur. Mótið í þrjá brauðhleifa eða lítil rúnnstykki. Hyljið með diskaþurrku og látiö bíða í 45 til 60 mínútur eða þar til brauðið hefur um það bil tvöfaldað stærð sína. Pensliö þá með olíu eða smjöri og stráið parmesanosti yfir. Bakið í 175 til 225 gráða heitum ofni, allt eftir stærð brauðanna. Þórhalla skorar á Kristbjörgu Kristmundsdóttur í Vallanesi á Héraði, sem er sérfræðingur í grænmetis- fæði, að vera næsti matgæðingur. Eftir helgina má fá uppskriftina í Símatorgi DV. Símanúmerið er 904-1700. Hinhliðin____________________ Kókómjólk er uppá- haldsdrykkurinn - segir Gísli Gunnar Jónsson torfærukappi „Það væri örugglega mjög gaman að bjóöa Vigdísi Finnbogadóttur, forseta vorum, í ökuferð á Kókó- mjólkinni rninni," sagði Gísli Gunnar Jónsson torfærukappi sem hefur um árabO verið meðal fremstu ökumanna í flokki sérút- búinna bíla. Hann yann sigur í tor- færukeppni við Egilsstaði um síð- ustu helgi og sannaði þar að hann ætlar ekkert að gefa eftir í þessari íþrótt. Fullt nafn: Gísli Gunnar Jónsson. Fæðingardagur og ár: 5. september 1965. Maki: Vigdís Helgadóttir. Börn: Tvö, Þóra Birna, 8 ára, og Dagný, 5 ára. Bifreið: Citroén CX, 1984. Starf: Rekur bifreiðaverkstæði. Laun: Upp og niður. Áhugamál: Böasport og fjallaferð- ir. Hefur þú unnið í happdrætti eða lottói? Nei, hef þó fengið eitt sinn smávinning fyrir 3 rétta í lottói. Hvað finnst þér skemmtilegast að gera? Keyra bílinn í torfæranni. Hvað finnst þér leiðinlegast að gera? Að klikka á þrautum í torfær- unni sem kosta mann verðlauna- sæti. Uppáhaldsmatur: Mér finnst allur matur góður, svínakjöt er í uppá- haldi. Gísli Gunnar Jónsson. Uppáhaldsdrykkur: Kókómjólkin. Hvaða íþróttamaður stendur fremstur í dag? Geir Sveinsson. Uppáhaldstímarit: Ég les alltaf 3T þegar það kemur út. Hver er fallegasta kona sem þú hefur séð fyrir utan maka? Hófi. Ertu hlynntur eða andvígur ríkis- stjórninni? Hlutlaus. Hvaða persónu Iangar þig mest til að hitta? Það væri gaman að bjóða Vigdísi Finnbogadóttur í rúnt á Kókómjólkinni. Uppáhaldsleikari: Örn Árnason er einn af mörgum. Uppáhaldsleikkona: Engin sérstök. Uppáhaldssöngvari: Bubbi Mort- hens. Uppáhaldsstjórnmálamaður: Dav- íð Oddsson er góður ræðumaöur. Uppáhaldsteiknimyndapersóna: Högni hrekkvísi. Uppáhaldssjónvarpsefni: Mótor- sport. Uppáhaldsmatsölustaður/veitinga- hús: Duggan í Þorlákshöfn. Hvaða bók langar þig mest til að lesa? Ég er lítill lestrarhestur. Hver útvarpsrásanna finnst þér best? Ég hlusta mikið á Bylgjuna. Uppáhaldsútvarpsmaður: Enginn sérstakur. Hvort horfir þú meira á Sjónvarpið eða Stöð 2? Því er nokkuð jafnt dreift. Uppáhaldssjónvarpsmaður: Birgir Þór Bragason. Uppáhaldsskemmtistaður/krá: Duggan í Þorlákshöfn. Uppáhaldsfélag í íþróttum: Þór í Þorlákshöfn. Stefnir þú að einhverju sérstöku i framtíðinni? Að lifa lífinu með fjöl- skyldunni. Hvað ætlar þú að gera i sumarfri- inu? Mitt sumarfrí fer alveg í tor- færana.

x

Dagblaðið Vísir - DV

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Dagblaðið Vísir - DV
https://timarit.is/publication/255

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.