Dagblaðið Vísir - DV - 15.07.1995, Page 11
LAUGARDAGUR 15. JÚLÍ1995
11
Þorlinnur Guðnason kvikmyndagerðarmaður og einn aðalleikaranna í mynd hans um heimsins stærstu hagamús.
DV-myndir GVA
hola. Ég kom fyrir njósnatækjum í
beðinu til að geta fylgst með sam-
býlinu á skjá i eldhúsinu hjá mér.
Svo sáum við á skjánum eitt kvöld-
ið þegar skógarþrösturinn og
hagamúsin, sem reyndar er kölluð
skógarmús á erlendum tungum,
fóru að kljást. Karlfuglinn kom til
að aðstoða kvenfuglinn við að reka
mýsnar burtu. En þegar fuglinn
sneri baki við músarholunni laum-
uðust mýsnar út til að ná sér í ána-
maðk. Við komum fyrir myndavél á
þrífæti og kvikmynduðum þetta
með fjarstýringu.“
Það er sem sé ekki bara merkilegt
samfélag músanna sem fjallað er
um í kvikmyndinni heldur einnig
samfélag þeirra og annarra dýra.
Verstu óvinir hagamúsarinnar eru
hrafn, kjói, ugla, refur og minkur.
Líftími hagamúsarinnar er eitt til
tvö ár. Viðkoman getur verið rosa-
leg, að sögn Þorfinns. „Eins og ár-
ferðið er núna gjóta þær þrisvar
yfir sumarið. Ungar úr fyrsta og
öðru goti geta gotið áður en haust-
ar.“
Virða friðhelgi
heimilisins
Aðalfæða hagamúsanna er úr
jurtaríkinu en þær éta einnig skor-
dýr og leggjast á hræ. Þorfinnur
segir fólk hafa ranghugmyndir um
hagamúsina og telja að það sé
óþrifnaður af henni. „Hagamúsin er
mjög snyrtileg. Húsamúsin hagar
sér allt öðruvlsi. Hún gengur í mat-
væli og er að gjóta allt árið. Það er
margt mjög svipað með hagamúsun-
um og mönnunum. Þær eru félags-
lyndar en vilja jafnframt vera út af
fyrir sig og þær eru rosalegir bygg-
ingameistarar. Erlendis hefur
hagamúsin á sér þjóðsagnablæ fyrir
viturleika og iðni og þess háttar."
Að sögn Þorfinns er ekki par í
hverri holu og kvenmúsin er ein í
holu þegar hún gýtur. En mýsnar
eru félagsdýr og koma í heimsókn
hver til annarrar. Samtímis virða
þær friðhelgi heimilisins. „Fjöl-
skyldumynstrið breytist á haustin
þegar kynhvötin dofnar. Þá eru
stundum nokkrar mýs saman í
holu. Stundum eru holurnar hlið
við hlið. En það er einnig með
mýsnar eins og mannfólkið, þær
þola ekki aUar hver aðra. Það má
líka sjá goggunarröð hjá þeim.“
Náttúran höfðar sterkt til Þor-
finns sem var í sveit í mörg sumur
á unga aldri, bæði í Biskupstungum
og í Húsey. Hann lætur sér ekki
nægja að horfa bara á fossinn og
„Mýsnar eru félagslyndar en þær virða friðhelgi heimilisins."
lækinn, eins og hann segir of al-
gengt, heldur kíkir hann einnig á
bak við steininn.
Þorfinnur verður í félagsskap
hagamúsarinnar fram á mitt næsta
ár en þá gerir hann ráð fyrir að
kvikmyndin verði tilbúin.
„Ætli ég gangi þá ekki þúfnagang
niður Laugaveginn með hendur fyr-
ir aftan bak eins og ég gerði eftir
tvö ár í Húsey,“ segir hann.
Hljómskálagarðurínn (Rvk) liggur sunnan
við Tjömina aiil að Hringbraut. 1909 sam-
þykkti bæjarstjóm að gerður yrði almenn-
ingsgarður í yatnsmýrinni við suðurenda
Tjamarinnar. Árið 1913 var hafist handa um
ræktun, þá voru gróðursett tré í vesturhluta
garðsins meðfram Bjarkargötu. 1922 var
veitt leyft fyrir byggingu Hljómskálans. Þar
fékk Ldðrasveit Reykjavíkur bækistöð fyrir
starfsemi sína og hefur enn.
Upphaflega var garðurinn nefndur Tjamar-
garður, en eftir að Hljómskálinn reis var
tekið að kenna garðinn við hann þó svo að
hinu formlega nafni haft ekki verið breytt.
Jarðvegurinn í garðinum þótti heldur óftjór
og þreifst gróður þar misjafnlega, auk þess
er þar næðingssamt. Á síðari árum hefur
verið lögð meiri alúð við að auka
gróðurmagn moldar og hefur sú elja borið
skjótan og sýnilegan árangur. (...)
ORN CXI (g) ORLYGUR"
Dvergshöfða 27, Reykjavík • Sími 568 4866
Vinninga skal
vjtjað hjá
Erni og Örlygi hf
♦
♦♦♦♦♦♦♦♦♦♦♦♦♦♦♦♦♦♦♦♦♦♦♦♦♦♦♦♦♦♦
Allir vita að það er leikur einn
að grilla lambakjöt. Og
nú færist enn meira flör
í leikinn því nú getur þú
unnið þér inn glæsilegt
gasgrill í skemmtilegum safnleik.
Safnaðu 3 rauðum miðum sem
finna má á öllum grillkjötspökkum
með lambakjöti og sendu í
pósthólf 7300,
127 Reykjavík ásamt
þátttökuseðli sem fæst i
næstu matvöruverslun.
Sunbeahi-
gasgrill Þar með ertu með í potti
og átt möguleika á að vinna
glæsilegt Sunbeam gasgrill. Dregið
er tvisvar sinnum, 10 gasgrill í hvort
sinn. í fyrra skiptið
þann 7. júlí og
í seinna
skiptið þann
11. ágúst.
♦♦♦♦♦♦♦♦♦♦
Vatnsleysu-Askur styttir Þorfinni stundirnar í sveitinni.
ÚR ÍSLANDSHANDBÓKINNI