Dagblaðið Vísir - DV - 15.07.1995, Qupperneq 12

Dagblaðið Vísir - DV - 15.07.1995, Qupperneq 12
12 LAUGARDAGUR 15. JÚLl 1995 Erlend boksja Metsölukiljur Ciraves og gyðjurnar Metsölukiljur Bandaríkin Skáldsögur: 1. Michael Crichton: Congo. 2. Celeb Carr: The Alienist. 3. John Grisham: The Chamber. 4. Tom Clancy: Debt of Honor. 5. Mary Higgins Clark: Remember Me. 6. Steve Martini: Undue Influence. 7. Sandra Brown: Charade. 8. Carol Shields: The Stone Diaries. 9. Roger MacBride: Assault at Selonia. 10. V.C. Andrews: All That Glitters. 11. Meave Binchy: Circle of Friends. 12. Sara Paretsky: Tunnel Vision. 13. Dean Koontz: The Key to Midnight. 14. Elizabeth Lowell: Only Love. 16. Jackie Collins: Holtywood Kids. Rit almenns eðlis: 1. B.J. Eadie 8i C. Taylor: Embraced by the Light. 2. Mary Pipher: Reviving Ophelia. 3. Thomas Moore: Care of the Soul. 4. Hope Edelman: Motherless Daughters. 5. M. Scott Peck: The Road Less Travelled. 6. Delany, Delany & Hearth: Having Our Say. 7. Dolly Parton: Dolly. 8. Christopher Ogden: Life of the Party. 9. Maya Angelou: I Know why the Caged Bird Sings. 10. Thomas Moore: Soul Mates. 11. Nathan McCall: Makes Me Wanna Holler. 12. Robert Fulghum: Maybe (Maybe Not). 13. Karen Armstrong: A History of God. 14. Laurence Leamer: The Kennedy Women. 15. Bailey White: Mama Makes up Her Mind. (Byggt á New York Times Book Review) Eftir rúma viku veröa liöin eitt hundraö ár frá því aö enska ljóö- skáldið og rithöfundurinn Robert Graves faeddist (1895-1985). Af því til- efni hafa margar bækur um ævi hans og rit séð dagsins ljós að undanfomu. Graves orti mikiö af Ijóðum, ekki síst um ástina, samdi þekktar skáld- sögur (I, Claudius) og skrifaði rit- gerðir og fyrirlestra um skáldskap sem vöktu mikla athygli á sínum tíma og höföu veruleg áhrif. Það á ekki síst viö um þá frægu bók The White Goddess sem fjallar um kon- una sem skáldgyðju og mikilvægi þess fyrir sérhvern höfund að eiga sér slíka kvenlega uppsprettu skáld- legrar andagiftar. Leitin að gyðjunni Graves átti um margt óvenjulega ævi sem einkenndist af leit hans að konum sem gætu gegnt þessu gyðju- hlutverki í lííi hans. Sambúð hans og bandarísku skáldkonunnar Laura Riding var sérstaklega erfið, enda var hún talin geðbiluð. Hennar vegna yfirgaf Graves eiginkonu sína og flutti frá Bretlandi tif Mallorca. Og þegar Laura var horfin á braut komu aðrar og yngri konur í hennar stað allt fram til hins síðasta. Þetta er allt saman rakiö ítarlega í sumum þeim ævisögum sem nú hafa birst, en þessar eru helstar: Robert Graves and the White Goddess er þriðja bindi ítarlegrar úttektar á ferli skáldsins eftir frænda hans, Richard Perceval Graves. (Hin- Robert Graves á efri árum. Umsjón Elías Snæland Jónsson ar fyrri heita: The Assault Heroic: 1895-1926 og The Years with Laura: 1926-40, og eru til í pappírskiljum). I Robert Graves: Life on the Edge lítur Miranda Seymour meðal ann- ars á verk og kenningar skáldsins frá sjónarhomi kvenna. Loks hefur Martin Seymour-Smith sent frá sér endurskoðaða útgáfu af eldri bók sinni um höfundinn. Ro- bert Graves: His Life and Work nefnist hún og er að sögn saga skáldsins eins og hann vildi sjálfur að hún væri sögð. Þá er einnig auðvelt að nálgast sjálfsævisögu sem Robert Graves sendi frá sér tiltölulega ungur að árum, það er árið 1929. Þar rekur hann fyrri hluta ævi sinnar, m.a. hin erfiðu ár sín sem hermaður á vígvöll- um fyrri heimsstyrjaldarinnar. Breytti ljóðunum Fyrir þá sem vilja kynna sér ljóð Graves og ritgerðir hans um skáld- skap er úr ýmsu að velja. í tilefni afmælisins hefur komið út sýnishorn ljóða hans: The Centen- ary Selected Poems sem hefur að geyma 151 ljóð. Og boðað er seinna á árinu fyrsta bindi nýrrar heildarút- gáfu af ljóðum skáldsins. Þess ber aö geta að Graves hafði fyrir sið að breyta verulega ljóðum sínum eftir að þau birtust fyrst á prenti, og ekki alltaf til hins betra. Síðasta heildarsafn ljóða hans, Collected Poems frá árinu 1975, ber þess nokkur merki. Ýmsar ritgerðir skáldsins um ljóðagerð eru birtar í nýrri bók sem heitir einfaldlega Collected Writ- ings on Poetry. Þar á meðal eru fyr- irlestrar sem hann flutti við háskól- ana í Oxford og Cambridge. Bretland Skáldsögur: 1. Maeve Binchy: The Glass Lake. 2. James Herbert: The Ghosts of Sleath. 3. John Grisham: The Chamber. 4. Terry Pratchett: Soui Music. 5. Minette Walters: The Scold's Bridle. 6. Jeffrey Archer: Twelve Red Herrings. 7. Allan Folsom: The Day after Tomorrow. 8. Joseph Heller: Closíng Time. 9. Madeleine Wickham: The Tennis Party. 10. lan M. Banks: Feersum Endjinn. Rit almenns eðlis: 1. Bill Bryson: Made in America. 2. John Berendt: Midnight in the Garden of Good and Evil. 3. Ffyona Campbell: On Foot through Africa. 4. Stephen Hawking: A Brief History of Time. 5. Eric Newby: A Small Place in Italy. 6. Jung Chang; Wild Swans. 7. Julian Barnes: Letters from London. 8. Andy McNab: Bravo Two Zero. 9. Tim Jackson: Virgin King. 10. Margaret Thatcher: The Downing Street Years. (Byggt á The Sunday Times) Danmörk 1. Juiíane Preisler: Kysse Marie. 2. Jung Chang: Vilde svaner. 3. Jostein Gaarder: Sofies verden. 4. Jorn Riel: En underlig duel. 5. Hanne-Vibeke Holst: Til sommer. 6. Kirsten Hammann: Vera Winkelwir. 7. A. de Saint-Exupéry: Den lille prins. (Byggt á Politíken Sondag) Vísindi Helíum varð til viö miklahvell í árdaga Úti i ómælisvíddum geimsins hafa vísindamenn fundið helíum. Þunglyndi módur hefur áhrif á syni Breski geðlæknirinn Deborah Sharp hefur komist aö því aö þunglyndi mæðra eftir fæðingu hefur meiri áhrif á greind pilta en stúlkna. Hún rannsakaöi 250 konur í suðurhluta Lundúna og kom í ljós aö þriðjungur þeirra þjáðist af andlegum kvilla, aðal- léga þunglyndi, fyrsta áríð eftir fæðinguna. Þegar bömin voru fjögurra ára gömul voru þau látin taka próf sem sýndu fram á að greindar- vísitala drengja sem áttu þung- lyndar mæður var talsvert lægri en hjá dætrum þunglyndra mæðra. „Drengir eru hugsanlega bara viðkvæmari iyrir streitu snemma á lífsleiðinni. Karlar eru kannski bara veika kynið," segir Sharp. Stress og krankleiki Til þessa hefur það verið lækn- um hulin ráögáta hvers vegna of mikil streita veldur þreytu og sjúkdómum. Bandarískir læknar hafa nú sett fram tílgátu sem kann aö skýra það aö hluta. í grein í breska læknablaðinu Lancet halda læknarnir þvi fram að hormón sem myndast við streitu hengi sig á ónæmisfrumur og örvi þar með vöxt prótíns sem auðveldi veírum að margfaldast. Umsjón Guðlaugur Bergmundsson Stjarnvísindamenn hafa fundið frumefnið helíum í meira en níu milijarða ljósára fjarlægð frá jörð- inni og að sögn þeirra myndaðist það hugsanlega við miklahvell, spreng- inguna sem talin er hafa orðið við upphaf alheimsins. Vísindamennimir uppgötvuðu hel- íumið meö aðstoð sérstaks útfjólu- blás sjónauka sem bandarísk geim- skutla flutti fyrir þá út í himingeim- inn. Til að koma auga á helíum þetta verður aö fara með stjömusjónauk- ann út fyrir andrúmsloft jarðarinn- ar. Arthur Davidsen, stjarneölisfræð- ingur viö Johns Hopkins háskólann í Bandaríkjunum, segir að tílvist hel- íums svo langt í burtu styðji kenn- ingar manna um miklahvell. „Hlutí kenningarinnar gengur út frá því að eftir miklahvell hafl um- heimurinn að níu tíundu hlutum verið fylltur með vetni og að einum tíunda með helíumi," segir Davidsen. „Gasið fyllti allan himingeiminn og var ipjög heitt." Gasið kólnaði svo með tíð og tíma þar tíl hitastigið var aðeins nokkrar milljónir gráða. Á sama tíma þéttist það svo stjörnur og stjörnukerfi gátu myndast. Öll önnur frumefni, þar á meðal þau sem áttu þátt í myndun lífs, eru talin hafa orðið til í tengslum við líf og dauða stjamanna. „Helíum er ekki neitt framandi efni,“ segir Davidsen. Heldur er það hlutí af uppruna alls efnis, segir hann. „Það varð til við miklahvell og við urðum til út frá því.“ Því hefur lengi verið haldið fram að vetnið og helíumið, sem urðu til við miklahvell, sé enn að finna úti í himingeimnum. Stjarnvísindamenn hafa í meira en þrjátíu ár reynt að finna sannanir fyrir því. Sú leit hefur þó ekki borið árangur en við hana notuðu þeir venjuleg mæhtæki á jörðu niðri. Talið er aö gasatómin séu ósýnileg mæhtækjum á jörðinni af því að þau hafi jónast, þ.e. að rafeindir þeirra era á bak og burt. Jafnvel Hubble- geimsjáin er ekki útbúin til að greina helíumið. Arthur Davidsen og félagar hans gengu út frá því að hægt væri aö koma auga á hluta gassins þar sem tvær rafeindir væru á helíuminu og þvi væri erfiðara fyrir það að jónast. Þess vegna ætti að vera auðveldara að sjá það. Þeir smíðuðu því sér- stakan stjörnusjónauka til að rann- saka máhö og fundu helíumið svo sem áður greinir. Saur leyndar- dómurinn Vísindamenn við Indiana- háskóla í Bandaríkjunum hafa komist að leyndardómnum á bak viö líf í mestu hafdjúpunum: Saur. Rannsóknir þeirra leiddu í ljós að i árdaga var nánast ekkert súrefni í höfunum, ólíkt því sem er í dag þar sem súrefhi er alls staðar nema ef til vill í dýpstu setlögum. Mestallt súreíhið sem var framleitt af þörungum eða við ljóstillífun komst ekki niður á hafsbotninn. Fyrir 540 til 590 miUjónum ára komu fram dýr sem þróuöu melt- ingarkerfi og saur þeirra féll hratt til botns þar sem önnur dýr átu hann. Það varð svo til þess að aukiö loft fór um djúpsæviö og dýr settust aö á hafsbotninum. Halastjömur í jaðrinum Stj arn vísindamenn viö ríkishá- skólann í Texas hafa, með aöstoð Hubble stjörnusjónaukans, fund- íð halastjörnur við útjaðar sól- kerfisins. Það ku vera jafn merkilegt og aö finna nál í heystakki aö koma auga á halastjörnur þessar. Að sögn Anitu Cochran, sem stjóm- aöi rannsóknarhópnum, eykur uppgötvunin líkuraar á að hægt sé aö sanna tílvist eins konar halastjörnuforöabúrs rétt hand- an Neptúnusar. Það var stjömufræðingurinn Gerard Kuiper sem fyrst kom með þá tilgátu fyrir rúmum 40 árum að haiastjörnubelti væri umhverfis sólkerfi okkar.

x

Dagblaðið Vísir - DV

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Dagblaðið Vísir - DV
https://timarit.is/publication/255

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.