Dagblaðið Vísir - DV - 15.07.1995, Síða 17
LAUGARDAGUR 15. JÚLÍ 1995
17
ísraelskur piltur heillaður af íslandi:
Margt sam-
eiginlegt með
þjóðunum
- segir Tal Ben-Shlömo um íslendinga og ísraela
túrista eins og tíðkast hjá flestum
siðvæddum þjóðum og eru jafnvel
oft dónalegir við þá. Maður er til
dæmis vanur því að ef menn ganga
um dyr sé þeim haldið opnum fyrir
þann sem á eftir kemur. En sá kurt-
eisissiður er ekki algengur á íslandi.
Annars kann ég að flestu leyti vel
við íslendinga og þeirra þjóðarsál.
ísraelar eru ekkert ósvipaðir íslend-
ingum í hátt. Ég held að það sé vegna
þess að bæði löndin eru einangruð
þó að það sé sitt á hvorn mátann.
Einangrun ykkar felst í því að búa á
eyju, en við erum einangraðir vegna
þess að þjóðirnar í kringum okkur
eru arabar og við tilheyrum þeim
ekki,“ sagði Tal Ben-Shlömo.
-ÍS
„Það var fyrir tveimur árum að ég
fékk brennandi áhuga á íslandi, en
ég get ómögulega munað hvað það
var sem fékk mig til þess. Mig minnir
þó að það hafi verið fræðsluþáttur
um ykkar fallega land sem kom mér
á sporið.
Eftir að áhuginn kviknaði hef ég
lesið nánast allt um ísland sem ég
hef komist yfir á hebresku og ensku,"
sagði Tal Ben-Shlömo, 18 ára ísra-
elskur piltur sem lét draum sinn
rætast og kom til íslands í hálfsmán-
aðar heimsókn að loknu mennta-
skólanámi í heimalandi sínu. Taf á
eina fimm pennavini á íslandi sem
hann heldur reglulegu sambandi við.
Herþjónusta
fram undan
og ég á góða vinkonu á Akureyri sem
ég kynntist á ferð minni þangað. Hún
ætlar að heimsækja mig til ísrael í
haust. Annars vekur það athygh
mína hve blandaðir íslendingar eru.
Þrátt fyrir að hér sé fullt af fólki með
ljósan htarhátt og dæmigert norrænt
útlit sjást einnig alíslenskir þegnar
með litarhátt sem algengur er í suð-
urhluta Evrópu."
Lítil virðing
fyrir ferðamönnum
„Það kom mér nokkuð á óvart, af
því að ísland er ferðamannaland, að
Islendingar bera enga sérstaka virð-
ingu fyrir túristum. íslendingar
leggja sig ekkert fram um að aðstoða
Eftir að áhuginn á íslandi kviknaði hefur israelinn Tal Ben-Shlömo lesið
nánast allt um ísland sem hann hefur komist yfir, á hebresku og ensku.
DV-mynd GVA
„Ég hef aldrei áöur komið til ís-
lands en er aðeins byrjaður að læra
íslensku. Ég lauk nýlega námi í
menntaskóla en eyði nú kærkomnu
fríi í ferðalög. Að þeim loknum fer
ég heim til að gegna herþjónustu.
Herþjónustan í ísrael er í 32 mánuði
en síðan hggur leiöin í háskóla.
Dvöl mín hér á íslandi varir ekki
nema 15 daga en héðan fer ég til
Finnlands þar sem ég verð í einn og
hálfan mánuö og undir lok ferðar-
innar eina viku í Eistlandi.
Þó að ég sé ekki nema 15 daga hér-
lendis hef ég náð að ferðast töluvert
um ykkar fahega land. Ég er búinn
að fara norður til Akureyrar, Mý-
vatns, hef séö Gullfoss, Geysi og fleiri
markverða staði. Ég fékk aö bregða
mér í dorgveiði í Eyjafirðinum frá
Hjalteyri og það var mjög gaman. Ég
fékk prjónaða á mig mjög góða ís-
lenska lopapeysu," sagði Tal og var
að sjálfsögðu íklæddur henni er við-
tahð var tekið. Hann taldi að peysan
ætti eftir að koma í góðar þarfir í
vetur í ísrael, því að hans sögn getur
hitinn vel farið undir frostmark
köldustu mánuðina þar.
„Ég var svo óheppinn að lenda í
slæmu veöri á ferð minni um Mý-
vatnssvæðið en annars hefur veður
verið nokkuð gott.“
Hitti Vigdísi tvisvar
Tal Ben-Shlömo þótti einna eftir-
minnilegast við dvöl sína hér á landi
að hafa hitt forseta íslands. „Ég sendi
fyrir nokkru síðan forseta ykkar,
Vigdísi Finnbogadóttur, mynd sem
ég teiknaöi af henni. Myndin hefur
greinilega borist henni í hendur, því
um síðustu jól sendi hún mér jóla-
kort þar sem hún þakkaði mér fyrir
sendinguna.
Á þessari stuttu heimsókn minni
til íslands var ég svo lánsamur að
hitta Vigdísi forseta tvisvar sinnum.
Annað skiptið var í Reykjavík og í
hitt skiptið í kirkju á Akureyri. í
bæði skiptin var það fyrir hreina til-
viljun,“ sagði Tal, sem þótti það
greinilega undarlegt að geta hitt
þjóðhöfðingja landsins á þennan
hátt.
Það kom ekki á óvart að Tal var
hrifmn af fegurð íslenskra kvenna.
„Konur á íslandi eru mjög fallegar
.b&
náj
^altalæW^ ^
lfaCdinn'95
r.ff
Gleði, skemmtun, útivera, Qölskyldan og góðir
félagar á vímuefnalausri útihátíð um næstu helgi
Gleöi
Sameiginlegt grill
Körfubolti - Hestaleiga
Veiði - Leikir
íþróttakeppni - Hugvekja
Aðgangur
Aðgangseyrir 2.500 kr. og ókeypis
fyrir börn 15 ára og yngri í fylgd
með foreldrum. Aðgangur greiddur
við innganginn.
EURO og VISA þjónusta
Nánari upplýsingar
hjá SÁÁ
í síma 581-2399
Skemmtun
Dansleikur með STJÓRNINNI
á föstudagskvöld og með
ÁLFUNUM laugardagskvöld.
Kvöldvaka - Gleðitríóið KÓZÝ
Grín og glens með
SPAUGSTOFUNNI
Börnin
íþróttir barna
Sérstök barnadagskrá á palli
Hæfileikakeppni - Utileikir
Barnadansleikur
Hestar fyrir börnin
Allir
, velkomnirj
Staður
og stund
21. til 23. júlí 1995