Dagblaðið Vísir - DV - 15.07.1995, Page 19

Dagblaðið Vísir - DV - 15.07.1995, Page 19
LAUGARDAGUR 15. JÚLÍ1995 19 Einn helsti sérfræðingur hérlendis í bakteríusýkingum er Karl Kristinsson, dósent og sérfræðingur i sýklafræði. DV-mynd GVA verka á fjölónæma stofna, kemst úr enterococcum í þessar bakteríur og þær mynda ónæmi þá erum við í vondum málum. Þetta er ákveðin tímasprengja sem menn eru hræddir við,“sagðiKarl. -ÍS Sýklalyfjaónæmi er vaxandi vandamál: Mannskæðar bakt- eríusýkingar geta orðið útbreiddar 16“ Pizza með: Nautahakki Skinku Bacon og Parmesan osti + 1,5 I. Coke (eða 2 giös í sal) „Bakteríuónæmi fyrir öllum sýkla- lyfjum geisar í Evrópu, hundruð þús- unda sýkjast og tugir þúsunda verða að lúta í lægra haldi í baráttunni við dauðann. Jafnframt geisa berklar af völdum berklabakteríuónæmis í As- íulöndum fjær. Meðferð er árangurs- laus og flestir látast." Ætla mætti, þegar þessar línur eru lesnar, aö verið sé að glugga í heim- ildir frá árinu 1896. Ætli einhverjir myndu ekki vera vantrúaðir ef þeim væri sagt að þetta gæti gerst áriö 1996, strax á næsta ári! Ástæðan er sú að bakteríur eru í síauknum mæli að mynda sýklalyfjaónæmi og það veldur miklum vandræðum í meðferð. Fjölmargir virtir læknar úti um allan heim halda því fram að það sé vel mögulegt að mannskæðar bakteríusýkingar, líkar þeim sem geisuðu í heiminum fyrr á öldum, geti vel geisað af þessum sökum á næstu árum. Fæstir hafa áhyggjur Nútímamaður í iðnvæddu þjóðfé- lagi hefur sáralitlar áhyggjur af venjulegum bakeríusýkingum. Þær koma oft fram nú á dögum en það hefur verið einfalt mál að fara til læknis, fá uppáskrifaðan lyfseðil fyr- ir fúkkalyfi, oftast nær penisillíni, og vandamálið heyrir sögunni til að nokkrum dögum hðnum. En málið er ekki svo einfalt. Vax- andi ónæmi sýkla gegn hefðbundn- um sýklalyfjum og nýrri afbrigðum þeirra er vandi sem menn ræða um heim allan. Sýklalyfin eru orðin gagnslítil gegn mörgum hinna alvar- legri sýkinga og ekki er hægt að úti- loka að senn kunni læknavísindin að standa í svipuðum sporum og fyr- ir hálfri öld í baráttunni gegn áður- greindum meinsemdum. Sérfræðingar segja að þetta sé mesta ógnunin við mannskepnuna síðan alnæmi kom fram. Á síðasta ári dóu um 25.000 manns á aldrinum 3-49 ára í Bandaríkjunum úr óút- skýranlegum sjúkdómum. Þeir voru allir með einkenni bakteríusýkingar sem ekki tókst að ráða við með hefð- bundnum lyfjum. Þessi sjúkdómstilfelli voru öll dreifð víða um fylki Bandaríkjanna og af þeim sökum hefur ekki verið Utið á þetta sem alvarlegt vandamál. Vandamálið á þó ekki, enn sem kom- ið er, við um allar bakteríur. Flestum þeirra er enn hægt að eyöa með sýklalyflum. Andvaraleysi ráðamanna Þeim fjölgar stöðugt bakteríunum sem hafa náð að mynda ónæmi gegn lyfjum mannskepnunnar. Þeir sem gerst til þessara mála þekkja úr heil- brigðisstéttum hafa miklar áhyggjur af andvaraleysi ráðamanna. * Miklu minna fé er eytt í rannsókn- ir á nýjum lyfjum eða nýjum ráðum sem beita má gegn þessum vanda en því sém eytt er í rannsóknir á al- næmi. Ástæðan er sú að vandinn við alnæmi liggur skýrt og ljóst fyrir og tiltölulega auðvelt er að greina fyrir- bærið. Vandinn við sýklalyijaónæmi er sá að oft tekur langan tima að greina hvers vegna hefðbundin lyf duga ekki og í sumum tilfeUum greinist það alls ekki. Langan tíma tekur að þróa ný lyf, þau þarf að prófa í nokk- ur ár áður en þau komast á markað. í mUlitíðinrii gætu vel komið upp stórkostlega mannskæð tilvik eins og þau sem greint hefur verið frá hér að framan. Einn helsti sérfræðingur hérlendis í þessum málum er Karl Kristinsson, dósent og sérfræðingur í sýklafræði. Misnotkun sýklalyfja „Við getum ekki haldið áfram eins og við höfum gert því að við þurfum á sýklalyfjum að halda í framtíðinni og megum ekki misnota þau eins og við gerum í dag. Við verðum að hægja á þessari óheUlaþróun með því að halda notkun á sýklalyfjum niðri til að tími vinnist fyrir lyfjafyrirtæk- in að finna ný sýklalyf," sagði Karl í samtali við DV. „ísland er aö einu leyti verr statt en mörg nágrannalanda okkar, Það er vegna þeirrar bakteríu sem helst veldur eyrnabólgu, lungnabólgu og heUahimnubólgu, svokallaöra pne- umococca. Þær bakteríur eru orðnar hlutfallslega ónæmari hérlendis en í nágrannalöndunum. Vandamálið er líka að stærsti hluti ónæmu bakter- íanna er einnig orðinn fjölónæmur. Þessu hafa fylgt meðferðarvanda- mál því við höfum ekki haft sýklalyf til inntöku og ef við höfum þurft að grípa til stungulyfja hefur þurft að leggja fólk inn á spítala. En því mið- ur er einnig farið að myndast ónæmi fyrir stungulyfjum og er það vanda- mál, sérstaklega í Bandaríkjunum, á Spáni og í Suður-Afríku. Þegar ónæmi gegn stungulyfjum bætist við hafa læknavísindin ekki mörg önnur ráð og segja má að þá séu menn aftur komnir á byrjunar- reitinn. Sem betur fer er það enn sem komið er sjaldgæft. Vandamálið er mikið í þriðja heiminum þar sem enginn skilningur er á þessum mál- um en heilbrigðisyfirvöld hérlendis eru sér mjög meðvitandi um vanda- málið og veita stuöning.“ Árið 1993 voru um 20% pne- umococca á íslandi komnir með ónæmi en 1994 hækkaði þessi tala ekki eins og hún hefur gert í öðrum löndum sem staðið hafa í sömu spor- um og við. „Nær alls staðar hefur þróunin verið upp á við, sífellt fleiri bakteríu- stofnar mynda ónæmi en talan virð- ist í bih hafa staðnæmst við um og undir 20% á íslandi. Við höfum verið að bera okkur saman við Norður- löndin og við notum meira af sýkla- lyfjum en þar tíðkast. En þar sem ástandið er hvað verst, á Spáni og í Ungverjalandi, er sýklalyfjanotkun margfalt meiri en á Norðurlöndum. Okkur hefur aðeins tekist að lækka sýklalyfj anotkunina síðustu ár en það hefur engri annarri þjóð tekist svo vitað sé. Því virðist sem hugsan- lega sé hægt að halda þessu í skefjum með því að takmarka sýklalyfjanotk- un eins og hægt er. Það eru hins vegar engin fordæmi fyrir því í sög- unni að tekist hafi að minnka hlut- fall ónæmra baktería með slíkum aðferðum í heilu þjóðfélagi. Því miður virðist engin heildar- lausn vera í sjónmáli. Læknavísindin reyna sífellt að finna nýja sýklalyfja- flokka til að ráða við sýkingar en það verða alltaf tímabundnar lausnir. Aldrei hafa fundist sýklalyf sem sýklarnir hafa ekki fundiö ónæmi gegn - og fræðilega séð er það ekki til miðað við þá þekkingu sem nú liggur fyrir. Sú staða gæti komið upp í framtíð- inni að engir sýklalyfjaflokkar finn- ist lengur. Bakteríur verði meira og minna búnar að mynda ónæmi og þá sé komin upp svipuð staöa innan þessarar greinar læknisfræðinnar og var á árum fyrri heimsstyijaldar þegar bakteríusýkingar voru meiri háttar vandamál. Þá munu væntan- lega komandi kynslóðir hugsa illa til okkar kynslóðar sem misnotaði sýklalyfin.“ Stórthlutverk íslands „Vísindalega séð gætu íslendingar gegnt mjög stóru hlutverki. Við erum í góðri aðstöðu vegna legu okkar og smæðar að halda vel utan um áhrif aðgerða á faraldsfræði sýklalyfja- ónæmis. Ef okkur tekst að sýna fram á að hægt sé að minnka ónæmið með því að minnka sýklalyfjanotkunina þá væru þaö meiri háttar upplýs- ingar fyrir læknavísindin. • Því miöur er það svo að bakteríur eru ekki einungis þess megnugar að stökkbreyta sér til að mynda ónæmi heldur geta þær einnig flutt hæfúeik- ann á milli sín. Nú eru menn að hafa hvað mestar áhyggjur af bakteríum sem kallaðar eru staphylococcar sem valda mjög algengum sýkingum eins og graftar- bólum og algengustu ígerðum. Stap- hylococcar hefa verið miklar spítala- bakteríur. Ef erfðaefni, sem segir til um ónæmi gegn einu lyfjunum sem *»■ '

x

Dagblaðið Vísir - DV

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Dagblaðið Vísir - DV
https://timarit.is/publication/255

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.