Dagblaðið Vísir - DV - 15.07.1995, Síða 21

Dagblaðið Vísir - DV - 15.07.1995, Síða 21
Eggert Arnar Kaaber fer með hlutverk Jóseps í söngleiknum. Ásamt honum á myndinni ern bræður hans. Söngleikurinn er sýndur í Tjarnarbíói. ísland (plötur/diskar) | 1. (1 ) Reif í runnann Ýmsir I 2. ( 2 ) Post Björk $ 3. ( 3 ) Sól um nótt Sálin hans Jóns míns t 4. ( 5 ) Bitilæði Sixties i 5. ( 4 ) Smash Offspring t 6. ( - ) Heyrðu 7 Ýmsir | 7. ( 6 ) Stjómarlögin 1989_1995 Stjómin i 8. ( 7 ) Pulp Fiction Úr kvikmynd Í 9. ( 8 ) Mirror Ball Neil Young * 10. (15) History - Past, Present and Future... MichaelJackson Í 11. (10) Twisturinn Vinir vors&blóma i 12. ( - ) Root Down Beastie Boys Í 13. ( 9 ) Teika Bubbi & Rúnar i 14. (12) Pulse Pink Floyd Í 15. (11) ForrestGump Úr kvikmynd i 16. (14) Batman forever Úr kvikmynd 4 17. (Al) Dummy Portishead 118. ( - ) Weezer Weeze i 19. (13) Dookie Green Day i 20. (16) Maxinquaye Tricky Listinn er reiknaöur út frá sölu í öllum helstu hljómplötuverslunum í Reykjavík, auk verslana víða um landið. London (lög) ) 1-( 1 ) Boom Bom Boom Outhere Brothers * 2. ( - ) Allright/Time Supergrass t 3. ( 4 ) Shy Guy Diana King i 4. ( 2 ) Unchained Melody/White Cliffs... Robson Green & Jerome Flynn i 5. (3) l'maBeliever EMF/Reeves and Mortimer i 6. ( 5 ) Whoomph! (There It Is) Clock t 7. (10) In the Summertime Shaggy Featuring Rayvon t 8. ( - ) Happy MN8 | 9(9)1 Girl Like You Edwyn Collins i 10. ( 6 ) Hold Me, Thrill Me, Kiss Me... U2 New York (lög) Söngleikurinn um Jósep og undra- verðu skrautkápuna hans eftir þá Andrew Lloyd Webber og Tim Rice verður frumsýndur í Tjarnarbíói á morgun, þann 16. júlí. Um frumsýn- ingu í Reykjavík er að ræða en söng- leikurinn hefur áður verið settur upp í Keflavík og á Akureyri. Þetta er fyrsti söngleikurinn sem þeir frægu félagar Webber og Rice sömdu en hann var frumsýndur í Lundúnum árið 1968. Ferðaleikhúsið hefur veg og vanda af uppsetningu verksins hér á landi að þessu sinni en leikstjóri er Kristín G. Magnús. Hún hefur langa reynslu að baki sem slíkur en þetta er í fýrsta skipti sem hún leikstýrir söngleik. Sjálf sá hún fyrstu upp- færslu verksins í Lundúnum á sín- um tíma og hefur að sögn lengi haft hug á að setja það upp en ekki haft tækifæri til fyrr en nú. Og hún bæt- ir þvi við að væri hún að byrja leik- listarferilinn myndi hún vilja ein- beita sér að söngleikjum. Byggir á sögu úr Mósebók Söngleikurinn byggir á sögu úr Mósebók en skiljanlega er farið nokk- uð frjálslega með efnið enda Biblían ekki skrifuð með söngleikjahald í huga. Tónlistin í verkinu er mikið samkrull þar sem blandast saman rokk í anda sjötta áratugarins, popp í anda þess sjöunda, frönsk kaffihúsa- tónlist, kántrí, calypso, kórtónlist og ýmislegt annað. Tveir af aðalleikur- um sýningarinnar, þeir Eggert Kaaber sem leikur Jósep og Guðjón Bergmann sem leikur Faraó, segja tónlistina síður en svo gamaldags og úrelta; þetta sé að mörgu leyti sígild dægurtónlist; ákaflega fjölbreytt og lifandi. Sama sé reyndar að segja um alla sýninguna enda telji margir að þetta sé litríkasta verk þeirra Webbers og Rice. Mannmörg sýning Mikill fjöldi leikara og söngvara kemur fram í sýningunni, samtals rúmlega 20 manns, en alls voru um 100 prófaðir þegar verið var að velja í hlutverkin. Flestir hafa einhverja reynslu af ýmist söng- eða leiklist en engu að síður segir Kristín það mik- il viðbrigði fyrir sig að leikstýra svo stórum hópi af áhugaleikurum. Það sé að mörgu leyti erfiðara en skemmtilegt á sinn hátt og hún líti á þetta sem sitt tækifæri til að koma nýju, upprennandi listafólki á fram- færi. Aðalhlutverkin í söngleiknum eru sem fyrr segir í höndum þeirra Guðjóns Bergmanns og Eggerts Kaabers sem báðir hafa áður komið fram í söngleikjum. Eggert lék í söng- leiknum Kiss Me Kate sem settur var upp á Akureyri fyrir nokkrum miss- erum en Guðjón söng eitt aðalhlut- verkið f söngleiknum Grease sem sýndur var á Hótel íslandi í fyrra. í öðrum aðalhlutverkum í Jósep eru þau Hrafnhildur Bjömsdóttir söng- kona sem er í hlutverki sögmnanns og Nuno Miguel Carrilla sem leikur Judah. Tónlistarstjóri sýningarinn- ar er Michael Jón Clarke og danshöf- undur er David Greenall frá íslenska dansflokknum. Ljósahönnuður er Lárus Bjömsson en leikmynd og bún- inga hannaði Kristín G. Magnús. Um skreytingu leikmyndar sá Eyþór Stef- ánsson og Helga Rún Karlsdóttir hannaði höfuðskraut leikara. Fall er fararheill Kristín G. Magnús er með fleiri jám í eldinum en Jósep, því samhliða æfmgum á söngleiknum hefur hún verið að æfa verk fyrir Light Nights leikhúsið. Það var frumsýnt síðast- liðinn mánudag og er líka sýnt í Tjamarbíói. Þess vegna er leikmynd- in hönnuð með þeim hætti að ekki þarf annað en að snúa henni við, og þá breytist Egyptaland í einu vet- fangi í skála frá víkingaöld og ís- lenska baðstofu. Reyndar hefur leik- myndin verið að stríða Kristínu því á dögunum vildi það óhapp til þar sem hún var stödd uppi á hluta henn- ar, að hún féll niður á leiksviðið og rifbeinsbrotnaði. Hún kippir sér þó ekki upp við þetta og lítur á þetta fall sem fararheill samanber það að leik- húsfólki er yfirleitt óskað ófamaðar fyrir sýningar. Sigurður Þór Salvarsson ^Bretland (piötuiýdiskarP^) | 1. (1 ) These Days Bon Jovi | 2. ( 2 ) History - Past Present and Future Michael Jackson t 3. ( 6 ) Singles Alison Moyet t 4. ( 5 ) The Color of My Love Celine Dion t 5. ( 8 ) Picture This WetWetWet ( 6. ( 3 ) Foo Fighters Foo Fighters t 7. (13) IShouldCoco Supergrass • 8. (10) Pulse Pink Floyd ( 9. ( 7 ) Post Björk ( 10. ( 4 ) Mirror Ball Neil Young Bandaríkin (piötur/diskar) ( 1. ( - ) History-Past Present and Future... Michael Jackson | 2. ( 2 ) Pocahantas Poverty's Úr kvikmynd ( 3. (1 ) Cracked Rear View Hootie and the Blowfish t 4. ( 4 ) Crazysexycool TLC t 5. ( 6 ) Batman forever Úr kvikmynd ( 6. ( 5 ) Throwing Copper Live ( 7. ( 3 ) Pulse Pink Floyd ( 8. ( 7 ) John Michael Montgomery John Michael Montgomery t 9. ( 9 ) II Boyz II Men (10. ( - ) The Woman in Me Shania Twain

x

Dagblaðið Vísir - DV

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Dagblaðið Vísir - DV
https://timarit.is/publication/255

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.