Dagblaðið Vísir - DV - 15.07.1995, Qupperneq 23
LAUGARDAGUR 15. JÚLÍ 1995
23
Skák
Ellefu ára
enskt
undrabarn
Skáksagan á það sammerkt með
sögu tónlistar og stærðfræði að
greina frá undrabömum. Svo virðist
sem fæddir skáksnillingar kunni list-
ina að láta reiknigetuna og hljómfall
áttundanna sameinast á skákborð-
inu. Capablanca var sagður hafa lært
mannganginn 5 ára gamall með því
einu að fylgjast með föður sínum að
tafli. Reshevsky tefldi fjöltefli víða
um Evrópu 8 ára gamall og raunar
var Jón Hálfdánarson á sama aldri
er hann tefldi fjöltefli hér á landi, við
20 manns eða fleiri.
Garrí Kasparov var aðeins tólf ára
er hann varð skákmeistari Sovétríkj-
anna yngri en 18 ára og Bobby Fisc-
her var einnig tólf ára er hann varð
unglingameistari Bandaríkjanna og
þremur árum síðar var hann orðinn
stórmeistari.
Mörgum þykir heillandi við skák-
listina hvernig óþroskaður ungling-
urinn getur leikið sér að eldri og vitr-
ari mönnum eins og köttur að mús
- stundum er eins og bestu leikimir
hreinlega komi „að handan“. Svo
eiga öldungarnir einnig sína spretti,
eins og Vassily Smyslov (74 ára), sem
enn er að hækka að stigum.
Síðustu ár hafa nokkur undraböm
skotið upp kollinum sem óðara hefur
verið líkt við Fischer eða Kasparov.
Kvikmyndin „Leitin að Bobby Fisc-
her“, sem sýnd var í Háskólabíói,
greindi t.a.m. frá ungum Bandaríkja-
manni sem sagður var heimsmeist-
araefni. Síðan myndin var gerð hefur
hins vegar lítið til hans spurst, utan
hvað hann tapaði fallega fyrir Karli
Þorsteins á Saint Martin í hittifyrra.
Trúlega hefur kvikmyndin ekki ver-
ið skákferh hans til framdráttar þó
að enn sé of snemmt að gefa upp alla
von.
Við íslendingar þurfum ekki að
kvarta yfir efnisskorti í góða skák-
menn eins og ólympíugull í Las
Palmas tók af öll tvímæh um. Hins
vegar eru skrefln mörg og leiðin
grýtt í átt að stórmeistaratith og þar
getur bmgðið til beggja vona.
Umsjón
Jón L. Árnason
Etienne Bacrot heitir tólf ára gam-
ah Frakki sem landar hans binda
miklar vonir við. Bacrot hefur þegar
krækt sér í tvo áfanga af þremur að
alþjóðlegum meistaratith og þrátt
fyrir ungan aldur hefur hann 2300
Elo-stig. Bacrot á heima í kvik-
myndaborginni Cannes í Suður-
Frakklandi og hefur notið þjálfunar
stórmeistarans kunna, Jóseps Dorf-
mans, sem er fyrrverandi aðstoðar-
maður Kasparovs. Bacrot sigraði
nýlega á alþjóðlegu móti í Genf í
Sviss. Verði hann alþjóðlegur meist-
ari á næstu mánuðum jafnar hann
aldursmet Juditar Polgar sem tólf
ára gömul náði tithnum.
Englendingar hafa einnig blásið í
herlúðra. Á alþjóðlegu móti í há-
skólabænum Cambridge í síðasta
mánuði vakti ellefu ára Lundúnabúi,
Luke McShane, verðskuldaða at-
hygh. Piltur vann fjórar fyrstu skák-
irnar á mótinu og meðal fórnarlamba
hans voru enskur stórmeistari og
þekktur rússneskur alþjóðlegur
meistari. McShane tókst þó ekki að
fylgja eftir góðri byijun og hafnaði
aö lokum í þriðja sæti ásamt stór-
meisturunum Arkell (sem hann
vann) og Conquest.
Auðvitað sjá Englendingar nýjan
heimsmeistara í Luke McShane, eða
í það minnsta arftaka Shorts og Ad-
ams, stigahæstu ensku stórmeistar-
anna. Enskir eru svo sem ekki óvan-
ir því að fást við undraböm. Stór-
meistarinn John Nunn sló þar tvær
flugur í einu höggi. Nunn varð hvort
tveggja í senn, stórmeistari og doktor
í stærðfræði frá Oxford-háskóla, að-
eins 23 ára gamall.
McShane hefur ekki náð sambæri-
legum árangri og Bacrot hinn franski
en ef ungur aldur hans er haföur í
huga tefhr hann býsna vel. í skákum
' hans er skemmtileg hrynjandi, svo
minnir á... sjálfan Fischer?
Lítum á bestu skák McShane frá
Cambridge.
Hvitt: Luke McShane
Svart: Alexander Baburin
Aljekins-vörn.
1. e4 RPB 2. e5 Rd5 3. d4 d6 4. Rf3 Bg4
5. Be2 e6 6. 0-0 Be7 7. h3 Bh5 8. c4 Rb6
9. Rc3 0-010. Be3 d511. c5 Bxf312. gxfí
Þessi leikur hefur tekið við af 12.
Bxf3 Rc4 eins og tefdlist m.a. í 19.
einvigisskák Spasskíjs og Fischers í
Reykjavík. Hvítur varnar riddaran-
um útgönguleið til c4 og hyggst nýta
sér hálfopna g-línuna til sóknar.
12. - Rc8 13. b4 Rc6 14. Da4
Þama stendur drottningin ekki
sérlega vel. Möguiegt er 14. f4 því að
ef 14. - Rxb4 ógnar hvftur riddaran-
um og tekur svo á b7. Einnig kemur
14. b5 Ra516. Da4 b617. c6 til greina.
14. - Bh415. Bd3 f616. f4 R6e717. Re2
Rf5
Betra er 17. - fxe5, sem fyrr eða
síðar er nauðsynlegt til að koma
biskupnum til byggða.
18. Bxf5 exf5 19. Dc2 Re7 20. Kh2 Dd7
21. Hgl Kh8 22. Hg2 a5? 23. Rgl! fxe5
24. dxe5 Rc6
Ef nú 25. b5 Rb4 26. De2 d4 27. Hdl
d3 og svartur nær að rétta úr kútn-
um.
25. Rf3! Rxb4
Eftir 25. - Bd8 26. b5 er svartur
ekki öfundsverður af stöðunni en
þetta var þó skárri kostur.
26. Db2 De7
Svarið við 26. - Bd8 yrði 27. e6 De7
(ef 27. - Bf6 28. Dxf6!) 28. Hagl Hg8
29. Bd4 og nú er engin leið til að valda
g?-
27. Hagl Hg8 28. Rxh4 Dxh4 29. e6 d4
30. Bxd4 Dxf4+ 31. Khl h6 32. Bxg7+
Kh7 33. Df6
- Og svartur gafst upp.
Sigurður Daði
vann alla
Sigurður Daði Sigfússon fékk 7
vinninga úr jafnmörgum skákum á
boðsmóti Taflfélags Reykjavíkur sem
lauk sl. mánudag. Hann varð tveim-
ur vinningum fyrir ofan næstu
menn, þá Torfa Leósson, Sigurbjöm
Björnsson, Kristján Eðvarðsson,
Bjarna Magnússon og Pál Agnar Þór-
arinsson.
Þátttakendur á boðsmótinu vom
fjörutíu.
Einn auðugasti maður Evrópu til íslands:
Smyglaði fólki
yfir j ámtj aldið
Sigurður og Hasso á góðri stundu í kastala Hassos á Mallorca. Hákarl er
i uppáhaldi hjá Hasso og færir Sigurður honum alltaf nokkur kíló þegar
hann fer í heimsókn til Mallorca.
Við sumarhöll Hassos, Villa George Sands, á Mallorca.
Vel kæstur hákarl er einn af eftir-
lætisréttum eins auðugasta manns
Evrópu, Hassos von Schutzendorfs,
sem væntanlegur er í heimsókn til
Sigurðar S. Bjamasonar í Hafnar-
firði á næstunni.
„Ég má aldrei koma í heimsókn
til hans á Mallorca án þess að koma
með nokkur kíló af vel kæstum
hákarh. Hann drekkur frosið viskí
með hákarlinum," segir Sigurður
sem var starfsmaður Hassos á bíla-
leigu sem hann stofnaði á Mallorca
1962. Síðan hafa þeir verið góðir
vinir. Hasso þótti Sigurður efnileg-
ur starfsmaður og vildi að hann
gerðist meðeigandi. „Maður ætti
þá kannski að minnsta kosti hlut í
kastala hefði maður slegið til,“ seg-
ir Sigurður.
Hasso von Schútzendorf er Þjóð-
veiji sem gerðist liðhlaupi í her
Hitlers í seinni heimsstyijöldinni.
Hann var handtekinn af Rússum
og sat í fangelsi í Póllandi þar til
bandamenn leystu hann úr haldi í
stríðslok. Að sögn Sigurðar var
Hasso lítið annað en skinn og bein,
eftir meðferðina í fangabúðunum.
Fjölskylda hans var efnuð en
auður hennar lenti í höndum
kommúnista. Schútzendorf tókst
hins vegar að safna auði á nýjan
leik með því að smygla varningi
og fólki yfir jámtjaldið. Hann var
með sérbyggða bíla og hjálpaði
Qölda fólks. Þegar starfsemin
komst upp var Hasso yfirlýstur
versti óvinur Austur-Þýskalands
og dæmdur til dauða, að því er Sig-
urður greinir frá. Til að lenda ekki
í klóm útsendara Austur-Þjóðveija
flúði Hasso til Spánar og hefur haft
aðalaðsetur sitt þar síðan.
Hasso á gríðarstóran kastala
skammt fyrir norðan Palma á Mall-
orca. „Kastalinn er með mörgum
íbúðum, útbyggingum, bílageymsl-
um, starfsmannahúsum og fleiru,
eins og var í gamla daga. Hasso á
einnig sumarhöll sem er byggð í
þverhníptum klettum rétt við
Valdemosa á Mallorca. Svo á hann
hús í Dusseldorf þar sem hann
dvelur talsvert," greinir Sigurður
frá.
Hann segir Hasso eiga mikið
landsvæði umhverfls kastalann.
„Hann er með einkatennisvöll og
einkadýragarð. Það eru tólf ljón í
dýragarðinum, tvö tígrisdýr, gór-
illuapar og fleiri apategundir,
slöngur og ýmis önnur dýr. Hasso
gengur oft með fjögurra og hálfs
metra langa kyrkislöngu um háls-
inn. Hann segir að eftir að hann
hætti smygjinu þurfi hann að hafa
ákveðna spennu í lífinu. Annað-
hvort éti dýrin hann eða ekki.“
í Þýskalandi er Hasso kallaður
bílakóngurinn í tímaritum. Hann á
stærstu bílaleigu Spánar og margs
konar fyrirtæki um allan heim.
Hasso, sem er nýorðinn sjötugur, á
fjölmörg hjónabönd aö baki og er
nýjasta konan, Astrid, 27 ára.
Brúðkaup þeirra var haldið fyrir
tæpum tveimur árum í Las Vegas
og var Sigurði og eiginkonu hans,
Margréti Geirsdóttur, boðið í veisl-
una. „Hann bauð 300 vinum sínum
alls staðar að úr heiminum. Hann
smalaði okkur öllum saman í flugi
til Frankfurt og setti okkur inn á
dýrasta hótehð í borginni. Síðan
var leigð breiðþota fyrir okkur til
Bandaríkjanna í brúðkaupið. í Las
Vegas fengu allir gestirnir svítu á
einu dýrasta hótelinu þar. Það voru
leigðir sérsalir undir alls konar
veislur allan tímann," segir Sigurð-
ur.
Margt frægt fólk var meðal brúð-
kaupsgesta, þar á meðal leikkonan
Zsa Zsa Gabor sem er fyrrum kær-
asta brúðgumans.
Hasso komst í fréttir á íslandi í
fyrra þegar ein af fyrrverandi eig-
inkonum hans rændi syni þeirra
og grunur lék á að hún heföi farið
með hann th íslands. Konan kom
fram með barnið á Spáni og sættir
tókust á milli hennar og Hassos.
W Grindavík - ÍBV
sunnudag 16. júlí
í Grindavík kl. 20.
Vestmannaeyingar
stuðningsmenn
Hittumst kl. 18 á Glaumbar.
Fríar rútuferðir á leikinn og til baka.
Lagt verður af stað kl. 18.45.
Miðasala á staðnum.
Mætum öll og styðjum
okkar menn til sigurs. stuðningshópur íbv