Dagblaðið Vísir - DV - 15.07.1995, Síða 29

Dagblaðið Vísir - DV - 15.07.1995, Síða 29
LAUGARDAGUR 15. JÚLÍ 1995 37 Trimm Bryndís Svavarsdóttir: 11 sinnum í hálfmara- þon - vil láta alla hlaupa „Ég hef komið á fót almennings- hlaupi í þeim félögum sem ég hef starfað nema Ættfræðifélaginu. Það hefur ekki komist í verk enn,“ sagði Bryndís Svavarsdóttir í samtali við Trimmsíðuna. Bryndís hefur viðomefnið „ofur- skokkari" meðal trimmara og þykir bera nafnið með rentu. Hún lætur sér ekki nægja að hlaupa sjálf heldur kom hún á fót Vímuvarnarhlaupi Lions sem fer fram árlega í Hafnar- firði og Fræ-hlaupinu sem fer fram í annað sinn í Reykjavík í sumar og er einnig beint gegn vímu. Fræ- hlaupið fer einmitt fram í dag. Bryndís er harðduglegur skokkari sjáif fyrir utan þetta og hefur síðan 1991 hlaupið hálft maraþon 11 sinn- um og heilt maraþon einu sinni en það gerði hún í Stokkhólmi fyrr í sumar. Bryndís segist leggja mest upp úr því að hlaupa langt og kærir sig kollótta um hraðann. í hennar augum er aðalatriðið að taka þátt og ljúka hlaupinu. „Þetta var svona sumarfrí. Við hjónin vorum með börnin í Dan- mörku og brugðum okkur yfir til Stokkhólms þar sem ég tók þátt í heilu maraþoni en.börnin fóru svo í mini-maraþon daginn eftir. Ég var svolitið lerkuð í Stokkhólmi og hljóp lúshægt og lauk hlaupinu á 4:49. Það voru um 15 þúsund manns sem tóku þátt í hlaupinu en eftir 5:30 er mark- inu lokað og það voru 3 eða 4 þúsund manns sem luku ekki hlaupinu. Mannfjöldinn var shkur að það hðu rúmar 4 mínútur frá því að það var ræst þangað til ég fór yfir marklín- una en allir voru ræstir í einu og skipt niður í hópa eftir getu og þeir spretthörðustu fengu að vera fremst- ir. Það voru drykkjarstöðvar á 3 kíló- metra fresti en þar á mihi voru stöðv- ar þar sem var boðið upp á svampa, sælgæti, banana og alls konar hress- Bryndís Svavarsdóttir hefur ekki enn komið á almenningshlaupi í Ættfræði- félaginu. ingu. Sérstakir turnar voru á nokkr- um stöðum og þar voru keppendur hvattir gegnum gjaharhom. Þrjár eða fjórar hljómsveitir voru með jöfnu mihibih meðfram leiöinni og svo fjöldi áhorfenda. Leiðinni var ahri lokað fyrir bíla- umferð a.m.k. hálfri götunni og hlaupið hófst og endaði á ólympíu- leikvanginum í Stokkhólmi þar sem leikamir fóru fram 1912. Þetta var dásamleg upplifun og ég talaði við aðra keppendur alla leiðina. Þátt- tökugjaldið var um 2.600 krónur ís- lenskar og fyrir það fékk maður bol, þátttökupening og stórkostlega pastaveislu kvöldið áður. Mér fannst þetta aht vera frábær skipulagning Þeir sem hlaupa mikið ættu aö borða kolvetnisríka fæðu. Kartöflur, hrísgijón, pasta, ávextir, grænmeti, kommeti og brauð era aht fæðuteg- undir sem eru æskilegar fyrir fólk sem hreyfir sig mikið. Kolvetni er 8. vika 16/7-22/7 brennsluefni líkamans og með því að neyta kolvetnisríkrar fæðu byggir líkaminn upp glýkogenforða og hefur þá nóg af fljótfenginni orku. Þaö er þó ágæt regla að neyta ekki matar 2-3 tímum fyrir æfingu eöa keppni. 10km 21 km 42 km Sunnudagur 8 km ról. 22 km ról. 14 km ról. Mánudagur Hvíld Hvíld Hvíld Þriðjudagur 6km (hraðaleikur). 10km (hraðaleikur). 10km (hraðaleikur). Fýrst2kmról.og Fyrst 2 km ról. og síðan Fyrst 2 km ról. og síðan síðan 2 km hratt og 1 km hratt og siðan 1 km 1 km hratt síðan 1 km loks 2 km ról. hægt 3 sinnum og síðan 2 hægt 3sinnum og síðan 2 km km ról. í lokin ról. i lokin Miðvikudagur 7 km ról. 12km ról. 18 km ról. Fimmtudagur Hvíld 8 km ról. 14 km ról. Föstudagur 4 km ról. 8km ról. 12km ról. Laugardagur 4km 10km 10km jafnt ogfrísklega jafnt og frísklega jafnt og frísklega Samt.: 29 km 70 km 78 km og gæti vel hugsað mér að fara á hverju ári th Stokkhólms að hlaupa. Það vora 10 þúsund böm í minimara- þoninu." Bryndís tekur mjög virkan þátt í almenningshlaupum hér heima en hefur einu sinni áður farið til útlanda th að hlaupa. Það var í hálfu mara- þoni í Amsterdam sumarið 1994. „Mér finnst alveg stórkostlegt að fara svona til útlanda til að hlaupa. Það er miklu skemmthegra en þessar verslunarferðir. Ég ætla að fara út aftur í haust og er ekki enn búin að ákveða hvort ég fer th Berlínar eða Dublin í maraþon. Svo ætla ég ekki að missa af Fjöruhlaupi Þórs í Þor- lákshöfn sem er frábært.“ - En hvemig hófst þátttaka Bryndís- ar í hlaupum yfirleitt? „Ég hef alltaf verið heimavinnandi húsmóðir. Ég hætti að reykja 1983. Mér fannst það ekki erfitt enda bjó Umsjón Reykjavíkumiaraþon 20. ágúst: Kolvetnisrík fæða mikilvæg -10 km, hálfmaraþon og maraþon Páll Ásgeir Ásgeirsson ég mig vel undir það. Eg hætti fyrst fyrir hádegi og síðan alveg. Ég reykti einn og hálfan pakka á dag þegar ég reykti sem mest. Við að hætta að reykja bætti ég hægt og rólega á mig 10 khóum sem mér var lengi vel al- veg sama um. Svo kom að því að ég dreif mig í leikfimi 1991 og sá skömmu seinna htla frétt um hlaupa- hóp sem átti eins árs afmæh. Ég sá að þau hlupu frá Suðurbæjarlaug- inni í Hafnarfirði og næst mætti ég galvösk og sagði: Nú ætla ég að hlaupa með ykkur. Þetta fyrsta sum- ar var ég að rembast við að fara 23 khómetra og var nokkuð roggin og fór síöan 10 khómetra á Selfossi um haustið og fannst það alveg ótrúlegt afrek.“ Síðan hefur Bryndís hlaupið með Bláu könnunni en það heitir hópurinn sem nú fagnar sínu fimmta ■ hlaupaári frá Suðurbæjarlaug í Hafnarfirði. - En hvað skokkar Bryndís mikið í viku? „Ég fer svona um 30 khómetra í viku. Þegar ég var að keyra upp fyr- ir þátttökuna í heha maraþoninu í Stokkhólmi fór ég mest 80 kílómetra á viku. Þá fór ég eftir 16 vikna hlaupaáætlun sem ég sá í Hlauparan- um en mér fannst hún heldur stíf svo ég fór aldrei nákvæmlega eftir henni.“ - Hvað rak Bryndísi th þess að skipu- leggja Fræ-hlaupið og Vímuvarnar- hlaupið? „Ég er félagi í Lions og samtökun- um Vímulaus æska og vhdi láta gott . af mér leiöa. Þegar ég byijaði með Vímuvarnarhlaupið var ég sjálf ný- byijuð að skokka og fannst þetta kjörin aðferð th þess að kynna þessa dásamlegu íþrótt fyrir fleirum. Við höfum fengið 250-300 manns í Vímu- varnarhlaupið á ári. Ég sé alveg um undirbúninginn en á hlaupadaginn aðstoða skátarnir í Hafnarfirði við skráningu og þess háttar og þeir fá ahan ágóða af hlaupinu. Fræ-hlaupið var í fyrsta sinn í fyrra og þá komu rúmlega 200 manns og Vímulaus æska fær allan hagnað af því eða réttara sagt Fræðslumiðstöð samtak- anna.“ - Hvað ætlar Bryndis að gera í Reykjavíkurmaraþoninu í ár? „Ég býst við að fara hálfmaraþon, þó getur verið að ég skipti um skoðun og fari heilt. Mér finnst langbest að hlaupa hálft hérna í Reykjavík og hvet þá sem era að fara hálft í fyrsta sinn að byrja hér, Ég er farin að hlakka th á næsta ári þegar ég færist upp í flokk 40-49 ára en mér finnst ómögulegt hvað aldursflokkurinn 18-39 ára er stór.“ - Þú munt þá sennilega halda þessu áfram meðan fæturnir bera þig? „Þú getur verið viss um það. Ég er bogmaður og verð að hafa nóg fyrir y stafni og mér finnst þetta stórkost- legur lífsmáti sem hentar vel allri íjölskyldunni." Þó ber að hafa það í huga að ef þú ert tiltölulega meðvituð(aður) um það sem þú lætur ofan í þig og ert sátt(ur) við það þá skaltu halda þér við þitt fæði. Jakob Bragi Hannesson Næsti sunnudagur, 23 júlí, er ágætur. Þann sunnudag fer fram hið árlega Akureyrarmaraþon. Eins og glögga lesendur kann að gruna fer þaö fram á Akureyri. í boði eru 4 km skemmtiskokk, 10 km og hálfmaraþon en þetta hlaup er jafnframt Meistaramót íslands í hálfmaraþoni. Skipt verður í flokka samkvæmt venju og hægt er að skrá sveitir til leiks. Allir sem Ijúka hlaupi fá verðlaunapening en að auki era verðlaun fýrir sigurveg- ara í hveijum flokki og ríkuleg út- di'áttarverðlaun 26 talsins. Imúfal- in í skráningargjaldi er pastaveisla fyrir þá sem láta skrá sig fyrir 18 júlí. Að auki verður frítt í Sundlaug Akureyrar að loknu hlaupi. Allar nánari upplýsingar veita Sigurður Magnússon í sírna 462-7791 og Jón Ámason í síma 462-5279. er styrktaraðili Reykjavíkurmaraþonsins FLUGLEIBIR clSÍCS*^ Jf

x

Dagblaðið Vísir - DV

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Dagblaðið Vísir - DV
https://timarit.is/publication/255

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.