Dagblaðið Vísir - DV - 15.07.1995, Síða 39

Dagblaðið Vísir - DV - 15.07.1995, Síða 39
LAUGARDAGUR 15. JÚLÍ1995 47 Jón Hjálmar Sveinsson Jón Hjálmar Sveinsson kaup- sýslumaður, til heimilis að Miðhús- um í Reykhólasveit í Austur-Barða- strandarsýslu, er fertugur í dag. Starfsferill Jón fæddist að Miðhúsum og ólst þar upp við hefðbundin landbúnað- arstörf, dúntekju og selveiði. Hann lauk stúdentsprófi frá MÍ1976, stundaði nám og síðan herskyldu við konunglega norska sjóherinn 1977-85 eftir að hafa orðið annar hæstur á samkeppnisprófum í sjó- hersskólanum í Bergen, lauk þaðan prófum 1981 á raungreinalínu með áherslu á vopnatækni og gegndi þjónustu á norskum herskipum til samningsloka 1985, þar af tvö ár stórskotaliðsforingi og tundur- dufla-/ tundurskeytaforingi auk þess sem hann sá um gagnkafbáta- hemað og fjarskiptaöryggi. Þá var hann næstráðandi og afleysinga- skipherra á 380 tonna tundurdufla- slæðara með heimahöfn í Bergen og gegndi jafnframt stöðu stórskota- hðsforingja yfir deild fimm tundur- duflaslæðara. í lok þjónustunnar var Jón kapteinlautinant. Þá stund- aði hann nám í frnnsku við HÍ 1986-87 og á námskeiði við háskól- ann í Tampere, og stundaði nám í markaðsfræði við Parsons School of Design í New York 1987-88 þar sem hann komst á Deans List fyrir framúrskarandi námsárangur. Eftir að Jón sneri heim frá Noregi stundaði hann verslunarstörf, barnakennslu, vann í sláturhúsi Kaupfélags Króksfjarðar og sinnti sauðfjárbúskap að Miðhúsum. Hann hefur stundaði markaðsrann- sóknir og vöruþróun á æðardúni með hliðsjón af mörkuðum í Japan, Taívan og Þýskalandi en hann hefur unnið að því að opna markaði fyrir æðardúní Asíu. Þá hefur Jón unnið að endurbót- um á dúnhreinsitækni og hefur, ásamt rússneskum verkfræðingi, hannað og byggt nýjan dúnþurrk- ara. Auk þess hefur hann unnið brautryðjendastörf í dúnþvotti og lúxussængurgerð hérlendis og hef- ur kennt fjölda dúnframleiðenda útflutning, dúnþvott og sængur- gerð. Hann hefur skrifað fjölda blaða- greina um hin ýmsu málefni. Fjölskylda Systkini Jóns eru Guðmundur, f. 1957, d. 1974; IngibjörgErna, f. 19.5. 1960, hjúkrunarfræðingur við geð- deild Landspítalans; Þrymur Guð- berg, f. 31.5.1966, búfræðingur og starfsmaður við Þörungavinnsluna; Guðmundur, f. 13.4.1976, starfsmað- ur við Þörungavinnsluna. Foreldrar Jóns eru Sveinn Guð- mundsson, f. 2.7.1923, búfræði- kandidat, kennari og b. að Miðhús- um í Reykhólasveit, og k.h., Ólína Kristín Jónsdóttir, f. 15.7.1931, hús- freyja og kirkjuorganisti. Ætt Meðal systkina Sveins er Þórar- inn, íþróttakennari á Eiðum, faðir Sveins verkfræðings. Sveinn er son- ur Guömundar, b. á Kirkjubóli í Norðfirði, Sveinssonar, Guðmunds- sonar. Móðir Sveins var Stefanía, systir Erlendínu, móður Vilborgar Dag- bjartsdóttur skáldkonu. Bróðir Stef- aníu er Þorleifur, fyrrv. sveitar- stjóri í Kópavogi, faðir séra Sigfinns og Sigríðar, móður Björgvins Hall- dórssonar söngvara. Stefanía er dóttir Jóns, b. á Efra-Skálateigi í Norðfirði, Þorleifssonar. Ólína er dóttir Jóns, b. að Miðhús- um, Daðasonar, af Skógarströnd, bróður Kristjáns, afa Sigfúsar Daða- sonar skálds. Daði var sonur Daní- els, b. í Litla-Langadal, Sigurðsson- ar. Móðir Jóns var María Andrés- dóttir sem varð elst íslendinga, syst- ir skáldkvennanna Herdísar og Ól- ínu. Móðir ÓUnu var Ingibjörg, systir Finnboga, móður Þóru Benedikts- dóttur skáldkonu, móður Svölu Arnardóttur sjónvarpsþulu. Ingi- björg var dóttir Árna, b. í Kollabúð- um í Þorskafirði, Gunnlaugssonar. Afmæli Jón Hjálmar Sveinsson. COmpAÍr Holman Loftpressur og fylgihlutir 9 0 4 - 1 7 0 0 kr. 39.90 min. Don't lose contact with the world. Call 904-1700 and hear the latest in world news in English or Danish. ♦ NE$Slb«f 904*1700 Smáauglýsingar Hjónaband Vörubílar Til sölu Scania 113H, árg. ‘90, Sörling pallur, 12 tonnmetra krani. Selst einnig pall- og kranalaus. Til greina kemur að taka eldri bíl upp í. Uppl. í síma 853 6170 og 554 0605. til sölu Man, 16-240, árg. ‘83, álpallur og skjólborð. í góðu lagi, skoðaður “96. Uppl. í síma 482 2682. Leikhús LEIKFÉLAG REYKJAVÍKUR Stóra svið kl. 20.30. Rokkóperan Jesús Kristur SUPERSTAR eftir Tim Rice og Andrew Loyd Webber í kvöld uppselt, biölistl, sunnud. 16/7, örfá sæti laus, miðvikud. 19/7, föstud. 21/7, laugard. 22/7. Forsala aðgöngumiöa hafin. Miðasalan verður opin frá ki. 15-20 alla daga og einnig tekið á móti miðapöntunum i sima 568-8000 frá kl. 10-12 alla virka daga. Greiðslukortaþjónusta. Gjafakort - frábær tækifærisgjöf. Leikfélag Reykjavíkur- Borgarleikhús Faxnúmer 568-0383. band í Háteigskirkju af séra Vigfúsi Þór Árnasyni Signý Gyða Pétursdóttir og Valdimar Snorrason. Þau eru til heim- ilis að Ugluhólum 12, Reykjavík. Mynd, Hafnarfirði í Kópavogskirkju af séra Pálma Matthías- syni Þóra Möller og Halldór Jónsson. Þau eru til heinilis að Álfatúni 29, Kópa- vogi. Mynd, Hafnarfírði Ný og betri 38" radial Dick Cepek dekk dekkin eru komin. Dekkin eru með polyester þráðum í stað nælons áður. Þar sem allt fœst í jeppann Vagnhöfða 23 - S: 587-0-587 Dick Cepek á íslandi í 10 ár Sjóstangaveiði Fjölskylduferð með SS. Árnesi Sunnudag kl. 15.00 frá Ægisgarði Allar veitingar um borð. 3 tíma ferð kr. 1.500 Bókanir í síma 893 6030 í tilefni af Hveragerðisdögum bjóðum við afslátt af ýmsum vörum. HVERA Breiðumörk 21 - Sími 483-4655

x

Dagblaðið Vísir - DV

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Dagblaðið Vísir - DV
https://timarit.is/publication/255

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.