Dagblaðið Vísir - DV - 15.07.1995, Side 40

Dagblaðið Vísir - DV - 15.07.1995, Side 40
48 LAUGARDAGUR 8. JÚLl 1995 Sviðsljós Kynbomban Raquel Welch: Vill bara mann um helgar „Ég hef aldrei hitt nokkurn karl sem hefur gert mig ánægða,“ segir kynbomban Raquel Welch í nýlegu blaöaviötali. En Raquel hefur engu að síður verið ástfangin mörgum sinnum og þrisvar sinnum svo alvar- lega að hún fór til prestsins. Það seg- ir hún hins vegar hafa verið mistök sem hún ætli ekki að endurtaka. Raquel hefur ekkert á móti því að verða ástfangin aftur en er ekki viss um aö hún vilji deila heimili sínu með einhverjum. „Mér litist betur á að eiga sunnudagsmann, mann sem hægt væri að eyða rómantískri helgi með og svo færum við hvort í sína áttina." Raquel þykir enn ákaflega glæsileg þó hún sé orðin 54 ára og sumir gruna hana um að hafa farið í fegrun- araðgerðir. Því neitar hún. Hún kveðst ekki hafa látið sprauta silí- koni í brjóstin og ekki látið lyfta and- htinu. Það eina sem hún hafi gert er að láta rétta nefiö fyrir mörgum árum. Hún segir að útlit hennar sé í raun ekkert merkilegt og að hún myndi sjálfsagt líta út eins og heimavinn- andi húsmóðir ef hún stillti sér upp við hliöina á Sophiu Loren. Raquel hefur reyndar ekki slegið slöku við í að halda sér við. Hún ger- ir líkamsæfingar í margar klukku- stundir á dag og stundar jóga. Henni myndi aldrei detta í hug að troða í sig vínarbrauöi eða öðrum óhollum sætindum. Hún ólst upp í Kaliforníu og 18 ára gömul var hún kjörin fegursta stúlka fylkisins. Hana dreymdi um að kom- ast til Hollywood en í millitíðinni varð hún ástfangin af sjómanninum Jim Welch og ól honum dóttur. Ári seinna fæddist þeim sonur. Fjölskyldulífið var ekki eins og Raquel hafði hugsað sér og Holly- Whitney Houston. Erfítt að starfa með Whitney Houston Söngkonan Whitney Houston er áiitin dekruð sfjarna sem erfitt er að starfa meö. Hún er núna viö tökur á nýrri kvikmynd, Waiting to Exhale. Pyrir eitt atriðið þurfti að byggja leiktjöld í Arizona sem kostuðu um 400 þúsund dollara. Whitney neitaöi hins vegar aö taka þátt í prufutökum þar sem henni þótti of kalt. Við lá aö aöstandendur kvikmyndarinnar fengju hjarta- slag af reiði þvi leiktjöldin máttu bara standa yfir nótt þar sem þeim hafði verið komið fyrir. Núna býr Raquel Welch ein. Hún vill helst eiga mann bara um helgar. Raquel Welch er orðin 54 ára. Hún gerir líkamsæfingar i margar klukkustundir á dag til að halda sér í formi. wooddraumarinr gerðu aftur vart við sig. Raquel fékk vinnu á sjón- varpsstöð við að segja veðurfréttir og lét tengdamömmu passa börnin. Hjónabandið fór í vaskinn. Henni tókst að komast tO Holly- wood þar sem hún varð ástfangin á ný. Sá heppni hét Patrick Curtis og dýrkaði Raquel sem gekk með hon- um upp að altarinu. Patrick geröi sér ljóst að hægt væri að græða peninga á fegurð eiginkonunnar og sendi myndir af henni út um allan heim. Á sumum var hún mjög léttklædd. Þegar andlit Raquel var orðið þekkt gekk henni vel að komast í kvik- myndabransann en árangurinn lét á sér standa í upphafi. Lélegum hand- ritum var kennt úm, auk ýmislegs annars. Hjónabandið var orðiö stirt og fór út um þúfur. Þriðja eiginmanninn, kvikmynda- leikstjórann André Weinfeld, hitti Raquel í veislu í París. Þau settust að í New York því André gat ekki hugsað sér að búa í Los Angeles. Þegar Raquel var 41 árs varö hún barnshafandi en missti fóstrið. Hún lýsti því þá yfir að hún ætlaði að biða eftir barnabömunum í stað þess að reyna aftur. André og Raquel ákváðu að slíta hjónabandinu og hún sneri sér meira að leiklistinni. Bjöm Borg: Kaupir villu í skerjagarðinum Bjöm Borg og bandarísk unnusta hans, Kari Bernhardt, hafa keypt sér villu á eyju í skerjagarðinum við Stokkhólm í Svíþjóð. Villunni fylgir einkabryggja og tennisvöllur sem kemur sér vel fyrir fyrrverandi tenniskappa. Bjöm á enn íbúð í Monte Carlo og saman eiga Björn og Kari búgarð í Texas. Nú eru þau sem sé einnig búin að koma sér upp húsi í Svíþjóð og eiga því auðveldara með aö taka á móti syni Bjöms, Robin, í heim- sókn. Kari hefur að sögn reynst Rob- in hin ágætasta stjúpmóðir. Kari Bernhardt og Björn Borg. Glæsivilla Björns í skerjagarðinum meö einkabryggju og tennisvelli. Ólyeinn i o • • .. .að Iman, eiginkonu söngvar- ans Davids Bowie, væri gætt all- an sólarhrínginn eftir að henni bárust morðhótanir frá stríðs- herrum i föðurlandi hennar, Só- maliu. Sagt er að Iman og David hafi látið styrkja útidyrnar að bústað sínum i New York með stáli. ... að fótbottahetjan Maradona hefði reyndar fleiri áhugamál en fótboitann. Eitt af þeim er eigin- konan Claudia og annað er bila- sport. Maradona og Claudia voru meðal áhorfenda á Formula Monaco Grand Prix keppninni á dögunum. ... að Mark Phillips, fyrrverandi eiginmaður Önnu Bretaprins- essu, nyti þess að vera ekki leng- ur meðiimur bresku konungsfjöl- skyldunnar. Eftir skilnaðinn við Önnu sást Mark oft með Carolyn nokkurrí Sanders en nú hefur hún yfirgefið hann þar sem hann vildi ekki kvænast. Campbell og poppstjarnan Ad- am Clayton ættu erfitt með að slíta sig hvort frá öðru, þó svo að þau hefðu ákveðið að hætta að vera saman. Ástæða þess að þau skildu var áfengismisnotkun Adams en hann kveðst nú hafa gert sér Ijóst að hann verði að hætta að drekka. . að Fergie og dætur hennar, Beatrice og Eugenie, hefðu skemmi sér konunglega í tivolii í Thorpe nýlega. Skemmtilegast þótti mæðgunum í klessubílun- um og stóru hringekjunum.

x

Dagblaðið Vísir - DV

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Dagblaðið Vísir - DV
https://timarit.is/publication/255

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.