Dagblaðið Vísir - DV - 15.07.1995, Qupperneq 43
LAUGARDAGUR 15. JÚLÍ 1995
51
Afrnæli
Sveinn G. Ásgeirsson
Sveinn G. Ásgeirsson hagfræðingur,
Hraunbæ 114, Reykjavík, veröur
sjötugur á mánudaginn.
Starfsferill
Sveinn fæddist í Reykjavík og ólst
þar upp í Rauðarárholtinu. Hann
lauk stúdentsprófl frá MR1944, lauk
fyrri hluta prófi í lögfræði við HÍ
vorið 1945 og lauk fil.cand.-prófl í
þjóðhagfræði, bókmenntasögu,
heimspeki og listasögu frá Stokk-
hólmsháskóla 1950.
Sveinn var fréttaritari íslenskra
blaða ytra öll námsárin en hann hóf
blaðamannaferil sinn með því að
vera fyrir dagblaðið Vísi viðstaddur
réttarhöldin yfir Vidkun Quishng í
Osló haustið 1945. Þá var hann
framkvæmdastjóri Fegrunarfélags
Reykjavíkur sumarið 1948 sem
stofnað var 17.6. það ár.
Sveinn var fulltrúi borgarstjórans
í Reykjavík 1950-63, gekkst fyrir
stofnun Neytendasamtakanna
1952-53, var formaður þeirra fyrstu
fimmtán árin og jafnframt ritstjóri
Neytendablaðsins, annaðist fasta
skemmtiþætti, einkum spurninga-
þætti, hálfsmánaðarlega, nær alla
vetur á árunum 1952-60 auk þess
sem hann var höfundur að og flutti
margvíslegt annað útvarpsefni í
meira en aldarfjórðung. Síðustu ár-
in hefur Sveinn starfað sjálfstætt,
einkum við ritstörf.
Meðal rita eftir Svein má nefna
Neytendasamtökin, útg. 1952; Inn-
rásin í Neytendasamtökin, útg. 1968;
Svikahrappar og hrekkjalómar, útg.
1972; Apakettir og annað fólk, útg.
1973, auk þess sem hann hefur þýtt
fjöldaerlendrarita.
Sveinn sat í stjóm Félags ís-
lenskra stúdenta í Stokkhólmi
1945-50 og var formaöur þess frá
1948, var ritari Listaverkanefndar
Reykjavíkur 1954-63, ritari stjórnar
Norræna félagsins 1954-69 og fram-
kvæmdastjóri þess um skeið, var
formaður Lionsklúbbsins Njarðar
1979-80 og árum saman formaður
hlindranefndar klúbbsins. Hann átti
sæti í ýmsum opinberum nefndum
um verslunar-, verðlags- og neyt-
endamál. Sveinn hlaut gulllamp-
ann, æösta heiðursmerki Bhndrafé-
lagsins 1985 og er eini heiðursfélagi
Neytendasamtakanna frá 1986.
Fjölskylda
Sveinn kvæntist 28.4.1951, Sigur-
björgu Snorradóttur, f. 20.2.1929,
húsmóður. Þau skildu 1968.
Sambýhskona Sveins er Hrafn-
hildur Hreiðarsdóttir, f. 23.4.1938,
fulltrúi hjá Pósti og síma.
Sonur Sveins og Guðrúnar Gunn-
arsson er Bjarni Gunnar, f. 19.5.
1946, viðskiptafræðingur, kvæntur
Unni Helgadóttur og eiga þau tvo
syni.
Börn Sveins og Sigurbjargar eru
Karólína, f. 13.6.1949, búsett í Kaup-
mannahöfn; Snorri, f. 3.2.1952, bú-
settur í Káupmannahöfn og á hann
þrjúbörn; Asgeir, f. 25.6.1954, verk-
fræðingur í Reykjavík og á hann
einadóttur.
Systkini Sveins: Ásgeir Þór Ás-
geirsson, f. 31.5.1924, verkfræðing-
ur; Guðmundur AgnarÁsgeirsson,
f. 29.8.1927, forstjóri; Birgir Ásgeirs-
son, f. 2.5.1929, d. 14.8.1984, lögfræð-
ingur; Hrefna Ásgeirsdóttir, f. 9.9.
1932, húsmöðir; Bragi Ásgeirsson,
f. 28.5.1931, myndhstarmaður.
Foreldrar Sveins voru Ásgeir Ás-
geirsson frá Fróðá, f. 9.8.1897, d.
21.7.1978, skrifstofustjóri í Reykja-
vík, og k.h., Karólína Sveinsdóttir,
f. 14.12.1895, d. 4.4.1991, húsmóðir.
Ætt
Ásgeir var bróðir Kristínar, ömmu
Sverris Stormskers. Ásgeir var son-
ur Ásgeirs, b. á Fróðá, Þórðarsonar,
alþm. á Rauðkollsstöðum, Þórðar-
sonar. Móðir Þórðar var Kristín
Þorleifsdóttir, systir Þorleifs, lækn-
isíBjarnarhöfn.
Móðir Ásgeirs skrifstofustjóra var
Ólína Guðmundsdóttir, b. á Ytri-
Hóli á Skagaströnd, Ólafssonar.
Móðir Guömundar var Þorkatla
Torfadóttir, b. í Kolviöarnesi, bróð-
ur Ólafs, föður Eiríks, langafa Þor-
steins frá Hamri en bróðir Eiríks
var Ólafur, langafi Bjarna Bene-
diktssonar forsætisráðherra, föður
Björns menntamálaráðherra. Torfi
var sonur Þorbjarnar, gullsmiðs á
Sveinn G. Ásgeirsson.
Lundi, Ólafssonar.
Karólína var dóttir Sveins, smiðs
í Reykjavík, Ólafssonar, og Sigríðar
Rögnvaldsdóttur, útvegsb. á Skála-
tanga, Jónssonar.
Sveinn og Hrafnhildur verða á
Hótel Búðum á Snæfellsnesi á af-
mælisdaginn.
Bjami Guðmundsson
Bjarni Guðmundsson, fulltrúi, bú-
settur að Svelgsá í Helgafellssveit,
verður fimmtugur á morgun.
Starfsferill
Bjarni fæddist á ísafirði en ólst
upp á Borg í Ögursveit til sextán ára
aldurs. Hann lauk barnaskólanámi
í Reykjanesi við Djúp, stundaði nám
viö Bændaskólann á Hvanneyri og
lauk búfræðiprófi 1964.
Bjarni starfaði um skeið hjá Eim-
skipafélagi íslands við Reykjavíkur-
höfn, var síðan háseti á togurum frá
Reykjavík í tvo vetur, starfaði hjá
Veiðimálastofnun sem næturvörður
við Laxeldisstöðina í Kollafirði í
nokkur ár jafnframt því sem hann
var húsvörður í Saltvík á Kjalarnesi
fyrir Reykjavíkurborg og var síðan
í almennri dagvinnu við laxeldis-
stöðina.
Bjarni og kona hans festu kaup á
jörðinni Svelgsá vorið 1972 og hófu
þar sauðfjárbúskap jafnframt því
sem þau hafa verið vistforeldrar á
vegum félagsmálastofnunar
Reykjavíkurborgar frá 1974 en á
Svelgsá hafa verið þijú til fjögur
börn á ári, einkum á sumrin. Þá
hefur Bjarni verið fulltrúi Sauðfjár-
veikivarna í nokkur ár.
Bjarni var varamaður í hrepps-
nefnd um árabil og sat í henni um
skeið, var forðagæslumaður í fjölda
ára og hefur unnið margvísleg önn-
ur trúnaðarstörf fyrir sína sveit.
Fjölskylda
Bjami kvæntist 26.7.1969 Ólöfu
Brynju Sveinsdóttur frá Hafnar-
firði, f. 8.11.1949, húsfreyju og
bónda. Hún er dóttir Sveins Sveins-
sonar, húsasmíðameistara í Hafnar-
firði, og k.h., Rebekku Helgu Aðal-
steinsdóttur, húsmóður og starfs-
stúlku á Hrafnistu í Hafnarfirði.
Börn Bjarna og Brynju eru Bjarni
Þór Bjarnason, f. 15.10.1968, sjómað-
ur frá Stykkishólmi; andavana dótt-
ir, f. 12.9.1973; Sveinn Aðalsteinn
Bjamason, f. 20.7.1977, námsmaður;
Berghnd Kristín Bjamadóttir, f.
4.10.1983, nemi. Fóstursonur Bjarna
og Brynju er Jón Halldór Sigur-
björnsson, f. 24.8.1965, stýrimaður
í Reykjavík.
Systkini Bjarna: Magnús Kristinn
Guðmundsson, f. 24.8.1934, b. að
Gríshóh í Helgafellssveit, en kona
hans er Guðrún Reynisdóttir, b. og
oddviti; Bjarni Ragnar Guðmunds-
son, f. 14.9.1936, d. 7.9.1943; Gyða
Ó. Guðmundsdóttir, f. 7.11.1940, b.
á Haukabrekku á Skógarströnd en
maður hennar er Kolbeinn Kristins-
son b.; Hjördís K. Guðmundsdóttir,
f. 11.12.1943, nuddfræðingur í Mos-
fellsbæ en maður hennar er Þórður
Árelíusson, starfsmaður hjá Fiski-
stofu; Ragnheiður Guðmundsdóttir,
f. 22.11.1946, garðyrkjufræðingur í
Hveragerði en maður hennar er
Lars Nielsen garðyrkjub.; Sveinn
H. Guðmundsson, f. 5.9.1948, bif-
Bjarni Guðmundsson.
vélavirki í Hveragerði en kona hans
er Erna Þórðardóttir húsmóðir og
kaupkona; Hildur Guðmundsdóttir,
f. 23.10.1952, starfsmaður viö
Heilsuhæli NLFÍ í Hveragerði. Hálf-
systir Bjarna, samfeðra, er Guð-
munda Kristbjörg Guðmundsdóttir,
húsmóðir í Reykjavík.
Foreldrar Bjarna: Guðmundur
Magnússon, f. 27.6.1897, d. 23.11.
1969, bóndi á Borg í Ögursveit, og
k.h., Magnea Bjarnadóttir, f. 31.7.
1913, húsfreyja, nú búsett í Hvera-
gerði.
Bjarni og Brynja verða heimavið
á afmælisdaginn og taka þar á móti
ættingjum og vinum.
Sigrún Guðnadóttir
85 ára
Júlíus Geirsson,
Laugarásvegi 66, Reykjavík.
Sigurður Þ. Tómasson,
Bólstaðarhlíð45, Reykjavik.
Ásta S. Hannesdóttir,
Skálagerði 13,
Reykjavík
verður75áraá
morgun,
simnudag.
Eigitnnaður
hennarer
ÓskarM.B,
Jónsson.
Þau taka á móti gestum að Engja-
seli 52, Reykjavík á afmælisdaginn
frákl. I5till8.
Ragnar S. Guðmundsson,
Spítalastig2, Reykjavík.
Margrét J. Hallsdóttir,
Lýsuhóli, Ólafsvík.
HafUði Magnússon,
Dalbraut 30, Bíldudal.
Guðlaug Ásta Magnúsdóttir,
Seilugranda 4, Reykjavík,
Jakobína Guðmundsóttir,
Lindargötu44,
Reykjavík,
verður sexíiu
áraámorgun.
Maðurhennar
er Örn Sche-
ving. Þau taka
ámóti ættingj-
um og vinum i
Víkingasal Hótels Loftleiða írá kl.
16 til 18 á amælisdaginn, 16. júh.
50ára
Hilmar Gunnarsson,
Dæli, Svarfaðai'dalshreppi.
Ásthildur Inga Hermannsdóttir.
Kjarrholti 1, Isafirði.
Ragnheiður Sigrún Sörladóttir,
Stararima 23, Reykjavík.
Ólafur Sæmundsson,
Helgubraut 4, Kópavogi.
Kristján Pálsson,
Uppsaiavegi 21, Húsavík.
Hrefna Einarsdóttir,
Vesturvangi 12, Hafnarfirði.
40ára________________________
Ásgeir S van Vagnsson,
Seljavogi l.Höfnum.
Flosi Sigurðsson,
Laxakvísl 6, Reykjavík.
Þorbjörg Guðjónsdóttir,
Laugarásvegi 15, Reykjavík.
Mayumi Maja Ásgeirsson,
Vífilsst., stai-fsmhúsi 1, Garðabæ.
Sigrún Guðnadóttir, Kaupvangi 1,
Egilsstöðum, er sextug í dag.
Fjölskyida
Sigrún fæddist í Reykjavík og ólst
þar upp. Hún giftist 7.4.1957 Vigfúsi
Ólafssyni, f. 11.6.1938, bankastarfs-
manni. Hann er sonur Ólafs Sigur-
jónssonar og Valgerðar Vigfúsdótt-
ur sem bæði eru látin.
Börn Sigrúnar og Vigfúsar eru
Ólafur Vigfússon, f. 24.8.1959, skrif-
stofustjóri í Reykjavík, kvæntur
Maríu Önnu Clausen og eru börn
þeirra Egill Daði, f. 1.10.1984 og
Andri, f. 7.2.1987; Guðni, f. 29.9.1961,
d. 21.3.1962; Vigfús Már, f. 8.12.1964,
sölumaður í Reykjavík, kvæntur
Ingunni Jónu Sigurðardóttur og eru
dætur þeirra Hugrún Arna, f. 5.11.
1990 og Margrét Dögg, f. 12.1.1995;
Þórhallur, f. 11.3.1966, sölumaður í
Reykjavík, kvæntur Þuríði Guð-
jónsdóttur og eru böm þeirra Daní-
el, f. 30.9.1991 og Elísabet, f. 12.2.
1995; Valgerður, f. 22.1.1968, sölu-
maður í Reykjavík, gift Gunnari
Marel Einarssyni og er dóttir þeirra
Sigrún Mist, f. 29.4.1995.
Foreldrar Sigrúnar voru Cuðni
Sigurðsson, f. 1914, d. 1937, sjómaður
í Reykjavík, og Þórunn Meyvants-
dóttir, f. 1914, d. 1981, húsmóðir.
Stjúpfaðir Sigrúnar var Halldór
Þórhallsson, f. 1919, d. 1978.
Sigrún tekur á móti gestum í safn-
aðarheimili Áskirkju í Reykjavík í
dagfrákl. 15.00-18.00.
Kristín
Haraldsdóttir
Sigrún Guðnadóttir.
Kristín Haraldsdóttir, vistkona að
Sundabúð II, Vopnafirði, verður sjö-
tíu og fimm ára á morgun.
Starfsferill
Kristín fæddist í Steintúni í
Bakkafiröi. Hún stundaði barna-
skólanám í farskóla. Kristín var um
árabil vinnukona á ýmsum heimil-
um meðan hún haföi heilsu til. Eftir
að heilsan bilaði dvaldi Kristín um
hríð á Kristneshæli en þar var hún
vistmaður þar til hún flutti til
Vopnaíjarðar 1990.
Fjölskylda
Maður Kristínar: Eiríkur Þor-
valdsson, sjómaður og verkamaöur.
Dætur Kristínar eru Hulda Krist-
jánsdóttir, bankaritari í Reykjavík,
og Hrefna Þórey Eiríksdóttir, starfs-
stúlka á Hrafnistu í Reykjavík.
Kristín á tvö ömmuböm og eitt
langömmubarn.
Kristín átti fjórtán hálfsystkini,
samfeöra.
Foreldrar Kristínar voru Harald-
ur Guömundsson, f. 9.10.1888, d.
10.6.1959, b. á Þorvaldsstöðum, og
Arnfríður Lárusdóttir, f. 20.11.1898,
d. 18.11.1981.