Dagblaðið Vísir - DV - 26.07.1995, Side 2
16
MIÐVIKUDAGUR 26. JÚLÍ 1995
Ferðir
DV
Vík'95:
Vík alltaf vinsæl
Eitthvaö verður fyrir alla á hátíð-
inni Vík ’95 um verslunarmanna-
helgina. Hátíðin hefst á fóstudegin-
um og verður varðeldur og brekku-
söngur það kvöld. Aðaldagskráin
verður síðan á laugardag og sunnu-
dag.
Meðal dagskrárliða má nefna ljós-
myndamaraþon í 4 klukkustundir.
Það er keppni þar sem lögð verða
fjögur verkefni fyrir keppendur og
þurfa þeir að ljúka þeim á tilsettum
tíma. Skráningargjald er 500 kr. og
fá þátttakendur eina 12 mynda filmu
í upphafi. Vegleg verðlaun eru í boði.
Verðlaunafhending fer fram á
sunnudagskvöld við útigrillið á tjald-
svæðinu og myndirnar, sem þykja
bestar í hverjum flokki fyrir sig,
verða sýndar í þjónustumiðstöðinni.
Fjársjóðsleitog
víðavangshlaup
Allir geta tekið þátt í gönguferð
sem verður farin með leiðsögu-
manni. Gestum gefst kostur á að taka
þátt í fjársjóösleit eða nokkurs konar
ratleik þar sem þátttakendur fá eina
vísbendingu í upphafi og eiga síöan
aö fmna þá næstu og svo koll af
kolli. Skipt verður í yngri og eldri
hópa. Glæsileg verðlaun verða í boði
fyrir sigurvegara.
íþróttir og leikir hafa alltaf skipað
fastan sess á Víkurhátíðum og var
- allir geta fundið eitthvað við sitt hæfi á hátíðinni
stærsta fiskinn.
Söngelsk börn geta tekið þátt í
söngvarakeppni og hefur þetta verið
mjög vinsæll dagskrárliður á und-
anfornum árum í Vík. Þar hafa
margir efnilegir söngvarar stigið sín
fyrstu spor á framabrautinni.
Margar ferðir í boöi
Hægt verður að fara í bátsferðir að
Reynisdröngum og Dyrhólaey og í
vélsleðaferðir á Mýrdalsjökul frá
Vík. Einnig verður sértilboð á ferð-
um upp á Reynisfjall um verslunar-
mannahelgina. Ferð kringum Haf-
ursey og að Kötlujökli, Hjörleifs-
höfða og inn á Höfðabrekkuheiði
verður einnig í boði.
Dansleikir fyrir fullorðna verða
síðan á laugardags- og sunnudags-
kvöld í félagsheimilinu Leikskálum
og mun hljómsveitin Órar leika fyrir
dansi fram eftir nóttu. Þess má geta
að þeir sem gista í tjaldi á hátiðar-
svæðinu fá 500 kr. afslátt af miða-
verði á dansleikina en miðinn kostar
2000 kr.
Gisting á tjaldstæöunum alla helg-
ina kostar 1500 krónur fyrir 12 ára
og eldri og frá kl. 22 á laugardag 1000
kr. Frítt verður fyrir böm yngri en
12 ára í fylgd með foreldrum. Þeir
sem ekki gista á tjaldstæðunum geta
keypt sér aðgang að skemmtidag-
skránni á 500 krónur alla helgina,
sama aldursskipting.
ákveðið að efna til víðavangshlaups,
nokkurs konar þolraunar þar sem
hlaupið er viö erfiðar aðstæður.
Vegalengdin er um 6 km og ræst
verður við útfall Dyrhólaóss, austan
við Dyrhólaey og hlaupið austur
Reynisfjöru að Reynisfjalh. Hlaupið
er upp á Reynisfjall og niður austan
megin og komið í mark við félags-
heimilið Leikskála í Vík. Skráning-
argjald í hlaupið er 500 krónur fyrir
keppanda og hlaupið í karla- og
kvennaflokki. í verðlaun eru meðal
annars Nike hlaupaskór frá Frísporti
og sokkar frá Víkurpijóni. Þátttak-
endur þurfa að skrá sig í síma
487-1332 fyrir 5. ágúst.
Veiðimönnum þarf ekki að leiðast
því þeir fá einnig sinn skammt. Veiði-
keppni fer fram og veröur veitt í
Höfðabrekkutjörnum. Keppt verður
í tveimur flokkum, 15 ára og yngri
og 16 ára og eldri. Vegleg verðlaun
verða í boði í báðum flokkum fyrir
Séð yfir tjaldstæðin á hátíðinni Vík ’95 sem haldin verður um verslunarmannahelgina.
s
DV-mynd Páll Pétursson
ífj/l NORÐURLEIÐ
H LANDLEfÐIR
Norðurrútan
Ferðir um Sprengisand
og Kjalveg
með leiðsögn
Farið er á einum degi hvora leið og tekur
ferðin 13 klst. í rólegheitum. Farið er frá
Reykjavík norður Sprengisand til Akureyrar
á mánudögum og fimmtudögum kl. 8.00
og frá Akureyri suður Kjalveg á miðvikudög-
um og laugardögum kl. 8.30. Ferðin kostar
kr. 7.200 aðra leiðina eða kr. 13.400 báðar
leiðir og er miðdegismatur innifalinn ásamt
leiðsögn.
Dagsferðir í Þjórsárdal
með leiðsögn
Frá Reykjavík sunnudaga, þriðjudaga,
fimmtudaga og laugardaga kl. 9.00 og kom-
ið til baka kl. 16.00-17.00. Farið er um
Nesjavelli og Skálholt á austurleið en um
Selfoss og Hellisheiði til baka.
Ferðin kostar kr. 3.400.00.
Daglegar ferðir um Kjalveg án leiðsagnar
með viðkomu í Kerlingarfjöllum, farið er kl.
9.00, bæði frá Reykjavík og Akureyri.
2 ferðir á dag um byggð milli Reykjavíkur
og Akureyrar.
Frá Reykjavík kl. 8.00 og 17.00.
Frá Akureyri kl. 9.30 og 17.00.
Upplýsingar í síma 551 1145.
Fjölskylduhátíð Flug-
málafélagsins í
Múlakoti í Fljótshlíð
Eins og undanfarnar verslunar-
mannahelgar koma allir flugáhuga-
menn sem vettlingi geta valdið og
fjölskyldur þeirra saman til hátíðar-
halda í Múlakoti í Fljótshlíð að þessu
sinni.
Dagskrá mótsins verður íjölbreytt.
Meðal dagskráratriða verður list-
flug, fallhlifarstökk, módelflug, vél-
flug og svifdrekaflug. Á mótinu gefst
fólki kostur á að sjá margar þekktar
flugvélar og aðrar sem telja má
óvénjulegar. Flugmenn og vinir
þeirra fara í útsýnisflug um nágrenni
Múlakots.
Eins og flestir vita eru dalir og
skriðjöklar Eyjafjallajökuls og Mýr-
dalsjökuls skammt undan. Flug yfir
þá og Þórsmörk er ógleymanlegt
þeim sem það reyna. SvifElugmenn
verða með tvær kennslusvifílugur
og svifdrekamenn verða með mótor-
dreka þannig að þeir sem áhuga hafa
á að prófa fá tækifæri til þess.
Barnadagskrá, happ-
drætti og grillveisla
Á sérstakri dagskrá fyrir börn
verður m.a. keppni í svifflugi auk
margra óvenjulegra leikja sem flug-
menn luma á. Sérstök flugíþrótta-
dagskrá verður. Meðal íþróttagreina
verður lendingarkeppni og hvéiti-
pokakast.
Á laugardagskvöldinu verður
kvöldvaka og sameiginlegur kvöld-
verður grillmeistaranna. Allir sem
gista í Múlakoti um helgina eiga kost
á aö hreppa veglega happdrættis-
vinninga.
Þeir sem koma fljúgandi á hátíðina
geta haft samband við mótssljórn á
tíðninni 118,1 sem hér segir:
Föstudagur 4. ágúst kl. 17.-21
Laugardagur 5. ágúst kl. 10-20
Sunnudagur 6. ágúst kl. 10-20
Mánudagur 7. ágúst 11-15
Rétt er að taka fram að á staðnum
verður selt bensín á flugvélarnar.
I Verðlaunahafar úr hópi ungra mótsgesta í Múlakoti i fyrra