Dagblaðið Vísir - DV - 26.07.1995, Page 14
28
MIÐVIKUDAGUR 26. JÚLÍ 1995
Ferðir
Við Flókalund í Vatnsflrði:
Kajakmót Flóka
Vilgerðarsonar
byijendur sem lengra komna í
Flókalaug í Flókalundi og farið yfir
nokkur öryggisatriði og björgun á
sjó. Óttar Kjartansson, kajakleið-
beinandi hjá Ferðamönnum, leið-
beinir. Verð fyrir þetta námskeið
er 500 krónur.
Setning mótsins verður kl. 23 á
fostudagskvöld og klukkan níu á
laugardagsmorgun veröur farið í
dagsferð um eyjar og sker Breiða-
fjarðar. Þátttökugjald er 1000 krón-
ur. Þetta er stórskemmtilegt tæki-
færi til ljósmyndunar enda mikið
dýralíf, selir og fuglar, og mikil
náttúrufegurð. Um kvöldið verður
varðeldur í fjörunni við Flókalund.
Þar syngja hetjur saman og segja
sögur af stórhvelum og öðrum við-
burðum dagsins.
Á sunnudaginn verður keppt í
ýmsum greinum á sjókajak með
gott grín og keppnisskapið að leið-
arljósi. Það kostar 1000 krónur.
Hægt verður að leigja báta. Um
kvöldið flytur Baldvin Kristjáns-
son hjá Ferðamönnum erindi um
sjókajakferðir og skemmtileg
svæði til ferðalaga og sýnir mynd-
ir. Eiginleg mótslok verða á sunnu-
dagskvöld og þá verða verðlaun
veitt. Á mánudaginn geta gestir
leigt sér báta og farið í stuttar ferð-
ir.
Þetta er í fýrsta sinn sem sjókajak-
mót er haldið á íslandi og er
markmiðið að kynnast nýjum
ferðamáta betur og hafa gaman af.
Dagskráin, sem verður létt og
skemmtileg, er opin öllu áhugafólki
um sjókajakferðalög við strendur
landsins.
Mótið verður haldið í Vatnsfiröi
viö Breiðafjörð. Þar er stórkostleg
náttúrufegurð og strandlengjan
hentar einstaklega vel til ferðalaga
á sjókajak.
Þeim sem ekki geta komið með
eigin sjókafak gefst kostur á að
leigja eins og tveggja manna báta
og er þá allur aukabúnaður innifal-
inn. Leigugjald er 500 krónur fyrir
eina klukkustund og 1500 krónur
fyrir dagsferð.
Hótel Flókalundur fyrir botni
Vatnsfjarðar býður mótsgestum 20
prósenta afslátt af gistingu í 3 næt-
ur og verður einnig boðið upp á
sérstakan kajakmatseðil í tilefni
helgarinnar. Tjaldsvæðið í Vatns-
firði er að sjálfsögðu öllum opið
meðan á mótinu stendur.
Sjókajakmót verður haldið við Flókalund í Vatnsfirði um verslunarmannahelgina.
Auðvelt er að komast vestur í
Vatnsfjörð, annaöhvort akandi eða
með Breiðafjarðarferjunni Baldri
sem fer frá Stykkishólmi aö Brjáns-
læk, sem er rétt hjá Flókalundi,
með viðkomu í Flatey.
Fjölbreytt dagskrá
Mótið stendur dagana 4.-7. ágúst.
Byijað verður á föstudaginn áður
en eiginlegt mótshald hefst á stutt-
námskeiði í félagabjörgun fyrir
Þar kom að því
Var einhver að segja.aö geimverur væru ímyndun? Ef myndirnar prentast
vel sést að geimverurnar eru um það bil að lenda á Snæfellsjökli í geim-
fari sínu eins og beðiö hefur verið eftir undanfarið. Trúlega ætla þær að
mæta á Snæfellsássmótið um verslunarmannahelgina. Myndirnar eru tekn-
ar frá Hellissandi nýlega. Myndir Gunnar Jóhannesson
Áð í Lakagígum að lokinni göngu á Laka og um Skaftáreldahraun. Mynd Þorleifur Guðmundsson
Gönguferð utan hefðbund-
inna ferðamannastaða
Ferðafélagið Útivist stendur fyrir
ferð um verslunarmannahelgina á
slóðir sem liggja að miklu leytí. utan
hinna hefðbundnu ferðamanna-
staða. Ekið verður í Skaftártungu á
fóstudagskvöldið og gist þar.
Snemma næsta morgun verður hald-
ið inn á öræfin um Eldgjá að Sveins-
tindi. Gengið verður á fialhö en af
því er einstakt útsýni yfir eitthvert
mikilvirkasta gossvæði landsins,
Lakagíga og Kambsgíga. Ef skyggni
er gott sést eftir nærri því endilöng-
um Langasjó, sem er um 22 km langt
stöðuvatn, og Fögrufiöllum samsíða
honum.
Frá HeUisfialh verður gengið niður
í Skæhnga meðfram Uxatindum. í
Skæhngum við Skaftá er mjög
óvenjulegt landslag með móbergs-
hryggjum, hraunstrípum og gróður-
torfum sem saman skapa margar
kynjamyndir. Á þriðja degi verður
farið að Lakagígum og gengið á Laka
og um eldborgaröðina að ógleymdri
hinni undurfógru hrauntröð.
Heim verður haldið um Öldufehs-
leið og Syðra-Fjallabak til byggða.