Dagblaðið Vísir - DV - 26.07.1995, Qupperneq 15
MIÐVIKUDAGUR 26. JÚLÍ 1995
29
Ferðir
85 km milli bensínstöðva á sumrin og 105 á vetuma:
- til að kaupa bensín, harðfisk og rauðmaga
Þegar ekið er vestur Barðastrandar-
sýslur er eins gott að muna eftir að
kaupa bensín þegar maður rekst á
bensínstöð því að mjög langt er milli
þeirra. Vegna þess hversu margir
firðirnir eru er leiðin seinfarin þar
sem þrætt er inn í fjarðarbotna og
út fyrir nes. Þetta er hins vegar mjög
skemmtileg leið og einstaklega falleg.
Mikið er um kjarr, sérstaklega í
fjarðarbotnum.
Við hótelið í Bjarkalundi er bensín-
stöð á sumrin en fyrir þá sem eru á
vesturleið þaðan er næsta bensínsala
á Skálanesi, í útibúi Kaupfélags
Króksíjarðar, 44 km vestar. Frá
Skálanesi eru síðan 85 km að Flóka-
lundi en þar er bensínsala við hótelið
á sumrin.
Munið að taka bensín
Á Skálanesi er skilti sem blasir við
þeim sem koma úr austurátt. Þar
stendur að 91 km sé að næstu bensín-
stöð. Þetta er ekki alveg rétt þar sem
þar er átt við bensínstöð sem var á
Brjánslæk á Barðaströnd en er ekki
starfrækt lengur. Nú er bensínstöð í
Flókalundi eins og áður sagði en 85
km eru frá Skálanesi þangað.
Ekki er nóg með að langt sé milli
Ferðamenn stansa gjarnan á Skálanesi til að taka bensín og gæða sér á
harðfiskinum sem staðurinn er frægur fyrir. Skilti með leiðbeiningum til
ferðafólks sést á veggnum. Myndir Finnbogi Jónsson
Yfirfarið bílinn áður
en lagt er af stað
Margir nota verslunarmanna-
helgina til að bregða sér bæjarleið
á heimilisbílnum. Oft eru lengri
vegalengdir lagðar undir. Áður en
iagt er af stað i ferðalag þarf að
huga að ástandi bílsins því ekki er
skemmtilegt að lenda í því að bíll-
inn bili vegna ónógs undirbúningd.
DV bað FíB um ráðleggingar
varðandi útbúnað bílsins fyrir
ferðalag. Þar á bæ hafa menn út-
búið GAT-lista eða „tossalista" fyr-
irfólk.
Gát-listi bifreiðaeiganda
í vikunni fyrir ferðalagið (áöur
en fagmenn fara i frí):
Olíustaða á vél
Vatnshæð á kassa og rafgeymi
Loftþrýstingur í hjólbörðum (vara-
dekkiö líka)
Ástand ljósa
Þurrkublöð
Einum til tveimur dögum fyrir
brottfór (meðan búðir eru enn opn-
ar);
Allt endurtekið frá fyrri viku
Neyðarbúnaður
Kíkið ofan í sjúkrakassann og end-
urnýið það sem þarf
Athugið slökkvitæki ef til er
Rafmagnsöryggi
Kerti og platínur (eftir tegund og
búnaði bíls)
Einangrunarband
Viftureim
Gúmmíbætur
Gúmmítappar í slöngulaus dekk
Neyðarrúða-
Tólogtæki
Lyftan (tjakkurinn)
Felgulykill
Loftdæla
Verkfærasettið
Dráttartóg
Startkaplar
Birgðaskoðun
Varaperur
Aukahlutir
Brúsi fyrir vatn/eldsneyti
Trekt
Bjargvættabúnaður
Hosuklemmur
Útblásturskerfaviðgeröasett
Vírspottar til ýmissa nota
Tyggigúmmí utan á bensíntank við
smáleka
Afgreiðslumenn á bensínstöðv-
um aðstoða víð aö skipta um per-
ur. Hafið í huga að eineygðir bílar
skapa vílluljós.
Bíllinn eyðir meir u ef loft í dekkj-
um er of lítið.
Flas gerir engan flýti. Góða ferð!
bensínstöðva á þessu svæði, einnig
er mjög langt á milli bæja í byggð.
Frá Múla í Kollafirði, sem er vestasti
bær í byggð í Austur-Barðastrandar-
sýslu og er rétt vestan við Skálanes,
eru að sögn Vegagerðarinnar 66 km
að Auðshaugi á Hjarðarnesi í Vest-
ur-Barðastrandarsýslu sem er næsti
bær sem búið er á. Frá Auðshaugi
er stutt að Flókalundi. Á leiðinni
milli Múla í Kollafirði og Auðshaugs
er m.a. fjallvegurinn Klettsháls sem
er fljótur að teppast þegar snjóar.
Harðfiskur
og rauómagi
Á Skálanesi er rekin verslun allt
árið auk bensínsölunnar. Katrín Ól-
afsdóttir, sem afgreiðir þar, sagði í
samtali viö DV að það væri helst
snemma á vorin og seint á haustin
sem fólk lenti í vandræðum vegna
þess hve langt væri á milli bensín-
stöðva. Þá væri ekki opið í Bjarka-
lundi og Flókalundi, heldur á Bæ í
Króksfirði austan megin og á Bíldu-
dal vestan megin - ef farið væri þá
leiðina - eða Innri-Múla á Baröa-
strönd, en þar er bensínsala allt árið.
Frá Bæ að Skálanesi eru rúmlega 50
km og frá Skálanesi að Innri-Múla á
Barðaströnd eru að áliti staðkunn-
ugra 105 km.
Katrín sagði að umferðin í sumar
hefði verið fremur lítil en væri þó
að glæðast. Hún sagði að það væri
ekki bara bensínið sem fengi fólk til
að stansa á Skálanesi, mjög margir
kæmu til að fá sér harðfisk og rauð-
maga sem hún selur auk allra al-
mennra nauðsynjavara. Rauðmag-
ann sagöist Katrín fá víða að en harð-
fiskinn frá Patreksfiröi eða annars
staðar af Vestfjörðum.
Katrín Olafsdóttir í versluninni á Skálanesi.
Reykjavík - Mývatn - Reykjavík
Daglegar ferðir; norður á morgnana,
suður á kvöldin.
Fargjald aðeins kr. 8.990
Önnumst einnig
útsýnisflug, leiguflug
og sjúkraflug.
Reykjahlíðarflugvelli - 660 Reykjahlíð
Sími 464 4400 - Fax 464 4341
Wolverine Wilderness
GÖNGUSKÓR
Kraftur í hverju spori
Timecop skórnir
Kröftugir og mjúkir leÖurskór
með DuraSnocks högadeyfum í
hæl og sóla. Vatnshefair.
-Kf. -8.600----------------
Gönguskór. Mjöa léttir og
þægilegir en pó sterkir.
977
Léttir og þægilegir gönguskór
með DuraShocks höggpúðum.
Vatnsheldir.
--Kfr 6:282--------------------
Sérstaklega vandaðir gönguskór
úr leSri. DuraShocks höggpúðar
hæl og sóla. Vatnsheldir.
Kr. 9.990
Mjög vandaóir leðurgönguskór með
DuraSnocks höggpúðum í hæl o^sóla.
Vatnsneldir.
8.975
Borgartúni 26, Reykjavík. Sími 562 2262 • Bæjarhrauni 6, HafnarfirSi. Sími 565 5510
Flestir stansa
á Skálanesi