Dagblaðið Vísir - DV - 26.07.1995, Page 18

Dagblaðið Vísir - DV - 26.07.1995, Page 18
32 MIÐVIKUDAGUR 26. JÚLÍ1995 Ferðir Fyrsta þjóðhátíðin var haldin í Eyjum árið 1874 og síðan hefur hún aðeins fallið niður þrisvar. Myndin sýnir þjóðhátíðarstemningu. DV-myndir Ómar Garðarsson Þjóðhátíð í Eyjuin alltaf jafnvinsæl Arið 1874 ætlaði fríður hópur Vest- mannaeyinga að fara á Þingvelli /egna þúsund ára afmælis íslands- jyggðar. Vegna veðurs komust Eyja- nenn ekki til lands. Þeir dóu ekki áðalausir heldur héldu þeir sína eig- n þjóðhátíð í Eyjum. Herjólfsdalur mrð fyrir valinu sem .staöur fyrir. íálíðina. Síðan þá hefur þjóðhátíðin töeins fallið niður þrisvar sinnum. Árið 1920 tóku íþróttafélögin Týr og Þór að sér að halda hátíðina og íefur það haldist fram á þennan dag. Iú langa heíð er hggur að baki þjóð- íátíðinni hefur skapað henni sér- stöðu. Kynslóðir skemmta sér saman Þjóðhátíð í Vestmannaeyjum er útihátíð þar sem kynslóðir koma saman í einstökum fjallasal. Allir skemmta sér saman við brennu, flug- eldasýningu, á danspöllum eða við a'ísyngja og spila í hústjöldunum sem bara finnast á þjóðhátíð og er stemningin í tjöldunum engu lík. Mótshaldarar búa yfir mikilli reynslu og það er óhætt að segja að gestir viti að hveiju þeir ganga þegar þeir koma á þjóðhátíð. Þegar þeir allra hörðustu eru að skríða úr daln- um snemma á morgnana mæta sjálf- boðaliðar til þess að þrífa. Um hádegi er allt orðið skínandi hreint og ekki hægt að merkja að þar hafi þúsundir manna verið að skemmta sér um nóttina. „Það er alltafbest á þjóðhátíð í Eyjum!" Slagorð þjóðhátíðar 1995 er: „Það er alltaf best á þjóðhátíð í Eyjum!“ Veðrið hefur haft áhrif á þjóðhátíð- ina til þessa, á síðasta ári var til dæmis mikil rigning en þrátt fyrir það skilaði fólkið sér á laugardegin- um. Það er einlæg von Týrara, sem sjá um hátíðina að þessu sinni, að veðurguðirnir verði með þeim í liði að þessu sinni. Skemmtikraftar þetta árið verða Sálin hans Jóns míns, Tweety, Vinir vors og blóma, Karma, Björgvin Halldórsson, Hálft í hvoru, Stefán Hilmarsson og Eyjólfur Kristjáns- son, Borgardætur, Laddi, Karíus og Baktus, Örvar Kristjánsson, Al- gleymi o.fl. Verðið, 6500 kr., hefur verið óbreytt frá 1991. Hægt er að kaupa pakka- ferðir með Flugleiðum, íslandsfiugi Heijólfi og á Bakka í Landeyjum en þaðan tekur aðeins 7 mínútur að fijúga til Eyja. ICELANDSAFARI Safariferðir hf frumkvöðlar f ferðum innart- lands, bjóða 30% afslátt á 6 daga tjaldferðum í ágúst. Brottför alla mánudaga Kynnið ykkur spennandi ferðamöguleika innanlands og hringið í síma 562-4222. Halló Akureyri - fjölskylduhátíð Fjölskylduhátíðin Halló Akureyri verður haldin um verslunarmanna- helgina á Akureyri. Fjölbreytt dag- skrá verður í gangi frá fimmtudegi til mánudags. Meðal þess sem boðið verður upp á er söngvaka í kirkju Minjasafns- ins, tónleikar í miðbænum, franska lúðrasveitin L’enfant de Bayard leik- ur í göngugötunni, sjósport verður á Pollinum, teygjustökk, Go-kart á skautasvellinu, kvöldvaka skáta í Kjamaskógi, skákmót í göngugöt- unni, fjölskyldudagskrá við sund- laugina, einnig Skralli trúður og brúðubíllinn. Gestir í Kjarnaskógi og þátttakend- ur í ratleik og Kjamafæðishlaupi hita upp í þolfimi með Vaxtarrækt- inni, skátar leggja þrautabraut í Kjamskógi, málþing verður um höggmyndalist og opnuð verður sýn- ing á verkum unnum í Ketilhúsinu. Götukörfubolti fer fram við Lands- bankann, boðið verður upp á þolfimi- sýningu og í göngugötunni verður tískusýning og þjónahlaup. TF-KOT sýnir hstflug og ef veður leyfir sýnir Húnn Snædal listir sínar yfir mið- bæjarsvæðinu og Kjarnaskógi. Sundlaugardiskó fyrir unglingana Á laugardeginum verður Langur laugardagur og verða verslanir í miðbænum opnar fram eftir degi. Útimarkaður verður í göngugötunni. Sjósport - jet-ski - áskorendakeppni verður haldin, spíttari með slöngu, sjóskíði o.fl. verður á Pollinum. Sundlaugardiskó verður fyrir ungl- ingana, 13 ára og eldri, flugeldasýn- Mjög fjölbreytt dagskrá veröur á fjölskylduhátíðinni Halló Akureyri um versl- unarmannahelgina. DV-myndgk ing í umsjá Hjálparsveitar skáta í boði KEA á túni samkomuhússins. Gönguferð verður farin með leiðsögn frá Laxdalshúsi. Sem dæmi um aðra afþreyingu má nefna billjard, hestaleigu í Litla- Garði og silungsveiði í Ystu-Vík. Hægt verður að stunda strandblak, körfuboltavellir verða opnir, 18 holu golfvöllur og mini-golf. Boðið verður upp á bátsferðir, útsýnisferðir um Eyjafjörð með Þingey og siglingu til Hjalteyrar á vegum Ferðaskrifstof- unnar Nonna. Dansleikir verða öll kvöld frá fimmtudegi til sunnudags í Sjallan- um - Dátanum, skemmtistaðnum 1929, Við Pollinn og í Dynheimum. Meðal skemmtikrafta verða Sálin hans Jóns míns, Stjórnin, Sigga og Grétar, einnig Páll Óskar og Millj- ónamæringarnir. Bítlatónleikar með Sixties verða í Sjallanum á fimmtu- dagskvöldið. Þetta verða einu tón- leikarnir með Sixties á Norðurlandi um verslunarmannahelgina. Að- gangur að skemmtiatriðum í bænum er ókeypis en borgað er fyrir tjald- stæði og náttúrlega inn á skemmti- staðina á kvöldin. Kántríhátíð á Skagaströnd Kántríhátíð verður haldin á Skaga- dansasýning og kennsla fyrir þá sem strönd um verslunarmannahelgina, vilja læra kántrídansa, ratleikur, frá fóstudegi til sunnudags. Fíölda- vatnsfótbolti, grillveisla, varðeldur margt verður í boði, svo sem kántrí- og flugeldasýning, hestaleiga, f]öl- Hallbjörn Hjartarson ásamt löggæslumönnunum, sem veröa á hátíðinni, en þeir voru að máta búningana sem þeir ætla að klæðast við löggæsl- una. Frá vinstri Hallbjörn, Kári Lárusson, Einar Haukur og Gunnar Sveins- son. Mynd Guðmundur Ólafsson skylduguðsþjónusta mneð gospel- tónlist, gönguferð um Höfðann með leiösögn pg saga staðarins rakin í leiðinni. Útitónleikar verða ef veður leyfir og dansleikir öll kvöldin. Útvarp Kántrýbær Fyrir fólk sem ferðast um Húna- vatnssýslur á þessum tíma er rétt að upplýsa að betra er að vera rétt stillt á FM 96,7 og 100,7 því Útvarp Kántrý- bær verður með sérstaka dagskrá allan sólarhringinn með kántrítónl- ist enda er þetta kántríhátíð. Þess má geta að Norðuriandsmót í golfi á vegum Blönduóss og Skaga- strandar verður einnig um þessa helgi, 36 holu mót. Ekki er selt inn á svæðið að öðru leyti en því að nóttin kostar 200 krón- ur fyrir manninn á tjaldstæðinu. Ef gist er þijár nætur fylgja tveir frí- miðar í sundlaugina, fyrir tvær næt- ur fylgir einn miði í sund en ef gist er eina nótt fylgir enginn miði. Inn á dansleikina er greitt sér. Neistaflug í Neskaupstað í þriðja sinn Frítt er inn á Neistaflug og ekki þarf að borga fyrir tjaldstæði heldur. Hið árvissa Neistaflug verður í Neskaupstað um verslunarmanna- helgina, 4.-7. ágúst. Þetta er í þriðja skiptið sem hátíðin er haldin og verð- ur hún með svipuðu sniði og undanf- arin ár. Aðgangseyrir að hátíðinni er enginn og frítt er á tjaldstæðin. Ferðamálafélag Neskaupstaðar stendur fyrir hátíðinni. Miðbærinn verður allur skreyttur, rúmlega 200 fermetra tjald og svið setja mikinn svip á bæinn og Ijósa- skreytingar munu stuðla að því að hin rétta stemning skapist í sumar- nóttinni. Hápunktur hátíðahaldanna verður skemmtidagskrá á sunnudeg- inum sem endar með varðeldi, söng og flugeldasýningu. Ráðnir hafa ver- ið listamenn til að skemmta. Má þar nefna Hljómsveit Geirmundar Val- týssonar ásamt Helgu Möller, bítla- hljómsveitina Sixties, Pál Óskar og Milljónamæringana, Sólstrand- argæjana og Ozon. Auk þess verður íjölmargt í boði, svo sem listflug, kraftakeppni þar sem Andrés Guðmundsson „krafta- jötunn“ stýrir og sýnir, útitónleikar, leiktæki, enskur íjöllistamaöur kem- ur í heimsókn, Tour de Norðfjörður hjólreiðakeppnin fer fram og dorg- veiðikeppni. Dansleikir verða úti og inni, einnig unglingadansleikir, þá skemmtir Amar Guðmundsson trúbador. Úti- diskótek verður fram á morgun að- faranótt mánudags.

x

Dagblaðið Vísir - DV

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Dagblaðið Vísir - DV
https://timarit.is/publication/255

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.