Dagblaðið Vísir - DV - 31.07.1995, Síða 9
MÁNUDAGUR 31. JÚLÍ1995
9
I
i
»
I
I
Utlönd
I læknismeðferð gegn vilja foreldranna:
Æxlíð fyllir
kviðartiolið
„Tölvusneiðmyndin talar sínu
máli. Æxlið hefur stækkað hreint
ótrúlega. Það fyllir nær alveg upp í
kviðarholið og þrýstir á önnur líf-
færi. Það er furðulegt að þau skuh
enn geta starfað," sagði austurríski
læknirinn Klaus Lechner um 4,2
kílóa æxli í kviðarholi hinnar sex ára
gömlu Oliviu Pilhar. Læknar hófu
lyfjameðferð gegn æxlinu á sjúkra-
húsi í Vínarborg í gærkvöldi, gegn
vilja foreldra stúlkunnar.
Foreldrar Oliviu litlu vildu ekki að
hún gengist undir hefðbundna lækn-
ismeðferð við æxlinu og fóru þar að
ráðum þýsks „kraftaverkalækninga-
manns“ sem heitir Ryke Gerd Ham-
er. Kraftaverkamaðurinn mælir með
náttúrulækningum.
Dómstóll í bænum Wiener Neu-
stadt fór að ráöum fjögurra manna
sérfræðinganefndar og svipti for-
eldra stúlkunnar forræði yfir henni.
Hún var síðan flutt á aðalsjúkrahús
Vínarborgar. Fjölmiðlar í Austurríki
hafa verið yfirfullir af fréttum um
Oliviu litlu undanfarnar vikur en
foreldrar hennar flúðu m.a. með
hana úr landi. Ástand hennar hefur
hriðversnað að undanfornu og er
æxhð nú 15 sinnum stærra en þegar
það greindist fyrst. Lífshkur hennar
eru ekki taldar miklar.
Handtökuskipun hefur verið gefin
út á kraftaverkalækninn og faðir
OUviu verður handtekinn ef hann
reynir að komast inn á sjúkrahúsið.
Reuter
Einhver stærsta loftbelgjahátíð Bandarikjanna stendur nu ytir i New Jersey
og taka rúmlega eitt hundrað loftbelgir þátt í henni. Þessi mynd var tekin
við bæinn Readington þegar belgirnir fóru á loft. Símamynd Reuter
Lars Emil Johansen.
Almenningurvar
leiddur á villigötur
Danskir embættismenn leyndu al-
menning upplýsingum um nauðung-
arflutninga íbúa Thule á Norður-
Grænlandi árið 1953. Almenningur
var mataöur með sögum um að
Grænlendingarnir sjálfir hefðu beðið
um að flytja á brott. Þetta kemur
fram í leynilegum skjölum sem blað-
iö Politiken skýrði frá í gær.
Grænlendingarnir voru reknir að
heiman vegna þess að bandarísk
stjórnvöld vildu koma upp loftvarna-
byssum við híbýh þeirra í grennd viö
herstöðina í Thule. Dönsk yfirvöld
vildu hins vegar gera allt til að kom-
ast hjá árásum á Bandaríkjamenn í
fjölmiölum.
Bæjarfélagið í Thule hefur í mörg
ár reynt að fá dönsk stjórnvöld til
að borga skaðabætur til þeirra nauð-
ungarfluttu en þeim kröfum hefur
ætíð verið vísað á bug. Lars Emil
Johansen, formaður grænlensku
landstjórnarinnar, hefur nú tekið
kröfuna beint upp við Poul Nyrup
Rasmussen.forsætisráðherra. Ritzau
ÞURRKARAR
• Þvottamagn 4,5 kg.
• Kalt loft síðustu 10 mín.
• Snýr í báðar áttir
• Rofi fyrir viðkvæman
þvott
• Með eða án barka
• Frí heimsending í Rvk.
og nágrenni
VISA - EURO - RAÐGREIÐSLUR
20
RAFVORUR
frá
27.997,-
ÁRMÚLI 5 • 108 RVK • SÍMI 568 6411
PffPtnegariða PowerPC 601 örgjörvi
500 MB harddiskur
\ÍB vinnsluminni (stœkkanlegt A
Innbyggt geisladrif (CD JCÚM)
16 bita víðóma hljóð (iyti^og útfakj
Innbyggt Ethertfet (AAJUÍ)
15" Apple-skjá^
slenskt hnapjfaborð
íslenskt s\yrikerfi
Apple-umboðið
SKIPHOLTI 21 • SfMI: 511 5111
Heimasíðati: http:IIwww.apple.is