Dagblaðið Vísir - DV - 31.07.1995, Qupperneq 17
MÁNUDAGUR 31. JÚLÍ 1995
17
DV
Fréttir
Fyrsta mótel-
ið á íslandi
opnaðí haust
sunnan við Bor garQ ar ðarbrúna
Rétt áöur en komið er aö Borgar-
fjaröarbrúnni á norðurleið er óhjá-
kvæmilegt aö taka eftir veglegu húsi
í byggingu á vinstri hönd. Það eru
Margrét Jónsdóttir og Guðmundur
HaU Ólafsson í Ný-Höfn, sem er tölu-
vert sunnar, sem eru að byggja.
„Það verður gisting uppi og niðri
verður mótel, 8 herbergi með sér-
snyrtingu sem gengið verður inn í
að utan. Þetta verður fyrsta mótelið
á íslandi. Einnig verður þarna veit-
ingasalur fyrir 70 manns og sjoppa.
Meiningin er að vera líka með
tjaldstæði, hjólaleigu og hestaleigu.
Þarna verða heitir pottar og leikvöll-
ur fyrir börn. Gestum gefst kostur á
sjóbirtingsveiði i sjónum, bæði á
bleikju og urriða,“ segja Margrét og
Guðmundur.
Margrét Jónsdóttir og Guðmundur Hall Ólafsson eru að byggja mótel við
Borgarfjarðarbrúna.
Suöurnes:
Risanet við skipa-
smíðastöð og 3 laxar
Ægir Már Karason, DV, Suðumesjum:
Lögreglan í Keflavík fann og gerði
stórt og voldugt veiðinet upptækt á
laugardag. Því hafði verið komið fyr-
ir í sjónum út frá Skipasmíðastöð
Njarðvíkur og í því voru þrír laxar.
Lögreglan hefur ákveðna menn
grunaða að vera eigendur netsins.
Stóran lögreglubíl þurfti til að ná
í netið, svo mikið að vöxtum var það.
Laxinn gengur inn í hafnirnar á leið
sinni í hafbeitarstööina í Vogum og
hefur fjöldi fólks stundað laxveiðar
á stangir víða á Suðurnesjum en aðr-
ir hafa notast við net til að ná í lax.
Keflavík:
Hafnargarðurinn
að hrynja
Ægir Mar Karason, DV, Suðumesjum:
Aðalhafnargarðurinn í Keflavík
liggur undir stórskemmdum og er
að hruni kominn að hluta til. Sér-
fræðingar í hafnamálum spá því að
garðurinn muni hrynja og opna sig
í gegn næsta vetur og þá sé stór-
hætta á ferð.
Garðurinn, sem oftast er nefndur
stóra bryggjan í Keflavík, er 150
metra langur og 12 metra hár frá
botni. Hann var byggður 1950 og hef-
ur htið verið haldið við. Gert er ráð
fyrir að viðgerð og breytingar á kant-
inum kosti um 50 millj. króna. Setja
þarf grjót utan um hann og breikka
í 20 metra. Nú er hann 10 m breiður
og í enda bryggjunnar 15 metrar. Að
sögn Péturs Jóhannssonar, hafnar-
stjóra í Keflavík, Njarðvík og Höfn-
um, vonar hann og taldi nauðsynlegt
að framkvæmdir hefjist sem fyrst.
IV wJÉv 1 m aii j J i
” . - J, - f /'j tffi i
Nýja húsið sem reiknað er með að verði fullbúið í haust.
DV-myndir JAK
Margrét er uppalin í Ný-Höfn en
Guðmundur er Reykvíkingur. Þau
hafa búið í Ný-Höfn í 18 ár. Þau voru
með hefðbundinn búskap en núna
reka þau ferðaþjónustu og Guð-
mundur hefur auk þess unnið á
Grundartanga. Meiningin er að þau
flytji frá Ný-Höfn í nýja húsið þegar
það verður tilbúið, en það er áætlað
í haust. Ekki er búið að gefa staðnum
nafn enn þá.
Verkfræðistofan Alfa vann verk-
fræðiþáttinn við nýja húsið og Guð-
rún Jónsdóttir landslagsarkitekt
teiknaði. Uppistaðan í útveggjunum
er 14 einingahús af Grundartanga
sem hætt var að nota.
Kenwood
ar sem gœðin heyrast
^gavegi 118 og ^ua,rstrgeti ^
gújwnrft ?kki-að bíða