Dagblaðið Vísir - DV - 31.07.1995, Side 19
MÁNUDAGUR 31. JÚLÍ 1995
31
Fréttir
Þrjátíu og f imm
umsóknir um
skólavist í Reykholti
- enn er hægt að skrá sig
Skólayfirvöld Fjölbrautaskóla Vest-
urlands lögðu fram tillögur um fyrir-
komulag skólastarfs í Reykholti í lok
júní sl, Kynningarbæklingur var út-
búinn og frestur til að sækja um
skólavist rann út 20. júlí. Alls báðu
80 manns um upplýsingar um nám
við skólann. 35 umsóknir nemenda
hafa verið staðfestar og enn er tekiö
við umsóknum.
Einnig var auglýst eftir starfsfólki
við skólann. Þrjár umsóknir bárust
um stöðu skólastjómanda og 20 um-
sóknir um störf í Reykholti. Búið er
að ráða 6 manns, þar af Þórunni
Reykdal skólastjórnanda, til að
stjórna daglegu starfi í Reykholti.
Margvísleg aðstoð
við nemendur
„Við getum tekið við hátt í 100 nem-
endum í Reykholti en æskilegur
fjöldi er 80-90. Nemendur munu fá
margvíslega aðstoð. Þetta fyrir-
komulag, sem verður í Reykholti,
hefur verið haft á Norðurlöndum,"
sagði Þórir Ólafsson, skólameistari
Fjölbrautaskóla Vesturlands.
Að sögn Þóris er skólinn í Reyk-
holti hugsaður fyrir 16-18 ára nem-
endur sem eru að byrja framhalds-
nám eða em skammt komnir á veg
í því. Tekið verður á þeim vandamál-
um sem nemendur kunna að eiga við
að glíma. Reynt verður að vinna með
hópinn og tveir fyrstu dagar hvers
skólaárs fara 1 hópefli til að kynna
nemendur innbyrðis og kynna þeim
staðhætti, starfshð og fyrirkomulag
skólastarfsins.
Áhersla á listir
„Unglingar eru í of litlum tengslum
við atvinnulífið þar sem þeir fá oft
einhæfa sumarvinnu. Skipulögð
verður náms- og starfsráðgjöf og sér-
stök áhersla lögð á hstir. Auk al-
menns byrjunarnáms er góð aðstaða
til náms í fjölmiðlun, smíðum, verk-
legu námi og hestamennsku," sagði hús, hesthús, tölvuver, ljósmyndaað-
Þórir. staða, myndbandavinnsla og út-
í Reykholti er sundlaug, íþrótta- varpsstöö.
Þórir Ólafsson, skólameistari Fjölbrautaskóla Vesturlands.
Skólinn i Reykholti í Borgarfirði.
DV-myndir JAK
EIN MEÐ OLLU
FYRIR FYRIRTÆKIÐ OG HEIMILIÐ
fyrir:
bílinn
vrn _
fyrirtækið
húsið &
garðinn
Mjög auðveld og
þægileg i notkun.
KEH/ X-tra 3600 er mjög öflug og ein-
stakiega þægilega útbúin háþrýstidæla með
öllum búnaði og fylgihlutum til þrifa utanhúss.
Ekkert rispar lakkið meira á bílnum en drullugir og tjargaðir þvottakústar.
rjiyiMiuui. i uinanuu spuiror, sjairvina srarusiopp, vainssianga i Kasettu, nreinsinal,
froðustútur, 1 brúsi af bílhreinsiefni, 1 brúsi af hobbyhreinsiefni, 1 blöndunarbrúsi,
25 cm þvottabursti, hraðtengi fyrir vatnsinngang og vagn. Hámarks
þrýstingur 140 bör, vatnsmagn á mín. 8,2/7, 51, þyngd 15,5 kg.
Reks
Rekstrarvörur • Réttarhálsi 2.110 Reykjavík • Sími: 587 5554 • Fax: 587 7116
R y
Hagyrðinga-
mótí
Reykjavík
„Hagyröingamótið verður í
Súlnasal Hótel Sögu. Það verður
fyrst sameiginleg máltíð og dag-
skráin byrjar á meðan á máltíð-
inni stendur," segir Sigurður Sig-
urðarson um sjöunda hagyrð-
ingamótið sem haldið er fyrir
landið. Á mótinu verða fyrst
haldin tvö stutt erindi en svo
hefst glíma milli hagyrðinga. Seg-
ir Sigurður að keppt verði í að
kveöast á, eða skanderast, og
einnig í að yrkjast á. Veitt verða
verðlaun fyrir besta botninn.
Sigurður segir: „Þetta er ekki
bara fyrir hagyrðinga. Þetta er
fyrir alla sem hafa unun af þvi
að hlusta á vísur. Nýjar, áður
óbirtar vísur verða látnar í
Skáldu, skip sem sighr milli borð-
anna. Vísunum verður haldið til
haga og þær gefnar út.“
A hagyrðingamótinu munu
margir af bestu hagyrðingum
iandsins takast á. Hægt verður
að fá vísnakver frá fyrri mótum
á staðnum og gerast áskrifandi
að nýrri þáttaröð alþýðuvísna.
Að lokum verður dansað við
harmoníkuieik þangað til birta
tekur á ný.
Hagyrðingamótið verður haldið
laugardaginn 26. ágúst kl. 20.30.
-GJ
JKtatafc
alíar myndirnar
á einni mynd
þannig að þú
getur auðveldlega
valið mynd til
eftirtöku.
HANS PETERSEN HF