Dagblaðið Vísir - DV - 31.07.1995, Page 27
MÁNUDAGUR 31. JÚLÍ1995
39
Fréttir
Svipað og að fóðra skepnur
segir Jón Pétursson, garðyrkjubóndi á Kleppjárnsreykjum
„Ég er mest með tómata og svo
gúrkur en stöðin er of lítil til að ein
fjölskylda geti lifað af henni, hún er
1600 fm en þyrfti að vera 2000-2500.
Ég hef því stundað skólaakstur með
á veturna til að drýgja tekjurnar.
Við leggjum afurðirnar inn hjá
Ágæti, ef varan selst ekki er það á
kostnað bændanna. Offramleiðsla er
á vissum tíma, þetta er svo árstíða-
bundið. Ég hef einn og hálfan starfs-
mann yfir sumartímann og við vinn-
um bæði við þetta, konan mín og
ég,“ sagði Jón Pétursson, garðyrkju-
bóndi í Björk á Kleppjárnsreykjum í
Borgarfirði.
Jón, sem er lærður rafvirki, er al-
inn upp í sveitinni, í Geirshhð, við
hefðbundinn búskap og stundaði síð-
an loðdýrarækt þar en flutti að Björk
árið 1987 og hóf garðyrkjubúskap.
Byggist á jarðhitanum
Hann sagði að Kleppjárnsreykir
væru ríkiseign og garðyrkjubændur
þar væru 7. Byrjað heföi verið að
beisla jarðhitann þar 1940 en það er
hann sem garðyrkjubúskapurinn
byggist á.
„Við höfum með okkur garðyrkju-
bændafélag. Við ráðum of litlu í sölu-
málunum og erum ósáttir við GATT.
Samkeppnin er hörð yfir vetrartím-
ann, við vildum fá aðeins vernd á
þeim tíma. Árið í fyrra var slæmt,
verðið á tómötum hefur lækkað og
er lágt, þó er það hærra í ár og samt:
selst meira núna,“ sagði Jón.
- Er þetta skemmtileg vinna?
„Þetta er ekki verra en hvað ann-
að, ekki ólíkt því að fóðra skepnur,
gúrkan er hk hámjólka kú, mjög við-
kvæm, það sést fljótt ef hana vantar
eitthvað.
Hunangsflugur
til frjóvgunar
Tómatplöntunar hafa batnað,
miklar kynbætur fara fram erlendis.
Við notum hungangsflugur til frjóvg-
unar og það hefur gefist mjög vel.
Tilraun var gerð með það í fyrra en
nú er það almennt. Hunangsflugna-
búin eru flutt inn og hvert bú endist
í 8-10 vikur og kostar 17-18 þúsund.
Ég er með þrjú hús en þarf ekki nema
eitt flugnabú, það er bara fært á milli.
Öllum plöntunum er hent út úr
húsunum í nóvember, við notum
hverja þeirra bara í eitt ár. Fræið er
keypt, því er sáð í desember í einu
húsinu. í febrúar eru plönturnar
færðar yflr í hin húsin og hafðar í
botnlausum pottum. Þegar þær fara
að vaxa þarf svo að taka sprotana
af og binda plönturnar upp og þaö
er heilmikil vinna. Þegar tómatarnir
fara að þroskast er farið á morgnana
og þeir þroskuðu tíndir af. Á meðan
fljúga hunangsflugurnar um en þær
láta mann alveg í friði,“ sagði Jón
Pétursson.
Tveir hestar týndir
Jón Benediktsson, DV, Hvolsvelli:
Lárus Bragason, sem tapaði 64
hrossum á Tindfjallajökul um miðj-
an júhmánuð, saknar enn tveggja
hesta. Annar hestanna er leirljós,
blesóttur og glaseygður en hinn jarp-
ur.
Lárus hefur tvisvar flogið yfir
svæðið þar sem tahð er að hestarnir
geti verið, en leitin hefur ekki borið
árangur. Möguleiki er talinn á því
að hestarnir tveir hafl blandast í hóp
trússhesta, en undanfarið hefur ver-
ið mikil umferð hestamanna með
fjölda hesta um hálendið.
Nokkrir af þeim hestum sem Lárus
tapaði á Tindfjöll blönduðust hópi
annarra hrossa sem struku til
byggða af Ragnárvallaafrétti, en þau
náðust síðar við Þríhyrning. Lárus
er nú með ferðahóp á sömu slóðum,
en hefur einskis orðiö var enn sem
komið er.
Jón Pétursson, garðyrkjubóndi i Björk, ásamt Pétri syni sinum, 10 ára, við hunangsflugnabúið í einu gróðurhús-
inu. Þórvör Embla Guðmundsdóttir, kona Jóns, og dóttirin, Sigríður Hrefna, 6 ára, voru ekki heima. DV-mynd JAK