Dagblaðið Vísir - DV - 31.07.1995, Qupperneq 29
MÁNUDAGUR 31. JÚLÍ 1995
41
Fréttir
Hjónaband
Allt í veiðiferðina
Seljum veiðileyfi í:
Brynjudalsá, Þórisvatn, Kvíslaveitur, Seyðisá og
Laugavegi 178, símar 551 6770 og 581 4455
Brynjudalsá:
Hasso veiddi
maríulaxinn
Leikhús
Þann 3. júni voru gefm saman í hjóna-
band í Langholtskirkju af séra Sigurði
Hauki Guðjónssyni Kristín Hermanns-
dóttir og Sæmundur Helgason. Heim-
ili þeirra er að Orrahólum 3.
Ljósmyndarinn - Lára Long.
Þann 8. júlí voru gefm saman í hjóna-
band í Áskirkju af séra Árna Bergi
Sigurbjörnssyni Halla Kristín Guð-
laugsdóttir og Gísli Örn Arnarson.
Þau eru til heimilis að Móabarði 34,
Hafnarfirði.
Ljósm. Mynd, Hafnarfirði.
Þann 18. febrúar voru gefm saman í
hjónaband í Neskirkju af séra Guðmundi
Óskari Ólafssyni Garðar Ólafsson og
Ragnheiður Sigurðardóttir. Þau eru
til heimilis í Garðabæ.
Veiðivon
Gunnar Bender
„Þetta er stórkostlegt að veiða fisk-
inn svona á flugu, sem vinur minn
hnýtti í þýsku fánalitunum í gær-
kveldi, hann Giovanni. Maríulaxinn
var 4 pund og skömmu seinna veiddi
ég 7 punda á þessa sömu Caramellu-
flugu," sagði þýski auðkýfmgurinn
Hasso Schiitzendorf sem var að veiða
í Brynjudalsá í Hvalfirði á laugar-
daginn. Hasso, sem er sjötugur, var
að renna í fyrsta skipti fyrir lax á
ævinni.
Eiginkona Hasso, Astrid, sem er
kólumbísk, veiddi fjóra fyrstu laxana
sína á ævinni líka í Brynjudalsá á
laugardaginn en hún setti í alls 6
laxa. Hópurinn fékk samtals 9 laxa.
Sigurður Bjarnason veiddi tvo laxa
og kona hans einn.
„Hasso vini mínum þótti þetta
meiri háttar að vera þarna við veiðar
og fá tvo laxa til að taka fluguna hjá
sér. Hann er óður að koma aftur og
renna fyrir lax,“ sagði Friðrik Brekk-
an, einn af leigutökum Brynjudalsár,
á laugardaginn.
Hasso fór að landi brot í morgun
en frést hefur að hann hafi áhuga að
koma aftur til íslands núna í ágúst
og þá sérstaklega til aö renna fyrir
lax í Brynjudalsá sem heillaöi Hasso
verulega.
í Brynjudalsá eru komnir 200 laxar
á land á efra og neðra svæðinu. Hasso
veiddi 200. laxinn í Bárðarfossinum,
en það var 7 punda laxinn.
Hasso og Giovanni Bianchi, ítalskur listmálari, við Bárðarfoss í Brynjudalsá
og á steini við hylinn eru fyrstu laxarnir sem Hasso veiðir um ævina, 4 og
7 punda fiskar, á flugu. DV-myndir G.Bender
Elliðárnar:
Veiði-
maðurinn
dattofan
í ána
-áinsvörtígær
„Það er erfitt að veiða við
þessi skilyrði, áin er kolsvört
og það gekk yfir garðinn á stífl-
unni við Elliðavatn. Það var
stórsjór þarna efra,“ sagðí Guð-
mundur Bang í veiðihúsinu við
Elliðaámar í gær en áin var
svört á að lita og alls ekki veiði-
leg í þessum ham.
„Menn eru að reyna en það
gengur rólega í þessu ástandi.
Þaö var annað upp á teningnum
við Gljúfurá í Borgarfirði fyrir
fáum dögum. Þá lenti maður í
mokfiski,“ sagði Guðmundur
enn fremur.
Þaö var ekki stætt við Elliða-
ámar í gær og veiðimaður sem
var að renna hugði ekki að sér.
Allt í einu kom vindhviða og
veiðimaðurinn tókst á loft og
lenti í ánni. Honum varð víst
ekki meint af flugferðinni.
Elliðaámar höfðu geflð 442
laxa á hádegi í gær og flugan
sækir verulega á.þessa dagana.
-G. Bender
‘iðiugginn kominn af og veiðifélagarnir Giovanni, Friðrik Brekkan og Sig-
ður Bjarnason hafa gaman af.
SeláíVopnaflrði:
200 laxar komnir á land
„Þetta er allt að koma í Selá í
Vopnafirði og síðustu dagar hafa gef-
ið um 40 fiska. Stærsti laxinn er 21
pund og veiddist á rauða franses,"
sagði Hörður„KR“ Óskarsson í gær-
kvöldi.
„Laxarnir eru komnir upp um alla
á og síðustu daga hefur mikið af fiski
komið í ána. Franskur veiðimaður
missti boltafisk eftir eins og hálfs
tíma baráttu í Rauöhyl á flugu. Þess-
ir erlendu veiðimenn sem þessi út-
lendingur var með veiddu 112 laxa á
einni viku,“ sagði Hörður enn frem-
ur.
„Hofsá í Vopnafirði er komin með
næstum 200 laxa og hann er 18 pund
stærsti í Baröhyl. Fnjóská hefur gefið
22 laxa og 70 bleikjur," sagði Eiríkur
Sveinsson á Akureyri í gærkvöldi.
„Bleikjan er að mæta í meiri mæli
í ána og eru stærstu bleikjurnar 4
pund. Stærsti laxinn í Fnjóská er enn
þá 18,5 punda flskur,“ sagði Eiríkur
í lokin. -G.Bender
LEIKFELAG
REYKJAVÍKUR
Stóra sviöiö kl. 20.30.
Rokkóperan
Jesús Kristur
SUPERSTAR
eftir Tim Rice og Andrew
Lloyd Webber
Fimmtud. 3/8, fimmtud. 10/8, föstud. 11/8,
laugard. 12/8.
Miðasaian er opln alla daga
néma sunnudaga, frá kl. 15-20
og sýningardaga til kl. 20.30.
Tekið er á móti miðapöntunum i síma
568-8000 frá kl. 10-12 alla virka daga.
Greiðslukortaþjónusta.
Ósóttar mlðapantanir seldar sýning-
ardagana.
Gjafakort - frábær tækifærisgjöf.
Leikfélag Reykjavikur-
Borgarleikhús
Faxnúmer 568-0383.
C*lilfli
~ ~ *j*j ^
9 0 4 -
DV
17 0 0
Verö aöeins 39,90 mín.
1 Fótbolti
2 Handbolti
3 1 Körfubolti
4 j Enski boltinn
51 ítalski boltinn
61 Þýski boltinn
71 Önnur úrslit
8 j NBA-deildin
1} Vikutilboö
stórmarkaöanna
2 ] Uppskriftir
11 Læknavaktin
2J Apótek
3 j Gengi
lj Dagskrá Sjónvarps
2 Dagskrá Stöövar 2
3 [ Dagskrá rásar 1
41 Myndbandalisti
vikunnar - topp 20
51 Myndbandagagnrýni
6 j ísl. listinn
-topp 40
7 j Tónlistargagnrýni
8 { Nýjustu myndböndin
JLj Krár
21 Dansstaðir
3 j Leikhús
4j Leikhúsgagnrýni
_5J Bíó
6 Kvikmyndagagnrýni
1} Lottó
2j Víkingalottó
3 Getraunir
mmm
aÍiflM
DV
9 0 4 - 1 7 0 0
Verö aöeins 39,90 mín.