Dagblaðið Vísir - DV - 10.08.1995, Blaðsíða 11
FIMMTUDAGUR 10. ÁGÚST 1995
11
Fréttir
Erlendum ferðamönnum flölgar:
Tekjurnar um 4
milljarðar í júlí
í júlímánuöi sl. komu alls 41.569
erlendir feröamenn til landsins eöa
um 3,5% fleiri en í sama mánuði í
fyrra. Voru það aö meðaltali 1340
manns á dag, auk farþega meö
skemmtiferðaskipum. Fjölmennastir
voru Þjóöverjar eöa 10.825, Banda-
ríkjamenn 4.653, Frakkar 4.074, Dan-
ir 3.801 og Bretar 2.903.
Fyrstu 7 mánuðina voru erlendir
feröamenn 117.858 en 113.419 í fyrra
og er það um 4% fjölgun.
Ekki er vitað á þessari stundu hve
lengi þeir hafa dvalið í landinu, ekki
heldur um fjölda gistinátta eöa hve
miklar gjaldeyristekjur eru af komu
þeirra. Ef tekjurnar af þeim eru þær
sömu og í fyrra aö meðaltali eru þær
í júlímánuöi einum um 4 milljaröar.
Japönum fjölgar mest
Japönum, Finnum, Bandaríkja-
mönnum og Dönum fjölgar mest á
fyrstu 7 mánuðum ársins en Bretum,
Hollendingum og Norömönnum
fækkar mest.
Japanir eru í nokkrum sérflokki
en þeim fjölgar um 29% og Finnum
um 20,5% en Bretum fækkar mest
eða um 15,9%.
Birgir Þorgilsson, formaöur Ferða-
málaráðs, sagði að ástæða þessarar
miklu fjölgunar Japana væri trúlega
fyrst og fremst sú að síðastliðin 3-4
ár hefði verið unnið mjög mikið á
Japansmarkaði og nefndi sérstak-
lega mjög duglegan Japana með
ferðaskrifstofu sem seldi ferðir til
íslands.
Birgir sagði það áhyggjuefni hve
Bretum hefði fækkað en ekki væri
vitað hver ástæðan væri en reynt
yrði að komast að því.
Hann sagði jafnframt að tölurnar
væru ekki alltaf marktækar. Það
þyrfti stundum ekki annað en stór
hópur kæmi frá einhverri þjóð til að
breyta þessum litlu tölum.
Rykk-
rokk
’96
Tónlistarhátíðin Rykkrokk
verður haldin í áttunda sinn á
laugardaginn. Rykkrokk, sem
var fyrst haldið áriö 1984, fer aö
venju fram fyrir utan félagsmið-
stöðina Fellahelli við Noröurfell.
Tónleikarnir hafa oft verið vel
sóttir, árið 1990 mættu til dæmis
um sex þúsund áhorfendur upp í
Breiðholt til að hlusta á Ryk-
krokkið.
Meðal hljómsveita sem spila á
rykkrokki ’96 eru Unun, Funkst-
rasse, Kolrassa krókríðandi, Láp-
stikk, Olympía, Maus, Quicksand
Jesus og Dallas. Aðgangur er
ókeypis.
Flugmót var haldið við Múlakot i Fljótshlíð um verslunarmannahelgina. Fór mótið vel fram og margt til skemmtun-
ar. Mætti fólk víða að, m.a. þessir Þjóðverjar á heimasmíðaðri vél sinni. DV-mynd Sigrún Lovísa
Skógræktardagur-
inn 12. ágúst
Aðildarfélög Skógræktarfélags Is-
lands efna til skógræktardags 12.
ágúst næstkomandi og vilja þau
hvetja fólk til að sjá með eigin augum
árangur af starfi félaganna.
Dagurinn er haldinn í tilefni af
Náttúruverndarári Evrópu 1995.
Dagskráin hefst á skógræktarsvæð-
unum um allt land kl. 14 þegar fáninn
verður dreginn að hún.
Forráðamenn félaganna taka á
móti gestum þar sem boðið verður
upp á fjölbreytt kynningarefni, af-
þreyingu fyrir alla aldurshópa og
veitingar.
Skógræktarfélögin fagna þessu
tækifæri til að taka virkan þátt í
Náttúruverndarári Evrópu 1995 enda
er til þess ætlast að þar sé hvers
kyns náttúruvernd á dagskrá.
Tilgangurinn með þessum degi er
að vekja athygli á því sem áunnist
hefur á vettvangi þessara öflugu
áhugamannasamtaka undanfarna
áratugi.
Alhliða gróður-
og náttúruvernd
Þótt meginstef ársins sé umhverfi
í og viö þéttbýli er eðlilegt að hér á
landi sé vakin athygh á því sem snýr
að skógrækt og alhliða gróður- og
náttúruvernd enda jarðvegs- og
gróöureyðing eitt erfiðasta umhverf-
isvandamál á íslandi að áliti Skóg-
ræktarfélags íslands.
Þar sem skóglendi jarðar er á und-
anhaldi bendir félagið á mikilvægi
þess að sem flestir taki þátt í því að
snúa þeirri óheillaþróun við. Þar
getur hver og einn lagt fram sinn
skerf eftir eigin getu og geðþótta.
Skógræktarfélag íslands vill vekja
athygli á þvi að skógur er ekki ein-
göngu til nytja heldur í stöðugt vax-
andi mæli vettvangur útivistar og
náttúruskoðunar.
Félagið telur að almenn þátttaka
fólks í skógræktarstörfum, sem
skógræktarfélögin hafa staðið fyrir,
hafi leitt í ljós að hún er grundvöllur
þess aö góður árangur náist við end-
urheimt fjölbreytts gróðurríkis á ís-
landi.
Húsbréf
Utdráttur
húsbréfa
Nú hefur farið fram útdráttur
húsbréfa í eftirtöldum flokkum:
1. flokki 1991 - 15. útdráttur
3. flokki 1991 - 12. útdráttur
1. flokki 1992 -11. útdráttur
2. flokki 1992 - 10. útdráttur
1. flokki 1993 - 6. útdráttur
3. flokki 1993 - 4. útdráttur
1. flokki 1994 - 3. útdráttur
Koma þessi bréf til innlausnar 15. október 1995.
Öll númerin verða birt í næsta Lögbirtingablaði.
Auk þess eru númer úr fjórum fyrsttöldu
flokkunum hér að ofan birt í Alþýðublaðinu
fimmtudaginn 10. ágúst. Upplýsingar um út-
dregin húsbréf liggja frammi í Húsnæðisstofnun
ríkisins, á Húsnæðisskrifstofunni á Akureyri, í
bönkum, sparisjóðum og verðbréfafyrirtækjum.
cSg húsnaðisstofnun ríkisins
HÚSBRÉFADEILD • SUÐURLANDSBRAUT 24 • 108 REYKJAVlK • SlMI 569 6900
^ ^ ‘6j^ ^ ^ ^
af smáauglýsingum fyrir alla
áskrifendur DV
AUGLYSINGAR
Skógræktarfélag Islands vill vekja athygli á því að skógur er ekki eingöngu
til nytja heldur í stöðugt vaxandi mæli vettvangur útivistar og náttúruskoðun-
ar.
Smáauglýsingar DV skila árangri.
Hringdu núna í síma 563 2700