Þjóðviljinn - 24.12.1938, Blaðsíða 11

Þjóðviljinn - 24.12.1938, Blaðsíða 11
Þ JÓÐ VILJINN 11 )ón Rafnsson: Ó 1 Klukkum firingt. Dokar dagsins önn. Svöriustu nóttinni sóknin daprast. Sólfiuginn brosir undir fönn. Kvöldið er fieiðrikt. Klukknanna filjómur kliðar um dal og fjörð. Hljóð — fiiminninn tendrar stjörnuglóð. Friður, friður á jörð. Barn er oss fcett. Kembir kylja ur skafli krista/rósaðan dúk. Klæðir kjallaraglugga kveldsins tárfireina vetrarfjúk. Flöktandi tjós í tjóra Ifsir kulnaðan arn. Hún Maja 'í Fjósinu ót þar áðan yndislegt Jesúbarn. Klukkurnar þagna, klerkurinn blessar, kviknar á greinum jó/atrés. Nú eru jól í Jesú nafni — og jólaveisla fijá Heródes. fingraför hins illa á því? Fá þeir sig til að trúa því, að það þezta í stálpuðu barni sé byrjað að deyja og lagzt í gröf inni í hjartanu, eitrað og bráðum ornii smogið lík? — Nei, vonandi sjá þeir það ekki á eigin börn-i um, heldur aðeins á börnum vesælla nágranna sinna. Og svio eru til trúaðir menn, sem segja, að allt sé í lagi, nema oflítil þolinmæði við þá sem hafa peningaráðin og völd- in; guð lækni allt. Vei yður, trúníðingar, seir troðið kirkjukenningum í börn-j in, en felið fyrir þeim bæði guð og djöfulinn, afneitið því, iað í barninu er endurlausnarinn fólginn, en djöfull í Heródesi, sem þér veitið konunglega virð-' ingu! ' I Lítum til Spánar, þar sem innrásarherir afturhaldsins halda uppi sókn sinni hin þriðju jól í röð, þar sem jólaleiftrið í skýjum himinsins eru sprengjur^ hrævareldar á byssustingjum* tendra kertaljósin, sem tákna; frið á jörðu, en púðurreykur og{ blóðlykt sá reykelsisilmur, sem boðar velþóknun guðs yfir, mönnunum. Pannig berst feig-: ur kapitalismi Þýzkalands og ítalíu fyrir mat sínum og til- veru. Og þar er höfuðáherzla lögð á að myrða mæður og börn eða sturla og eyðileggjá mæður og börln í sprengjuárás- um á hvert einasta þéttbýli og' þorp til þess að „þeir rauðu“ geti aldrei byggt upp þjóðfé- lag framtíðarinnar og til þess að Heródes huggi sig við, að frá Betlehem geti enginn endur- lausnari kbmið. Sama baráttan og á Spáni er hafin víða um lönd, þótt með misgrimmum aðferðum sé. Sömu öflin takast hvarvetna á. Þar sem auðvaldsöflunum er íhaldið í skefjium, eins og í mörg um lýðræðislöndum, búast fas- istar til uppreisnar, ogí í Sovét- ríkjunum, þar sem þau öfl eru yfirbuguð, hlýtur spillingararf- ur kapítalismans ásamt náttúr- legum örðugleikum að útheimta langvinna atvinnulífs- og sið- skiptabaráttu enn. íslendingar geta ekki umflúið þessi siðskipti og baráttu þeirra, en þeir geta náð valdi yíir þeim, ef þjóðin þekkir nógu snemma vitjunartíma sinn og lætureng^ an Heródes blinda né myrðá sálir barnanna. Með beig og myrkur að baki og á aðra hönd, með siðskipta- trú á þá baráttu góðs og ills, sem er kjarninn í baráttu tím- ans, höldum við hátíð barnanna í Betlehem, þeirra, sem vom myrt, þeirra, sem verða myrt.og þeirra, sem láta endurlausnar- fyrirheitið rætast. 1 nafni end- urlausnar og píslarvættis halda kristnir og afkristnir saman heil- ög jól. Björn Sigfússion.

x

Þjóðviljinn

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Þjóðviljinn
https://timarit.is/publication/257

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.