Þjóðviljinn - 24.03.1953, Blaðsíða 1
Þriðjudagur 24. marz 1953 — 18. árgangur — 69. tölublað
Þeir sem æíla að dvelja. í
Skíðaskálanum um páskana
skrifi sig á lista í skrifstof-
unni fyrir n. k. laugardag.
Skálastjórn.
nnda
Listamannalaun Jóhannesar úr Kötlum stárlœkkuS, Hall-
dór Steíánsson og Gunnar Benediktsson sfrikaÖir úf
í vetur útilokuðu „Lýðræðisílokkarnir'1 þrír full-
trúa sósíalista úr úthlutunarnefnd, og nú er komið í
ljós hver tilgangurinn var. Nýjustu úthlutuninni er
nú lokið. Breytingarnar tala skýru máli:
Jóhannes úr Kötlum er lækkaður um 6000 kr., úr
.kr. 15.000 í kr. 9.000. Halldór Stefánsson sem í
fyrra hafði kr. 5.400 í listamannalaun fær nú ekki
neitt. Gunnar Benediktsson sem hafði kl. 3.600 í
fyrra er einnig sviptur launum sínum. Á sama hátt
er íarið með ýmsa fleiri, t.d. Gunnar M. Magnúss.
og Sigurð Róbertsson svo að enn séu nefnd tvö
nöfn.
Aðrar breytingar eru í sam-
ræmi við þetta. Snorri Hjartar-
son sem sviptur var launum sín-
um á síðasta ári er nú talinn í
hópi þriðja flokks skálda!
Ekkert hefur verið sinnt brýn-
ustu lagfæringum á helztu
hneykslum síðustu úthlutana, og
enn má nefna að Þorsteinn
Vialdimarsson hefur ekki fundið
ináð fýrir augum þeirra þre-
menninga sem auglýsa bók-
tmenntasmekk sinn með úthlut-
uninni. ‘Verður nánar vikið að
Flgl gefst
iipp
Dr. í’iigl hefur gefizt upp við
tilraunir sínar til stjórnarmynd-
unar í Austurríki og hefur
Kömer forseti nú falið Julius
Raab, flokksbróður Figls og
formanni kaþólska þjóðflokksins,
að reyna stjórnarmyndun. Þjóð-
flokkurinn beið ósigur í síðustu
kosningum, en er þó enn stærsti
flokkur þingsins.
Hækkað brauð-
verð í Júgóslavíu
Tilkynnt var í Belgrad í gær,
>að brauð mundi hækka í verði
um eimn þriðja og var sú skýr-
ing gefin á hækfcuninni, að Júgó-
slavía hefði orðið^ að flytja inn
mikið magn af komvöru til að
bæta oppskerubrestinn í fyrra-
haust.
þessum .atriðum og öðrum síðar
hér í blaðinu.
‘Skýrsla nefndarinnar fer hér
á eftir í heild:
Nefndin, sem annast úthlutun
listamannastyrkja, hefur nú
lokið störfum. 103 listamenn
hlutu styrk, en upphæðin, sem
úthlutað var, nam kr. 608 400.00.
Alls bárust 160 umsóknir. —
nefndinni áttu sæti: Þorsteinn
Þorsteinss^n, sýslumaður, for-
maður, Þorkell Jóhannesson,
prófessor, ritarf og Helgi Sæ
mundsson, blaðamaður.
15 000 krónur hlutu:
Ásgrímur Jónsson,
Davið Stefánsson frá Fagra-
skógi.
Guðmundur Gíslason Hagalín,
Halldór Kiljan Laxness,
Jakob Thorarensen,
Jóhannes S. Kjarval,
Jón Stefánsson,
Kristmann Guðmundsson,
Tómas Guðmundsson,
Þórbergur Þórðarson.
9 000 krónur hlutu:
Ásmundur Sveinsson,
Elínborg Lárusdóttir,
Finnur Jónsson,
Guðmundur Böðvarsson,
Guðmundur Daníelsson,
Guðmundur Einarsson,
Gunnlaugur Blöndal,
Gunnlaugur Scheving,
Jóhannes úr KÖtlum,
Jón Bjömsson,
Frambald á 3. síðu.
Málarasveinar mótmæla
stofnun innlends hers
Samemingarmenn sjáifkjömir í sðjérn féiagsins
Málaras\ emafélag Reykjavíkur hélt aðalfur.d sinn s.I. sunnu-
dag. Fundurinn samþykkti einróma mótmæli gegn þeirri hug-
mynd afturhaldsins, sem sett var fram í áramótagreinum ráð-
herranna Hevmanns Jónassonar og Bjarna Benediktssonar, að
komið verði á stoín innlenduum her.
Sameiningarmenn urðu sjálf-
kjörnir í stjórn. félagsins.
Stjórnina skipa: Kristján Guð-
laugsson, formaður, Haukur
Sigurjónsson, varaformaður,
Lárus Bjamfreðsson, ritari,
Guðbjörn Ingvarsson, gjaldkeri,
Jón Ingólfsson, vararitari.
a
Eftir árásina á sendiráð Sovétríkjanna í Telaviv, sem leiddi til
þesv að Sovétríkin slitu stjórnmálasambandi við Israel, var far-
in mótmaáaganga um götur borgarinnar, þar sem borin voru
spjöld með mótmælum gegn fjandskap Israelsstjórnar í garð
alþýðuríkjanna.
Menntamálaráðherra tók
rögg á sig í vetur og auglýsti
til umsóknar skólameistara-
starfið við menntaskólann á
Laugarvatni.
Frétzt hefur að meðal um-
sækjenda sé Jóhann Hannes-
son kristnibofii. Sé svo virðist
sr. Jóhann ætla að táka sér
frí frá kristniboðinu og að
talin séu meiri not fyrir hann
innanlands en í Asíu.
1
Hákon Noregskonungur kom
til Stokkhólms í gær í opinbera
heimsókn og er það í fyrsta
skipti eftir stríð að hann fer til
Svíþjóðar í opinbera heimsókn,
en hann var samt viðstaddur
útför Gústafs komungs 1950.
Þmgkosningar eða þjóðar-
atkvæði í Frakklandi?
Bidault cg Schuman telja báðii vonlaust að
þjöðþingið fuligildi saitminginn
um „Evíópuher"
Bidaulc, utanríkisráðherra Frakklands og Schuman
fyrrv. utanríkisráðherra hafa báðir nýlega látið orð falla
á þá leið, að fáist franska þingið ekki til að iullgilda
samninginn um þátttöku Frakka í ,.varnarbandalagi Ev-
róp“ verðí að skjóta málinu undir dóm þjóðarinnar.
Battle rυst
á Svia
Bandaríski þingmaðurinn
Battle réðst í gær í þinginu í
Washington á Svía og Sviss-
lendinga, sem hann sagði að
flyttu út hemaðarmikilvægar vör
ur til Sovétrikjanna og banda-
lagsrikj.a þeirra og krafðist, að
þegar í stað yrðu gerðar ráð-
stafanir til að koma í veg fyrir
slík viðskipti.
Battle er höfundur laganna,
sem , við hann eru kemnd og
heimila að þau lönd sem ekki
hlíta banni Bandaríkjanna við
útflutningi ákveðinna vara til
Sovétríkjanna, verði svipt allri
efnahagsaðstoð og beitt öðrum
refsiráðstöfunum.
Bidault sagði á fundi utanrík-
ismálanefndar þjóðþingsins í síð-
ustu viku, oð samniingurinn og'
fullgilding hans væri „þjóðlegt
vandamál, sem þjóðin sjálf yrði
að finna lausn á“. í grein sem
Schuman ritaði
í síðustu viku
í Parísarblaðið
Samedi Soir
sagði hann að
„það kæmi til
kasta hinnar
fullvalda Þjóð-
ar, að jafna á-
greininginn“.
Hann bættji
við, að laðeins
kjósendur
gætu myndað nýjan meirihluta
á þingi til að framkvæma nýja
utanríkiisstefnu.
Fréttaritari New York Times
í París segir að almennt sé talið
mjög vafasamt, að meirihluti
þjóðþingsins fáist til >að fullgilda
samninginn og beri ummæli
Bidaults og Schumans vitni um,
að þeir telji það báðir vafasamt.
Mayer forsætisráðherra og
Bidault.
Bidault fara til Washington til
viðræðna við Bandaríkjastjórn
seinni part vikunnar og verður
„Evrópuherinn" þar eflaust efst
mála á dagskrá. Annað mál sem
þar verður rætt verður aðstoð
Bandaríkjanna handa franska
hernum í Indókína, og segir
fréttaritari NYT að mikill á-
greiningur sé um það mál innan
frönsku stjórnarinmar.
Hann segir, að Bida-ult sé al-
gerlega andvígur þeim fyrirætl-
unum Mayers, að Frakkar semji
um það við Bandafíkin, að þau
veiti þeim um 900 millj. dollara
aðstoð til stríðsrekstursins í
Indókína á næsta árá, en það
mundi þýða að Bandaríkin bæru
um 65% af kostnaðinum af styrj-
öldinni gegn þjóðfrelsishreyfingu
Vietnams. Bidault er sagður
halda því fram, að ef Bandarík-
in tækju á sig meignið af byrð-
unum í Indókína mundi það
hafa í för með sér rýmandi álit
og xninnkandi áhrif Frakka.
Sama skoðun hefur verið látin
i ljós í Le Figaro.
C^ark vonlitill
um sigur
Mark Clark yfirforingi Banda-
ríkjahers í Kóreu, sagði i gær,
að ekki væri hægt að sjá fyrir
endann á stríðinu þar.
Hann kom til Hongkong í gær
frá Indokíma, þai- sem hann hef-
ur kynnt sér styrjaldarrekstur
Frakka. Hann sagði að Frakkar
áettu við sama óvin að etja í
Indókína og Bandaríkjamemn í
Kóreu. Aðstaða þeirra væri þó
ólík, því að Frakkar væru í
rauninni umkringdir af óvina-
herjum, en í Kóreu hefðu skæru-
liðar að baki víglínunnar verið
upprættir.
Fulltrúaráðs-
ítmdur arniaS
Fulltrúaráð Sósíalistafé-
lags Reykjav-íkur heldur
fund annað kvöld á Þórs-
götu 1. Nánar tilkynnt á
morgun.