Þjóðviljinn - 16.04.1953, Blaðsíða 6
6) — ÞJÓÐVILJINN — Fimmtudagur 16. apríl 1953
þióoyiuiNN
Otgefandl: Samelningarflokkur alþýðu — Sósíalistaflokkurlnn.
Ritstjórar: Magníis Kjartansson (áb.), Sigurður Guðmundsson.
Fréttastjóri: Jón Bjarnason.
Blaðamenn: Ásmundur Sigurjónsson, Magnús Toríl Ólafsson,
Guðmundur Vigfússon.
Auglýsingastjóri: Jónsteinn Haraldsson.
Ritstjórn, afgreiðsla, auglýsingar, prentsmiðja: Skólavörðustfg.
10. — Sími 7500 <3 línur).
Áskriftarverð kr. 20 á mánuðl í Reykjavík og nágrenni; kr. 17
annars staðar á landinu. — Lausasöluverð 1 kr. eintakið.
Prentsmiðja Þjóðyiljane h.f.
_______________________I__I-----------------------■>'
Sjálfstæðisflokksviðskipti
Eins og kunnugt er má heita að Thorsararnir séu
hættir að' standa áð framleiðslustörfum; þau eru allt
of iáhættusöm. í staöinn liafa þeir hreiörað um sig 1
flestum þeim stofnunum þjóðarinnar sem mestum úr-
rlitum ráöa í efnahagsmálum; í bönkum, afurðasölu,
utanríkisþjónustu o. s. frv. Á þann hátt hafa þeir
gerzt kjarni þeirrar einokunarklíku sem nú stjómar
íslenzka þjóöarbúinu.
Eitt þeirra fyrirtækja sem Thorsararnir hafa lagt
undir sig er „óskabam þjóöarinnar", Eimskipafélag Is-
lands. Völdin þar eru þeim mun kærkomnari sem þetta
.‘•tórfellda auösöfnunai'fyrirtæki er skattfrjálst og getur
bvi ieyft sér umsvif sem annars em öröug á íslandi. Hafa
Thorsaramir haft af því mikiö gagn aó drottna yfii
jjessu fyrirtælci bæöi til aö tryggja auð sinn og völd.
Og nú nýlega uppgötva Thorsaramir að rétt værí aö
þeir kræktu persónulega í eitthvað af þeim fjármunum
sem hið skattfrjálsa Eimskipafélag hefur komizt yfir.
Fra því aö þeir stunduðu útgerö áttu þeir viö Skúlagötu
verulegar lóöir og nokkrar lélegar byggingar, en fyrii
þessar eignir höfðu þeir ekki lengur nein not eftir aö
togarinn var aöeins orðinn einn og slælega rekinn. Og
nú var sett á laggirnar eftirminnilegt sjónarspil.
Thorsararnir í Kveldúlfi og Thorsararnir í Eimskipa-
félaginu fóru að semja um þaö aö þeir fyrrnefndu létu
af höndum lóöirnar og húskofana en þeh síðarnefndu létu
í staðinn á annan Imilljónatug króna af hinum skatt-
frjálsu tekjum sem þjóðin færir óskabarni sínu. Sam-
kvæmt frásögn málsaöila gengu samningar erfiðlega því
Thorsararnir í Eimskip reyndu aö hlunnfara Thorsarana
í Kveldúlfi. og einn þeirra lýsti yfir því áð' þetta heföi
tekizt, eignirnar heföu farið fyrir milljónum króna of
lágt verö. Enda munu þær 12 milljónir seni greiddar voru
aðeins nema tæplega tvítugföldu fasteignamati; lóðirn-
ar kostuöu aðeins um 1400 kr. fermetrinn.
Vonandi fer það þó svo að Thorísararnir í Kveldúlfi
erfa þetta ekki við Thorsarana í Eimskip; þeir hafa þó
alltaf katmizt yfir 12 milljónir króna og losnað vð eignir
sem þeir höfðu engin not fyrir eins og nú standa sakir.
En þaö eru fleii'i sérstæð viöskipti sem gerast nú um
stundir.
Eins og rakið var í blaöinu í gær hafa farið fram kyn-
legir samningar milli Sjálfstæðisflokksins og S.Í.F., en
það er sem kunnugt er einn illræmdasti einokunaxhring-
urinn sem Thorsararnir ráöa yfir. Sjálfstæöisflokkinn
skorti fé í stórhýsi það sem MorgunblaðiÖ er að byggja
með marsjallaðstoö. Þá var leitaö til S.Í.F., sem eins og
icunnugt er hefur fé sitt frá sjómönnum og útvegs-
mönnum um land allt og þar vai' engin fyrirstaöa.
Aðeins þótti þaö ekki nægilegt að S.Í.F. legöi féö fram
umbúðalaust; nokkrir vildaraienn flokksins þurftu um
leið aö fá tækifæri til að mata krókinn.
Aöferöinni var lýst nákvæmlega hér í blaöinu í gær.
Stjórnendur Vai’öarfélagsins fengu í sínar hendur Niður-
suöuverksmiðju S.Í.F. Morgunblaðshöllin fékk svo pen-
ingana sem greiddir voru fyrir niðursuöuverksmiöjuna.
Og sem aukagetu fékk tengdasonur Richards Thors
tekjumikla stöðu viö verksmiöjuna.
Vart þarf að draga í efa áö rakiö verður 1 Morgun-
blaðinu í dag áö stjórnendur Varðarfélagsins hafi verið
beittir nauöungarsamningum þegar þeir tóku við verk-
smiðjunni og aö það hafi veriö mikil fórn fyrir Sjálf-
stæðisflokkinn að taka við peningum í höllina, á sama
hátt og Kveldúlfsthorsararnir kvarta sáran undan Eim-
skipsthorsurunum; en það er ögn hætt viö að almenn-
ingur líti nokkuð öðnim augum á þessi viöskipti, som
varpa skýru ljósi á megintilgang auömannafyrirtækis
þess sem Sjálfstæðisflokkur nefnist og siðferði forsprakka
hans.
Er Bandarikjastjórn klofin um
stefnuna á ntálum Asíu?
TilrœSi Dulles vi8 vopnahlé vekur grun um
oð hann og Eisenhower séu ósammála
egar viðræ'ðum um skipti
á sjúkum og særðum
föngum í Kóreu var farsæl-
lega og árekstralaust lokið og
samningur haiði verið gerður,
komst fréttaritari brezku
fréttastofunnar Reuters i To-
kj’o svo að orði, að starfs-
menn í aðalstöðvum banda-
rísku yfirherstjórnarinnar í
Kóreu, sem hefur aðsetur þar
í borg, teldu nú götuna greiða
til samkomuíags um almenn
fangaskipti og þar með vopna-
hlés eftir nærri þriggja ára
látlausa stiujöld. En svo kyn-
lega bregður við, að norðan-
menn hafa ekki enn fengið
neitt svar út úr Mark Clark
yfirhershöfðingja um endur-
upptöku vopnahlésviðræðn-
anna, sem hann sleit í októ-
ber í fyrra, hvað þá heldur
að hann hafi tekið afstöðu
til hinna miklu tilslakana í
fangaskiptadeilunni, sem Sjú
Enlæ foi’sætisráðherra Kína
bar fram fyrir hönd norðan-
manna fyrir rúmum hálfum
mlinuði. Sjú sagði þá að þar
sem ekkert stæði í vegi fyr-
ir vopnahléi nema lausn
fangaskiptadeilunnar hefðu
norðanmenn ákvéðið að verða
við þeirri kröfu Bandaríkja-
manna, að föíigum, sem hald-
ið er fram að neiti að hverfa
heim til sín, skuli ekki skil-
að þegar vopnahlé verður
gert.
^Tæri svo, eins og banda-
ríska herstjómin hefur
vUjað vera láta, að henni
gangi ekki annað til en mann-
úðarsjónarmið það að tryggja
að engjnn fangi verði sendur
heim gegn vilja sínum, hefði
hún auðvitað tekið fegins
hendi tilslökun norðanmanna
og fallizt á tillögu þeirra um
að fangar, sem sagt er að
neiti að hverfa heim til sín,
yrðu fengnir til vörzlu hlut-
lausu ríki og er vitað með
sæmilegri vissu að þar er átt
við Indland. En skæðar tung-
ur sögðu það fyrir löngu að
afstaða bandarísku herstjóm-
arinnar í fangaskiptamálinu
væri þannig til komin, að hún
teldi það fullkomlega öruggt
að norðanmenn féllu aldrei
frá kröfu sinni um heimsend-
ingu allra stríðsfanga. Hinar
daufu undirtektir undir sátta-
tillögur Sjú Enlæ, sem fagn-
að var um allan heim i þeirri
vissu að þær boðúðu skjótan
endi vopnaviðskiptanna í Kór-
eu, gefa ótvírætt til kynna,
að þeir sem gerðu stjórnend-
um Bandaríkjanna þessar get-
sakir hafi haft mikið til síns
má!s.
rJ,il þess sama benda skrif
, fréttaritara bandarískra
blaðia i Washington, sem skýra
éínróma frá því að ríkisstjóm-
in hafi vaknað upp við vond-
áh draum þegar sáttaboð
norðanmanna barst og gert
sér þá ■ fyrst ljóst að ekk-
ert hafi verið gert til að at-
huga hver yrðu áhrif vopna-
hlés í Kóreu á atvinnulíf
Bandaríkjasina og á heimsmál-
in yfirleitt. Svo er að sjá
sem skjót endalok Kóreu-
ÍErlemd
tíðindi
stríðsins hafi verið talin ó-
hugsandi á æðstu stöðum i
höfuðborg Bandaríkjaeina. —
Drátturinn á svari við til-
lögum norðanmánna sýnir að
minnsta kosti áð friðarvilji
Bandaríkjastjórnar lætur tölu-
vert meira á sér bera í orði
en verki.
ggvað skal til dæmis halda
um það framferði, að
stórauka loftárásir á Norður-
Kóreu jafnskjótt og norðan-
menn bera fram sáttaboð sitt.
Yfirmenn fhighersins hafa
margsinnis skýrt frá því að
öll hernaðarskotmörlc hafi
verið jöfnuð við jörðu. Þar
að auki hefur að sögn Kóreu-
nefndariimar, sem dr. Milton
Eisenhower, bróðir forseta
Bandaríkjanna, hefur stofnað
til að stjórna fjársöfnun til
hjáljiarstarfsemi í Kóreu, ein
milijón óbreyttra borgara í
Suður-Kóreu einni saman lát-
ið lífið eða særzt í loftárás-
um Bandaríkjamanna og 100
þúsund börn eru munaðariaus
en alls hafa níu milljónir
manna misst heimili sín. Hin-
ar djöi’fu hetjur liáloftanna
hafa samt ekki enn fengið sig
fullsaddar á því að varpa
tundursprengjum og benzín-
hláupi jTir vamarlaust fólk.
Máske er líka verið að reyna
að endurtaka afrekið frá þvi
í fvrravor, þegar árásir á
ráforkuver við Jalufljót gerðu
að engu eina tilraun Indverja
til að rniðlá málum í Kóreu
að sögn Krishna Menons, að-
alfullti’úa Indlands hjá SÞ.
Jgn hvað sem þessu líður taka
atburðir síðustu viku í
Washington af allan vafa um
það, að innan Bandaríkja-
stjórnar er að finna menn,
sem eru staðráðnir í því áð
láta einskis ófreistað til að
koma í veg fyrir að friður
takist í Kóreu. James Van
Fleet hershöfðingi, sem lét
af stjórn landhers Bandaríkj-
anna í Kóreu í vetur, túlk-
aði skoðanir þessa hóps
manna opinberlega strax og
kunnugt varð um sáttaboð
norðanmasina. Hershöfðinginn
krafðist þess að því yrði
hafnað skilyrðislaust, í Kóreu
mættu ekki önnur leikslok
koma til mála en alger banda-
rískur sigur á vígvöllunum.
Hættulegri en slíkir grímu-
lausir hemaðarsinnar eru þó
þeir huldumenn, sem miðviku-
daginn í siðustu viku lcomu á
framfæri við fréttaritara allra
helztu blaða og fréttastofa í
Washington upplýsingum, sem
þeir fullyrtu að væru lýsing
á stefnu Bandaríkjastjórnar í
málum Austur-Asíu.
J^íðan hefur það verið stað-
fest, að það var ekki
ómerkari maður en John Fost-
er Dulles utanríkisráðherra
sem lét blaðamöiinunum í té
þær upplýsingar, að ófrávíkj-
anleg skilyrði Bandaríkja-
stjórnar fyrir endanlegu sam-
komulagi um deilumálin d
Austur-Asíu væru að þéttbýl-
asti og auðugasti hluti Norð-
ur-Kóreu yrði lagður undir
stjórn Syngman Rhee, sem
síðan gerði hernaðarbandalag
við Bandaríkin, og að eyjan
Taivan yrði skilin frá Kína
og gerð að verndargæzlusvæði
Bandaríkjanna. Samdægurs
og þessar fregnir birtust á
forsíðum blaða um öll Banda-
ríkin lét Eisenhower forseti
blaðafulltrúa sinn lýsa yfir
að það væri tilhæfulaust að
ríkisstjórnm hefði tekið
nokkrar ákvarðanir í þessa
átt. Síðan hafa bandarísk
blöð verið full af bollalegg-
ingam um klofning í stjóm
'Eisenhowers og ósamkomulag
forsetans og utanríkisráð-
herranna.
WMvernig svo sem því er
H varið liggur tilgangur
Dulles með því að láta birta
fregnir sem þessar í augum
uppi. Þær eru hugvitsamlega
lagaðar til að torve’da sem
mest má verða samninga um
vopnahlé í Kóreu. — James
Reston sagði í New York
Times á föstudagion. „Við-
ræðumar um fangaskipti í
Kóreu, sem vera má að verði
til þess að samningar um
vopnahlé verði hafnar á ný,
eru á viðkvæmu stigi. Embætt-
ismenn sem setja það öllu of-
ar að vopnahlé takist vom
því undrandi, svo ekki sé
meira sagt, er þeir sáu birt-
ast í blöðunum mergð auð-
sjáanlega innblásinna •skejáa
þar sem rætt var um hin
mjög umdéildu ákvæði pólit-
ískrar lausnar Kóreudeilunn-
Framhald £ 11. siSu,-