Þjóðviljinn - 29.05.1953, Síða 4

Þjóðviljinn - 29.05.1953, Síða 4
1) — ÞJÓÐVILJINN — Föstudagur 29. maí 1953 Þjóðareining gegn her í landi skakaáglæ Að Ólafur Björnsson, prófes- sor í blekkingum, er notað- ur fyrir kosningar til þess að skrifa í Morgunblaðið níð um alþýðufólkið og um verk- lýðssamtök landsmanna og þá helzt um Reykvík- inga. Ég veit ekki hver spanar liann til þess að fremja slíkt athæfi, en hitt tel ég sennilegt að hann bíði þess aidrei bætur að fam út í slíkan foraðsleik, því að svo sem alþýðan er vel minnug þess, sem henni er vel gert, svo man hún einn- ig misgerðir yfirstéttanna sem á henni dynja. 1 fyrra- dag birtist eftir Ólaf heil- síðugrein í Moggasium, en sú grein er upphaf lopa, sem á að sýna fram á nauðsyn borgaralegrar ríkisstjórnar Sjálfstæðisflokksins og Fram sóknar, það er leppstjómar Bandaríkjaaucvaidsins með helstefnu hernaðarins. íslenditigar hafa bitra reynslu af slíkri borgara- legri stjórn og er sú hörm- ungin mesta áð fyrirgera hlutleysinu, skerða sjálfstæði landsins og ofurselja þjóð- ina í hendur eins mesta her- veldis vorra daga, eti jafn- framt eitra þjóðlífið með hatursáróðri. Þar næst má nefna hina sáru reynslu, sem landsmenn hafa orðið fyrir á sviði at- vinnumála og fjármála, þiar sem iðnaði hefur hrakað og liggur við hruni í ýmsum greinum, arðbæ.r framleiðslu-. tæki eru stöðvuð, íbúðabygg- ingar þvínær stöðvaðar sök- um llánsfjárkreppu, dýrtíð aukin jafnt og þétt með gengisfeliingu og tvennskon- ar eða margskonar gjaldeyri til innkaupa, vöruskiptajöfn- uðurinn sífellt óhagstæðari, og er nærtækast að benda á tölui’ Hagstofunnar í þeim efnum, sem Mogginn birtir samhliða lopa Ólafs (28. maí), en þar segir, að fjóra fyr.stu mánuði ársins hafi vöruskiptajöfnuðurinn verið óhagstæður um 112,5 millj.’ kr., en á sama tíma í fyrra um 94,8 millj. En helztu „bjargráð“ eru setuliðs- vinna, sem sogar vintiufæra menn hvaðanæva af landinu suSur á Keflavíkurflugvöll til þess að byggja borg yfir erlendan her og fylgilið hans, og stefnir til þess að hin borgaralega stjórn verði búin að gera lýðveldisljóðin frá 1944 að algerum öfug- mælum á 10 ára afmæli lýð- veldisins, en til landauðnar horfir í blómlegum, græn- um sveitum laeidsins. Og enn má minnast þeirr- ar gífurlegu niðurlægingár, sem hin borgaralega stjórn ber ábyrgð á, í sambandi við spillingu hersins, sem flæðir einkum yfir nágranna hang og höfuðstaðarbúa, þar sem æskulýðurinn er tældur og ginntur út í kviksyndi ó- menningar, lögbrot og yfir- gangur hermanna er lát- inn átölulaus, ólöglegur út- varpsrekstur hermanna tal- inn eðlilegur, vændishús í þágu hersins rekin í ná- grenni utanríkisráðherra, og eftir lögbrotin og yfirgang- iein allan liðlangan daginn eru plötuspilarar á Keflavík- urvelli látnir svívirða þjóðina með því að leika: „Ó, guð vors lands“. Jafnframt því, sem Ölaf- ur Bjömsson boðar nauðsyn 'þessarar helstefnu áfram, kennir liann alþýðufólkinu og verklýðssamtökunum um allan ófarnaðinn og fer þar ógöfugmannlega með mál. — Nauðvörn þá, sem yfir 20 þúsund manns úr fjölmörg- um stéttum hóf með vinnu- stöðvun sl. vetur, sökum hrakstefnu ríkisstjórnarinn- ar, kallar Ölafur „pólitískt verkfall“, þrátt fyrir það, að hann ætti að vita áð allra flokka menn stóðu að kröf- unum. Hann segir, að verka- meein hafi beitt „fantabrögð- um gagnvart heimilum Reyk- víkinga", en ætti að vita að það voru verkfallsbrjótarnir, samherjar Ólafs, sem komu ódrengilega og sviksamlega fram. Hann talar um port- fólkið og „vægðárlausa hörku gagnvart heimilum Reykvíkinga", en veit senni. Iega ekki hve hart alþýðu- fólkið lagði sjálft að sér til þess að halda rétti sínum fram til menniíigar og við- unandi lífsskilyrða. En þeir sem hörkunni beita eru yf- irmenn Ólafs, svo að sanna miá, að Ólafur vinnur mark- visst að því að beita „vægð- arlausri hörku gagnvart heimilum Reykvíkinga“. Eftir allt þetta: áróðurinn fyrir hernurn og skammirn- ar um alþýðustéttirnar, bið- ur hann með vesældarvæli um atkvæði alþýðumanna til þess að viðhalda borgara- legri stjórn með helstefnu hernámsins. Honum muci fara eins og niarmi, sem kastar út færi til þess að veiðá á öngul sinn, en straumurinn er þungur og rekið á fleytunni svo hratt að færið stendur í boga út í sjó, fer á glæ, kemur aldrei til botnsios og fær því engan dráttinn. Þetta kölluðum við fyrir vestan „að skaka á glæ“ og gerðu það engir nema, dormarar. Ölafur Björnsson er tek- inn , áð skaka á glæ“ í höf- uðstaðnum. Hanm kemst aldrei til botns með öngul sinn, svo að veiðin fer mak- lega eftir því. Enda er sá maður næsta ábyrgðarlaus, sem biður um stuðning til þe&s að byggja yfir erlenda hernámsþjóð í sínu eigin landi. Hvað verður um þjóð- erni íslendinga og (sjáljf- stæði, ef nokkrir tugir þús- unda Bandaríkjamanna setj- ast hér að, fyrst á Suður- nesjum og síðan á dreif um landið? Hvað líður þá latig- ur tími, þar til hin erlenda hernámsþjóð verður orðin jafnfjölmenn Islendingum í landinu? Og hvað mun þá taka við fyrir þeim, sem áttu að erfa lamdið ? Nei, Ólafur Björnsson mun sanna, þirátt fyrir veiðiför sína, að helstefna ríkis- stjórnarinnar hefur vakið þjóðina til alvarlegrar íhug- unar um tilveru sína og framtíð. Og alþýða manna mun gefa Ólafi verðuga á- minningu við kosningarnar í sumar. Og minnumst þess, heiðr- uðu samherjar, að þar til markinu er náð verður nú og alla daga að vera okkar fyrsta orð að morgni og hið síðasta að kvöldi: Þjóðar- eining gegn her á l'slandi. Uppsögn hervemdarsamn- ingsins. Endurheimt sjálf- stæðis Islands. — Sameinuð sigrum við. — G. M. M. Halldór Pétursson*. Það er likt með okkur menn- ina og jurtirnar, að rætur okk- ar standa fastar í. moldinni. Við erum tengd því umhverfi sem ól okkur, órjúfandi bönd- um, jafnvel þó við vitum það ekki, eða viljum ekki viður- kenna það. Flestum er þó í blóð borið að unna þeim stöðum þar sem þeir tóku fyrstu sporin, þar sem bernskuvonirnar birtust og hitt- ust og æskan gaf útþránni vængi. Þessi átthagaást'breytist með vaxandi þroska í það sem við köllum ættjarðarást, þessa kennd sem Stefán G. lýsir á svo snilldarlegan hátt: Og ættjarðarböndum mig grípur hver grund, sem grær kringum íslendings bein. Þessi .tilfinning er fjöregg okk ar og frelsisg.iafi, afl þeirra verka sem við vinnum. Það er ekki fyrr en ómennsk öfl hafa náð tökum á mannssál- inni, að þeim dettur í hug og hrinda því í framkvæmd, að stinga þessari tilfinningu svefn- þorn og selja landið undan fót- um sér. Þessi verknaður hefur og það með réttu á öllum öldum verið talinn til viðurstyggilegustu glæpa og er onn, þar sem sið- gæði á einhvern rétt á sér. Engin þjóð sem er ofurseld erlendu valdi, getur neytt sinna vaxtarskilyrða, það ættu ís- lendingar að þekkja manna bezt. Það er kunnara en frá þurfi að segja, hvemig hin fjölæra afturhaldsfylking sveik frelsi og sjálfstæði landsins í hendur er- lendra kúgara, við skímu hins nýja dags, eftir sjö alda áþján. Fyrst með iKeflavíkursamn- ingnum, næst Marshjallsamn- ingnum, því stærsta fjárdráttar- bragði, sem veröldin þekkir enn þá, þar sem þióðin er neydd til að taka við gjöfum, sem eiga að vera stökkpallur til þess að hægt sé að hremma landið og hana sjálfa að launum. Það má skjóta því að, að Bandaríkin græða meira á fs- lendingum sem vinna á Kefla- víkurflugvelli á tveim árum en nemur öllum þeirra svonefndu gjöfum til okkar síðustu ár. Kaupmunurinn er ekki annar en sá, að íslendingurinn hefur 89 sent um tímann en Banda- ríkjamaðurinn 2 dollara og 10 sent. Þannig hefur íslenzka og ame ríska valdinu tekizt að féfletta okkur með gengisfellingunni. Síðast er svo Atlantshafs- bandalagið, sem á að reka enda- hnútinn. á þetta, annað hvort með því að þjóðin verði þurrk- uð út' í kjarnorkustyrjöld, eða látin í gegnum.fjá.rmálaauðvald ið hverfa í bandaríska þjóðar- hafið og skiptir minnstu hvort; er. Allir sem ekki hafa coca cola í stað heila hljóta að skilja það, að þetta um varnir lands- ins er ekkert annað en ný út- gáfa að aögunni um úlfinn og lambið. Okkar einasta vörn, ef um vörn er að ræða, er ævarandi hlutleysi. Þetta mál er svo auðskilið, að mér finnst skömm að því að benda á það. En ekki skal gráta Bjöm bónda heldur safna liði. Sú stund er runnin upp, sem kallar alla heiðarlega íslend- inga í órofafylkingu. Og enginn veit hve sá tími er stuttur sem við höfum til umráða, þar til engu verður um þokað. Það ætti því ekki að þurfa að eggja íslendinga í þetta stríð. Við háðum landvinningastyrj- öld í sjö aldir, þá einu styrjöld, sem á rétt á sér, að vinna sitt eigið land. Hvað um það fólk, sem féll í þessari styrjöld, ef það nú vissi eitthvað til okkar. Eigum við með okkar miklu möguleika, að láta það liggja óbætt hjá garði, endurstefja hina íslenzku harmsögu. Jafnvel þeim, sem virðast láta sér á sama standa um land og þjóð, vildi ég segja það. Hvert verður hlutskipti ykk- iar og þeirra, sem þið unnið, undir ameríska hælnum? Viljið þið veðsetja allan ykk- ar arf fyrir því, að ske kynni Framhald á 11. síðu. Vaíasamt fordæmi Helgafells — Otiveitingastaðir — Vesalingar (V. L.) E.B.S. sendir Bæjarpóstinum eftirfarandi línur: , .Tímaritið Helgafell 'er farið að koma út að tiýju, og er það fagnaðar- efni. Þó líkar mér stórlega iila það háttalag ritstjóranna að birtg. fjöldann allan af ritdómum — eftir marga höf- unda — nafnlausa. Þetta rhætti ef til vill réttlæta þann- ig. að með þessu móti séu ritrýnendur óbundnir af per- söaulegri, pólitískri og ann- ars konar annarlegri tillits- semi, sern oftlega lýtir rit- dóma um íslenzkar bækur og aðra listagagnrýni hér á landi. En þegar að er gáð, er þetta engin réttlæting. Listdómari, sem hefur ekki kjark og 'hrein- lyndi til að segja sem hcnum finnst, á að láta það ógert. Og listamenn, sem þo’a ekki gagn- rýni, geta leikið listir sínar fyrir sjálfa sig. Ég óttast, að með þessu nýja lagi skapist hættulegt for- dæmi, sem auðvelt væri að misnota — og yröj misnotað — til að þjóna allskonar lág- kúruhætti, sem ekkert gagn getur unnið íslenzkum listum, en miki'ð ógagn. Ég veit, að ritstjóra Helgafells langar ekki tii, að umræður um list- ir og menningarmál verði háð- ar á sömu plönum og pólitíska þirasið, þegar verst lætur. En myndi ekki fljótlega að því draga, ef listdómarar væru leystir undan þeirri skyldu að gangast opinberlega við skrif- um sínum? — E.B.S.“. ★ E.M. skrifar: „Nú er góða veðrið komið og mun áreiðan- lega haldast, það megið þið bóka. Og þegar ég segi góða veðrið, þá á ég náttúrlega fyrst og fremst við hlýjuna og hægviðrið, því veður getur verið fyrirtaksveður, þótt ekki sjáist til sólar; um það hljót- um við öll að vera sammála. En þegar þetta eftirsóknar- verða veður er komið, ásamt öllu þvi ágæti, sem tilheyrir, góðu skapi, fínum fötum, nýj- um blæ á mönnum og um- hverfi, þá getur ekki hjá því farið, að við gerum kröfur um ýmislegt, sem við hugsum ekkert út í yfir veturinn, með- an veðrið er óstöðugt og slæmt. Til dæmis sakna ég þiass, þegar ég geng hér eftir götunum á góðviðrisdögum, að hvergi nokkursstaðar í öllum bæaum skuli vera úti-veitinga- staður við fjölfarna götu eða annarskonar skemmtilegan stað. Víða, í bænum virðist upplagt að koma fyrir þess- konar (veitingactcúum. (Mé^ dettur í hug krikinn við Vest- urgötu, hjá Rafal og Geysi. Slikur veitingastaður þarf ein- mitt að vera í skjóli og móti sól. Ætlið ekki, að ég sé bú- inn að gleyma Hressingar- skálagarðimun. En hann er innikróaður og býður í raun- inni ekki upp á neitt annað en skjólið fyrir golunni. Vill nú ekki einhver koma upp vist- legum, ódýrum og velstað- settum glerskála við fjölfarna götu, þar sem hafðar verði veitingar, svo að meon þurfi ekki að loka sig inni frá sól og sumri, þótt þá langi til að fá sér kaffisopa? — E.M.“. * IJR bæjarlífinu: Lítill drengur hittir jafnöldru sína fyrir framan einn af hinum glæsi- Isgu bílum „varnarliðsins", beadir á einkennisstafi hans, VL, og segir drýldinn: „Það er ég viss um, að þú hefur ekki liugmynd um, hvað þessir stafir þýða!“ „Jú, ég veit það nú“, anzar telpan. „Veiztu það? — Og hvað þýða þeir?“ „Vesalinganiir", svarar sú litla píreyg.

x

Þjóðviljinn

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Þjóðviljinn
https://timarit.is/publication/257

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.