Þjóðviljinn - 29.05.1953, Síða 11
Föstudagur 29. maí 1953 — ÞJÓÐVILJINN — (11
Semjonoff nýr
stjórnarfulltrúi
iSovétstjórnin tilkynnti í gær
að ihún hefði skipað borgara-
legan embættismann stjörnar-
fulltrúa sinn í Austur-Þýzka-
landi ea því embætti hefur
Sjúikoff, yfirforingi hernáms-
liðsins, gegnt hingað til. Hér
eftir fer Sjúikoff einungis með
íherstjórnina en Semjonoff,
sem verið hefur stjórnmálaráðu
nautur hans, verður stjórnar-
fulltrúi. Hlutverk hans er að
gæta Iþess að stjórn Þýzka lýð-
veldisins haldi ákvæði Postdam
samningsins, að gæta hags-
muna SoVétríkjanna í' Þýzka-
landi og ‘ að Bannást samband
við stjórnarfulltrúa Vestur-
veldanna.
Frakkland
Framhald af 12. síðu.
kvaðst myeidi gefa honum fulln
aðarsvar í dag.
Mendés-France er talinn einn
snjallasti hagfræðingur Frakk-
lands. Hann hefur gagnrýnt
harðlega á þingi stefnu margra
undanfarandi stjórna í Frakk-
landi. Hefur hann haldið því
fram að Frakkland reisti sér
hurðarás um öxl með stríðs-
rekstrinum i Indó Kína og her-
væðingunni i lEvrópu. Hefur
hann hvatt til friðarumleitana
i Indó Kína og tilraunar til að
leysa Þýzkalandsmálin með
Samkomulagi við Sovétríkin.
Stjórnmálamenn í París telja
litlar likur til að Mendés-
France geti myndað stjórn.
ítalskur náms-
styrkur
Italska ríkisstjórnin hefur á-
kveðið að veita íslenzkum
stúdent styrk til náms á ítaliu
frá 1. nóvember 1953 til 30.
júní 1954. Nemur styrkurinn 45
þúsund lírum á mánuði nefnt
tíma-bil, auk 10 þúsund iira,
sem greiðast í eitt skipti vegna
ferðakostnaðar innan ítalíu.
iGert er ráð fyrir að námsstyrk-
urinn nægi til greiðslu fæðis
og húsnæðis-.
Þeir, sem kynnu að vilja
koma til greina við veitingu
styrksins, sendi menntamála-
ráðuneytiou umsókn sína fyrir
1. júlí n.k. Skal þa.r tilgreina,
hvaða nám umsækjandi hyggst
stunda og láta fylgja uppíýsing
ar um náms- og starfsferil.
Senda' skal afrít prófskirteina
og meðmæli, ef til eru. Áskilið
er að styrkþegi hafi nokkra
kunnáttu í ítölsku.
(Frétt frá menntamálaráðu-
neytinu).
hleður til Patreksfjarðar og
Isafjarðar i dag og til hádegis
á morgun. Vörumóttaka við
skipshlið. Upplýsingar í síma
6021.
Baldur Guðmundsson.
Framhald af 4. síðu.
að börnin ykkar kæmust að
sem sóparar á Keflavíkurflug-
velli. Það er ein hlið þessa
máls, sem vefst fyrir mörgum
mönnum í þessu landi kunn-
ingsskaparins, og það er afstaða
íslenzkra stjómarvalda til þessa
máls. Þeir bókstaflega igeta
ekki trúað því, að stjórnar-
völdin séu að viinna það voða-
verk, sem við viljum vera láta,
þetta séu ekki svo vondir
hnenn. Það er tómt mál að tala
um vonda og góða menn, en
eitt skal þessum mönnum bent
á. Fjármálavaldið á ekkert föð-
urland og hefur engar skyldur
við neitt land né neina þjóð.
Það vinnur sitt verk á bak við
t-j-öddin, en setur litla kalla í
stjórnarstólana,
tEn vald í höndum trúða og
taðskeglinga er það hættulega
fyrirbrigði. iLitlir kallar eru
grimmir og huglausir. Valdinu,
þó sýndarvald sé, sleppa þeir
ekki meðan nokkur von er að
lafa.
Minnimáttarkenndin og skrið
mennskan setja þá í þá aðstöðu
að þeir lá'ta í öllu að stjórn
þeirra afla, sem að baki standa.
Þessir menn eru sýnu verri
en höfðingjar Sturlungaaldar,
sem flestir gengu með þá hugs-
un að svíkja Hákon gamla og
ríkja sjálfir, en okkar menn
eiga þá hugsun eina að svíkja
þjóðina, en hylla svikarann,
sem þeir eru verkfæri fyrir.
En líkast til vild,u Sturlunga-
aldarhöfðingjar nú, ef t þeir
fengju nokkru um ráðið, skipta
á nafni sínu í sögunni og fá-
tæka bóndans, sem veginn var
á enginu þar sem konan rak-
aði ljána með barn á baki.
Bóndinn var veginn fyrir þá
einu sök að hann vildi ekki
fara með'þeim til víga og of-
beldisverka.
Sagan mun minnast þeirra
svikara sem nú ráða þessu
landi, en það er okkur ekki
nóg.
Við verðum að taka fyrir
kverkar þessa verknaðar, sem
þeir eru að vinna.
Og nú ætla þeir að kóróna
verk sitt með því að koma sér
upp einkaher úr óaldarliði sínu.
Við könnumst við stikkorðið
hjá þeim, sterkt ríkisvald.
Suður-Koreu-
stjórn
Framhald af 1. síðu.
hendur. Það væri alkunna að
Indland væri eitt af fylgi-
ríkjum kommúnista.
Varaforseti Suður-Kóreu hðt
einnig ræðu á þingi í gær eftir
að liann liafði rætt við formann
bandarísku vopnaliiésnefndarinn-
ar. Sagði hann brezka ílilutun
vera að fara með vopnahlésvið-
ræðurnar til fjandans. Bretum
væri sæmst að hypja sig ó brott
frá Kóreu og halda sér siðan
saman um það sem þeim kæmi
ekki við.
Syngman Rhee forseti lýsti yfir
eftir ræðu varaforsetans, að
lítilsvirðandi ummæli hans um
Breta væru fram borin á eigín
ábyrgð en ekki fyrir hönd stjórn-
ar sinnar. Hinsvegar hafði for-
setihn ekkert við orð utanríkis-
ráðherrans að athuga.
Það er valdið sem allir harð-
stjórar hafá heimtað, vopnað
ofbeldi.
Tillögur Hermanns og Bjarna
eru í fullu samræmi við þetta
og hlutu að koma fram, þegar
augu fólksins fóru að ljúkast
upp fyrir vérknaði þeirra. Her
þessi á auðvitað ekki að verja
landið, heldur eins og her Aðal-
ráðs konungs, að verja þá fyr-
ir þegnunum.
Þessir herrar eiga ekki sitt
undir sól og regni, heldur hinu,
.að þegnarnir brjóti ekki áform
þeirra á bak aftur.
ÍLandinu á að breyta í eitt
víghreiður og við eigum að
borga með því að leggja inn-
rásarliðinu ódýrt vinnuafl og
afnot ,af landi og konum.
Hvað fá nmboðsmennirnir
að launum, er spurt. Til þess-
ara kvislinga falla ótal molar.
Síðan á að virkja orkulindir
landsins með erlendu fé, þar
sem lepparnir fá einhverja
hlutdeild í.
Þeir eru strax komnir á reisu
um landið að kaupa upp alla
hugsanlega staði, sem mann-
virki verða reist á. Það gefur
áreiðanlega góðan pening.
Þannig fá þeir greitt fyrir þátt-
töku sína í svikamyllunni.
Þrátt fýrir þetta eru þéssir
menn aumkuiíarvérðastir allra.
Maður sem hefur svikið sjálfan
sig og lögmál lífsins, verður
aldrei annað en rekald þó hann
liggi við akkeri úr gulli.
Lífið tekur engan í sátt utan
að hann bæti fyrir brot sín.
Fósturjörðin kallar, kallar á
okkur öll og því kalli má eng-
inn bregðast, því hvers virði er
lífið, ef við höfum glatað kjöl-
festu þess, frelsi, sjálfstæði og
menningu.
Þeir einu lifa, sem ekki selja
þennan frumburðarrétt af
hendi, hinir deyja hvort sem
þeir hrikta lengur eða skemur
á skömm sinni.
Kjörorð okkar er að her-
verndarsamningnum verði sagt
upp nú þegar og engin herseta
verði leyfð í þessu landi.
Valdið er okkar og verkin
verða að vera það uka. í þeim
kosningum, sem nú standa fyr-
ir dyrum, tökum við ráðin af
valdhöfunum, hvar í flokki
sem við stöndum, og látum þá
setja ofan, slíkt er dýrmæt
reynsla fyrir þá sem erfa sæt-
in.
Hernum sjálfum verðum við
að gera skiljanlegt með ískaldrí
fyrirlitningu að hann er sníkju-
dýr á þjóðarlíkamanum, sem
verður að víkja til sinna föð-
urhúsa.
Við verðum að hafa ráð únd-
ir rifi hverju, sagnaranda á
hverjum fingri.
‘Einliuga þjóð getur enginn í
heiminum kúgað. Það er hægt
að kúga, myrða og eyðileggja,
en á lýsigulli lífsins vinnur
engin sprengja.
Það er okkar hlutverk að
stýra freísisfleyi þjóðarinnar.
heilu í höfn, sem nú er að
reka upp í grjótið og ræningj-
arnir bíða glottandi á strönd-
inni.
Vopn andans eru þau einu
sem bíta á þennan lýð og þeim
verðum við að bregða, ef birta
á af degi.
Auglýsendur athugið
Auglýsingar, sem birtast eiga í sunnu-
dagsblaði Þjóðviljans, þuría að vera
komnar til skriístofu blaðsins fyrir kl.
6 á föstudagskvöld.
Við
*
bjóðum yður
..Íiúi í BV IriÚJÍ' . • f'. < _ :
Siisáhöld fyrir rafmagnsvélar:
Pottar 12 lítra .... kr. 227,00
Pottar 8 lítra . ... kr. 175,00
Pottar 6 lítra .... kr. 153,20
Pottar 4 lítra .... kr. 116,00
Pottar 3 lítra .... kr. 103,00
Steikarpönnur 66,85
Steikarpönnur ,... kr. 63,90
Pönnukökupönnur .... .... kr. 40,50
Katlar . .. . kr. 129,00
Katlar . .. . kr. 105,00
Flautukatlar .... kr. 97,00
Hraðsuðupottar . .. . kr. 297,00
Heimilistæki:
Hraðsuðukatlar 1 y2 1. ... ,. kr. 236,00
Hraösuðukatlar 3 1 .. kr. 298,00
Hraðsuðukatlar iy2 1 .. kr. 329,00
Hrærivélar .. kr. 1080,00
Ryksugur . . kr. 1055,00
Ryksugur .. kr. 1150,00
Rafmagnsofnar . . kr. 267,00
Bónvélar . . kr. 1075,00
Suðuplötur .. kr. 490,00
Straujárn .. kr. 229,25
Brauðristar Strauvélar fyrir B.T.H. . . kr. 445,00
þvottavélar . . kr. 1912,00
BásáhaSdadeiid
Bankastrætli 2, sími 1248.
Öllum þeim er við útför
PALMA LOFTSSONAR
af alhug.
Fyrir hönd vandamanna
Thyra Loftsson,
Sigríður Pálmadóttir, Guðríður Pálmadóttir,
Björg Pálmadóttir.
forstjóra, sýndu minningu hans kærleik og virð-
ingu og okkur samúð í sorg okkar, þökkum við