Þjóðviljinn - 18.07.1953, Blaðsíða 12

Þjóðviljinn - 18.07.1953, Blaðsíða 12
Eitfs ©g gangsterhisiéría frá Chicagé: DióÐviumN Laugaxdagur 18. iúlí 1953 — 18. árgangur — 159. tölublað ^Kábein" — „pskasuenu0 _ iögregla — marglSeypur — „vi§ bðinbrcti Sá eða liðbiaupiu — „spýtnabrst" Frásagnirnar af viðureign þeirra Bjarna Benediktssonar dóms- málaráðh,'rra og Helga Benediktssonar i Vestmannaeyjum eru nú orðnar eins og frægustu reiíarar af baráttu gangstera í sjálfri höfuðborg slíkra, Chieago. Á saira tíma og atburðirnir í Vesmannaeyjum ger- as, er Framsóknarílokkurinn að semja við Sjálísæð- isflokkinn um nýja stjórn undir forustu Biarna Ben! Fyrir nokkru fór Gunnar A. Pálsson, setudómari í máli Helga JBenediktssonar, en það hef-ur tekið langan tíma og er orðið hið sögulegasta, og er hér ekki rúm til að rekja það. För Gunnars A. Pálssonar til Eyja, hin síðasta, mun hafa verið, samkvæmt nýjum úrskurði, til þess gerð að athuga enn bók- tiald Helga Benediktssonar. „Pokamanna“ árás Tíminn lýsir komu dómarans til Eyja í löngu máli í gær og segir hann hafa tekið til fylgd- ar lögreglu bæjarins „þar á með- al „pokamenn“ úr Hveragerði". Hafi lið þetta ráðizt á skrif- stofufólk Helga Ben. „voru um- svifalaust lagðar hendur á það og því hent út fyrir dyr“, segir Tíminn. „H. B. var einnig stjak- að út úr réttinum og út fyrir dyr“ segir Tímirm. Þjóðviljan- um hefur hinsvegar verið sagt úr annarri átt að H. B. hafi sjálfur rokið á dyr og læst á eftir sér! Bembrot eða liihlauj)! Og Tíminn segir einmitt frá því að ráðizt hafi verið á hin- ar læstu dyr með kúbeini einu ógurlegu, hurðin spi'engd „í einu vetfangi“(!) og ráðizt „að Helga þar sem hann sat við skrifborð sitt, og var nú tekið að snúa upp á hamieggi lians, og með þeirri harðleikni að við bein- bi'oti lá eða Iiðhlaupi“ (!!!). i Hlaðnar mai'ghleypur? Lausafregnir herma að meðal annars sem „stormsveit" setu- dómarans gróf upp í skúffum og skápum Helga Benediktssonar hafi verið tvær hlaðnar marg- hleypur. ('Enn er þó þetta gang- stermál ekki komið ,á það stig að söguhetjurnar skjótdst á!). Einnig segir lausafrétt að H. B. hafi notað tækifærið til að kalla sér til aðstoðar hrausta og trausta sævíkinga úr Eyjum, svo þegar dómarinn gaf skipun um að taka manninn hafi yfir- lögi-egluþjónn Eyjanna færzt undan og skotið því að dómar- anum að fyrirsjáanlegt væri að lögreglan biði lægra hlut í þeim Framhald á 9. siðu. Háshalegt að gagnrgna Elísa- het drottningu á prenti Húsrannsókn hjá áströlskum kommúnistum vegna andstöðu þeirra við konungdæmiðf LÉTTLYNDI OG FJÖR í TÍVOLÍ f DAG Reykvífdngar ættu að fjölmenna á skemmtun BÆR í dag, laugardag, heldur Bandalag æskulýðsfélaganna í Reyltjavík skemmtim i Tívolí, og er ekk; að efa að þar verður margt um mannlnn. Leynilögregla Ástralíustjórn- ar gerði í gær húsrannsókn á skrifstofum kommúnistaflokks- ins í borginnj Sydney, á heim- ilum forystumanna flokksins, í bókaverzlun hans og prent- smiðju. Höfðu leynilögreglu- mennirnir mikið af skjölum á brott með sér. Áströlsku stjórnarvöldin urðu margsaga þegar grennslast var eftir því, hvað væri tilefni hús- rannsóknanna. Var fyrst sagt að þær hefðu verið gerðar vegna þess að kommúnistar hefðu gef- ið út bæklinga, þar sem ráðizt væri á konungdæmið brezka og Elísabet drottningu hallmælt. Einhverjum mun hafa dottið í hug að þessi skýring yrði varla tekin alvarléga og var þá gefin út ný tilkynning. Er þar sagt að tilefni húsrannsóknanna sé að kommúnistar hafi borið fram á- sakanir um falsaðar kosningar í verkalýðsfélögum. Eonfremur sé verið að leita að sönnunum fyrir því að þeir hafi gert ,,sam- særi“ um að hvetja verkamenn í Sydney til að gera verkföll. 1 dag verður keppt í 100 m og 1000 m hlaupi og 110 m grindahlaupi, hástökki, kúlu- varpi, spjótkasti og þríþraut. Á morgun verður keppt í 400 og 3000 m hlaupi, 4x100 m boð- hlaupi, sleggjukasti, kringlu- kasti, þrístökki og stangar- stökki. Þarna keppa fjölmargir af efnilegustu yngri íþróttamönn- unum, sérstaklega er þátttaka utanbæjarmanna óvenju mikil. Verður þetta bæði síðdegis- skemmtun og kvöldskemmtun. Hefst dagskráin kl. 3 með því að hinn vinsæli þjóðdansaflokk- ur Ungmennafélags Reykjavíkur sýnir, þá skemmta þýzku fjöl- listamennirnir Pitt og Pott og „Die Alardis“, og Gestur Þor- grímsson skemmtir, en hann þarf ekki framar að kynna fyrir Reykv.íkingum, svo eftirsóttur skemmtari er hann orðinn. í kvöld kl. 9 hefst skemmtun- in að nýju eftir nokkurt hlé. Þá sýnir úrv.alsflokkur glímu- manna úr UMFR, þýzku fjöl- listamennirnir, Gestur og þjóð- dansaflokkurinn koma aftur Mikið sprettu- sumar Reyðarfirði. Frá fréttaritara Þjóðviljams. Mjög mikil grasspretta hefur verið hér í vor og sumar og er fólk önnum kafið við heyskap. Veður . hefur verið hið bezta, nema of lítill þurrkur, en þó nothæfur undanfarið. fram og skemmta gestunum, og að þeim atriðum loknum verður stiginn dans á pallinum. Ferðir verða frá Búnaðarfé- lagshúsinu á 15 mínútna fresti. Taylor, yfirhershöfðingi banda- ríska iandshersins í Kóreu, rauf í gær þögnina um atburði und- anfarinna daga á vígstöðvunum. Kvað hann norðanmenn hafa rekið til bak.a fleyg, sem Banda- ríkjamenn höfðu haft inn í víg- línu þeirra í tvö ár. Hefðu norð- anmenn sótt fram allt að 11 km. Sagði Tayior sókn þeirra nú hafa verið stöðvaða og gagnárásir hefðu sumstaðar borið árangur. Vopnahlésnefndirnar í Kóreu koma saman til fundar í Pan- m-unjom í dag. Islendlngar qeihh Dani 2:1 Leikur danska liðsins og úr- valsins úr Reykjavíkurfélögun- um í gærkvöldi fór þannig að úrvalið vann með 2:1. Unglingameistaramot Reykjavíkur fram í dag og á morgaa á íþróilavellinum Unglingameistaramót Reykjavíkur hefst á íþróttavell- inum i dag og lýkur á mcrgun. Níu félög senda þátttakend- ur til mótsins: Ármann, ÍR, KR, Ungmennafélag Kefla- ■víkur. FH, UMF Selfoss, UMF Snæfell og Umf Ölvesinga. Sveit úr frönsku útlendingahersveitinni (sem nú er að mestu skipuð Þjóðverjum) á hergöngu í Indó Kína. Yíirhershöíðingi Frakka í Indó Kína játar: Her Viet Minh öflugri en nokkru sinni Franskt fallhlífalið sent til að eyðileggja birgðastöð Yfirhershöföingi Frakka í Indó Kína segir aö' her sjálf- stæöishreyíingar landsbúa sé eftir sjö ára styrjöld öflugri tn nokkru sinni fyrr. Navarre yfirhershöfðingi sagöi í ræðu í París ,að her sjálfstæðishreyfingarinnar Viet Minh væri nú átta fullæfðar herdeildir auk aragrúa skæru- liðasveita. Það væri staðreynd, sem ekki þýddi annað en við- urkenna, að þegar regntíman- um lyki gæti her Viet Minh hafið sókn hvar og hvenær sem honum sýndist. Navarre kváð það rétt, að hann væri kominn til Frakk- lands til að biðja um aukið lið. Baráttukjarkur liðsins þyrri í stöðugu varnarstríði, Frakkar yrðu að skapa sér að- stöðu til sóknar. Skyndiárás á Langson. Franska herstjórnin í Indó Kína skýrði frá því í gær að fallhlífalið hennar hefði svifið til jarðar í dögun í gærmorg- un úr um 100 flugvélum vi’ð bæinn Langson ,sem stendur við veginn frá Kína til Indó Kína. Væri þáð h’utverk liðsins að sprengja brýr og eyðileggja vopnabirgðir í Langson og hefði það þegar verið leyst af hendi. Fréttaritarar í Indó Kína segja áð Frakkar muni enga tilraun gera til að halda Lang- son ,sem her Viet Minh tók árið 1951. Fallhlífaliðið eigi að brjótast þiaðan 140 km. leið til yfirráðasvæðis Frakka. Búkarestlazami;: Fimmtán fóru í gær — yfir tuttugu fara í dag Þótt Búltarestmótið sjálft hefjist ekki fyrr en 2. ágúst er það í vissum skilnjngi þegar hafið fyrir nokkrum íslending- um. I gær fóru utan með Drottningunni 15 Búkarestfar- ar, í dag fara rúmlega 20 mcð Gullfossi. Er áfangastaður beggja hópauna fyrst um sinn Kaupmannahöfn. Munu þeir dveljast þar í borglnni fram til 30. júní ,eða uin vikutíma, en hakla þá með Dönunum, er sækja Búkarestmótið ,suður á bóginn. Er gert ráð fyrir því að í Berlín hitti þeir hópinn er fer með Arnarfeliinu á mánudaginn ,eins og skýrt var frá í blaðsnu í gær. Er Arnar- fellshópurinn raunar meg!n- fylkingin, eða um 150 manns, og munu þeir dveljast í Þýzka- landi nokltra daga meðan hin- ir dveljast í Kaupmannahöfn. Öllu undirbúningsstarfi má nú lieita lokið og standast :sll- ar áætlanir nema óhjákvæmi- legt hefur reynzt að hækka fargjaldið um 200 krónur. Er það þá 3700 krónur, og er það víst og satt að „ferðaskrif- stofa“ Alþjóðásamvinnunefnd- arinnar býður upp á ódýrustu langferðir í heimi.^ Fáar ferðir munu einnig gefa meira í aðra hönd en þessi. Aiþýðublaðið talar í gær um „eitthvert ungkommúnistamót“ í Búkarest. Þctta litla blað þyk- ist sem sagt hafa efni á því að koma upp úr kopp varðandi eiim mesta viðburð ársins, auk þess sem það bregður að sjálf- sögðu röngum blæ yfir eðli og tilgang mótsins. En vel á minnzt: er ekki einhvernstaðar „eitthvert kratamót“ sem gæti nálgazt Búkarestmótið um stærð og áhrif!!

x

Þjóðviljinn

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Þjóðviljinn
https://timarit.is/publication/257

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.