Þjóðviljinn - 02.08.1953, Page 5
Simnudagur 2. ágúst 1953 — ÞJÓÐVILJINN — (5
Lík sem rak á land á eynni
Hveð.n um síðustu helgi hefur
valdið stensku lcgreglunni miki-
um heilabrotum.
Líkið var af rosknum manni,
og það var bæði krufið og
smurt. Það kom í ljós við nýja
krufningu, að máðurinn hafði
verið skorinn upp vegna meins
í hægra lunga,, hann liafði lát-
izt, líkið verið krufið og síðan
smurt. Það er huiin ráðgáta
enn hver hann er og hvers
vegna lík hans hefur ekki ver-
ið grafiö á eðlilegan hátt.
Rafstraumar í iðrmn jarð-
ar orsök seguímagnsiiis?
Kennine brezks vísindamanns um
að jörðin sé rafall
Vísindamenn eru nú yfirleitt sammála um, að líklegasta
skýringin á segulmagni jarðar sé sú, að jörðin sjálf sé
gríöarstór rafall.
^§flá5^LÖ
Tuttugu og tveggja hæða skýja-
kljúfur er nú í smíðum í
Moskvu og á að verða lokið á
þessu ári. Verður þar stærsta
verzlunarhús borgarinnar og auk
Blaðið byggir frásögn sína af
húsnæðismálum í Bandaríkjun-
um á fréttum í bandarískum
blöðúm og segir m.a.:
„Eftir að Chicago Daily
News hafði birt frétt um níu
mánaða gamalt stúlkubarn, sem
rottur höfðu nagað í hel, þar
það lá í vöggu sinni heima
hjá sér í West Side, fann 'olaðið
sér hvöt til að leggja út í
, sem það hafði lengi
fyrirhugað, á ástandinu í fá-
tækrahverfum borgarinnar, og
birti niðurstcður ramisóknar-
innar í greinaflokki undir sam-
heitinu ,,Skömm borgarinnar“.
„Fréttamennirnir fundu hús,
þar sem allt að 1000 manns
bjuggu, þó þau væru aðeins
gerð fyrir 200. Mánaðartekjur
eins húseiganda af einni íbúð,
sem hann hafði skipt niður í hí-
býli handa þrem fjölskyldum,
höfðu fimmfaldazt síðan 1942.
„Þá sjaldan að það kemur
fyrir, að brotlegir húseigendur
eru leiddir fyrir rétt, eru 3 af
hverjum 5 sýknaðir. Einn frétta
maðurinn rakst inn til fjögra
manna fjölskyldu, sem greiddi
52 dollara á mánuði (um 900
kr.) fyrir tvö herbergi, sem
hann hélt fyrst að væru ónotað-
ar kolageymslur.
„Fréttamcnnirnir rákust á
drenghnokka, sem leikbræðurn-
ir höfðu uppnefnt „Pig Face“
(grísarandlit), eftir að rotta
beit af honum nefið. Flestar
fjölskyldur létu ljósin loga all-
ar nætur í árangurslausri við-
leitni til að fæla burt rotturn-
ar.
„Blaðið birti hlið við hlið
myndir af byggingu, sem hvirf-
ilvindur hafði lagt í rúst og í-
búðarhúsi 1 Chicago. Undir
myndunum var þessi spurning:
„Hvort húsið varð fyrir hvirf-
ilvindi 1 ... . hvort er í fátækra-
hverfi í Chicago?““
Danska lögreglan hefur bann-
að sölu þriggja franskra klám-
blaða, sem fengið höfðu tölu-
verða útbreiðslu í landinu, ekki
sizt eftir að dagblöðin tóku að
vekja athygþ á þessum ófögnuði
rtrt heimt.nðn hnnn bannaðan.
Minmsgóðir kristcalar
ircsinleiddir í USII
Brú yfir
Bosporussuad
fyrirhuguð
hvífvððang í vöggu
Hroðaleg lýsing á fátækrahverfum
Chicagoborgar
AJmenningl j. Vestur-Evrópu hefur veriö kennt að líta
öfundaraugum til Bandarikjanna vegna þeirrar velmeg-
unar sem þar er sögð ríkia. Eftirfarandi fréttamoli, sem
biriist í blaði brezka fasteignafélagsins Estates Gasette,
bendir til að slik öiundsemi sé ástæöulaus.
Kruppverksmiðjurnar í Essen
hafa að beiðni tyrknesku stjórn
arinnar gert kostnaðaráætlun
um smíði brúar yfir Bosporus-
sund.
Hin fyrirhugaða brú yrði
1400 metra löng og talið er,
að það mundi taka fjögur ár
að smíða hana. Kostnaður ei á
ætlaður rúmur milljarður ís-
lenzkra króna.
Þess'ír myndir eru teknar í
líöíuðborg líandaríkjaana. 1
baksýn sést hvolfþakið á CapitoJ, J;i gliúsj Bandaríkjanna, frani-
an til á myndunum, steinsnar frá miðstöð Isins voiduga stcrveld-
is, eru hreysi þeldökkra íbúa höfuðborgarinnar. Myndirnar eru
táknrænar f.vrir þjóðskiþulag auðvaldsins. Sjá frétt htr á síðunni
Það er skemmtileg tilviljun,
að undirbúningur undir slíka
brúai-smíði skuli hafin í ár,
1953, þegar liðin eru 500 ár
síðan Tyrkir tóku Konstantinó-
iæl (Istanbúl) og greiddu aust-
urrómverska ríkinu banahögg.
En þeir jafnast þó ekki á við
mannsheilann
Visindamenn í þjónustu Bell símafélagsins bandaríska
bafa framleitt örlitla kristaÚa, sem hver um sig getur
geyrnt 250 mismunandi upplýsingar.
Kristalarnir eru ræktaðir úr
efnablöndunni bartíum títranat,
og er hver um sig aðeins hálfur
ferþumlungur að stærð og
nokkrir þúsundustu hlutar úr
þumlungi að þykkt. þá má nota
í sjálfvirka síma, rafmagns-
reiknivélar og þvíumlíkt og
þeir hafa þann kost umfram
rafeindalampa og önnur áhöld,
sem notuð hafa verið í sama til-
gangi, að „minni“ þeirra miðað
við rúmtak er miklu meira. Það
þýðir, að með notkun þeirra má
minnka fyrirferð þeirra tækja
sem þeir eru notaðir í.
Til að koma upplýsingunum
fyrir í kristalinum eru notaðar
jákvæðar og neikvæðar raf-
hleðslur, sem beitt er eftir sér-
stökurn lykli. Með því móti má
láta hann muna heil orð, jafn-
vel heilar setningar, auk talna.
Þegar nota þarf upplýsingarnar
skilar kristallinn þeim á einum
milljónasta úr sekúndu.
Vísindamennirnir eru að
sjálfsögðu hreyknir af árangri
sínum, en þeir viðurkenna fús-
lega, að kristall þeirra kemst
hvergi nærri heila manns-
ins. Það hefur áður ver-
ið reiknað út, ao ef
byggja ætti vélrænan heila úr
rafeindalömpum, sem nálgaðist
heila mannsins að liæfni,
mundi stærsta járnbrautarstöo
New York borgar, Grand Cen-
tral Terminal, várla rúxna hann.
Ef umræddir kristallar væru
notaðir, mundi hann komast
fyrir í miani byggingu.
Ofsóknunnm gegn Dassin mótmælt
Félag brezkra kvikmyndamanna lýsir
yíir vanþóknun sinni
Það var brezkur vísindamað-
ur, dr. Edward C. Bullard, sem
reið á vaðið með þessa kenn-
ingu og hefur utinið að því að
rökstyðja hana um árabil.
Það er talið, að kjarni jarð-
arinnar sé gerður úr bræddu
járni. Það er ólíklegt, að kjarn-
inn sé stöðugur segull eins og
skeifuseglar þeir, sem börnum
þykir gaman að leika sér að. Til
þess yrði hann að vera úr föstu
efni, eins og seguljám forfeðra
vorra. Kjarninn getur því ekki
verið segulmagnaður. En nálin
á áttavitanum er órækur vitn-
isburður um segulmagn jarðar.
Ef rafstraumar eiga sér stað
í kjarnanum, er fengin skýring-
in á segulmagninu, því það er
alkunna, að slíkir straumar
geta orsakað segulmagn.
Til þess að kjaminn geti verk
að sem rafall verður hreyfing
að eiga sér stað í honum
Bullard og fleiri vísindamenn
telja, að kjarninn sé geislavirk-
ur, og að geisiavirkunin valdi
svo miklum hita, að hreyfing
(hitastraumar) geti átt sér
stað í kjarnanum. Það þyrfti
ekki að vera mikill munur á
snúningshraðanum utar og inn-
ar í kjarnanum til þess að raf-
straumur ætti sér stað.
Þessi skýring á segulmagni
jarðar er ekki einhlít, en vís-
indamenn telja hana komast
nær því rétta en aðrar, og er
einkum bent á, að með henni
sé um leið fengin skýring á
því, hvers vegna segulskautin
eru ekki alltaf á sömu stöðum.
þess kvikmyndasalur.
★
Gústav Adólf Svíakonungur
hlaut einn af vinningum í happ-
drætti sænska slysavarnafélags-
ins. Vinningur: kvennærföt.
★
Stjóm Norður-Kóreu hefur til-
kynnt verðlækkun á ýmsum nauð
synjavþrum. Það er þriðja verð-
lækkunin sem kemur til fram-
kvæmda í iandinu á síðustu 8
mánuðum.
★
Dómari einn í Connecticut i
Bandarikjunum kvað i síðustu
viku upp þann úrskurð, að mað-
ur sem situr í fangelsi fyrir að
myrða konu sína, væri réttmæt-
ur erfingi 400,000 dollara, sem
hún lét eftir sig.
Fyrir nokkru var skýrt frá
því hér í blaðinu, hvernig hinn
kunni kvikmyndagerðarmaður
Jules Dassain var sakaður um að
vera kommúnisti og sviptur
stöðu sinni í Hollywood og síðan
meira að segja ofsóttur langt út
fyrir landsteina Bandaríkjanna.
Með ofsóknum sínum gerðu
bandarísk stjórnarvöld Dassin ó-
kleift að setjast aftur að iðn
sinnj i Frakklandi.
Mál Dassins hefur vakið hina
mestu athygli. Nær því allir
kunnir kvikmyndaleikarar Frakk
lands og kvikmyndagerðarmenn
hafa undirritað mótmæli gegn
ofsókn þeirri, sem Dassin hefur
orðið fyrir.
Nú hefur félag brezkra kvik-
myndagerðarmanna tekið í sama
strenginn. Forseti þess, kvik-
myndatökustjórinn Anthony As-
quith hefur sent þeim, sem stóðu
að mótmælasöfnuninni í Frakk-
landi, skeyti og lýst yfir fullum
stuðningi félagsins við mótmælin.