Þjóðviljinn - 02.08.1953, Page 8
ÞJÓÐVILJINN — Sunnudagur 2. ágúst 1953
H
Fyrir nokkru kom út hjá
Bókaútgáfu Menningarsjóðs Ár-
foók íþróttamanna, en hún er
gefin út að tilhlutan íþcrótta-
sambands Islands.
Er bók þessi alltaf að verða
fjölþættari, og fleiri og fleiri
greinar að koma í hana, sem
eðlilegt er og raunar sjálfsagt.
'Auk þess hefur verið bætt í
ibókina ársskýrslu íþróttasam-
foands íslands fyrir tímabilið
1951-1952 og tala sérsambanda,
foéraðasambanda og félaga, en
nú eru í íþróttasambandinu
233 félög með 24440 félags-
möimum. Eer vel á því að
skýrsla framkvæmdastjórnar
ISÍ sé þar, og jafnvel útdrátt-
>ur úr skýrslu sérsambanda, svo
að yfirlit yfir heildarstörfin
fáist í samanþjöppúðu formi á
einum stað. I þessari bók er
það aðeins FRl sem greinir
frá starfi sínu. Öll bókin er
264 síður og á þeim segir frá
12 íþróttagreinum. Mest rúm
ftékur kaflinn um frjáisar í-
þróttir, en hann er ritaður af
Brynjólfi Ingólfssyni og hefur
yel tekizt að þjappa hér sam-
an miklum fr'óðleik um frjáls-
ár íþróttir innlendar fyrst og
frernst og svo erlendar líka.
ÍSkrá er þar um beztu afrek
Islendinga 1952 svo og íslenzk
met 1. janúo.r 1953. Þar.ua
fylrrir með afrekaskrá karla
og l^venna og sömuleiöis heims-
raet En Brynjólfur er hreinn
sérfræðingur í öllu er lýtur að
„stetist’k“ í þessum málum.
I kaflanum um glímuna
foeldur Kjartan Bergmann á-
frara að safna fróðleik og koma
í þetta góða heimildarrit úrslit-
um i eldri glímran, og fer vel
á því, auk þess sem hann skýr-
ir frá því sem gerðist á árinu
Fjcrði og lengsti kaflinn er
úm. knattspyrnuna, og eins og
áðu.r er það- einna líflegasti kafl
inn. Tii bragðbætis eru þar
glefsur úr dagblöðum um ein-
s‘r>k-a leiki sem í fáum orðum
gu:a yfirlit yfir gang leikj-
anna í Islandsmótinu.
Þá er þar glögg lýsing á ut-
anförum og heimsóknum. Enn-
fremur skrá yfir úrslit leikj-
anna á OL 1952 í Helsioki.
i Kafiinn um sund eft;r Ragn-
ar Vignir er einnig ágætur og
kemur foann víða við um inn-
lend mót, og afrek frá síðustu
OL. Þar er og íslenzk afreka-
pkrá og skrá um íslandsmet.
Aðrir kaflar eru styttri, en
eigi að síður góð heimild um
starfið á árinu. Þessi kaflar
eru: Badminton, sem Friðrik
Sigurbjörnsson skrifar; Golf,
eftir Þorvald Ásgeirsson; Hand
iknattleikur, eftir Hauk Bjarna-
son. Róður er ný grein í Ár-
foókinni og þann kafla ritar
Loftur Helgason. Urn skauta-
íþróttina ritar Jón D. Ármanns-
son og fylgir þar afrekaskrá
og skrá um Islandsmet. Gísli
Kristjánsson skrifar kaflann
nm skíðaíþróttina. Stefán G.
Björnsson minnist L. H. Miill-
ers er lézt á árinu og fer vel
é því í þessari bók, að geta
láíinna forvígismanna og foraút
ryðjenda. Körfuknattleikur er
nýr kafli í Árbókinni og hann
ritar Magnús Sigurðsson, en
greiniirai fylgir mjrad af Is-
landsmeisturunum í körfuknatt-
3eik, sem voru IKF. Það sem
etingur í augun á þessari mynd
er það, að • tveir menn í her-
jeinkennisbúningi skuli vera á
myndinni, og í bók þessari, og
ekki eru þeir nefndir þjálfarar;
en þó þykir ekki rétt að birta
nöfn þeirra! Þetta er sjálfsagt
það sem koma skal, samkv.
samþykkt síðasta ársþings ÍSl,
að hermenn setuliðsins séu sem
„góðir gestir“ ýmist í einkenn-
isbúningum sínum eða fáklædd-
ir í röðum íþróttamanna á velli,
og á myndum í blöðum og ár-
foókum okkah. *
Bók þessi er prýdd fjölda
mynda. I henni er samankom-
inn undra mikill fróðleikur um
íþróttastarfið og þá fyrst og
fremst sjálfar íþróttirnar, ár-
angur þeirra og mótin. Er
þetta því eins gott heimildar-
rit og bezt verður á kosið fyrir
alla þá sem áhuga hafa á þess-
um málum. Þessi bók þyrfti
fremur að stækka, því enn foef-
ur varla verið sögð nema hálf
sagan. Hið félagslega-starf sem
felst í framkvæmdum og er
undirrót alls þess sem er að
gerast, vantar, en állt það
ger’st innan vébanda íþrótta-
hreyfingarinnar, þó það fái
styrki frá opinberum aðilum
til frámkvæmdanna. Með aukn-
um kaupendafjölda sem félögin
sjálf ættu að vinna að mætti
fullkomna þessa bók enn foetur.
Ef til vill mætti tryggja það
með því einu að hvert félag
útvegaði 5-8 kaupendur að bók-
inni árlega. Árbókin er nú orð-
;n 10 ára, en þeir Jóhann Bern-
hard og Brynjólfur Ingólfsson
foófu að gefa út Árbók frjáls-
íþróttamanna. I bókum þessum
frá byrjun foefur varðveitzt
mikill fróðleikur um íþróttalífið
á Islandi um langa hríð. —
I útgáfuaefnd eru Þorsteinn
Einarsson, formaöur; Jens Guð-
björnsson og Kjartan Berg-
mann.
%
RJTSTJÓRl. FRÍMANN HELGASON
Heimilisþáíttmnn
Framhald af 10. síðu.
lega vérður ekki kominn strax
úr tízku.
Auðveldara er að sauma seinni
‘búninginn. Hann má gjarnan
vera úr silkiefni en einnig úr
léttu uilarefni eins og sá fyrri.
Á jakkanum eru skávasar sem
á eru foafðar smánælur, það er
fallegt, ef þyrfti að skreyta hann
fyrir sérstakt tækifæri, en dags-
daglega væri betra að hafa þær
ekki. Ermarnar eru hálflangar,
og það er vafasamt á jakka og
kápur, en ágætt á kjóla. Bezt
værj að hafa ermarnar á jakk-
anum i venjulegri lengd, en erm-
arnar á kjólnum hálflangar.
Ef einhverjum finnst leiðin-
legra að hafa belti, er þriðji
búningurinn góður fyrir þær. En
því miður er það búningurinn,
sem erfiðast er að sauma og
fæjri bezt iklæðskerasaumaður.
Þó mætti reyna það, sérstaklega
ef haft er í hann létt efni eða
gott gaberdin. KjóLlinn á mynd-
inni er úr rayongaberdin, það
má nota það, en er ekki gott, og
helzt ætti að ganga fram hjá
rayonefnunum, þegar keypt er
í dragtir og göngubúninga. —
Rayon er ágætt í kjóla, þar sem
auðvelt er að strjúka þá, en
öllu erfiðara er að fást við jakka
rneð hornum, axlapúðum og til-
heyrandi og þeir aflagast fljótt
og verða leiðinleg'r. Ef erfitt er
að áttá sig á öllum nýju -efnun-
umr væri ómaksins vert að muna,
að uliarraypn er .það sama og
áður var kallað cellull.
í fyrradag birtust nöfn þeifra
sem eiga að mæta sem fulltrúar
íslands í landsleikjum í knatt-
spyrnu í Danmörku og Noregi
fyrri hluta næsta mánaðar. Það
verður sjálfsagt með þetta lið
eins og öll önnur að menn verða
ekki sammála um skipan þess
og vissulega er úrtökunefndin
Aindir smásjánni.
Sennilega standa fáar lands-
liðsnefndir eins vel að vígi og
okkar að velja lið, því hér er
um svo fáa að velja að vandinn
ætti ekki að vera eins mikill.
Fámennið hefur líka þann ókost
,að hættara er við. félagssjónar-
miðum, og sjálfsagt gengur
nefndin þess ekki dulin að hún
er ekki talin standa langt frá
félögum sínum. Það getur þýtt
ófmat á þá sem næst standa,
en vanmat á þá sem fiær eru.
Þetta þarf ekki að standa í sam-
bandj við félagshyggju til að
útiloka annan úr öðru félagi.
Þetta er mat vinar á vini. Þess
vegna- er . æskilegt að nefndir
standi sem lengst frá félögum
sínum, sem til keppni gætu verið
kallaðir.
Yfirleitt munu flestir sammála
um flestar stöðurnar, og breyt-
ingin með Pétur sem innherja
er ágæt tilraun, ,að láta tríóið frá
Akranesi halda sér, þegar þess
er líka gætt að Bjarni Guðnason
hefur ekki verið alveg heill.
Aftur á móti er Guðjón ekki eins
öruggur í liðinu og fyrir Austur-
ríkisleikinn. í leikjum hans við
austurríska liðið, og eins við
B-1903, kom fram að hann vant-
ar þá hörku og þann kraft, sem
til þarf við slíka stórkarla sem
þeir voru og þessir, sem þeir
mæta í ferðinni. Er þeíta sér-
staklega að því er snertir hindr-
anir og hreyfanleik, knattmeð-
ferð og auga hans fyrir sam-
leik eru aftur á móti í góðu
lagi. I þessa stöðu koma ekki
margir til greina, helzt þó vara-
maðuririn Halldór Halldórsson,
en hann hefur verið óvenju utan-
veltu í leik.ium sínum upp á
síðkastið, og stafar það ef til
vill >af því að skipulag í leik
er ekki hans sterka hlið, en
kraft á hann, óg er óragur við
að leggja sig í hindranir. Það er
því mikið vafamál hvor á að
vera inni móti Dönum og hall-
ast verður að því að kraft og
mikla yfirferð þurfi á hinum
stóra velli „Idrættsparken". —
Hitt mælir -svo með Guð-
jón; iað hann ætti að falla
inn í leik við tríóið og sennilega
hefur það ráðið. Manna á milli
er fullyrt að hvorki Gunnar Guð-
mannsson eða Haukur Bjarnason
hafi í vor uppfyllt skilyrði sem
nefndin setti í vor og þar með
raunverulega fyrirgert rétti sín-
um til slíkrar farar sem þessar-
ar. Sennilegt er það að úrtöku-
nefndin h-afi slegið af kröfum
sínum og þannig raunverulega
misst tökin á því aðhaldi og
aga sem þarf við svona undir-
búning, og er það illa farið.
Hvað Gunnar snertir er það
líka ábyrgðarhluti ,að senda hann
meðan hann sýnir ekki í einum
heilum leik þann kraft og vilja
og vinnu sem krefiast verður,
þrátt fyrir ótvíræða leikni hans
og kunnáttti. Það er mikil bjart-
sýni að gera ráð fyrir að hann
fari að reyna meira á sig á er-
lendri grund; ekkert er þó ó-
mögulegt í þessu efni, en gera
verður þó ráð fyrir að nefnd-
inni hafi verið Ijósir þessir ann-
markar á leik Gunnars. Þá vek-
ur nokkra furðu að Guðbjörn
skuli valinn til ferðarinnar, svo
framarlega sem valið er eftir
styrkleika. Þvj hefur áður verið
haldið fram hér, að hann sé ekki
með landsliðsgetu og komc
nokkrir bakverðir til greina fyrr
og það meira <að segja ú’r hanS
eigin félagi, f. d. Steinn Steins-
son. Að sjálfsögðu skipar Einar
Halldórsson þá stöðu betur eí
til kæmi, eftir þær æfingar o'
leik sem hann hefur sýnt. Er
næsta einkennilegt að nefndin
skul^ ekki hafa komið auga á
þetta. Það verður líka að draga
í efa <áð Haukur Bjarnason sé
heill og í þeirri æfingu, sem til
þarf fyrir þá leiki, sem fram-
undan eru, og virðist nefndin
ekki hafa gert sér grein fyrir
þessu, hvernig sem á því stend
ur. Hitt er svo ánægjulegt a<
heyra að allir skuli vera orðni
heilir, en fyrir nokkru eða svi
voru Biarni, Haukur, Þórðui
Guðbjörn og Ríkarður alli
meiddir, en það er nú aðein
Ríkarður sem enn á að hlífa séi
Við skulum vona að meiðslii
taki sig ekki upp þegar mest
riður. Það er slæmt þegar ekk
ríkir festa í undirbúningi svon
ferðar, en það kemur beint o.
óbeint fram, að svo er ekki o
er eftirleikurinn því eðlileg
vafasamari. En þó svo hafi ti
tekizt, skulum við vona að þett
lið sem við sendum standi si
sem bezt og sameinist á alvöi
unnar’stund í baráttunni fyri
heiðri’ fslands.
ÍFararstjóm og fuLltrúavs
svona ferðar verður <að teljaí
heiður og að sjálfsögðu virðis
eðlilegast að sá heiður skiptis
milli forustumánna úr þeim fe
lögum, sem halda störfum upp
Það er því dálítið einkennile
tilviljun að þrír þessara mann
eru úr sam.a félaginu. — Hé
er ekki verið að kasta rýrð
starf þessara manna, heldu
benda á, að þessi heiður á a
skiptast milli félaganna.eftir þ\
sem við verður komizt.
le#|ávíkuriaeisiazamotiS:
1411 lidur flest stig9 819 esi Ár«
niaim er naest með 7®
Meistaramót Reykjavíkur í
frjálsum íþróttum hélt áfram sl.
fimmtudagskvöld og urðu úrslit
þá sem hér segir:
4x100 m hlaup.
A-sveit KR 45.0 sek.
A-sveit Ármanns 45.5 sek.
A-sveit ÍR 46.3 sek.
B-sveit KR 48.0 sek..
4x400 m hlaup.
A-sveit Ármanns 3.33.41
A-sveit KR 3.38.5.
B-sveit Ámanns 3.45.9.
A-sveit ÍR 3.54.4.
Fimmtarþraut
(langstökk, spjótkast, 200 m
hlaup, kringlukast, 1500 m hl.).
Guðmundur Lárusson Á 5.80
— 40.25 — 22.7 — 26.91 — 4.21.2
2.535 stig.
Valdimar Örnólfsson ÍR 6.17
—- 37.14 — 25.3 — 35.8 — 4.54.4.
2.146 stig.
Friðrik Guðmundsson KR 5.58
— 47.74 — 24.9 — 42.38 — 0.
2.104 stig.
Daníel Halldórsson ÍR 6.02 —
37,71 — 24.8 — 34.43 — 5.02.8.
2.078 stig.
100 m hlaup kvenna.
Margr. Hallgrímsd. UMFR 13,8
sek.
Langstökk kvenna.
Margr. Hallgrimsd. UMFR 4.40.
4x100 m hlaup kvemia.
UMFR 59.?
3000 m hindrunarhlaup.
Kristján Jóhannsson ÍR 9.53.6
met (10.06.2). •
Nú er eftir <að keppa í
þraut og 10 km hlaupi á m
aramótinu og fara þær kej
f-ram 10. ágúst n. k. Stigitt st,
nú svo að KR er hæst me
stig, Ármann hefur 79 st„ É
og UMFR 2 stig.
SKIPAUTGCRÐ
BIKÍSINS
austur um land til Raufarhafna
hinn 8. þ. m. Tekið á móti flutr
ingi til Hornafjarðar, Djúpavog
Breiðdalsvíkur, Stöðvarfjarða
Mjóafjarðar, Borgarfjarða
Vopnafjarðar, Bakkafjarða
Þórshafnar og Raufarhafnar
þriðjudag og miðvikudag. Fai
seðlar seldir á fimmtudag.
fer til Vestmannaeyja á þriðji
dagskvöld. Vörumóttaka sam
dag.
Eiríkur Haraldsson Á 11.07.6.
Hreiðar Jónsson Á 11.15.6.
Marteinn Guðjónss. ÍR 11.46.2.
liggurleiðin