Þjóðviljinn - 22.08.1953, Qupperneq 6

Þjóðviljinn - 22.08.1953, Qupperneq 6
®) — ÞJÓÐVTLJINN — Laugardagur 22. ágúst 1953 þiÓfðVIUINN Útgefandi: Sameiningarflokkur alþýðu — Sósíalistaflokkuiinn. Ritstjórar: Magnús Kjartansson (áb.), SigurSur Guðmundsson. 'B’réttastjóri: Jón Bjarnason. Blaðamenn: Ásmundur Sigurjónsson, Bjarni Benediktsaon, Guð- mundur Vigfússon, Magnús Torfi Ólafsson. Auglýsingastjóri: Jónsteinn Haraldsson. Ritstjórn, afgreiðsla, auglýsingar, prentsmiðja: Skólavörðustíg. 19. — Sími 7500 (3 linur). Áskriftarverð kr. 20 á mánuði í Reykjavík og nágrenni; kr. 17 annars staðar á landinu. — Lausasöluverð 1 kr. eintakið. Prentsmiðja Þjóðviljans h.f. V__________________________________________________s Alkomandi spámcennsins lét dætnr síncsr knsta b!æ|unni MeBferB Frakka á Marokkósoldáni eykur úlfúB múhameBstrúarþjéBanna I garð Vesturveldanna 1 FuEMarvirkjun Sogsins í næsta mánuði er gert ráð fyrir því að unnt verði að taka hina nýju írafossvirkjun í Sogi til notkunar. Lokið er við að setja niður vélar stöðvariinnar og verða þær reyndar næstu daga. Lagning háspennulínunnar er langt komin og vonir standa til að henni verði lokið um svipaö leyti og stöðin tekur til starfa. Með þessari nýju virkjun bætist 32 þúsund kílóvatta orka við þær 15 þúsundir kílóvatta sem gamla Ljósafossstöðin framieiðir, auk þess rafmagns sem fæst frá stöðinni við Elliðaár. Þrátt fyrir þessa nýju virkjun er sýnt að skammur tími líður þar til aftur sækir í sama horf í rafmagnsmál- um höfuðstaðarins og orkuveitusvæðis Sogsvirkjunarinn- ar almennt. En rafmagnsnotendur, bæðií heimili og iðn- aðarfyrirtæki hafa orðiö fyrir þungum búsifjum af völd- um rafmagnsskortsins á undanförnum árum. Margsinn- is hefur oröið aö skammta rafmagnið og valdið öllum miklum óþægindum og iðnaðiinu(m stórfelldu fjárhags- tjóni. Vinna hefur stöðvazt langtímum saman hjá fiölda íyrirtækja og dýrmætar vélar legið undir stórfelldum skemmdum, vegna þess að álagið hefur verið langtum meira en orkan hefur þolað. Notkun rafmagnsins almennt mun tvímælalaust halda áfram að vaxa á næstu árum vegna aukins iðnaðar og íólksfjölgunar á orkuveitusvæði Sogsvirkjunarinnar. En við það bætist að aðeins eitt stórfyrirtæki, áburðarverk- smiðjan í Gufunesi fær til sinna nota 4000 kílóvött sem lágmark aö staðaldri, auk þess sem hún hagnýtir alla afgangsorku Sogsvirkjunarinnar og notar þannig 130 milljónir kílóvattstunda á ári. Það er því augljóst, enda viðurkennt af öllum sem til þekkja, að þrátt fyrir nýju Jrafossstöðina verður orðinn tilfinnanlegur rafmagns- skortur í Reykjavík og á Suðurlandi strax að 3 árum liðnum, verði ekki ráðizt nú þegar í fullnaðarvirkjun Sogsins, þ.e. virkjun efri Sogsfossanna, en sú virkjun á að gefa 20 þúsund kílóvött til viðbótar þeirri orku sem nú er fyrir hendi. Veröi ekki ráðizt í þessa nýju virkjun þeg- ar að þessari lokinni er fyrirsjáanlegt að gripa verður til þess óyndisúrræðis að framleiða raforku úr olíustöð- inni við EUiðaár aö ca. 3 árum liðnum, en sú raforka er miklum mun dýrari og slík rafmagnsframleiðsla því á allan hátt óhagstæð. Á þetta benti Guðmundur Vigfússon á fundi bæjar- stjórnar Reykjavíkur í fyrradag, er hann lagöi fram til- lögu sína, söm birt var í blaöinu í gær, um að þegar yrði 1 hafizt handa um virkjun efri fossanna og bæjarstjórnin' skoraði á ríkisstjórnina að afla nauðsynlegs lánsfjár í þessu skyni. Sýndi Guðmundur fram á það með rökum sem ekki voru hrakin, að það yröi á allan hátt ódýrara að láta nú ekkert hlé verða á virkjunarframkvæmdunum, þar sem stórvirkar vélar og önnur nauðsynleg tæki eru nú fyrir hendí á virkjunarstaðnum, auk þjálfaðs mann- afla sem öðlazt hefur mikla reynslu og þekkingu við framkvæmd virkjunarínnar sem nú er að verða lokið. Er þáð álit allra sem kunnugir eru þessilm málum að verði vélar og tæki flutt burt og vinnuaflinu tvístrað yrðu framkvæmdir 15-20% dýrari en ef ráöizt væri strax í virkjun efri fossanna. íhaldið sem jafnan hefur tafið allar virkjunarfram- kvæmdir svo lengi sem þaö hefur þoráð og lagzt gegn öllum tillögum sósíalista um fullnaðarvirkjun Sogsins fcæði í bæjarstjóm og á Alþingi, treysti sér nú ekki til að véfengja þessar röksemdir né þörfina á áframlialdandi virkjun. Undirtektir borgarritara, sem gegnir störfum borgarstjóra 1 fjarvem Gunnars Thoroddsen, voru þáð jákvæðar að ætla má að þetta mikla nauðsynjaimál bæj- arbúa verði ekki að þessu sinni í dauðakistu skilnings- leysis og athafnaskorts. Tillögu Guðmundar var vísað til annarrar umræðu í bæjarstjórn og ætti hún því að fá endanlega afgreiðslu í byrjun september. En ömggara mun fyrir Reykvíkinga að vaka yfir því, að íhaldið svæfi ekki málið. Það hefur hingáð til ekki ráðizt í neinar meiriháttar frajmkvæmdir til aukinnar þæginda og velmegunar fyrir það fólk sem höfuðstaðinn byggir nema tiineytt af minnihluta bæjarstjórnar og ein- huga og öflugu almenningsáliti. AU fáheyrðu tíðindi gerð- ust á fundi stjórnmála- nefndar þings SÞ lí New York í fyrradag, aá strokinn dipló- mat og fulltrúi eins . þeirra ríkja, sem talin eru til stór- veldanna, rak upp skaðræðis- öskur svo að ekki heyrðist mannsins mál í þingsalnum meðan honum entist örendi. ÍÞingheimi hnykkti við og skim- uðu menn um bekki svo að Ibrátt hvíldu allra augu á ó- 'hljóðabelgnum. Reyndist hann vera Maurice Sehuman, aðstoð- arutanríkisráðherr.a Frakklands og yfirmaður frönsku sendi- nefndarinnar á yfirstandandi aukaþingi SÞ. Það sem kom honum til að reyna svo mjög á raddstyrk sinn var að fulltrúi Sýrlands hafði vakið máls á þeim aðförum, sem franska ríkisstjómin hafði haft í frammi fyrr um daginn ií franska vemdarríkinu Marokkó, þar sem soldáninn hafði verið isettur af og sendur í útlegð til Miðjarðarhafseyjunnar Korsiku með sonum sínum. Monsieur Schuman þurftf ekki að góla lengi til að varna Sýrlendingn- um máls, því að fundastj. úr- skurðaði þegar er mesta hellan var farin frá eyrum hans að mál Marokkó væri ekki á dag- skrá og því óheimilt að ræða það. SIDI Múhameð Ben Jússef, •soldán af Marokkó, af- komandi spámannsins, er mað- ur um fimmtugt og hefur ráðið ríkjum í Marokkó síðan faðir hans lézt 1927. Faðir hans gerði Marokkó að frönsku vemdar- ríki með samningi árið 1912 eftir að legið hafði við að styrj- öid brytist út miJli Frakklands og Þýzkalands út af yfirráð- unum yfir landinu. í samningi þessum skuldbindur franska ríkisstjórnin sig til að sjá svo um að vald og réttindi soldáns séu virt og hefur nú efnt það 'loforð með því að flytja hann nauðuigan í útlegð. FRAMAN af stjórnarárum Sidi soldáns fór vel á með Ihonurn og Frökkum enda skipti hann sér þá látið af landstjórn- inni en undi við hraðbíla sína er að segja hinir erlendu drottn •arar gefa ú.t lög sín og fyrir- mæli í nafni innlends þjóðhöfð- ingja. Upp á síðkastið hefur soldán neitað að undirrita til- skipanir þær, sem frönsku her- landsitjórarnir hafa lagt fyrir hann og krafizt þess að fá að Sidi Múhameð Ben Jússef, soldán í Marokkó fara til Parísar til að semja við frönsku ríkisstjórnina um það hvemig stjórnarfar Mar- okkó verði fært 1 nútímalegra horf og um aukið sjálfsforræði landsmanna. Þetta varð til þess að honum hefur nú verið rutt úr vegi með sameiginlegu átaki Frakka og tryggustu fylgifiska þeirra, lénsherra frá iSuður- Marokkó, sem ekki mega til þess hugsa að alræðisvald þeirra yfir landsmönnum sé skert. SJÁLFSTÆÐISHRE YFIN G hófst á legg í Marokkó á fjórða áratug þessarar aldar og myndaðui: var stjórnmála- fokkurinn Istiqlal (sjá-lfstæði) en Frakkar bönnuðu hann þeg- ar í stað. Leið svo fram í heims styrjöldina síðari, en þá losn- uðu nokkuð tök Frakka á Mar- okkó er Frjálsir Frakkar tóku við stjórn af Vicnymönnum. Istiq'alflokkurinn fékk að starfa opihberlega og það er haft fyrir satt að Roosevelt heitinn Bandaríkjaforseti hafi lofað soldánj bandarískum Kort af frönsku nýlendunum í Norður-Afríku. Vestast er Marokkó, þá Alsír og loks Túnis. og arabiska gæðinga. En þegar soldán varð að láta af slíkum skemmtunum vegna vanheilsu tók hann að gefa landsmálum meiri gaum og þá var friður- inn úti mil'li hans og Frakka. í IMarokkó hafa Frakkar komið á þvú fyrirkomulagi, sem nýlendu veldi kalla „óbeina stjórn“, það stuðningi við sjálfstæðiskröfur landíbúa þegar þeir hittust eftir fund forsetans með Churchill í Casablanca, stærstu 'borg Marokkó. Þetta líkaði Fiökkum í Marokkó, sem eru hálf milljón af rdu milljónum landsbúa, stórilla. Innflytjendur þessir hafa komið sér vel fyrir í Marokkó og hagnýtt auðlindir landsins, frjósama jörð og auð- ugar námur í sjna þágu en landsmenn sjálfir eru æði af- skiptir. 0" FLUGUSTU auðhringar Frakklands eiga margar gjöfulustu gróðalindir sínar í Marokkó og þeir hafa ráðið stefnu frönsku ríkisstjórnarinn- ar þar síðan sósialdemokratinn Ramadier lét banma Isitiqlal- flokkinn og blöð hans og liand- taka foringjana að áeggjan þeirra. Jafnframt lét hann Jui.n hers'höfðingja, þáverandi land- stjóra, leggja fyrir soldáninn lagafrumvörp um „stjórnarbæt- ur“. Þær voru þess eðhs að soldán þverneitaði að undir- skrifa tilskipanirnar. Einkum mótmælti hann því ákvæði, að Frakkar skyldu hvarvetna fylla helming sæta í fyrirhuguðum bæja- og héraðastjórnum. Bar hann fram gagntillögur um að byrjað yrði á þv.í að koma á funda-, samtaka- og prentfrelsi og siðan lögleiddar kosninigar til héraðsstjórna án þess að til- skilja Frökkum ákveðna tölu sæta. EIN'NIG krafðist soldán þess að settir yrðu á stofn óháðir dómstólar og Mar- okkómönnum leyft að mynda sín eigin verkaíýðsfélög. Pash- arnir ag kaídarnir, sem að nafninu til eru jarlar soldáns en í raun og veru algerir e:in- valdsherrar hver í sínu léns- 'umdæmi, urðu ókvæða við til- lögu soldáns um óháða dóm- stóla. Þeir eru og hafa um aldir verið allt í senn, löggjafarvald, dómsvald Oig framkvæmdavald í umdæmum sinum og beitt þeirrí aðstöðu og beita enn ó- spart til að sölsa undir sig eignir manna, krefjast fagurra meyja í kvennabúr sín og haga sér að öðru leyti eins og hrein- ræktaðir miðaldabarðstjórar. Þessir menn eru tryggustu 'bandamenn Frakka í Marokkó og enginn þó meiri en el Glaoui (framber Gláí), pasba af Marr- •akesh. JARLARNIR og Frakkar hófu samræmdar ■ aðgerðir 'gegn soldáni, el Glaoui kom á samtökum jarlanna um að af- segja hann og frönsku land- stjóramir höfðu bá hreyfingu fyrir keyri á soldán að láta undan kröfurn þeirra. Komu Frakkar því til leiðar að soldán leysti 'upp ráðuneyti sitt, sem skipað var niönnum hlyntum Istiqlal, en hann neitaði statt og stöðugt að undirrita tilskip- anir Frakka. Sjálfstæðishreyf- ingin í Marokkó hafði litið til 'Bandaríkjanna eftir stuðningi siðan Roosevelt var þar á ferð en þegar á reyndi var síður en svo að þar væri fulltingi að fá. Bandaríkjastjórn hafði gert S'amning við Frakka um að igera fimrn risastórar flugstöðv- ar fyrir langfleygustu sprengj-u- flugvélar í Marokkó og telur það vænlegast til að halda þeirri aðstöðu til frambúðar að iFrakkar ráði lögum og lofum i landinu. Aldrei er haegt iað vita Framh. á 11. síðu.

x

Þjóðviljinn

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Þjóðviljinn
https://timarit.is/publication/257

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.