Þjóðviljinn - 22.09.1953, Qupperneq 3
Þriðjudagur 22. september 1953 — ÞJÓÐVILJINN — (3
Verkainöiiisfiiii á lei$ frá víbiiím og veikii
baraii neitað am nð konaast heissi til sín
Mr lofouM reífiirins otg framhoma tollþjóns-
ins Uður í þeirri mtlun stfórnarvaidanMm að
flœma Mafnamenn hurt úr byggð sinni?
Svo virðist sem hernámsflokkarnir hafi útvalið
Hafnamenn til að gera á þeim tilraun með hve mik-
inn yfirgang og móðganir sé hægt að bjóða íslend-
ingum í dag.
Er nú upprisin á Keflavíkurflugvelli ný fígúra
sem farin er að láta dólgslega við Hafnamenn.
Sennilegast er talið, að stjórnarvöldin ætli sér,
þar sem þau fengu ekki Hafnamenn til að afhenda
hernum lönd sín með góðu, að gera þeim ólíft í sinni
gömlu byggð og neyða þá þannig til brottflutnings,
— af því þau þora ekki að kannast við það fyrir ís-
lendingum að þau hafa fyrir löngu heitið banda-
ríska hernum því að leggja lönd Hafnamanna og
Hafnaveginn undir alger yfirráð hernámsliðsins.
Flugsýningin á sunnudaginn
Framhald af 12. síðu.
manna þar saman komið, en
meðal gesta voru forsetahjónin.
Agnar Kofoed Hansen, flug-
vallastjóri ríkisins, opnaði sýn-
inguna með ræðu. Bauð hann í
upphafi gesti velkomna og gat
þess að sýningin væri haldin í
tilefni þess að í des. í vetur
eru liðin 50 ár frá því Orville
Wright tókst fyrstum manna að
fljúga flugvél knúðri hreyfli. Þá
í-akti hann í stuttu máli og með
nokkrum tölum hina öru þróun
flugmálanna síðustu árin, t. d.
hafi árið 1937 verið fluttir alls
2.5 millj. farþegar með flugvél-
um í reglubundnum áætlunar-
ferðum, tíu árum síðar var þessi
taia komin upp í 21 miilj., 1952
45 millj. og á þessu ári væri
talið að flugfarþegar yrðu aldrei
færri en 60 milljónir.
Flugviallastjóri drap á að ís-
lendingar hefðu snemma haft
hug á að verða ekki eftirbátar
annarra þjóða í flugmálum og
árið 1919 var fyrsta flugfélagið,
stqfnað hér á landi. Hefði fé-
lagið haldið starfsemi sinni
áfram óslitið væri það nú ann-
að elzta flugfélag álfunnar. Loks
minnti hann á að nú væri hér á
landi allfjölmenn stétt vel
menntaðra flugliða, sem verð-
skulduðu athygli almennings.
Fjölbreytt flugsýning
Er Agnar h.afði lokið máli
sínu hófst flugsýningin með því
að sýningarvélarnar hófu flug
og flugu lágt vfir flugvöllinn,
en nær, samtímis sveif hrafn
einn hægt og tignarlega í sömu
flugstefnu og var hans þó
hvergi getið i dagskránni.
Nú hófst svifflug bæði á
renniflugu fýrir byrjendur og
listflugu. Sýndi Magnús Guð-
brandsson listflugið af mikilli
leikni og var þetta. eitt bezta
atriði sýningarinnar.
Þá kepptu tveir flugmenn í
marklendingum á litlum flug-
um, Sigurður Jónsson, elzti flug-
maður íslendinga, sýndi listflug
í lítilli vél, og Baldur Georgs
hafði grínþátt með Konna fé-
laga sínum. Einnig sýndi Bjöm
Pálsson flugmaður hversu hann
getur lent á litlu svæði í vél
sinni (30—40 metrum), og
tveggja hrevfla Douglasvél frá
Flugfél. íslands flaug örugglega
á einum hreyfli yfir völlinn, en
flugvélinni stjórnaði Gunnar
Friðriksson flugmaður.
Björn Jónsson yfirflugum-
ferðarstjóri lýsti sýningaratrið-
um jafnharðan og þau fóru
fram.
„Verndaraþáttur“
Eins og áður hafði verið til-
kynnt var hemámsliðinu troðið
inn á dagskrána. Sýndar voru
þrjár björgunarvélar þess og ein
þeirra hóf flug með „rakettu-
útbúnaði“ og varpað var niður
pökkum í falihlífum. Lolcs komu
fjórar þrýstiloftsflugvélar og
renndu nokkrum sinnum yfir
völlinn.
Slegizt urn „lukkupakka“
Eins og á flugsýningunni á
flugvellinum var mikill mann-
fjöldi saman kominn á kvqld-
skemmtuninni í Tívolí og mun
auglýúngin um „lukkupakka"
úr lofti einkum hafa dregið
menn að. Flugvél flaug nokkr-
um sinnum yfir skemmtigarðinn
og var .„lukkupökkunum" varp-
að úr henni., Féllu sumir þeirra
utan við skemmtisvæðið, aðrir
í Tívolítjöm, en suma tókst
mönnum að klófesta, a. m. k.
þóttust ekki færri en tveir hafa
haft samtímis hendur á pakk-
anum, sem -hafði að geyma flug-
ferð til Khafnar- og heim aftur.
F.leiri skemmtiatriði voru um
kvöldið, en hátíðinni lauk með
flugeldasýningu.
Skipting nemenda gagnfræðaskóla
Ilafnameim urðu fyrstir
íslendinga fyrir ágangi Guð-
mundar Guðmundssonar her-
námsstjóra. Krafðist hann
þess að þeir afhentu lönd
sín undir skothríð banda-
rískra og þegar þeir neituðu
lét hann dólgslega og hafði
í hótunum um að landið
skyldj verða tekið samt.
Herinn hefur hvað eftir
annað lokað veginum tll
Hafna, svo Hafnamenn hafa
raunv'erulega verið lokaðir
inni í lierkví.
Herinn hefur rofið símann
til Hafna svo símasambands-
laust hefur verið.
Ný digur fígúra kemur
fram á sjónarsviðið
Föstudaginn 11. þ. m. þegar
Hafnamenn voru að koma frá
vinnu sinni á Keflavíkurflug-
velli, rétt fyrir kl. 7 e. h. lentu
þeir í sennu við tollvörð, sem
var á vakt í því hliði flugvall-
arins sem stytzt er um th
Hafna. Hafði tollvörðurinn —
Égill nokkur Þorsteinsson að
nafni — leitað í bifreiðinni að
smygli, en ekkert fundið. Va/
hann á engan hátt truflaður í
starfi sinu. Framkvæmdi hann
leitina með miklu yfirlæti og
höfðu 'Hafnamenn áður orðið
fyrir óþægindum af manni þess-
um.
Barnar Hafnamönnum að
fara heim!
Af þessu spratt orðasenna á
milli Eglls þessa og manns er
sat í húsi bifreiðarstjóraní. Öx
ákafi þeirra hpggja þar til ‘.oll-
þjónninn missti vald á skap:
sínu. Skalf hann ákaíiega cg
mátti vart mæla. Lagði iiann
b'átt bann við að bifre'ðin færi
út af „nugvelliíium“ nema and-
stæðingur hans yfirgæfi bifreið-
ina. í bifreiðinni voru um 15
manns. Gramdist þeim rifrildi
Þetta og kröfðust þess að fá að
halda ferð sinni áfram óáreitt-
ir, þar sem þeir hefðu á engan
hátt gerzt brotlegir við toll-
YÖrðinn.
Varð að segja honnn;
þr'svar áður en hann gæti
skilið
Gekk í þófi um hríð, var toll-
þjónninn æfur og hugðist ekki
leyfa manninum að fara út um
hliðið. Bifreiðarstjórinn skipaði
þá tollþjóninum að fjarlægja
manninn, þar sem hann hefð:
ekki vald til þess. Ekki treystist
vörður laganna til þess, enda
hafði maðurinn aðeins látið í
ljósi réttláta gremju yfir frekju
hins og átt i vök að verjast er
toillþjónninn jós yfir hann
skömmum og fúkyrðum. Reyndu
nú H-afnamenn að koma vitinu
fyrir tollþjóninn, og lét hann
loks tilleiðast að sleppa þeim,
ef hann fengi nafn mannsins,
kvaðst hann mundu kæra hann
síðan. Maðurinn neitaði í fyrstu
að igefa tollþjóninum upp nafn
sitt, en er bifreiðarstjórinn bað
hann að gera það, svo töfin yrði
á enda, varð maðurinn við þeirri
ósk. Svo var af verð; laganna
dregið að þrisvar varð að segja
honum nafnið áður en hann
skildi og hét þó maðurinn Jón.
Héldu Hafnamenn síðan áfram
ferð sinni.
Hafnavegur'nn lokaður
vegna hernaðarfram-
kvæmda
Á þriðjudaginn 15. þ. m. kom
sami bifreiðarstjóri frá Kef’a-
vík. Með honum í bifreiðinni
var bróðir hans 8 ára og móðir
þeirra. Hafði hún farið með
drenginn til læknis í Keflavík,
ag leið drengnum illa. Er bif-
reiðin var komin fram hjá
„Meeks“-hliðinu var vörður á
veginum með rauðan fána.
Bannaði hann alla umferð um
þjóðveginn >til Hafna. Þetía var
um sexleytið að kveldi og
sprengja þá Hamiltonmenn í
grjótnámi vallarins, og þar eð
vegurinn liggur alveg við grjót-
námið verður öil umferð um
veginn teppt a. m. k. tvo tima
á dag þegar spr'engt er, Þarf
stundum að hreinsa veginn með
ýtu á eftir.
Refsar áður en hann.
rannsakar!
Bifreiðarstjórinn heið nokkra
stund, en er umferðabannið
hélzt sneri hann frá, ók inn á
„völl“ og ætlaði út um sama
hlið og Hafnamenn fara í gegn
að og frá vinnu. Þar var toll-
vörður. Leitaði hann í toifreið-
inni og fann ekkert.
Sagði hann þá að bifreið-
arstjóranum væri bannað að
fara út uni hliðið. Sýndi hann
plagg þar að lútandi, stimpl-
að af Iögreglustjóra „f uigvall-
arins“, — Jóni Finnssyni.
Sagði tollvörðurinn að kæra
hefðí komið á bifreiðarstjór-
ann (frá því á föstudaginn)
fyrir slæma Iiegðun.
Bifreiðarstjórinn vissi ekki
hvaðan á sig stóð veðrið, sagð-
ist ekkert hafa af sér brotið og
ekki fengið tilkynningu um
neina kæi'u og þyrfti að hraða
ferð sinni.
Benti liann tollverðinum á
líðan drcngsins og að þjóð-
vegurinn væri lokaður. Við-
urkenndi tollþjóniúnn að
drengnrinn væri ve'kur, en
lagði bann við að bíistjórinn
færi út um liliðið.
Bifreiðarstjóranum rann þá i
skap og kvaðst mundu fara út
í banni. Kallaði þá -tollvörður-
inn á „norparann" sem var með
honum og sagði honum að loka
hliðinu. Sneri bifreiðarstjórinn
bifreið sirini við og hugðist
bakka bifreiðinni á hliðið. Verð-
irnir röðuðu sér þá á hliðið og
sneri bifreiðarstjórinn þá frá.
Báðir kærðu
Þetta kærðu svo bæði bif-
reiðarstjórinn og tollþjónninn
fyrir lögreglustjóra. Niðurstöður
þessa máls eru ófengnar enn.
Ákærandi bifreiðarstjórans —
Egill Þorsteinsson — er hinn
æfasti.og heldur fast við ákæru
sina. Bifreiðarstjórinn saklaus
hefur enn ekki fengið leiðrétt-
ingu mála sinna. Bauð hann þó
í upphafi að þetta mætti niður
falla.
Lögi-eglustjórinn vill ekki
yf'rheyra vitnin að orðasennu
toTþjónsins og farþegans, og
segist ekki geta sætzt á málið
því þá „stræki“ toTþjónarnir.
Hafnamenn una hlutskipti
sínu illa
Hafnamenn eru sárir hlut-
skipti sínu; sitja þéir í einskon-
ar herkví, þar sem þjóðvegurinn
er oft tepptur og illur yfirferð-
ar. Verða þeir að þola allskyns
yfirgang og út yfir tekur þegar
íslenzkir aðilar (að nafninu til)
gera þeim einnig yfirtroðslur,
og það sjálfir verðir laganna!
LögTeglusljórinn fær kæru
og áður en liann liefur rann-
sakað hana fer liann að rcfsa
þeim sem ákærður er, án
þess þó að láta liann vita, og
afsakar sig með þvi að ann-
ars ,rstræki“ tollverðirnir.
I. og II. bekkur gagnfræða-
skóla (nemendur f. 1939 og 1940).
Skólahverfi gagnfræðaskólanna
verða óbreytt að öðru leyti en
því, iað sá hluti Njálsgötu, sem
áður heyrði til Gagnfiæðaskóla
Austurbæjar, fellur nú undir
Gagnfræðaskólann v'ð Lindar-
götu. Á það þó aðeins við um
r.emendur 1. bekkjar.
Þeir nemendur, sem voru í
fyrstu bekkjum gagnfræðaskól-
anna s.l. vetur, sæki sömu skóla
á vetri komanda, nema þeir
hafi fiutzt milli hyerfa.
Gagnfræðadeild Lauggvnes-
skóla sækja allir nemendur bú-
settir á svæðinu norðan Suður-
landsbrautar frá Fúlalæk í
Tungutúni, millj Lækjarhvamms
og Kirkjusands), að Elliðaám.
Ennfremur þeir, sem heima eiga
austan EUiðaáa.
Gagnfræðaskóiinn Lindar-
götu. Hann sækja þeir nemend-
ur úr hverfi Austurbæjarbarna-
skó'ans, sem búsettir eru við
Njálsgötu, Háteigsveg og norðan
þessara gatna. Ennfremur nem-
endúr úr Höfðaborg, Samtúni
Miðtúni og Hátúni.
Gagnfræðaskof ia Austurbæjar
sækj.a nemendui' úr hverfi Aust-
urbæjarbarriaákólans, sem bú-
'settir eru við Bergþórugötu,
Flókagötu og sunnan þeirra.
. Ennfremur nemendur úr barna-
skólahverfi Laugarnesskóla, sem
heima eiga sunnan Suðurlands-
brautar að Elliðaám.
Gagnfræðadeild Miðbæjar-
barnaskólans sækja nemendur
búsettir í hlutaðeigandi foarna-
skólahverfi austan Fríkirkjuveg-
ar og Lækiargötu, og sunnan
Bankastrætiis, Laugavegar (að
Vegamótastíg) og Grettisgötu.
Gagnfræðaskóli Vesturbæjar.
Hann sækia allir aðrir nemendur
búsettir í barnaskólahverfi Mið-
bæjarskólans en þeir, sem taldir
eru að framan, og ennfremur
nemendur úr Melaskólahverfi,
sem heima eiga á svæðinu norð-
an Hringbrautar og austan
Bræðraborgarstígs.
Gagnfræðaskólinn við Hring-
braut. Hann sækja allir aðrir
nemendur úr Melaskólahverfi en
heir sem að framan eru taldir,
Athugasemd.
Þeir nemendur, sem flutzt hafa
? bæinn eða milli hverfa í bæn-
um án þess að hafa tilkynnt
það hingað í skrifstofuna, mega
búast við að þurfa að sækja
skóla annars hveríis en þess,
sem þeir eru búsettir í. Á þetta
einkum við um I. bekkjar nem-
endur í skólahverfum Laugar-
uess og Gagnfræðaskóla Aust-
irbæjar vegna þrengsla í hlutað-
eig.andi skólum.
Frá skrifstofu fræðslufulltrúa.