Þjóðviljinn - 23.10.1953, Qupperneq 1
Fulltrúaráðsfundur í Sósíalista-
félagi Reykjavíkur verður hald-
inn í kvöld klukkan 8 að
Þórsgötu 1. — Áriðacidi mál
á dagskrá. — Stjómir deild-
anna eru beðnar um að fjöl-
menna. — Stjórnin.
Föstudagur 23. október 1953 — 18. árgangur — 238. tölublað
Hæstiréttur dæmir Bandarikjamann í
6 mán. fangeisi fyrir skírlífisbrot
RéSsf á 60 áro gamla islenzka konu á göfu
! Keflavik hinn 30. okf. í fyrra
Hæstiréttur hefur dæmt í sakamáli 33 ára gamals
Bandiaríkjamanns úr hemámsliðinu hér, koi-pórals Jam.es
Woodrow Tacket, sem réöst á sextuga íslenzka konu á
götu í Kéflavík seint aö kvöldi 30. okt. í fyrra. Korpóral-
inn var dæmdur í. 6 mánaö'a fangelsi fyrir brot á 209. og
217. gr. almennra hegningarlaga og 4. gr. lögreglusajn-
þykktar fyrir Gullbrihgusýslu.
í héraðsdómi eru málsatvik
rakin með framburðu-m vitna og
ákærða.
Framburður hemiaiuisins
Hermaðurinn bar það að hann
hefði mætt konunni á gölu í
Keflavík, langað til Þess að eiga
vingott við hana og ávarpað
hana með „halló“ eða einhverju
slíku. Síðan kveðst hann hafa
gripið í hægri hönd hennar, en
hún kippti hennj að sér. Fylgd-
ist hann síðan með konunni 2—
3 skref, en þá haíi hann rekið
fótinn í eitthvað og dottið í göt-
una með þeim afleiðingum, að
konan datt um hann og æpti
um leið. Hann kvaðst síðan hafa
hjálpað henni á fætur og beðið
afsökunar! Hann neitaði því ein-
dregið að hafa haft nokkuð illt
í hyggju gagnvart konunni.
FramburJvr konunnar
Konan skýrð; svo frá að er
hún var stödd. á Vallargötu í
Keflavík milli húsanna 11 og
13 við Aðalgötu, hafi hún mætt
amerískum hermanni, sem þreif
í handlegg hennar. Hún hafi slit-
ið sig lausa, en þá hafi hermað-
urinn tekið með hægri handlegg
utan um háls sér allföstu taki,
en með vinstri hendi fyrir munn
sér, en hennj tókst að ná hendi
hans frá munninum og æpa. Gekk
þetta svo til þrisvar sinnum, en
þá slengdi hermaðurinn henni í
götuna á hálstakinu. Kveðst hún
hafa fallið á hliðina, saman-
hnipruð, en maðurinn lagðist á
hnén og var að leggjast ofan á
hana, er Islending bar þar að.
Stóð þá ákærður samstundis á.
fætur. Ekki kvað konan her-
manninn hafa veríð tfarinn að
eiga við föt sin, en sér hafi virzt
allir tilburðir hans benda til
þess, að hann hafi ætlað að
nauðga sér.
Vitnaskýrslur
íslendingur sá, sem áður var
getið, bar það fyrir réttinum,
að hann hafi heyrt hljóðað
nokkrum sinnum og haldið í
fyrstu að það væru krakkar.
Hann ,gætti nú betur að þessu og
er hann átti 10 metra ófarna að
Tító hótar að slita sam-
vínnu við Vesturveldln
Tító, forseti Júgóslavíu, sagöi í gær aö ef stjómir
Bandaríkjanna og Bretlands gerðu alvöm úr þeirri ætlun
sinni áö aflienda ítölum borgina Trieste, væri úti um
samstarf Júgóslavíu og Vestui’veldanna.
f viðtali við fréttaritara
frönsku fréttastofunna.r Agence
France Presse sagði Tító, að
afhending Trieste til ítalíu
my.ndi vekja slíka reiði almenn-
icigs í Júgóslavíu að útilckuð
yrði áframhaldandi samvinna
víð Vesturveldin.
Yrði að endurskoða
stefnu sína
Héidu stjórnir Bretlands og
Bandarílcjanna fast við þá á-
Ögilding stjórnarskrárinnar í
nýiendunni Brezku Guiana í
Suður-Ameriku var til umræðu
í brezka þinginu í gær. Lyttle-
ton nýlendumálaráðherra varði
gerðir stjórnarinnar. Atkvæði
höfðu ekki verið greidd þegar
síðast fréttist.
kvörðun að veita Itölum full-
an stuðning í
deiiunni ura
Trieste kvaðst
Tító vera til
neyddur að
taka alla ut-
anrlkisstefnu
sína til endur-
skoðunar.
Hingað til
hefði hún
byggzt á
trausti á' óeig-
ingjarnri vin-
áttu Vesturveldanna. ítrekaði
Tító þá yfirlýslngu sína að ef
ítalskt lið héldi inn á hernáms-
svæði Vesturveldanna. í Trieste
myndi her Júgóslavíu verða
skipað að gera slíkt hið sama.
Það yrði aldrei þolað að ítalir
legðu Trieste imdír sig.
staðnum sá hann að þetta voru
karlmaður og kvenmaður, og í
sama mund sá hann að maðurinn
lagði konuna í götuna. Gi'eindi
vitnið að maðurinn hélt annarri
hendi aftur fyrir bak á konunni,
en hinn hendi um háls hennar
að framanverðu, eða munn. Lá
maðurinn hálfboginn yfir kon-
unni en stóð upp er vitnið kom
að þeim.
Annar Islendingur bar vitni i
málinu. Kvaðst hann hafa heyrt
hljóð inn um opinn ,glugga
herbergi. sínu kt.i um hálf tólf
umrætt kvöld, en síðan annað
óp og stunur. Fleirj vitní komu
fyrir dóm í máli þessu en ekki
Framhald á 3. síðu.
Bretar hengja 25 Afríku-
iiiénn, snaran bíður 84
Yfirvöldin í Nairobi, höfuðborg brezku nýlendunnar
Kenya í Austur-Afríku, létu í gær hengja þrettán
Afríkumenn sem sakaðir voru um að hafa ráðið bana
einum landa sínum, sem nýlendustjómin liafði at'pað
höfðingja. 1 síðustu viku voru 12 Afríkumenn hengdir
fyrir víg konu hans.
Alls hafa 109 Afrikumenn verið dæmdir til dauða fyrir
þátttöku í bardaga í þorpinu Lari- í fyrra þar sem hjón
þessi féllu. Ætlar nýlendustjórnin að láta hengja hina
84 smátt og smátt.
--- -- ...... — ----------------
Sovétlistamenn 1 rnir farnir
Nóbelsverðíaim
í læknisf ræði
. Sænskir læknar véittu í gær i
t\eim próftssoium, öðrnm m-.gra iista- og menntamanna sem liér dvaldist A
brezkum og hinum bandarisk-;
um, læknisfræðiverðlaun NÓ-‘ VegUm MÍR for hd5an «uKlei&s i garmotgun ale.ðis hemi, -
bels í ár.
fyrir rannsóknir á frumum(
mannslíkamans. j Hann vann 23 skákir, tapaði 1 og gerði 5 jafntefli.
sti'æoiveroiaun ín o- ■ - “
Fá, þeir verðlaunin‘ Mynflltt hér að ofan er af fjölskák rússueska tafimeistarans,
isóknir á frumum Alatorsjev við bílstjóra af bifreiðastöðinni Hreytli í fyrradag. —-
Verkfall 6000 benzínflutnlnga>
manna er að lasna London
í gær var svo ástatt í London, fjölmsnnustu borg'
hnattarins, aö viö borö lá að tilvonandi borgarar kæmust
ekki í heiminn og fyrrverandi borgurtlm yröi ekki sóma-
samlega komiö út úr veröldinni vegna benzínskorts.
Uppreisn gegn Deakin
Tító
Verkfall flutningaverkamanna
hjá oliufélögunum hefur orðið
t
þess valdandi að í gær voru
þurrausnir allir benzíngeymar
innan við 50 kílómetra frá mið-
biki London.
Ljósmæður og læknar kváðust
ekki komast til kvenna í barns-
nauð né annarra sjúklinga nema
sérstakar ráðstafanir væru gerð-
ar og félag útfararstjóra i Lon-
don lýsti yfir að frá deginum á
morgun yrði ekki hægt að koma
líkum látinna manna tii greftr-
unar. Innanríkisráðuneytið hef-
ur skipað lögreglunni að láta
af birgðum sínum á bíla lækna
og yfirsetukvenna.
Slr Wa’ter Moncton verkalýðs-
málaráðherra sagði á þingi í
gær að fíkisstjórnin væri að at-
huga hvað gera skyldi lil að
tryggj.a matvælaflutninga • um
London. Helmingi leigubíla i
borginni hafði verið lagt í gær
og. í dag verður strætisvagna-
íerSum fækkað um fjórðung.
Bílstjórar á tankbílum, 6000
talsins, lögðu niður vinnu þegar
stjóm flutningaverkamannasam-
bandsins fékkst ekki til að bera
fram við at-
vinnurek-
endur kröfur
þeirra um
hækkað
kaup. í gær
höfðu þeir að
engu beiðni
forseta sam-
bandsins,
Arthurs
Beakins, um
að taka upp vinnu. á ný, og sam-
þykktu einróma að halda verk-
falllnu áfram. Deakin lýsti Þá
yfir að sambandsstjórnin myndi
ekki hreyfa hönd né fót til að
bera fram kröfur bílstjóranna
fyrr -en þeir hefðu hætt verk-
fallinu.
Það hefur hvað eftir annað
komið fyrir undanfarin ár að
siarfshópar innan flutninga-
verkamannasambandsins, sem er
Deakin
stærsta verkalýðssambands Bret-
land og er stjómað með einræð-
ísaðferðum, hafa háð verkföh
gegn sambandsstjórninni.
Adenauer segir
Churchill fyrir
verbm
Adenauer, forsætisráðherra.
Vestur-Þýzkalands, sagði
fréttaritara brezku fréttastof-
unnar United Press í gær að>
það væri misráðið af sir Win-
ston Churchill, forsætisráðherra-
Bretlands, að fara til Moskva á
fund Maltnkoffs forsætisráð-
herra. Vesturveld’n mættu með-
engu móti láta líta svo út að'
þau væru að ganga eftlr Rúss-
um. Adenauer kvaðst '-ona að
Vesturveldin gerðu sovét-
stjórninni engin flelri boð. cf"
hún hafnaði síðust.u tillögu.
þeirra um utanrík'sráðheira-
fiind í Sviss um feýzkaland og
Austurríki.