Þjóðviljinn - 23.10.1953, Page 12
ive
MskiS áhuga- og hagsmunamáí fiskimanna á
Snœfellsnesi aS framkvœmdum verði fiýtt
Vinnu við lamlshöi'nina í Rifi er nú það langfc komið að vonr
ir standa til að fyrstu bátarnir geti liat't henr.ar einhver not
í vctur. Enn mun þó alllangt þar til dramnur Snæfellinga og
annarra fiskimanna um fullkomna landshöfn í Rifi hcfur rætzt.
Ákvörðunin ,um landshöfn i
Riíi var ein af verkum nýsköp-
■unarsljórnarinnar, þenna stutta
en bjarta tíma meðan fslend-
ingar þorðu enn að hugsa sjálf-
stætt um eigin framkvæmdir en
stjórnarvöldin og flokkar þeirra
hugsuðu ekki fyrst og fremst í
betlifé, mútum og hervirkjagerð
fyrir erlent stórveldi. Það var
Sósíalistaílokkurinn og atvinnu-
málaráðherra hans sem fyrst og
fremst beitti sér fyrir landshöfn
á Rifi.
Þetta er þriðja
árið
Svo virtist ,um skeið sem aft-
urhaldsstjórnin er tók við af
nýsköpunarstjórninni myndi
leggja málið í salt, en loks var
þó 'hafin vinna þarna og er
þetta þriðja sumarið sem unnið
er á Rifi, og þó fyrst virtist
'ganga grátlega seint má nú
ioks eygj-a framundan not hafn-
arinnar.
540 metra langur
garður
Til forna var Rifshöfn ein af
kunnustú höfnum landsins. Hún'
var sem kunnugt er í árós og
hefur áin smátt og smátt fyllt
ósinn með -sandi. Öðrum mégin
ufcan við ósinn er hryggur út- í
svonefndan Rifshaus og hefur
Verið gerður garður þarna út,
sem mun vera um 540 m lang-
ur. Ofan á þenna garð hefur
•svo verið steypt plata. Utan við
Rifshaus er grynning alllangt út
og er ætlunin að lengja garðinn
út eftir grynningunni.
Bryggja á að
koma í vetur
í haust hefur verið unnið að
því að pumpa upp sandi innan
varnargarðsins, hefur verið
Verkefni fyrir
Hagstofuna?
Margir halda því fram að
ókurteisi og gikksháttur opin-
berra starfsmanna teljist ekki
fil tíðinda. Vart mun það rétt,
tn stirðbusaháttur lalgengur.
Maður sem fór í Manntals-
skrifstofuna með manntals-
skýrslu í fyrradag hefur þá
sögu að segj.a að um leið og
■ hann hafi afhent skýrsluna hafi
eldri maður í skrifstofunni rokið
upp og skipað sér eins og rakka
að útfylla skýrsluna. Sá er með
skýrsluna kom hafði yanrækt
:að útfylla dálkinn „hjúskapar-
stétt“ og kvaðst hai'a tjáð þeim
igamla að hann hefði ekki fylli-
lega skilið þenna dálk og þyrfti
að fá skýringar á hvernig bæri
að útfyllia hann. Mig varðar
ekkert um það, svaraði sá
gamli, þú verður að útfylla
þetta. Þegar hér var komið
varð hinn virðulegi skrifstofu-
maður ,að svara í síma. Tók þá
ungur maður í skrifstofunni
skýrsluna og útfyllti hinn auða
Framhald á 3. síðu.
pantað efni í trébryggju, og ætb,
unin er • að koma henni. upp í
vetur sv.o fyrstu bátarnir geti
athafnað sig þar á komandi
vetrarvertíð. Síðar mun árósmn
grafinn upp og myndast þama
þá ágæt höfn. Mun farvegi ár-
innar þá jafnframt verða breytt
og hún látin faila á öðrum stað
til sjávar.
Gerbreytir að-
stöðu fiskimanna
á Snaefellsnesi
Hafnarleysið hefur sem kunn,
ugt er valdið fiskimönnum á
Snæfellsnesi hinum mestu örð-
ugleikum, og á bað bæði við um
Sand og G’afsvík. Örugg og
góð höfn í Rifi gerbrey.tir því
aðstöðu þeirra og verður því að
vænta þess að áherzla verði
lögð á' að hraða framkvæmdúm
þarna.
Olafsvíkingar
þurfa að fá veg
Unnið hefur verið að því að
ryðja veg fyrir utan ’Jökul til
Hellissands og ætti allgott vega-
samband að vera komið
snemma næsta sumar. En það er
ekki nóg. Milli Rifs og Ölafs-
víkur er hið margumtalaða Ól-
afsvíkurenrii. Það er ekki löng
vegalgngd, en ólafsvikingar
þurfa að fá bilveg undir Enn-
inu, svo þeir geti- notað Rifs-
höfnina. Sem vænta má er hinn
mesti áhugi vestr.a fyrir öllum
þessum máium.
mÓÐVILHNN
Föstudagur 23. október 1953 —- 18. árgangur — 238. tölublað
Samnlipr við Vief Minh
eina iausnin í
Síðasta sókn Frakka heíur mistekizt
Áhrifamesti foringi, franskra sósíaldemókrata hefur
hvatt til þess að hafnir séu friðarsamningar vió stjórn,
sjálfstæðishreyfingarinnar Viet Minh í Indó Kína.
Barnavernctardagurinn er ó
morgun. fyrsta vetrardog
Barnaverndaríélag Reykjavíkur hefur
styrkt fjóra kennara til framhaldsnáms
erlendis
Hinn árlegi barnaverndanlagur er á morgnn, fyrsta vetrar-
dag. Efna þá öll barnaverndarfélög á landinu, 10 að tölu, til
almennrar fjársöfnunar til ágóða fyrir starfsemi sína.
Fjársöfnun þessi er fólgin
í merkjasölu og sölu barnales-
bóiiarinnar Sólhvörf, sem
Barnaverndarfélag Reykjavik-
ur, elzta og stærsta barna-
verndarfélag á land'au, gefur
út. Er þetta 3. hefti bókarinn-
ar, sjálfstætt rit, sem flytur
sögur og leikþætti eftir Ragn-
he:ði Jónsdóttur.
Foreldrar eru hvattir til að
leyfa börnum sínum að selja
merki og bækur á morgun en
íihending þeirra fer fram í
anddyri Listamanuaskálans
við Kirkjustræti og í Hoits-
í'pótei.n.
Markmið barnaverndar-
i'élaganna,
Stjórn Barnavemdarfélags
Reykjavíkur ræddi við frétta-
menn í gær og skýrði þar
Matthías Jónasson, fcrm. fél.,
nokkuð frá starfsemi barna-
verndarfélaganna.
Barnaverndarfélög eru nú
10 starfandi hér á landi og
hafa stofnað með sfr lands-
samband. Aðalmarkiruð fé.lag-
anna er að reyna að vinna að
vernd og bættu uppeldi af-
brigðJegra barna. Er starf
hinna einstöku félaga innan
landssambandslns mjög mis-
munandi; t.d. hefur félagið á
Siglufirði unnið að þvf að bæta
úr brýnni þörf á leiíxvöllum
þar í bæ. Hefur félagið nú
komið upp þrem leikvöllum
fyrir börn á Siglufirð1, þar af
er einn fullkomirtn leikvöllur
með leiktækjum og gæzlu.
*r
Fræðslustarf og náms-
, styrkir.
Starfsemi Barnaverndarfé-
lags Reykjavílkur hefur eink-
um ver’ð fólgin í upplýsingar-
og fræðslustarfsemi um upp-
eldj afbrigðilegra bama. T.d.
hafa verið flutt á vegum fél.
erindi um þessi efni og einn’g
hefur það notið samvinnu
Guy Mollet, ■ ,aðalr.itari sósíal-
demókrataflokksins, sagði í við-
tali við Parísarblað í gær að
Indó K-ína væri það vandamál,
sem öll önn-
ur vandkyæði
Frakka
spryttu af að
meira eða
minna leyti.
Það væri)
fjarstæða að
Frakkar
gætu sigrað
Viet Minh á
vígvöllun- :
um- í Indó Kína. Allir Frakkar
vissu þetta og fáránlegt væri að
halda öðru fram í eyru Banda-
ríkjamanna til þess að kría út
úr þeim dollara. Einkum lagði
Mollet áherzlu á að meðan
Frökkum blæddi í Indó Kína
gætu þeír eng^ von gert sér um
Guy Mollet
að standast, Vestur-Þýzkalandi
snúning í keppninni um áhrif í
Vestur-Evrópu. |
Fréttaritari brezku fréttastof-
unnar Reuters í borginni Hanoi
í Indó Kína' skýrði jfrá því
í gær að síðasta sókn Frakka
á. Rauðáróshólmunum hefði mis-
tekizt. Ætlunin hefði verið að
komast að baki 10.000 manna
liði Viet Minh og eyða þvi en
það hefði nær allt komizt úr her-
kvínni og til fjalla.
í gær kærði stiórn fsraels það
fyrir eftirlitsnefnd SÞ með
vopnahléi Israels og Arabaríkj-
anna að jórdanskt herlið væri
komið til þess hluta Jerúsalem.
sem er á valdi Jórdan, miklu
fjölmennam en vopnahléssamn-
ingurinn heimilar.
sameinuðu þjóðanna um þetta
atriði með sýningu tveggja
kennslukvikmynda um uppeld-
ismál.
Nú hefur félagið í hyggju
að hefja útgáfu fræðslurita
um uppeldi afbrigðilegra
barna og er fyrsta bókin í
þeim flokki væntanleg út á
þessu ári. Er það bók eftir
Pearl S. Butík, The Child
that never grew old, en þýð-
ingu hafa annazt þeir Símon
Jóh. Ágústson, Jón Auðuns og
Matthías Jónasson.
Loks er þess að geta að
fjórir liennarar hafa fengið
styTki hjá Barnaverndarfél.
Reykjavíkur til framhalds-
náms erlendis: Björn Gests-
son til náms í Zúr'ch í kennslu
fávita bama, Magnús Magn-
ússon til að læra nútíma-
kennslu tomæmra bama,
Svandís Skúladóttir til að
ikynna sér leikvallastarf og
Bjöm Guðmundsson til að
kynna sér hvernig 'lagfæra má
málgalla bama, og kennsiu
lesblindra barna. Hafa styrk-
ir þess'r samtals numið 15
þús. króna.
Skemmubruni
oð Hofi
1 fyrramorgun, um kl. 10
brar n skemrna að Hofi í Vopna-
firði.
Haföi hún verið notuð tii að
reykja kjöt og brann þvi hangi-
kjötsforði heimilis:ns ásamt
sleðum qg tveim olíutunnum er
þarna voru gejTndar.
Kve'ktur hafði verið eltíúr
um morguninn til kjötreykiug-
ar. Mun önuur tunuan liafa lek-
io og eldur Jomizt í oiíubleyliu
á gólfinu og síðan í olíutunn-
urnar — og varð þá mikil
sprenging. Eldurinft náði ekk'
til annarra húsa.
Ibúðarbísið á Stóru-Borg brunnið
Ibúðarhúsið að Stóra-Borg í
Grímsnesi brann í fyrradag.
Enginn var heima á bænum
þegar eddsins varð vart. Höfðu
bóndinn og kona hans farið að
GuðrúnÁSímonar
syngur í útvarp
í Milano
Guðrún Á. Símonar, hin kunna
sönkona, söng 30. sept. s. 1. í
útvarp í Mílanó. Var það RAI
Radio Italiana er flutti söng
Iiennar, en það er langdræg
stöí sem heyr'st vsða.
Söngkonan v,ar jafnframt beð-
in að segja ítölskum útvarps-
hlustendum nokkuð frá ættlandi
sínu . og sagði hpn m. a. frá
hverunum á Islandi, þ. á. m.
Geysi, gróðurhúsunum, björtum
nóttum, miðnætursól o. fl. Er
það æt'ð hin bezta landkynning
þegar kunnir listamenn kynna
svo land sitt meðal erlendra
þjóða. — Guðrún Á. Símonar
hefur dvalið á Ítálíu undanfar-
ið og mun dveljast, þar áfram
eitthvað enn um sinn.
Minni-Borg í verzlunarerindum,
en fólk þaðan tók éftir eldituum.
Var slökkviliðið á Selfossi kall-
að og tókst að varna því að
eldurinn næði til annarra bygg-
inga, en. íbúðarhúsið brann.
Húsið var vátryggt hjá Bruna-
bótafélaginu. Bóndi á Stóru-
Borg er Hjörleifur Diðriksson.
Utanríkisráðherranji
heldur að Bandaríkja-
menn leiqi húsnæði á
fimm stöSum í
Reykjavik
Kristinn Guðmundsson utan-
ríkisráðherra. taldi sig hafa
komizt að þeirri niðurstöðu í
ræðu á þingi í gær, að Banda-
ríkjahennenn kynnu að leigja.
íbúðarhúsnæði á FIMM stöðum
í Reykjavík ólöglega!
Vöktu þessar upplýsingar
ráðherrans mikla undrun, en
efasemdir voru látnar í Ijós að
mikið væri að marka niðurstöð-
una, enda kvaðst ráðherraim
aðallega byggja upplýsingar
sínar á „rannsókn" þeirri sem
bæjarstjórn Reykjavíkur lét tvo
menn framkvæma nú í septem-
ber! Enginn benti samt ráð-
herranum á að ráðfæra sig við
Þórð Bjömsson eða Tímann um
áreiðanleik þeirrar „rannsókn-
ar“.
Ráðherrann sagði hinsvegar
að löglegt væri að starfsmenn
bandariska sendiráðsins, 26 að
tölu, leigðu íbúðir, einnig að
íslenzkar konur, giftar banda-
rískum, gér'Gu það. Ennfrémur
bandarískir starfsmenn og leið-
beinendur fyrirtækja, svo scm
Áburðarverksmiðjunnar.