Þjóðviljinn - 06.12.1953, Qupperneq 6

Þjóðviljinn - 06.12.1953, Qupperneq 6
6) — ÞJÓÐVILJINN — Sunnudagur 6. desember 1953 þlÓÐVBUINN Otgefandi: Sameiningarflokkur alþýCu — Sósíalistaflokkurinn. Ritstjórar: Magnús Kjartansson (áb.), Sigurður Guðmundsson. Fréttastjóri: Jón Bjarnason. Blaðamenn: Asmundur Sigurjónsson, Bjarni Benediktsson, Guð- mundur Vigfússon, Magnús Torfi Ólafsson. Auglýsingastjóri: Jónsteinn Haraldsson. Rltstjórn, afgreiðsla, auglýsingar, prentsmiðja: Skólavörðustlg. 10. — Sími 7500 (3 línur). Áskriftarverð kr. 20 á mánuðl í Reykjavík og nágrenni; kr. 17 annars staðar á landinu. — Lausasöluverð 1 kr. eintakið. Prentsmiðja Þjóðviljans h.f. Kreppurnar Þegar sósíalistar sögðu fyrir heimskreppuna miklu og vörúðu við því í blöðum sínum sumarið 1930 að hún væri að skella á ísland, áttu blöð og stjórnmálamenn Sjálf- stæðisflokksins, Framsóknar og Alþýðuflokksins varla orð að lýsa fyrirlitningu sinni á þeim spádómi, meira aö segja leiðtogar Alþýðuflokksins, sem átt hefði að vita eitt- hvað um kreppur í auðvaldsskipulagi, lýsti afstöðu sinni með því spakmæli, að kreppan væri hvergi nema í kolli kommúnista! Hitt var síður undrunarefni þótt einn af leiðtogum Framsóknarflokksins léti sér um munn fara í alvöru hin fleygu orð, aö kreppan væri eins Pg vindurinn, enginn vissi hvaöan hún kæmi eöa hvert hún færi. Þeim leiðtoga hafði sézt yfir, að nokkrar framfarir höfðu orðið í veðurfræði frá ritunardögum bíblíunnar, og líka hitt, aö til voru þjóðfélagsvísindi, sem gefið gátu glöggar veður- spár um hinar miklu lægðir í efnahagslífi auðvaldsþjóð- félaga, kreppunnar, — enda taldist hann sjálfkjörinn til forystu í Alþýðuflokknum áður en langur tími leið. Svo er nú komið, að fáir stjórnmálamenn og hagfræö- ingar auðvaldslanda neita því að kreppurnar eins og þær eru skilgreindar af hagfræðivísindum sósíalismans, séu veruleiki í lífi hvers auðvaldsþjóðfélags. Þess gætir meira að segja í vaxandi mæli, að ríkisstjórnir auðvalds- landa hagnýti sér þá vitneskju sem sósíalisminn veitir um fyrirbæri auðvaldsþjóðfélagsins. Þannig hefur jafnt í- haldsstjórn Churchills og sósíaldemókratastjórnin sænska opinberlega lýst yfir, að þær hafi gert og séu að gera, ráðstafanir til varnar efnahagslífi landa sinna gegn þeirri kreppu, sem nú er aö hefjast í Bandaríkjunum og hætta er á að breiðist um allan auðvaldsheiminn. Einar Olgeirsson leggur áherzlu á þessar staðreyndir i greinargerð þingsályktunartillögu sinnar um skipun nefndar til athugunar á ráðstöfunum til varnar utanaö- komandi efnahagskreppu, sjö manna nefndar meö einum fulltrúa frá hverjum þingflokki og tveimur er ríkisstjórnin tilnefni. Leggur Einar til að nefnd þessi hafi lokið störfum og skilaö tillögum til ríkisstjórnarinnar fyrir 1. marz n.k. Verkefni sem nefndinni eru falin, verði þessi: Að rannsaka nú pegar pá fyrirboöa, sem vart er orðið í efnahagslífi Bandaríkja Norönr-Ameríku og fleiri auð- valdslanda um að ný stórfelld kreppa sé að hefjast par og breiðast út til annarra landa er svipað hagkerfi hafa. Ennfremur að rannsaka hvaða ráðstafanir ríkisstjórnir annarra landa, svo sem Englands, Svípjóðar og fleiri, hafa gert til varnar kreppunni. Að gera tillögur til ríkisstjórnar og Alpingis um, hvaöa ráðstafanir skuli geröar í efnahagsmálum íslands, til pess að koma í veg fyrir skaðlegar afleiðingar kreppunnar fyrir efnahagslíf pjóðarinnar. Nýtt atriði, sem gerir fært að bregðast öðruvísi við þess- ari kreppu en hinum fyrri, er tilvist hins mikla heims sósíalismans, sem nær nú auk Sovétríkjanna yfir Kína og önnur alþýðuríki í Evrópu og Asíu. Þjóðir sem telja um 800 milljonir manna búa nú þegar við kreppulausan, samvirkan áætlunarbúskap, hafa fært sér í nyt þjóöfélags- vísindi sósíalismans og útilokað með því bölvun kreppunn- ar. Einmitt sú staðreynd, gefur ríkjum með auðvalds- skipulagi fært á að bjai'ga sér undan verstu afleiðingum kreppunnar, með því að gera efnahagslíf sitt sem óháð- ast því stórveldi sem kreppurhar hljóta að dynja harð- ast á, Bandaríkjunum, og tengja traust viðskiptasam- þönd við lönd hins kreppulausa, samvirka áætlunarbú- skapar. Þess er að vænta að íslenzkir stjórnmálamenn snúist við ógnun nýrrar kreppu af meira raunsæi en haustið 1930. Afgreiðsla þessarar þingsályktunartillögu Einars er prófsteinn á hvort þeir hafa ekki eitthvaö lært. mi>»« « PENINGANA Gerið jóíakaupin í KRON Vér erum vel byrgir af öllum vörum, sem fólkið þarfnast fyrir jólin I matvörubúðunum: Allt í jólabaksturinn — Jólasælgætið — Jólaölið — Jólagosdrykkir — Kerti — Spil Þurrkaðir ávextir — Niðursoðnir ávext- ■ ir — Nýir ávextir: Appelsínur — Vínber Ný sending jólaávaxta væntanleg 10. til 12. desemher Rjötbúðunum: *j“pur- ~ DiIkakiöt — Sait- J kjot — Þurrkao grænmeti, margar teg- undir — Hvítkál, nýtt — Úrval af áleggi — Kaupið jólahangikjötið tímanlega. Bokabúðin Allar nýjar íslenzkar bækur — Mikið . úrval erlendra bóka — Úrval jólakorta Bankastræti 2: — Ritföng — Spii — jóiapappír — Jólalöberar Búsáhaldabúðin Rafmagnsbúáhöld — Jólatrésskraut Bankastræti 2: °ng Vefnaðarvorudeildin Bæjarins mesta úrval af metravöru og c. , nærfatnaði fyrir konur, karla og börn — Skolavorðustlg 12: Ilmvötn og snyrtivörur jrSirt* Kvenskor, karlmannaskor, barnaskor — InnisKor og gummiskoíatnaour fynr börn og fullorðna Kaupið jólagjafiraar hjá okkur Lítið í gluggana uin helgina

x

Þjóðviljinn

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Þjóðviljinn
https://timarit.is/publication/257

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.