Þjóðviljinn - 14.03.1954, Síða 6

Þjóðviljinn - 14.03.1954, Síða 6
6) — ÞJÓÐVILJINN — Sunnudagnr 14. marz 1954 um\ ';Útgefandí: Sameintngarflokkur alþvSu r— SQSÍalistaf’okíctirInn. Ritsíjórar: Magnús Kjartansson (áb.), Signrður Guðmuridssoru •Fréttastjóri: Jón Bjarnason. Blaðamenn: Ásmundur Sigurjónsson, Bjarni Benediktsson, Guð- mundur Vigfússon, Magnús Torfi Ólafsson. Auglýsingastjóri: Jónsteinn Haraidsson. Ritstjórn, afgreiðsla, auglýsingar, prentsmiðja: Skólavörðustíg 19. — Simi 7500 (3 línur). Áskriftarverð kr. 20 á mánuði í Reykjavík og nágrenni; kr. 17 annars staðar á landinu. — Lausasöluvcrð 1 kr, eintakið. Prentsmiðja Þjóðviljans h.f. E þágu íhaldsins Enda þótt Stefán Pétursson h&fi látið af ritstjórn Al- þýðublaðsins og handfjalli nú önnur blöð í öðru húsi við Hverfisgötu, birtast við og við heilar síður í Alþýðublað- inu i hans anda og stíl. Þótt kynlegt megi virðast bera síður þessar yfirskriftina Æskan og landið; hið sefasjúka ofstæki þessará skrifa er það sérefni sem unga fólkinu er ætlað að lesa. Og tengslin við Stefán Pétursson virðast meiri en. sameiginlegur andi og ótti við Rússa. Fyrir nokkru birti æskulýðssíðan mikla lofgerð um þennan íyrrverandi ritstjóra Alþýðublaðsins ásamt hörðurr. árásum á núv.erandi ritstjóra þess og Gylfa Þ. Gíslason fyrir af- stöðu þeirra við nefndakosningar á Alþingi 1 vetur. Ritstjóri síðu þessarar er Eggert G. Þorsteinsspn múrari, sem kosinn var í Landsbankanefnd á Alþingi í vetur með atkvæðum íhalds og Framsóknar — en Hanníbal Valdi- marsson og Gylfi Þ. Gíslason sátu hjá. Þessi sami Eggert var nýlega kosinn formaður Múrarafélagsins á sama hátt — gegn því að hann afhenti ihaldinu meirihluta og völd i st’jórn félagsins, og taldi hann það góð viðskipti. Allt er þetta til skýringar á þeirri iðju mannsins að semja óaf- iátanlega greinar í æskulýðssíðu Alþýðublaðsins um nauð- syn þess að andstæðingar íhaldsins séu sundraðir, hversu fráleitt það sé að verkalýðsflokkarnir taki höndum saman gagn auðir.annavaldinu. Enn ein slík ritsmíð birtist i gær. Er þar í upphafi gert lítið úr þeim hug alþýðunnar að vinna saman gegn íhald- ;nu, vald þess h-afi að vísu „nokkuð aukizt“ en ástæðulaust sé að gera veður út af því og samvinna vei’kalýðsflokkanna „geti aldrei átt sér stað“. En annars er aðalefni greinar- jnnar gusa af nær aldarfjórðungs gömlum ívitnunum, rifn- ura úr samhengi og fölsuðum, sem ekki hafa nokkur tengsl við vandamál íslenzkrar alþý'ðu í dag. Eru slík skrif fyrir löngu orðinn hreinn vcrksnúðjuiðnaður sem enginn nenn- ir að sinna. En það er sarnt ástæða til að vekja athygli á þessari iðju Eggerts G. Þorsteinssonar múrara. Hún sýnir að innan Alþýðúflokksins og meðal þeirra scm þar eru á oddinum, eru öfl sem ekiert hafa lært og vilja allt til vinna að koma sér vel við íhaldið og ganga erinda þess. Þessi öfl numu leggja sig 1 framkróka til þess að spilla þeirri samvinnu sem þegar hefur tekizt og korra í veg fyrir að samstarf al- þýðunnar geti orðið sem víðtækast. Hitt er fengur að þess- ir menn eru nú að koma frami í dagsljósið; þeir sýna hverj- ar torfærur eru á veginum til heillar og víðtækrar sam- vinnu; og þeim mun síður mun þeim takast að koma í veg iyrir þá þróun sem ein er þess megnug ; að færa alþýð- tmni árangur í baráttu sinni fyrir' bættum kiörum og auknum þjóðfélagsvöldum. 200 nýir áskrifendur Enn á ný er hafin sókn fyrir anldnni útbreiðslu Þjóðviljans. Sósíalistafélag Reylcjavíkur hefur sett sér það mark að bæta 200 nýjum kaupendum við áskrifendatölu blaðsins fyrir 1. mai n.k. Ákv'örðun ftlagsins hefur hlotið góðar undirtektír fiokks- ceildanna í bænum og staifið að framkvæmd hennar hafið af hálfu flokksmanna. Aukin útbreiðsla Þjóðviljans og þar me.ð vaxandi áhrif hans meðal aimeimings er án efa eitt mikilvægasta verkefnið sem hver góður sósíalisti og verkalýðssinni getur innt af hendi tii framgangs stefnu sir.ni og hagamunum. Það hefur heldur aldrei brugðizt þegar reykvískir sósíalistar hafa verið kallaðir til starfa fyrir málgagn sitt að tekið hafi verið á af bjartsýni og skerpu. Ilvort sem um hefur verið að ræða fjársöínun t.il að tryggja útgáfu blaðsins, söfnun til stækkunar þess cða almenaa áskrifendasöfnun hafa flokksrnenn og aðrir stuðningsmonn skil- að sínum verkefnuin moð sæmd. Á þessum almenna skilningi á þýðingu Þjóðviljans sem vopns alþýðunnar í hagsmunabaiát.tunni og þjóðarinnar allrar í hinni nýju sjálfstæðisbaráttu heíur gengi og tilvera Þjóðviljans byggzt. Enn eru flokksmenn og veluimarar blaðsius kvaddir til’ Btarfa og með sameiginlegu átaki mun settu marki náð nú eins og jafnan áður. WM> iiMy lÉilril 1011 Þorskumin og þjóðin Engin störf sem ísl. menn fást við eru stjórnarvöldun- um jafn vanþólmanleg og þau að draga fisk úr sjó, og má segja að næst Rússum sé þorskurinn sú lífvera sem sízt <ná komast hér á land. Áram smnan hafa ofskipti ríkisstjómarinnar af þessari atvinnugrein verið þau að takrnsrka hana sera mest. í einn tima hefur verið bannað að salta þorsk. í annan tima hefur verið bannað að frysta þorsk. Síðan hafa togai-amir verið bundnir mánuðum saman. Þá hefur bátaflotinn verið njör\7aðir við landsteina. Og nú hefur þessi riðleitni bor- ið þann árangur, að horfur eru á að togararuir stöðvist seun. veg.na. manoeklu. Eru þegar farnar að birtast greinar um það í blöðum að togarar séu úreltir, vélbát- ar séu mim skynsamlegri og arðvænlegri aflatæki; og hinn framsýni Þjóðvarnar- flokkur hefur flutt tillögur um það á Alþingi að eftir- leiðis skuli útgerð einkum stundúð á trillum. Gott ef ekki verða brátt sett lög sem banna allar fiskveiðar nema með stöng. Þannig virðist þorskurinn í sjónum hafa öðlazt áhrifaríka banda- menn í landi sem gæta hags- muna hans í hrivetna og reyna að innræta þjóðinni fyllstu báttrisi í viðskiptum rið íbúa hafdjúpanna. □ Þó hefur það verið svo allt til þessa að ríkisstjóm- in hefur talið það tiltölulega meinlaust að veiða þorsk af togurunum, ef hann hefur verið fluttur rakleiðis til annarra landa, án þess að íslenzkt fólk handfjallaði harm í landi og breytti hon- um úr hráefrú í ful'unna vöru. Svo vísdómslega hef- ur atvinnulífinu verið fj'rir komið að útgerðarmenn hafa hagnazt bi'zt á því að korna fisldnum í v<-rö á þami hátt scm minu.st.ar gjaldeyristekjur færir, enda hafa togaramir þá orðið að sóa löngum tíma í sigl- ingar og eyða til þess elds- neyti. Einnig hafa sjómenn fengið hæstar tekjur á slík- um veiöum og nauðsynlega hvíld. Hafa ýmsir uudrazt þessa tilhögun og talið að fremur bæri að verðla.una útgerðarmenn og sjómenn fy.vir þær veiðar sem færa atvinnu í landi og mestan gjaldeyri, en það er skamm- sýnt sjónarmið. Það er miðað við fólkið í landinu en ekki þorskana í sjónum. □ Þessi undantekning frá reglmmi iekk þó skjótan endi, þegar Bretar ákváðu að sýna okkur í verki vest- ræna efnahagssamvirmu. öll styrjaldarárin höfðu íslend- ingar fært Bretum fisk í soðið, cn þf'zkir kafbátar biðu í hafdjúpimi og flug- vé’ar í lofti uppi og fengu marga bráð. Nú fannst Bretum lími til kominn að auglýsa það þjóðareinkenni sitt sem nefnist „fair play“ og fengu áhafnir þýzku kaf- bá.tanna til þess að heim- sækja íslandsmið á togur- um og fullkomna á friðar- tímum það sem mistókst á striðstímum: að stöðva ís- lcnzka. fiskiflutninga til Bretlands, þótt með öðrum aðferðum væri; enda hafa þeir þekkt ógeð islenzkra stjómarvald s á al’.ri sb'kri starfsemi. Þótti þetta mjög fagur vottur um vestrænan vinarhug, og Bandarikja- menn veittu Þjóðverjum sér- staka.n efnahagsstyrk til þess að þeir gætu aunað ].ia,s5u. verkefm í stað ís- lendinga cn hann var síðan auglýstur sem cinstök göf- ugmennska í blöðum her- námsflokka uua.Er n fór sem endranær að ýmsir töldu a.ð þessi viðbrögð Breía m\ndu snúast Islendinguin til góðs: það væri aðeins fengur að losna rið þá gjaldeyrissc- un að sei.ia. óýerkaðan fisk: nú þyrfli a.í efla fislr- iðnaðinn og gera hann sem fjölbrejlilegastan. En ríkis- stjórnin hélt áfram að hugsa um hagsmuni þorsk- anna í sjcnum; hún sá til þes? að togaraútgerð vai'ð æ ábátaminni og JkjÖr sjó- manúa rýrnuðu sife’.Idlega í samanburði við ]iað sem aðr- ar stéttir þjóðfélagsins bera úr bjúum. Og nú er svo komio að togararnir eru að stöðvast, ehda er fiskur sá scm þeir afla. aðeins greidd- ur með 85 aurum á kíló þótt fyrir bátafisk fáist kr. 1.22. n Fnda þótt þessi stjómar- stefna beri vott um fagra umhyggju fj'rir fiskuiium í sjónum, hafa blöð stjómar- flokkp.nra ekki enn orðað þá liugsjón. í staðinn virðast ]>au telja hag togaraflotans einhverja óriðráðanlcga ó- gæfu i ætt víð fárviðri eða eldgos. Sú skýrifig fær þó ekki staðizt. he’dur birtist hér yfirlögð stjómvizka. í hverju þjóðfélagi bera rnenn úr býtum í hlutfalli við-það hversu mikilvæg störf þeirra teljast. Hér eru burðarstoð- ir mannlegs samfélags tald- ar vera heildsalar, olíukaup- menn og aðrir slíkir, og þcim er géð fvrir hinum ríflegásta ábata. Einnig ým- J is önnur vinna cr metin ao verðleikum. Þannig þótti sjálfsagt að gora sæmilega við þá sem stuðla að vörn- um landsins í þágu vesturs- ins, altént að setja þá skör hærra en hina sem drógu fiskana úr sjónum. Einmitt með þessu kerfi umraynda stjórnarvöldin þjóðfélagið, beina fólki að því sem mik- ilvægast er talið og fella niður fánýt störf. Og fánýt- ast alls er það auðsjáanlega að draga þorsk úr sjó á tog- ara, þar er greitt lægst lcaup allra starfsgreina, mið- að við vinnutíma, erfiði og áhættu. Það er };ví stefha stjóman’aldanna að þau störf verði niöur felld í þágu annarra sem meira eru metin. □ Óskýrt er samt hvert það hagkerfi er sem bý’r að baki þessari stjórnrizku. Ýmsir fróðir menn hafa sannað að raunar sé það þorskurinn í sjónum sem beri samfélagið uppi, svo fremi har.n sé dreginn á land; á honum séu allar aðrar athafnir reistar. Sam- kvæmt því rirðist ríkis- stjórninni farnast eins og bónda þeim sem hélt kýr sínar svo illa að þær hættu að mjólka. En ef til rill er ætlunin að íslcnzka þjóðfé- lagið verði eing og þorp eitt norðanlands sem iim var sagt að þar lifðu íbúarnir hver á öðrum. Þó er það ekki öldungis rétt heldur. Þessi þróun stcfnir a3 þvi að gera Islfendinga æ háðari hernáminu og þeirri viruiu sem því fylgir, unz Iíf }ijóð- arinnar er bundið ófrelsinu, von hennar háð vaxandi nið- urlægiugu. Það hlýtur að vera þessi hagfræði sem býr að baki þeirri stjómvizku aS hrekja ísleuzka sjómen.n á land af togurum síuum. Þaiinig á hernámið að Itoma í stað fiskanna í sjónum, þeirra miða sem auðugust eru talin og þeirra atvinnu- tækja sem eitt s>nu voru stolt þjóðarinnar. En raun- ar ætti fáum að dýlj- ast hvar þorskanna. er að leita í þeim umskipt- um. Á •w •wr-

x

Þjóðviljinn

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Þjóðviljinn
https://timarit.is/publication/257

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.