Þjóðviljinn - 22.05.1954, Qupperneq 4

Þjóðviljinn - 22.05.1954, Qupperneq 4
4) — ÞJÓÐVTLJINN — Laugardagur 22. maí 1954 Umfelsverður hluti vörukaupa Reykjavíkurbæjar og stofnana hans gerður á smásöluverði! Vöruinnkaup Innkaupastofnunar bæ)ar- ins 1,7 millj. kr. lœgri 1953 en áriS áSur Við athugun þá sem Eggert Þorbjarnarson, endur- ckoðandi bæjarreikninganna heíur gert á störíum Innkaupastoínunar Reykjavíkurbæjar 1953 og vörukaup bæjarins og stofnana hans 1953 hefur komið í ljós að vörukaup Innkaupastofnunarinnai nema kr. 4.350.337.17 og er það kr. 1.695.431.38 lægri upphæð en 1952. Vörukaupin í heild nema hinsvegar langtum hœrri upphæð og er greinilegt að verulegur hluti þeirra er gerð- ur fyrir utan þá stofnun sem á að annast innkaupin og tryggja þannig hænum og stofnunum hans sem hag- stœðust kjör. Algengt er að innkaup í stórum stíl séu gerð á smásöluverði og þá vitanlega verzlað við fyrirtœki og verzlanir helztu gœðinga og vildarmanna Sjálfstœðis- tlokksins! Athugasemd Eggerts við þenn- an fráleita rekstur á Innkaupa- stofnun Reykjavíkurbæjar og þá sóun sem með þessum hætti á sér stað er á þessa leið: „Innkaupastofnun Reykjavík- í strætisvögnum fimmtán sólarhringa á ári — Óhentugur brottfarartími Vogavagnanna — Hring- akstur hlutverk Tívolís en ekki S.V.R. EJCKI er ofsögum sagt af því hve mikið af bréfum Bæjar- póstsins fjallar um strætis- vagnana. Þeir sem búa í mið- bænum og vinna þar líka botna ekkert í öllu þessu strætisvagnatali og halda því 1 fram að við séum búin að fá strætisvagnana á heilann, ,hin- jr sem búa x úthverfunum og eyða ef til vill allt að klukku- tima á dag sitjandi eða stand- andi í yfirfullum strætisvögn- um þykjast mega leggja orð í belg, enda dveljast þeir eng- an smáræðistíma af ævinni í þessum farartækjum. Ef við reiknum með klukkutíma á dag til hægðarauka fáum við út 365 klukkutíma á ári og ef við deilum í það með 24 koma út rösklega 15. Það samsvárar því að maður sé heila fimmtán sólarhringa á ári hverju innanborðs í áður- nefndum farkostum. Og af því að Bæjarpósturinn eyðir sjálfur á að gizka heilli viku á ári í strætisvögnum skilur hann svo mætavel þá sem um strætisvagnana skrifa og býð- ur strætisvagnabréf dagsins velkomið. □ S. S. SENDIR eft;rfarandi bréf: — „Nýr og glæsilegur strætisvagn hefur nýlega haf- ið ferðir í Vogahverfið. Erum við Vógabúar að vonum á- nægðir með það. En sá galli er á gjöf Njarðar, að það skortir næstum alveg loftræst- ingu í vagninn, enga rúðu er hægt að opna, áðeins 3 smá- göt í loftinu, þar að auki er vagninn kappkyntur og það jafnt þótt heitt sé í veðri, og verður hitinn og svækjan í vagninum þá litt bærileg. — Annað atriði varðandi ferð- irnar í Vogana er mjög til baga, og það er burtfarar- tíminn af torginu. Þeir fara 5 mínútur yfir, 15 mín., 35 mín. og 45 mín., þannig að það líða alltaf ýmist 10 eða 20 mínútur milli ferða. Þetta leiðir aftur til þess, að annar vagninn (sem fer 05 og 35) er oftast yfirfullur, en hinn, (sem fer 15 og 45 mín.) er oftast hálftómur. Því í ósköp- unum eru þeir ekki látnir fara með jöfnu millibili á 15 mínútna fresti. — í þriðja lagi langar m’g til þess að vita, hvaða nauðsýn ber til að stunda þennan hringakstur í kringum Lækjartorg. Nú er nýbúið að opna Tívólí, og þar geta þeir sem vilja, fengið eins mikinn hringakstur og þá lystir gegn ákveðnu gjaldi, en að bæjarstjórnin sé að kosta upp á þennan eilífa hringakstur með þorra bæjar- búa dag hvern, finnst mér alveg fráleitt. Það er ekki lít- ill tími sem fer til spillis dag hvern fyrir okkur Vogabúa við það að bíða fyrst við Hverfisgöfuna, sem er aðal- braut (vagninn kemur Kalk- ofnsveginn), silan að bíða eftir græna ljósmu í Lækjar- götunni og síðaxx að smjúga með miklum erfismunum vegna þrengslanna á torginu í kringum það að Aðaibúð- inni, þar rem vagninn stanz- ar, í stað ' ss að láta vagn- inn ekki fara lengra en að svæðinu norðan við Hreyfil, ‘Stanza þar og fara svo, beint upp Hverfisgötuna næstu ferð. — Vona ég að forráða- menn stræt’svagnanna kippi þessu í lag sem allra fyrst. S. S.“ urbæjar hefur á árinu keypt vör- ur fyrir kr. 4.350.337,17, eða kr. 1.695.431,38 minni upphæð en á árinu 1952. Vörukaup hinna ýmsu bæjar- stofnana og fyrirtækja bæjarins nema hinsvegar miklu hærri upphæðum, auk þess sem um- talsverður hluti vörukaupa þeirra er gerður á smásöluverði. Við athugun á fylgiskjölum yf- ir innkaup á síðastliðnu ári sem undanförnum hef ég komizt að þeirri niðurstöðu, að hægt mundi vera að spara bæjarfélaginu og þar með skattgreiðendum stórar fjárfúlgur með hagkvasmari vörukaupum. Ég tel því nauðsynlegt, að sannprófaðir verði möguleikar Innkaupastofnunarinnar á mun víðtækari vöruútvegun fyrir stofnanir og fyrirtæki bæjarins og að hert verði mjög á öllu eftirliti með innkaupum þeirra. Ennfremur að athugaðir verði möguleikar á því, að stofnanir og fyrirtæki bæjarins geri á- ætlanir um nauðsynleg vörukaup fyrir hvert ár. Vilja fá sendi" lerðabíla Á aðalfundi Sambands smá- söluverzlana skýrði Jón Helga- son formaður sambandsins frá. störfum þess og gat þess að lokum að þar sem hann væri hættur verzlun sinni léti hann af formennsku sambandsins, en hann hefur verið formaður þess frá stofnun. Formaður var kos- inn Kristján Jónsson, er verið hefur varaformaður sambands- ins. Varafoimaður var kosinn Árni Árnason, gjaldkeri Páll Sæmundsson. Oddamaður i stjórn var kosinn Axel Sigur- geirsson og varamaður hans Hjörtur Jónsson. — Fundur- inn skoraði á Innflutningsskrif- stofuna að úthluta kaupmönn- um sendiferðabílum. Ennfrem- ur skoraði hann á milliþinga- nefnd í skattamálum að taka tillit til sjónarmiða og tillagna Félags ísl. iðnrekenda, Verzlun- arráðs Islands og Sambands smásöluverzlana, við endui’- skoðun skatta- og útsvars- mála varðandi atvinnurekstur- Andspy rnuhrey I ingin: Fcrseti islands Forseti íslands herra Ásgeir Ásgeirsson hefur tekið að sér að vera verndari norræna tónlistar- mótsins, er haldið verður hér í Reykjavík dagana 13.—17. júní í ár. Auk þess hafa tekið sæti í heiðursnefnd mótsins þeir dr. Kristinn Guðmundsson utanrík- isráðherra, hr. Bjarni Benedikts- son mennta- og dómsmálaráð- herra, dr. Anderssen-Rysst sendi- herra Norðmanna, frú Bodil Begtrup sendiherra Dana, hr. Leif Öhrwall sendiherra Svía, hr. Palin sendiherra Finnlands og hr. Gunnar Thoroddsen borg- arstjóri. „Engin gjöf er of sfór...“ Kona, sem ekki vill láta afs síns getið,’ kom í fyrra- dáþ á skrifstófú Skógræktar rík'isins og afhenti Valtý Ste- fánssyni og Hákoni Bjarnasyni kr. 5.000.—, sem hún kvað vera afmælisg.iöf til Land- græðslusjóðs. Þegar þeir Hákon og Valtýr höfðu orð á því, að gjöfin væri mikil og stór sagði konan, að engin gjöf væri of stór í Land- græðslusjóð. Ennfremur barst s.jóðnum minningargjöf um öuðmund Davíðsson, kennara frá tveim- ur systrum að upphæð kr. 1500.—. 10 ára afmælis lýðveldiskosninganna 1944 Samkomusalurinn Laugaveg 162 Laugardagurinn 22. maí: Hátíðin hefst kl. 3 e.h. 1. Hátíðin sett. Frú Sigríður Sæland, Hafnarfirði. 2. Hlutverk okkar í dag. Gunnar M. Magnúss rithöfundur. 3. Hver á sér fegra föðurland? • Einsöngur; Einar Sturluson óperu- söngvari með undirleik Gunnars Sigur- geirssonar syngur ættjarðarlög. 4. Erindi: Bökin fyrir uppsögn hernáms- samningsins. Hallgrímur Jónasson kennari. 5. Þjóðdansar. 5 danspör. Kaffihlé. 6. Undir merki frelsisbaráttunnar: Til máls taka: María Þorsteinsdóttir, varafonn. Menningar- og friðarsamtaka kvenna. Tryggvi Emilsson, Verkamannafél. Dagsbrún. Sigríður Einars, Mæðrafélagið. Þórunn J. Einarsdóttir, Stéttarfélagið Fóstra. Margrét Björn^dóttir, A.S.B. Gísli Ásmundsson, framkvæmdanefnd Andspyrnuhreyfingarinnar. 7. Söngur. Sunnudagur 23. maí: Kl. 3 e.h. 1. Hljómlist. Skafti Sigþórsson hljóðfæra- leikari o.fl. 2. Hvað unnum við lierlausir? Björrl Þor- J steinsson, sagnfræðingur. j, 3. Hugsað heim 1944. Frú Drífa yiðar. |! 4. Samfelld dagskrá: Minningar frá lýð- Ij veldisatkvæðagreiðslunni 20.—23. maí. !■ 1944. Upplestur og hljómlist. !■ 5. Þáttur æskufólksins: Fulltrúar frá *! stúdentum, skólafélögum og æskulýðs- í félögum. Stutt ávörp. *! i Kaffihlé. 6. Undir merki frelsisbaráttunnar; Frú Aðalbjörg Sigurðardóttir. Gunnar Benediktsson, rith. Kristinn Ág. Eiríksson, járnsmiður. Rílmrður Jónsson, myndhöggvari. 7. Söngfélag verkalýðssamtakanna: Stjórnandi: Sigursveinn D. Kristinss. Undirleikari: Skúli Halldórsson, Einsöngyari: Guðmundur Jónsson, óperusöngvari. Guðmundur syngur nokkur lög sem til- einkuð eru andspyrnuhreyfingunni. | Allir andstæðingar -hers á íslandi boðnir og velkomnir á hátíðina. Aðgangur ókeypis. Að kvöldi leikur danshljómsveit. í ^wvvvftvuwwwwwwvvflWMMWwvvwvwwwwiwwvvywwwwaiwwwwviwwvwww1

x

Þjóðviljinn

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Þjóðviljinn
https://timarit.is/publication/257

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.