Þjóðviljinn - 22.05.1954, Page 5

Þjóðviljinn - 22.05.1954, Page 5
Þingkosningar i SuSur- Kóreu: Lögregla Syngmans Rhee myrðir stjórnarandstæðinga Bandaríska tímaritið ,,Time46 lýsir ofbeldisaðferð- um skjólstæðings Bandaríkjastjórnar ' í fyrradag fóru fram þingkosningar í Suður-Kóreu „undir eftirliti SameinuÖu þjóöanna“. Frásagnir bandarískra og brezkra fréttaritara í Kóreu sýna að kosningar þessar eru hreinn skrípaleikur. Syng- man Rhee forseti hefur gengið lengra en nokkru sinni fyrr í ofbeldisverkum gegn hverjum þeim, sem dirfist að sýna honum minnstu mótstöðu. ----- Laugardagur 22. maí 1954 — ÞJÓÐVIUINN — (5 Skrifstofustjórinn drap 2 sfúlkur á frygðarlyfl Skrifstofustjórar hafa löngum haft það orð á sér að þeim hætti til að gera sér full dælt við skrifstofustúlkurn- ar. Nú hefur brezkur skrifstofustjóri verið dreginn fyrir lög og dóm og er sakaður um að hafa valdið bana tveggja stúlkna þegar hann hugðist byrla annari frygðarlyf. Síðasta laugardag skýrði fréttaritari brezku frétta- stofunnar Keuters í Seoul frá því að stjórnmálamaður að nafni Son Hung Byung hefði látizt eftir .. „yfir- heyrslu“ hjá lögreglunni í Syngman Rhe« Fusan. Læknar sem krufðu líkið votta að það hafi bor- ið merki um höfuðhögg og heilablæðingu sem af þeim hafi hlotizt. Hinn látni hafði stjórnað kosningabaráttu Huh Chung fyrrverandi forsætisráðherra sem’er andstæðingur Syng- mans Rhee og býður sig fram í Fusan. Lögreglan hef- ur neitað að skipta sér af því að slagsmálahundar í þjónustu Rhee hafa mis- þyrmt fólki sem rekur áróö- ur fyrir Huh Chung og hleypt upp fundum hans. Fusan og Seoul eru einu - staðirnir í Suour-Kóreu þar sem erléiidir fréttamenn dvelja og þegar slík ofbeid- isverk eru framin þar má nærri geta hvílík ógnaröld ríkir úti á landsbyggðinni, þar sem erindrekar Rhee geta farið sínu fram án þess að eiga á liættu að umheim- urinn frétti af því. Þorir ekki að korna í kjör- dæmið. Fréttaritari hins aftufhalds- sama, bandaríska fréttatímarits Time í Kóreu skýrir nokkuð frá forleik kosninganná í ein- taki bláðsins sem út kom á mánudaginn. Hann segir að Rhee hafi skipað innanríkis- ráðherra sínum, sem stjórnar lögreglunni, að sjá um að for- ingjar stjórnarandstöðunnar nái ekki kosningu. Einn þeirra, P.H. Shinicky, foringi helzta stjórnarandstöðu flokksins og forseti þings Suð- ur Kóreu á liðnu kjörtímabili, hefur ekki þorað svo mikið sem að láta sjá sig í Kwangju, kjördæminu þar sem hann býð- ur sig fram. Lögreglan hefur hótað honum lífláti ef hann ger- ist svo djarfur að sýna sig þar. Meðmælendum hótað mis- þyrmingum. Time skýrir frá því að kjör- stjórn Rhee hafi lýst framboð annars stjórnarandstæðíngs, Cho Bong Am, varaforseta þingsins ógilt. í forsetakpsning- unum 1952 bauð hann sig fram gegn Rhee og fékk 788.000 at- kVæði en nú hefur hann ekki getað fengið þá hundrað með- mælendur, sem þarf til fram- boðs. Nógu margir höfðu undir- ritað meðmælaskjalið en flestir tóku undirskrift sína aftur þeg- ar lögregluforingjar liótuðu þeim handtöku og misþyrming- um ef þeir mæltu með Cho. Aðalumboðsmanni Chough Pyung Ok, fyrrveranái innan- ríkisráðherra, í kjördæmi hans var varpað í fangelsi og hann sakaður um að hafa borgað meðmælin með framboði hans. 50 tóku franiboð aftur. Fréttaritari Time segir að 50 aðrir stjórnarandstöðuþing- menn hafi tekið framboð sín aftur „af persónulegum örygg- isástæðum“, vegna þess að þeir óttuðust að verða drepnir eða limlestir í pyndingarklefum lög- reglu Rhee ef þeir héldu fram- boðunum til streitu. Allir frambjóðendur flok.ks Rhee hafa orðið að skrifa undir skuldbindingar um að. greiða atkvæði með tveim stjórnar- skrárbreytingum, sem Iiann vill fá framgengt. Önnur á að gefa honum vald til að rjiifa þing hvenær sem honum sýnist. „Hvarf“ þingmaniía tryggði Rhee meirihluta. I kosningunum vorið 1950. rétt áður en Kóreustríðið hófst fengu andstæðingar Rhee meiri hluta á þingi. Forsetinn sá þó við þvi. Nógu margir stjórnar- andstöðuþingmenn hurfu til þess «ð flokksmenn Rhee urðu í meirihluta. Sumarið 1952 kráfðist Rhee þess að þingið breytti stjórnar- skránni til þess að hann gæti setið áfram í forsetaeinbættinu. Þingið tregðaðist við en þá sendi Rhee lögregluna af stað. Andstæðingar Rhee á þingi voru beittir ofbeldi og loks var þingið svelt til undirgefni. Lög- regluvörður sá um að þing- menn komust ekki úr þinghús- inu fyrr en stjórnarskrárbreyt- ingin hafði verið samþykkt. Öll þessi ofbeldisverk hafa verið framin „undir eftirliti Sameinuðu þjóðanna" og með þegjandi samþykki Bandaríkja- manna, sem hafa lagt Rhee til vopnin sem halda honum við völd. ' Arthur Ford, 44 ára gamall skrifstofustjóri lyfjaverzlunar, kom fyrir rétt í Clerkenwell nærri London á mánudaginn. Hann er ákærður fyrir að hafa valdið bana ungfninna Betty Grant, 27 ára gamallar, og June Malins, 19 ára, er störfuðu undir stjórn hans. Báðar dóu af eitrun fyi-ir nokkrum vikum. Neyttu þess í kókosís. Saksóknarinn las plagg, sem hann kvað vera játningu Fords. Ségir þar að hann hafi látið ofurlítið af efnnu cantharidin á skæraoddi í tvo skammta af kókosís. „Eg gaf ungfrú Gránt annan ísinn. Okkur þótti mjög vænt hvoru um annað en hún vildi ekki þýðast mig svo að ég á- kvað að gefa henni cantaridin til að örva löngun hennar eft- ir mér .... Eg veit ekki hvern- ig ungfrú Malins náði í hinn skammtinn, það hlýtur að hafa verið tilviljun .... Mér er nú ljóst að ég drap stúlkurnar með þessu brjálæðislega uppá- tæki og hef þar að auki misst ástkæra konu mína og börn. Þetta er allt sem ég hef að segja. Það er allur sannleikur- inn.“ Saksóknarinn sagði að cant- haridin væri mjög sterkt erting arlyf, unnið úr skordýrum. Við krufningu hefði komið í ljós að skammturinn sem stúlkurnar fengu hefði verið 200 til 400 sinnum sterkari en það mesta sem hægt væri að þola. ShUmm mri eu eiðbur&aríh ísabella Patinu, 18 ára gömul milljónaradóttir, serh faðir henn- ar ejti um þvera og endilanga Vestur-Evrópu í vetur til að skilja hana frá .unnusta hennar, dó í síðustu viku af heilablóð- falli eins og áður hefur verið skýrt frá. Nú hefur það vitnazt að á banasænginni ól hún dóttur með keisaraskurði. ísabella gift- ist Jimmy Goldstein fyrir fjórum mánuðum, þegar faðir hennar gafst upp við að stia þeim í sundur. Ösvikiim Skoli 74 ára gömul kona, sen dró fram lífið á 25 krónum á viku og sníkti mat af nágrönnum sínum, lézt nýlega í Edinborg. Það kom í ljós, að hún lét eft- ir sig hátt á aðra milljón króna. Hún arfleiddi bankann sem geymt hafði fé herinar að því mestöllu, en í húsi hennar fund- ust um 70.000 krónur og voru þær vafðar inn í dagblöð. í fyrsta skipti eru horfur á því að lyf finnist við krón- iskri liðagigt. Sænskir vís- indamenn við rannsóknar- stofnun Gústafs V. og Karo- linska sjúkrahúsið hafa fund- ið í botnfalii blóðvatns, sem hefur verið kælt, efni sem virðist lækna liðagigt. Nú er unnið að því að finna aðferð- ir til að vinna efnið hreint og þegar það tekst vona sænsku læknarnir að hægt verði að hefjá herferð gegn liðagigtinni. k___________ ■' Minning og möfmœli Um daginn boðuðu kuunir stjórmnálamenn úr öllum flokkum Frakklands til mótmælagöngu gegn Vestur- Evrópuhernum og hervæðingu Þýzkalands á Champs Elyseés, aðalgötu Parísar. Franska ríkisstjórnin varð æf og bannaði gönguna en hafði það eitt uppúr að haldnir voru um allt landið mótmælafundir þúsundum saman sem hún gat ekki liindiað. Á vinnustöðum, í smábæjum og víðsvegar um hinar stærri borgir safnaðist fólk sam- an til þögnlla ínótmæla og til að minnast Frakka sem féllu í síðustu styrjöld. Á efstu myndinni sést samkoma járnbrautarverkamanna á Norðurstöðinni í París. Mið- myndin er írá því er fólk í 15. hvérfi Parísar leggur blóm á minnisvarða fallinna. Neðst sjást blóm lögð við minningartöfluna á ráðhúsinu í 11. hverfi Parísar.

x

Þjóðviljinn

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Þjóðviljinn
https://timarit.is/publication/257

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.