Þjóðviljinn - 10.06.1954, Blaðsíða 8

Þjóðviljinn - 10.06.1954, Blaðsíða 8
S) — ÞJÓÐVELJINN — Fimmtudagur 10. júní 1954 Rœða Jean-Paul Sarfre Framhald aí 6. sSðu. ! «r, vegna þess að þeir vita að aðrar þjóðir hafa einnig klofið frumeindakjarnann og igeta einnig beitt kjarnork- unni til eyðingar ef þeim er jögrað. Hér er um það að jræða að reynt er að kúga okk- jur með hótunum um eyðingu jnsannkynsins. Þeir reyna að ■stöðva mannkynssöguna eins 'og Jósúa stöðvaði sólina, með 'því að hóta að sprengja heim- jinn í loft upp. „Við vörpum henni á Indó Kínverja, Kín- verja eða Rússa, það er sama jhverjir eni“. Til þess að fá jörðina til að hætta að snú- ast hóta þeir að kveða mann- kynssöguna niður með því að útrýma þeim sem skapa sög- una. Það er það eina sem þeir geta, útrýmt manninum ef hann skyldi ætla að taka upp á því að breytast. Kjarn- orkusprengjan sjálf er í einu undirstaða og allt inntak stefnu sem er gjörfjandsam- leg sannri framþróun mann- kynsins, sem miðar að því að setja þessa kosti: alger kyrr- staða eða alger eyðing. aílrar hamingju er það sjálft vald stríðsæsinga- mannanna sem sigrar þá, hrunið sem þeir eru að búa okkur er of algert. Það ógn- ar okkur öllum, en þeir þora ekki að hleypa því af stað. Er hægt að þurrka út mann- : kynið vegna þess áð her- fylki landgönguliða Banda- ríkjaflota er hrakið á flótta í Kóreu eða vegna þess að Dien Bien Phu fellur? Vopnið er of óskaplegt, það verður ekki hamið. Með hverjum degi sem líður verður það fjar- skyldara hlutlægum veruleika. Þeir sem ráða yfir þessu vopni eru og vissir í sinni sök og hafa því meira að segja gleymt frumstæðustu reglum um skipti ríkja, þeir láta sér nægja að hóta en gera ekki alvöru úr hótunun- um. En meðan þessu fer fram eru tálmanimar að hrynja, ný tengsli eru hnýtt, þjóð- irnar hræðast ekki lengur hver aðra, ný eining myndast í Evrópu og meira að segja um heim allan, máske er nýtt samfélag rikja Evrópu að myndast og það verður ekki stöðvað með neinum ráðum. Vegna þess að kjamorku- sprengjan reynir að bjóða mannkynssögunni byrginn á hún á hættu að detta alger- lega úr sögunni. Fram til þessa liafa reiði, skyssur, misreikningar verið þýðingar- lítil smáslys í hinni sameig- inlegu sögu. Nú geta þau orð- ið fyrirferðarmikil, geðshrær- ingar forystumanns geta haft áhrif á gang sögunnar. Mann- kynssagan verður að fjar- lægja tundrið úr kjarnorku- sprengjunni, ella mun sprengj- an tæta heiminn í sundur. Þjóðirnar eiga tvöfalt hlut- verk fyrir hendi. Þær verða að sameinast gegu sprengj- unni, knýja fram frið án þess að gefa kjarnorkuvopn- inu nokkru sinni tíma eða tækifæri til að springa. Það verður að koma á friði í Kór- eu og Indó Kína. Þýzkaland verður að sameinast. Frammi fyrir óbifanlegri einingu þjóð- ann'a mun óraunhæfni kjarn- órkuhótananna sjást í réttu ljósi. Við verðum að berjast gegn kjarnorkuógninni. Þjóð- irnar ha.fa krafizt og krefjast enn að fimmveldin banni framleiðslu og notkun kjarn- orkuvopna. Á liðnurn tímum hefur stríðið oft mótað mann- kynssöguna. En nú á dögum m.yndi stríð vera sama og heimsendir og það er því frið- urinn einn sem megnar að skapa sögu“. Sðatfamlur Aðalfundur Útvegsbanka íslands h.f. verður haldinn í húsi bankans í Reykjavík föstudaginn 18. júní 1954 kl. 2.30 e.h. DAGSKRÁ: 1. Skýrsla fulltrúaráðsins um starfsemi Útvegs- bankans síðastliðið starfsár. 2. Framlögð endurskoðuð reikningsuppgerð fyrir árið 1953. 3. Tillaga um kvittun til framkvæmdarstjórnar fyrir reikningsskil. 4. Kosning tveggja fulltrúa í fulltrúaráð. 5. Kosning tveggja endurskoðunarmanna. 6. Önnur mál. Aðgöngumiðar að fundinum verða afhentir í skrifstofu hankans frá 14. júní n.k. og verða að vera sóttir í síðasta lagi daginn fyrir fundinn. Að- göngumiðar verða ekki afhentir nema hlutabréfin séu sýnd. Útibú bankans hafa umboö til að at- huga hlutabréf, sem óskað er atkvæðisréttur fyrir, og gefa skilríki um það til skrifstofu bankans. Reyltjavík, 6. maí 1954. F.h. fulltrúaráðsins. Stefán Jóh. Stefánsson , /Lárus Fjeldsted. 43. Islandsmótið í knattspymu hófst á þríðju- dagskvöldið með leik milli KR og Víkings fslandsmótið í knattspyrnu til væru í landinu og fengi hver enga afsökun. Þeir vakna ekki hófst s. 1. þriðjudagskvöld. Setti formaður Knattspyrnusambands íslands mótið með stuttri ræðu. Gat hann þess að 6 félög tækju þátt í mótinu að þessu sinni, eða Akranes, Fram, KR, Valur, Víkingur og Þróttur. Hann gat þess líka að í ár ætti FIFA, Al- þjóðasamband kriattspyrnu- manna, 50 ára afmæli og í til- efni af því yrðu leiknir ung- lingaleikir á öllum völlum sem Hörður á ÍsaMi 35 ára ísafirði. Frá fréttaritara Þjóðviljans. Hér var margt fólk um hvíta sunnuna og íþróttakeppnir í til-j efni af 35 ára afmæli knatt- spyrnuféiagsins Harðar. Lúðrasveit Reykjavíkur lék hér nokkrum sinnum. í íþrótta- keppninni sigruðu ísfirðingar í knattspyrnu við Þrótt úr Reykja- vík með 3 mörkum gegn einu. í handknattleikskeppni sigraði karlaflokkur Þróttar ísfirðinga, en Hörður sigraði Þrótt í kvennaflokki. Auk þess keppti 4. flokkur úr Fram Rvík 2 leiki við ísfirðinga og vann báða, annan með 6:0, hinn með 2:1. 399 kr. fyrirBréíta Af leikjunum 12, sem voru á 22. getraunaseðlinum, féllu 3 niður. Leikurinn í 1. flokki milli Víkings og Þróttar féll niður vegna ísafjarðarfarar Þróttar, einnig féllu niður 2 norskir leik- ir vegna þátttöku norska lands- liðsins í afmælismóti sænska knattspyrnusambandsins. Úrslit annarra leikja urðu: Akranes 3 — Hamborg 2 1 Víkingur — Þróttur féll niður — Fram 1 — Valur 2 2 Þróttur 0 — Valur 3 2 KR 1 — Fram 0 1 Skeid 2 — Viking 0 1 Asker — Larvik féll niður — Sparta — Sandefj. féll niSur — Fredrikstad 6 — Geithus 1 1 Lilleström 1 — Strömmen 1 x Moss 2 — Sarpsborg 1 1 Odd 1 — Fredig 1 ' x Bezti árangur reyndist 8 réttir leikir, og varð hæsti vinning- ur 309 kr. fyrir (3/8, 12/7), en vinningar skiptust þannig: 1. vinningur 81 kr. fyrir 8 rétta (9). 2. vinningur 13 kr. fyrir 7 rétta (111). Síðasti getraunaseðillinn að sinni, nr. 23, er nú kominn til umboðsmanna. Skilafréstur fyr- ir hann verður til föstudags- kvölds, en úrslit allra leikja á honum verða ekki kunn fyrr en eftir 17. júní. Á honum verða 6 leikir úr aðalknattspyrnu- keppni ársins, héimsmeistara- keppninni, sem fram fer í Sviss og hefst þann 16. júní. leikmaður skjal til minningar um þessa þátttöku sína í af- mæli FIFA. Hann minnti á að framundan væru stórorustur í knattspyrn- unni, og þá fyrst og fremst landsleikur sá sem ákveðinn er hér 4. júlí við Norðmenn og .síðar landsleikur við Svíþjóð í ágústmánuði n. k. KR-Víkingur 2:1 eftir mjög lélegan leik af beggja hálfu Það mátti sjá á áhorfenda- fjöldanum sem kom til að horfa á þennan fyrsta leik íslands- mótsins 1954 i meistaraflokki, að ekki var búizt við mikilli knattspyrnu, því að varla hafa yfir 200 manns keypt sig inn á völlinn. Hugboð hinna gömlu, góðu áhorfenda reyndist rétt. Það var enga þá knattspyrnu að sjá sem borgandi var fyrir. Hlaup og spörk út í loftið eða á þveröfugan stað við það sem vit var i, eða þá að ónákvæmn- in var svo, að mótherji fékk knöttinn i fleiri tiífellum en samherji og þrátt fyrir öll hlaupin er oftast hlaupið án þess að hugsa og því oftast um rang- ar staðsetningar að ræða eða hlaupið á skökkum tíma. Engin leikgleði eða ólgandi lífsfjör ungra manna. Nýliðar Víkings voru þó undantekning. Það var eins og leikmenn þessara tveggja liða væru þarna af gömlum vana, og þar með hefðu þeir gert sitt. Á fram- komu þessara liða verður ekki séð að þau séu i þeirri þjálfun sem forsvaranleg er til keppni í aðalmóti ársins. Það sem þau sýndu var heldur ekki forsvar- anlegt gagnvart þeim áhorfend- um sem koma og greiða aðgang að leiknum, og gagnvart góðri og skemmtilegri íþrótt er það líka óforsvaranlegt 'að leggja ekki fram meiri vilja, hugsun og kraft en leikmenn þessa leiks gerðu. Þessir ungu menn hafa einu sinni við þá himinhrópandi ásökun, að það vilja sem sagt engir horfa á þá. Samt vita þeir að reykvískir knattspyrnu- unnendur kunna að meta og vega hvað góð knattspyma er. Samt synda þessir fulltrúar knattspyrnuíþróttarinnar í sjálfs- ánægju og sennilega sjálfsblekk- ingu og telja að þetta sé allt í lagi, þeir séu í raun og veru nógu góðir, en fólkið kunni ekki að meta þá. Gangi svo ekki allt að óskum er það aðeins óheppni að kenna, og svo lika hinn hæpni samanburður: hinir eru ekkert betri. KR átti heldur meira í leikn- um en Víkingar áttu opnari tækifæri. Ragnar gerði markið fyrir Víking en Þorbjörn og Gunnar fyrir KR. — Dómari var Halldór Ó. Sigurðsson. 6*etra&iiaspá 23. leikvika. Leikir 12.-17. júní. — Kerfi 24 raðir. Fram-Akranes ................ 2 Valur-Þróttur ........... 1 Viking-Sandefjord ....... 1 2 Larvik-Sparta ........... x Sarpsborg-Lilleström .... 1 2 Strömmen-Fredrikstad .... 1x2 Austurríki-Skotland ..... 1 Uruguay-Tékkóslóvakía .... 1 Frakkland-Júgóslavía .... 1 2 Eng'and-Belgía .......... 1 Italía-Sviss ............ 1 Tyrkland-Þýzkaland .......... 2 Hovedserien A-riðlIl Félag L U T Skeid ........ 13 9 Sparta ........12 8 Larvik .......12 Asker ........12 Viking .......13 Sandefjord .. 12 Varegg .......13 Nordnes Félag Strömmen Fredrikstad Lilleström Odd ...... Sarpsborg Freidig ..... 13 3 Moss ........ 13 3 Geithus ......13 2 6 6 4 3 2 . 13 1 B-riðiIl L U T . 13 9 . 13 9 . 13 8 . 13 5 . 13 4 J 2 í 4 4 5 5 7 11 J 2 3 2 4 7 7 9 9 Mörk S 30- 14 20 22- 12 19 31- 17 14 25-18 14 17- 19 12 18- 17' 10 14-30 8 6-36 3 Mörk S 31—13 20 43-19 19 42-17 19 23- 21 14 21-28 10 16-24 9 21-46 7 16-45 6 Bob Richards, sigurvegari í stangarstökki á olympíuleikjunum í Helsinki.

x

Þjóðviljinn

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Þjóðviljinn
https://timarit.is/publication/257

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.