Þjóðviljinn - 30.06.1954, Síða 6
6) — ÞJÓÐVILJINN — Miðvikudagur 30. júní 1954
þlÓ@¥iyKNH
^tgefandl: Saroelnlngarflokkur alþýSu — Sósíallstaflokkurlnn.
Fréttastjórl: Jón Bjarnason.
Rltstjórar: Magnós Kjartansson (á.b.), Slguröur Guðmundsson.
Bjaðamenn: Ásmundur Sigurjór.ssoi.. ájarnl Benediktsson, GuO-
mundur Vlgfússon, Magnús Torfi Ólafsson.
Auglýsingastjóri: Jónsteinn Haraldsson.
Bitstjórn, afgreiðsla, auglýsingar, prentsmiðja: Skólavðrðustíg
1S. — Síml 7500 (3 línur).
Áskriftarverð kr. 20 á mánuði í Reykjavik og nágrenni; kr. 1T
annars staðar á landinu. — Lausasöluverð 1 kr. eintakið.
Prentsmiðja Þjóðviljans h.f.
fsleridingas' fyrírlíta makkartístefnu
MQrpnblaðslRS
Annað veifið er eins og þeim Sigurði Bjarnasyni og
Valtý Stefánssyni verði þaö ljóst, að bandaríski áróður-
inn sem þeim er fyrirskipað að þylja í blaði sínu dag
hvern, vinnur ekki á heilbrigðri skjmsemi Íslendínga.
Þó er stöðugt verið að í þeirri von að einhver láti blekkj-
ast, enda þótt Bandaríkjaáróður og makkartístefna
Morgunblaðsins veki andstyggð íslendinga og óbeit á
blaðinu sem- beitir henni og þeim stjórnmálaflokki sem
að því stendur. En þannig hefur Morgunblaöiö alla sína
tíð legið hundflatt fyrir erlendu valdi. Hver man ekki lýs-
ingar Þorsteins Gíslasonar á því, hver starfsskilyrði og
hvers konar andlegt „sjálfstæði“ Vaítýr Stefánsson lét
bjóða sér er hann hóf ritstjóraferil sinn, með danska
heildsala, ómælandi á íslenzku, stjáklandi um ritstjórn-
arskrifstofurnar og segjandi fyrir verkum. Þá kom tíma-
bil undirlægjuháttarins viö brezku auðhringaria en því
lauk 1 hinu gegndarlausa aödáunarfylliríi Morgunblaðs-
ins fyrir Hitler og þýzka nazismanum. Það eru ekki nema
tuttugu ár síðan Sjálfstæðisflokkurinn sendi helztu leið-
toga sína á áróöursþing þýzka nazismans, þar sem lögð
voru á ráðin um hvernig skyldi starfað hér heima í „bar-
áttunni gegn kommúnismanum". Lýsingar þessara leið-
toga Sjálfstæðisflokksins á dýrðarríki nazismans eru skjal-
festar í árgöngum Morgunblaðsins, ílokknum og blaðinu
til ævarandi smánar. Loks kom svo bandaríska tímabil-
ið, að vísu með nákvæmlega sömu vígoröunum, víg-
orðum Göbbcls um „bai’áttu gegn kommúnismanum",
en undir því kjörorði skyldu unnin hin verstu verk gegn
íslenzkri alþýðu og hin vesælustu hermdarverk gegn þjóð-
arhagsmunum og sjálfstæöi íslendinga.
Það er þó ekki sambærilegt við hin fyrri skeið undir-
lægjuháttar Morgun'olaðsins og Sjálístæðisflokksins. Á
bandaríska skeiðinu hefur náðst langsamlega mestur ár-
angur í þjónustunni. Sjálfstæðisflokknum hefur, meö að-
stoð Framsóknar og Alþýðuflokksins, tekizt að selja
stríðsóðu stórveldi hluta af landinu til herstöðva og of-
urselja efnahagslíf landsins og atvinnuvegi bandarískri
ihlutun. Aldrei hefur Sjálfstæöisflokknum og Morgun-
blaðinu tekizt fyrr að vinna slík afrck fyrir vini sína
erlendis, enda mun það þakkað þar eftir.
Hins er ekki að vænta, að íslendingar scm þekkja þessa
ömurlegu sögu, telji einmitt Morgunblaðið þess umkom-
ið að brigzla þeim íslendingum um þjónustu við exdent
vald, sem á öllum stigum hinnar erlendu ásælni hafa
fylkt sér um íslenzka málstaðinn cg barizt af alefli gegn
því að landráðin væru framin. Og það er alger fíflska
þegar litlir karlar og Bandaríkjaleppar við Morgunblaðið
hyggjast afmarka stóran hluta af íslenzku þjóðinni og
telja hann annars flokks þegna, sem ekki eigi að hafa
sama rétt til atvinnu og starfa og aðrir þegnar þjóöfé-
lagsins. Þeir eru að sjálfsögðu að reyna þetta samkvæmt
bandarískum fyrirmyndum og bandarískum fyrirskipun-
um, en reka sig hvarvetna á fyrirlitningu heiðarlegra ís-
iendinga á slíkum afturhaldskenningum, sem að sjálf-
sögðu eiga ekki nokkra stoð í íslenzkum lögum. Atvinnu-
kúgun og atvinnuofsóknir stjórnarvalda og einstakra at-
vinnurekenda eftir bandarískum skoðunarkúgunarfyrir-
rnyndurn er einn svartasti bletturinn á stjórnarfari lepp-
flokka Bandaríkjanna hér á landi og þáttur sem alltof
hljctt hefur verið um til þessa. Gegn slíkum ósóma verða
verkaiýðsfélög og félög opinberra starfsmanna aö rísa af
öllum sínum þunga, enda öllum fyrir beztu að ekki verði
gert að algildri reglu að stjórnarvöld noti aðstöðu sína
til að útiloka stjórnarandstæðinga frá starfi.
Morgunblaðsmönnunum er ráðlegast að læra það í eitt
skipti fyrir öll, að íslenzku þjóðinni verður aldrei skipt í
hópa misrétthárra þegna eftir bandarískum skoðunar-
kúgunarlögum. Samkvæmt stjómarskrá íslands og lög-
um njóta íslendingar algers skoðunarfrelsis og jafnréttis
fyrir lögum. Þeirri staðreynd verður ekki hnekkt með
undirlægjúhætti Morgunblaðsins og Sjálfstæðísflokksins
við húsbændur sína, bandaríska afturhaldið.
„Við verðum að brjóta af
okkur f jötra fordómanna11
segir Hannihal Valdimarsson i sfefnu-
yfirlýsingu i AlþýSublaoinu i gœr
„Viltu láta deila kröftum þeirra, sem eiga þó
svo margt sameiginlegt í baráttu til betra lífs“
Hanníbal Valdimarsson, for-
maður Alþýou'flokksins, birtir
í gær grein í Alþýðublaðinu
og nefnist hún Úr fjötrum for-
dómanna. Ræðir hann þar
skrif stjórnar’oiaðanna um sig
og stefnu sína, cg þá jafn-
framt átökin í Alþýðufiokkn-
um sjálfum, en eins og kunn-
ugt er hef.ur hægri klíka
flokksins undanfarið gert ít-
rekaðar tiiraunir til þess að
reka formann fiokksins frá AI-
þýðublaðinu samkvæmt opin-
skáum fyrirmæium stjórnar-
blaðanna. I lok greinar simiar
mótar Hanníbal Valdimarsson
stefnu þá sem liann §lur að
Á.lþýðuflokkurinn .. eigi að
fyigja framvegis í veri:a!ýðs-
málum og stjórnmálum, og
þykir Þjóðviijanum rétt að
birta lesendum sínum þann
kafla orðréttan. Hann er á
þessa leið:
„Góðu máli ber inklaust að
fylgja, þó að kommúnistar
flytji það. — Ibaidinu á aJdrei
að haldast mpi að standa í
vegi fyrir góðu máli, vegna
þess að Aiþýðuflokliurinn einn
hafí eldci afl til að koma því
fram. íhaldið á ekki að vera
öruggt um að tefja mál og
drepa, vegna vissunnsr um
það, að liðsinni kommúnista
verði aidrei þegið. Ihaidið á
þvert á móti að vita, að því
þýðir ekki að spyrna klaufum
við því að öll öfl, sem góðu
máli vilja fylgja, verði ávallt
sameinuð því tO framgangs.
Þessari meginreglu eiga al-
þýðustéttir landsins að fylgja
bæði í verkalýðsmálum og
stjórnmálum.
Við verðum að brjóta af
okkur fjötra fordómanna. Við
verðum að standa frjáls að
ruálefnalegri afstöðu á hvaða
sviði sem er. Við tökum upp
samstarf við hvern þann aðiia
í bæjarmálum sem beztan
stuðning vill veita málum Al-
þýðuflokksins. Við tökum í
höndina á hverjum þeim aðiia,
sem vill standa með okkur í
kjarabaráttu verkalýðsstétt-
Timinn reiðist
röitgiim aðila
Augljóst er á Tímanum að
Framsóknarmenn eru m jög sár-
ir út af þeirri háðung sem
þeim hefur verið sýnd með því
að láta Kristin Guðmundsson
utanrikismálaráðherra vinna
tóma lögieysu í dómsmálum á
Keflavíkurflugvelli mánuðum
saman. Segir blaðið í gær að
„gera megi ráð fyrir" að
Framh. af 6. síðu.
anna, þar til jafnrétti er náð
við aðrar stéttir. Við veljum
þá til samstarfs, sem viija
berjast gegn atvinnuieysi, fyr-
ir bættum húsakýnnum vinn-
andi fólks, fyrir atvinnuieysis-
tryggingum, fyrir sama kaupi
kvenna og karla, fyrir logfest-
ingu á tólf stunda hvíld á tog-
urum, fyrír sama _ orlofsrétti
og verkalýður nágrannaland-
anna hefur náð, fyrir réttlátri
skattalöggjöf, skynsamlegri
skipan innflutningsmála, fyr:r
betri þjónustu banka og fjár-
magns við framleiðsluatvinnu-
vegina o. s. frv. o. s. frv.
Þegar alþýðán á Islandi hef-
ur brotið niour múra fordórn-
anna og saraeinað alla orku
sína í verkalýðsmálum cg
stjórnmálum, verður Isiandi
ekki stjcrnað lengur gegn
vilja hennar og hagsmunum.
Þá rætist hið fornkveðná: „Að
þeir munu iýðir löndum ráða,
er útskaga áður byggðu.“
Og nú spyr ég þig, alþýðu-
maður og alþýðukona: Ætl-
arðu að vera og viltu áfram
vera eií?s og sjúklihgur haid-
inn af illum anda ofstsekis og'
fcrdóma ? Viltu láta deiia
kröftum þeirra, sem eiga þó
svo margt sameiginlegt í bar-
áttu til betra líís? Eða viltu
manna þig upp og byggja
brýr yfir aliar þær torfærur,
sem brúaðar verða, og halda
síðan liikiaust að marki, þrátt
fyrir org og liróp afturháids-
afianna, sem vilja deila og
drottna að fornrómverslcu for-
dæmi? — Eg er viss um, að
þú velur þann síðari kostinn,
sem einn er manndómi þínum
samboðinn.
Hanníbal Valdiniarsson“.
Dómur Álþýðublaðsiris: „Eftir
hverja Morgunblaðsherferð
gegu söfnuninni bárust alltaf
fleiri og síærri gjafir“
Alþýðublaðið veitir í gær Morgunblaðinu verð-
uga viðurkenningu fyrir mikla aðstoð við söfnun
sósíalista í Sigfúsai'sjóð. í greirx sem Hanníbal
Valdimarsson skrifar í blaðið er komizt þannig
að oröi:
„Eftir hverja Morgunblaðsherferð gegn söfnun-
inni bárust alltaf fleiri og stærri gjafir. Bezta söfn-
unarferð Þjóðviljans var sú að reita Morgun-
blaðið til reiði og láta það spúa eldi og eimyrju.
Þetta hefur verið slyngasta áróðursbragð komm-
únista hér á landi árum saman og árangurinn
hefur þeim aldrei brugðizt.“
Þjóðviljinn vill enn einu sinni nota tækifærið og
þakka Morgunblaðinu fyrir ómetanlega aðstoð.
Það ágæta blað fékk síöasta æðiskast sitt á sunnu-
daginn var, og er ekki að efa að það muni hafa
ágæt áhrif, þótt það sé að vísu fullseint á ferðinni.
Birtir það' klausu sem er undirskrifuð „Hreyfils-
bílstjóri" og er þar í’áðizt ofsalega á bílstjórana
fyrir mjög myndarlegt framlag þeirra, en niður-
lagsorðin eru þessi: „Munu Hi'eyfilsbílstjórar gera
ráðstafanir til að skafa þennan ómenningarblett
af vinnustað sínum.“ Þessi setning sýnir að þaö
eru Morgunblaösmenn sjálfir sem hafa samið
klausuna, því auðvitað vita allir bílstjórar að þær
50.000 kr. sem Sigfúsarsjóði báinst voru frá með-
limum stéttarfélagsins Hreyfils á bíistöðvum bæj-
arins. En hótanir Morgunblaðsins um að hreinsa
til — „skafa“ — meðal atvinnubíistjóra, vegna
þess að þeir gerast svo djarfir að leggja fram fé til
stuðnings hugsjónamálum sínum og hagsmunum,
eru nýtt og lærdómsríkt dæmi um mccarthyism-
ann í Sjálfstæðisflokknum.