Þjóðviljinn - 20.07.1954, Page 1
Njósnadeild bandariska hernámsliSsins
festir upp myndir 09 lýsingu af Islendingi eins 09
lýst er eftir stórhættulegum glæpamanni
<s>-
Her gengur á
Ian«l í Túni§
%-
Frafiskt herfylki sem í eru
1500 menn gekk í gær á land í
Túnis í Norður-Afríku. Á það
að taka þátt í baráttu nýlendu-
yfirvaldanna gegn skæruliða-
flokkum þjóðernissinna í fjall-
lendi Túnis. Hermdarverk eru
unnin á báða bóga í borgunum.
Franskur verkfræðingur var
skotinn úr launsátri nærri
Sousse í gær og skotið var úr
vélbyssum inn í eitt af kaffi-
húsum Araba í Túnisborg.
Áðalásökun: pólitískur andstæðingur — Frek-
iegasta brot á hernámssanmmgmim um að
heriim skipti sér ekki af ísl. stjórnmálum
Bending tii bandaríska glæpaiýðsins sem inn hefur
verið fluftur? — Lögfræðingur mannsins hefur þeg-
ar krafizt rannséknar á athæfi þessu
í síðustu viku gerðist sá einstæði atburður að fest-
ar voru upp á Keflavíkurflugvelli myndir og ná-
kvæm lýsing af íslendingnum Guðgeiri Magnússyni,
með sama hætti og tíðkast í Bandaríkjunum að lýsa
eftir morðingjum og stórhættulegum glæpamönnum.
Eina ásökunin gegn Guðgeiri er sú að hann sé
pólitískur andstæðingur bandarískra heimsvalda-
sinna. Hefur lögfræðingur hans þegar krafizt rann-
sóknar á athæfi þessu.
Gangsterháttur þessi hefur vakið almenna reiði
og fyrirlitningu á hernámsstjórninni og íslendingum
þeim sem starfa í njósnadeild hennar.
Myndir þessar, ásamt lýsingu
á Guðgeiri, voru festar upp í
skrifstofu Ilamilton, matskál-
um, íbúðarbröggum og víðar.
Aðeins stórhættulegir
glæpamenn
Slíkar aðfarir tíðkast i Banda
ríkjunum og öðrum löndum þar
sem morð eru tíð, og þá aðeins
þegar lýst er eftir morðingjum
og stórhættulegrum giæpamónii-
um.
Metnir að verðleikum
Eftir árás Flugvallarblaðsins
á utanríkisráðherra í vor
skyldu njósnararnir Daði
Hjörvar og Hilmar Biering rekn
ir, en þeir starfa enn í góðu
gengi á flugvellinum, svo og
Guðmundur Arngrimsson er
rekinn var. Bandaríkjamenn
kunna að meta að verðleikum
störf þessara manna, svo og
Framhald á 9. síðu.
4
l»aniii)r lítur
það út
plaggið sem
Kanarnir og
njósnapeyjar
þeirra Iétu
liengja upp
til þcss að
vara menn
við Guð-
Keiri Magn-
ússyni.
6 fac-t 2 inchös;
Biao; Appaaranca:
Fhysicai Doscription: Ago: 2é; Sex: Kaloj Hsight:
Wöight: 190 pounosj Color of Hair: Blonöo: Eyost
ffc.rmsiiy prosor.ts e vory slovenly appeamnoo.
áp.yí.y*ilif.XS.: Th.is ir.in hns beon potlnv aa & renros rt&Mvo nf +..~.
Statos,pa«o^í3fVÍkth H' SC,Ught adl,ia“lon t# llvíng quurters of Unitod
"'WiwmnT1 •for the of teking photogrujhs. Ho i3 an Agont of
a prcpnganda organ of tho COKMUNIST '
Fyrst þá ... .
Það er fátt glæpamanna á ís-
landi og morðingjar nær óþekkt
fyrirbrigði. Það var fyrst eftir
að bandaríska hernámsliðið
hafði sezt hér að, að ísiending-
ar kynntust þeirri hlið vest-
rænnar menningar sem fram
kemur í því að berja gamlan
mann í hel og henda honum út
í þró.
Myndauppfesting þessi vakti
því að vonum megnustu fyrir-
litningu og reiði tslendinga á
bandarísku herstjórninni og ts-
lendingunum i njósnadeiidinni
sem þarna eru að verki.
Njósnirnar í verki
Bandaríkjamenn hafa sem
kunnugt er haldið hér uppi frek
legri njósnum um landsmenn
heldur en þekkjast mun í
nokkru öðru leppriki þeirra.
Hafa þeir látið hvern Islending
sem til þeirra hefur ráðizt fylla
út langa skýrslu fyrir njósna-
þjónustuna, 'þar sem menn hafa
verið látnir gefa allskonar upp-
lýsingar, ekki aðeins um sjálfa
sig heldur og fjölskyldu, vini
og ættingja.
Hér sáu menn sýnishorn
njósnanna.
Búizt við undirritun samnings um
vopnahlé í Indó Kína á hverri stundu
Fullt samkomulag um flest atriSi önnur en vopnahlés-
llnu og kosningadag, horfur á að gangi saman um þau
Þegar síðast fréttist írá Gení í gærkvöldi ríkti þar
almenn bjartsýni um að samningar um vopnahlé
í Indó Kína myndu verða undirritaðir á hverri
stundu. Utanríkisráðherrar ríkjanna sem sitja ráð-
stefnuna í Genf þeyttust af einum einkafundinum á
annan og ljóst þótti af því sem undirmenn þeirra
gáfu fréttamönnum í skyn að stöðugt miðaði í sam-
komulagsátt.
Á sunnudaginn var haldinn
formlegur fundur á ráðstefn-
unni, sá eini siðan ráðherrarnir
komu aftur til Genf fyrir rúmri
viku.
Bandaríkin skcrast úr leik.
Bedell Smith, aðstoðarutan-
ríkisráðherra Bandaríkjanna,
hélt einu ræðuna sem haldin
var á þessum fundi. Hann lýsti
yfir að Bandaríkjastjórn sæi
sér ekki fært að ábyrgjast með
þðrum rikjum ncinn þann vopna
hléssamning, sem gerður kynni
að vera í Indó Kína. Hinsvegar
kvaðst hann geta lýst því yfir
fyrir hönd stjórnar sinnar, a2
hún skuldbindi sig til að reyna
ekki að beita ofbeldi eða of-
beldishótunum til að ónýta
slíkan samning.
Vilja ekki ábyrgjast frið-
helgi Viet Minh.
Það hefur verið yfirlýst
stefna Bandaríkjastjórnar und-
anfarið, að hún muni aldrei á-
byrgjast friðhelgi neins þess
svæðis, sem Viet Minh, sjálf-
stæðishreyfing Indó Kína, fær
til umráða við vopnhlé. Hefur
þetta að vonum vakið grun-
semdir um að Bandaríkjamenn
vildu hafa frjálsar hendur til
að ráðast á Viet Minh.
Örlög Mendés-France.
Eftirvæntingin óx jafnt og
þétt í Genf i gær, jafnóðum og
frest.urinn styttist, sem Mend-
és-France hefur sett sér til að
ná samningum um vopnahlé í
Indó Kína. Þegar hann myncT-
aði stjórn fyrir mánuði til-
kynnti hann franska þinginu
að hann myndi segja af sér
forsætisráðherraembættinu ef
hann næði ekki viðunandi samn
ingum ekki síðar en í dag.
Um hádegi í gær fóru Mend-
ésíFrence og Eden á fund Sjú
Enlæ. Ræddu þeir einkum La-
os og létu Bretinn og Frakk-
inn vel yfir árangri af funain-
um.
Indland, Kanada, Pólland.
Fullt samkomulag hefur
orðið um það málið, sem lengst
hefur verið deilt um í Genf,
eftirlitið með vopnahléssamn-
ingi. Verður þess farið á leit
við stjórnir Indlands, Kanada
og Póllands að þær skipi menn
í eftirlitsnefndir og starfi sín
í hverju af þrem ríkjum Indó
Kína. Formennsku í öllum
nefndum eiga Indverjar að hafa.
Um mál sem varða alvarleg
brot á vop-,ahIéinu þurfa allir
nefndarmen-i að vera samdóma
til þess að ákvarðanir þeirra
séu bindand'.
Framhald á 8. síðu.