Þjóðviljinn - 20.07.1954, Page 3
Þriðjudagur 20. júlí 1954 — ÞJÓÐVILJINN — (3
síldin 5 sinnum meiri en í fyrra
in 5 sinnum minni
84 skip hafa fengið 500 mál og tnnniir
Sexiugur í dag:
Þorlákur G. Ottesén
Síðastliðinn laugardag, 17. júlí, kl. 12 á hádegi hafði
síldveiðiflotinn fyrir Norðurlandi lagt á land afla sem hér
segir: (f svigum eru tölur frá fyrra ári)
í bræðslu 74.575 mál (15.637)
í salt 12.529 tunnur (69.627)
í frystingu 5.782 tunnur (3.962).
Aflamagnið í heild er því aðeins meira en á sama tíma
í fyrra en hinsvegar er saltsíldin miklu minni en bræðslu-
síldin aftur á móti miklu meiri.
Atvinnumálaráðuneytið hefur
nú veitt 188 skipum síldveiði-
leyfi en ekki munu þau öll hafa
farið til veiða enn.
Vitað er lun 173 skip, sem
hafa fengið einhvern afla en af
þeim hafa 84 skip aflað meira
en 500 mál og tunnur saman-
lagt. — Togarinn Jörundur er
hæstur með 2480 mál og tunn-
ur, en af bátunum er Baldur
frá Dalvík hæstur með 1732,
þá Síldin, Akureyri með 1459
og Sigurður, Siglufirði með 1457
— Fer hér á eftir skrá yfir þau
skip:
Botnvörpusldp Mál og tn.
Egill Skallagrímss. Rvík 941
Jörundur Akureyri 2.480
Önnur skip
Akraborg Akureyri 868
Arinbjöm Rvík 652
Ásgeir Rvík 635
Áslaug Rvík 553
Atli Vestmannaeyjum 652
Baldur Vestmannaeyjum 1.260
Baldur Dalvík 1.732
Bára Flateyri 1.212
Bjarmi Dalvík 1.187
Bjárni Jóhanness. Akran. 673
Björg Siglufirði 701
Björg Neskaupstað 1.174
Björgvin Dalvík 565
Björgvin Keflavík 543
Bjöm Jónsson Rvík 1.017
Böðvar Akranesi 891
Dux Keflavík 1.108
Einar Hálfdáns Bolungav. 859
Einar Ólafss. Hafnarfirði 650
Einar Þveræingur Ólafsf. 805
Erlingur ni. Vestmeyjum 597
Erlingur V. Vestmeyjum 733
Fagriklettur Jlafnarfirði 612
Fanney Reykjavík 855
Freydís Isafirði 782
Frigg Vestmannaeyjum 524
Garðar Rauðuvík 1.042
Guðbjörg Neskaupstað 561
Gullborg Vestmeyjum 628
Starfsmenn BFV á
ferðalagi
Stjórn Byggingarfélags
verkamanna í Reykjavík bauð s.
l. laugardag starfsmönnum fé-
lagsins, verkamönnum og iðnað-
armönnum, ásamt konum þeirra
til skemmtiferðar austur á
Rangárvelli. Var komið þar við
á ýmsum merkum sögustöðum,
m. a. var komið að Keldum og
hin fornu bæjarhús og jarð-
göngin frægu skoðuð, og enn-
fremur var farið að Odda og
komið þar í kirkjuna. Á leið-
inni að Keldum var ekið fram
hjá Gunnarsholti og fékk
ferðafólkið glögga hugmynd um
það mikla ræktunarstarf, sem
þar hefur verið unnið, þar sem
gráum auðnarsöndum hefur ver
ið breytt í gróðursæl tún. —
Þátttakendur í förinni voru um
120. Ferðin var farin í tilefni
15 ára afmælis félagsins.
Gylfi Rauðuvík 1.035
Hafbjörg Hafnarfirði 786
Hafnfirðingur Hafnarfirði 712
Hagbarður Húsavík 556
Hannes Hafstein Dalvík 787
Helga Rvík 839
Hreggviður Hafnarfirði 513
Ingvar Guðjóns Akureyri 551
ísleifur II Vestmeyjum 636
Islendingur Rvík 637
Jón Finnsson Garði 843
Jón Guðmundss. Keflavík 550
Kári Vestmannaeyjum 706
Kári Sölmundars. Rvík 865
Keilir Akranesi 1.345
Kristján ólafsfirði 773
Már Vestmannaeyjum 906
Marz Rvík 597
Mímir Hnífsdal 664
Mummi Garði 909
Muninn II. Sandgerði 812
Njörður Akureyri 659
Páll Pálsson Hnifsdal 744
Pétur Jónsson Húsavík 758
Reykjaröst Keflavík 870
Reynir Vestmannaeyjum 577
Rifsnes Reykjavík 793
Runólfur Grundarfirði 1.118
Sigrún Vestmannaeyjum 871
Sigurður Siglufirði 1.457
Sigurður Pétur Rvík 949
Sigurfari Vestmaeyjum 849
Sigurfari Hornafirði 535
Sjöfn Vestmannaeyjum 623
Sjöstjarnan Vestmeyjum 633
Smári Hnífsdal 540
Snæfell Akureyri 2.812
Steinunn gamla Keflavík 827
Stígandi Ólafsfirði 874
Súlan Akureyri 1.459
Svanur Akranesi 567
Sveinn Guðmunds Akran. 567
Sæmundur Keflavík 554
Trausti Gerðum 804
Valþór Seyðisfirði 532
Víðir Eskifirði 892
Vísir Keflavík 840
Von Grenivík 867
Von n. Hafnarfirði 662
Völusteinn Bolungavík 568
Vörður Grenivík 770
Þorsteinn Dalvík 573
Þorlákur G. Ottesen verk-
stjóri hjá Reykjavíkurhöfn er
sextugur í dag.
Þorlákur hefur jafnan tekið
Þorlákur G. Ottesen.
mikinn þátt í félagsinálum og
gegnt fjölmörgum trúnaðar-
störfum innan þeirra samtaka
sem hann hefur unnið í og
helgað krafta sína. Hann var
um sKeið í stjórn Dagsbrúnar
og síðar'í stjórn stéttarsamtaka
verkstjóra. Hann hefur jafnan
haft brennandi áhuga fyrir
hagsmunamálum alþýðunnar og
hefur ekki sízt síðari árin helg-
að samvinnusamtökum hennar
starfsorku sína og forustuhæfi-
leika. Þorlákur er varaformað-
ur Kaupfélags Reykjavíkur og
nágrennis og formaður er hann
í Hestamannafélaginu Fák.
Þorlákur Ottesen er maður
með afbrigðum vinsæll af öll-
um sem kynnast honum og
þeirra vinsælda nýtur hann ekki
sízt meðal vinnufélaga sinna,
sem jafnan eiga í honum trygg-
| an vin og hollan ráðgjafa. Þjóð-
viljinn vill nota þetta tækifæri
til að færa Þorláki Ottesen
beztu afmælisóskir og þakkir
frá reykvískri alþýðu með ósk
um að hagsmunasamtök henn-
ar fái sem lengst að njóta á-
gætra starfskrafta hans of ör-
uggrar leiðsagnar.
Um inargar leiðir að velja hjá
Ferðaskrifstofa ríkisins
í þessari viku og um næstu helgi efnir Ferðaskrifstofa
ríkisins til skemmtiferða, eins og hér segir:
Á föstudagiiin verður farið að
Geysi og Gullfossi. A austurleið
ekið um Mosfellsheiði og stanz-
að á Þingvöllum og skoðaðir
sögustaðir, síðan ekið suður með
Þingvallavatni og niður í Gríms-
nes, þar sem skoðað verður Ker-
ið. Þaðan liggur leiðin upp að
Stóra-Geysi í Haukadai og verð-
ur hann látinn gjósa. Frá Geysi
liggur leiðin til Gullfoss. Auk
þess að skoða fossinn aetti eng-
inn að láta hjá líða að ganga
upp klettana þar fyrir ofan til
þess að njóta hins dýrlega út-
sýnis til Jarlhettna og Lang-
jökuls. Á heimleið verður komið
við í Hveragerði og síðan ekið
um Hellisheiði til Reykjavíkur.
Á laugardag hefst tveggja
daga ferð til Þórsmerkur. Lagt
verður af stað eftir hádegi á
laugardag og ekin Suðurlands-
leið allt til Fljótshlíðar og síðan
inn á Þórsmörk um Krossáraura
allt inn í Langadal og þar tjald-
að. Daginn eftir, sunnudag, verð-
ur svo Mörkin skoðuð, gengið inn
á Stóra-Enda, í Stakkholtsgjá og
víðar, eftir því, sem tími vinnst
til. Um kvöldið komið aftur til
Reykjavíkur.
Sama dag hefst og tveggja
daga ferð til Kerlingarfjalla og
Hveravalla. Ekið verður upp hjá
Gullfossi og Hvítárvatni allt upp
á Hveravelli á Kili, þar sem
gist verður. Daginn eftir verður
ekið og gengið á Kerlingarfjöll
og svo heim um kvöldið.
Á sunnudaginn verða farnar
tvær ferðir:
1. Geysis- og Gullfossferð líkt
og að ofan er lýst..
2. Hringferð um Hafnarfjörð,
Kleifarvatn, Krísuvík, Strandar-
kirkju, Hveragerði, Þingvelli og
Mosfellsheiði til Reykjavíkur.
Hestaferð um Borgarfjörð:
Á fimmtudaginn 22. júlí hefst
fjögurra daga hestaferð um
Borgarfjarðarhérað. Lagt verður
af stað frá Hvanneyri og riðið að
Reykholti, Varmalandi, Hreða-
vatni, Svignaskarði, Ferjukots-
bakka og til baka til Hvann-
eyrar.
Strandarkirkja á nær % millj.
kr. í hinnm Almenna Idrkjusjóði
Áhoit og giafir til hirkjunnar námu um
210 þús. króna á síðasta ári
Birt hefur verið skýrsla biskups um eignir kirkna í hin-
um Almenna kirkjusjcöi. Samkvæmt henni nam eign
Strandarkirkju í sjóðnum í árslok 1953 samtals rúmlega
1 millj. 436 þús. króna.
í árslok 1952 átti kirkjan 1
millj. 117 þús. króna í sjóðnum
og hefur eign hennar því aukizt
um rúmlega 260 þús. á síðasta
ári. Þar af hafa vaxtatekjur
verið um 51 þúsund kr. en inn-
lög, gjafir og áheit, um 210 þús-
undir og munu aldrei hafa verið
meiri á einu ári. Til samanburðar
Sumarauki Ferðask r i f stof u n na r
Önnur ferðin til Norðurlanda, hin suður
að Adríahafi
Ferðaskrifstofa ríkisins er að undirbúa tvær utanlands-
ferðir handa þeim, sem vilja lengja sumarið með því að
njóta sólar Evrópulanda, þegar hér fer að halla sumri.
Önnur ferðin er til Norður-
landa: Með skipi til Bergen og
svo með lest til Osló, Stokkhólms,
Gautaborgar og Kaupmannahafn-
ar. Heimferð að vild með skipi
eða flugvél. Þessi ferð hefst
þann 14. ágúst.
Hin ferðin er 25 daga megin-
landsferð. Siglt með Gullfossi til
Fiagin veiði á
vestur-
svæóinu
Siglufirði.
Frá fréttaritara Þjóðviljans.
Engin veiði hefur verið á
vestursvæðinu, en á sunnudag-
inn komu hingað 5 bátar og voru
saltaðar hér um 2000 tunnur. í
gær komu tveir bátar með um
300 tunnur til söltunar.
í fyrrinótt sá síldarleitarflug-
vélin þrjú síldaraugu út af
Haganesvik, en þar hefur síldar
ekki orðið vart fyrr í sumar.
Kaupmannahafnar, en.ekið það-
an í bifreið suður til Þýzkalands
og Sviss og yfir Alpafjöll, allt til
Feneyja suður yfir Adríahaf.
Þaðan liggur leiðin svo aftur
norður yfir Alpafjöll til Austur-
ríkis og gegnum Bayern í
Þýzkalandi til Frankfurt. Þaðan
verður haldið heim flugleiðis.
Með þessari tilhögun vinnst
nægur tími til þess að halda
kyrru fvrir nokkra daga í hverju
landi og skoða það markverð-
asta í góðu tómi.
Ferðin hefst 4. september.
má geta þess að 1952 var lagt inn
á reikning Strandarkirkju I sjóðn
um 166 þús. kr., 1951 138 þús.,
1950 um 109 þús. og litlu meira
1949.
Sú kirkja, sem á næst mest
fé í hinum Almenna kirkjusjóði
er Hallgrímskirkja í Saurbæ.
Eign hennar í árslok 1953 var 86
þús. 709 krónur. ísafjarðarkirkja
átti á sama tíma um 54 þús. kr.,
kirkjubyggingarsjóður í Höfn 36
þús. kirkjusjóður Grafarness 34
þús. og Dómkii-kjan í Reykjavík
32 þús. kr. Minnst var inneign
Einholtskirkju í Austur-Skafta-
fellsprófastsdæmi kr. 1,39.
Fassney missti
nét og bát
Fanney fékk um 1000 mál í
nótina og sökk nótabáturinn
(sem er ekki nema einn). Náð-
ust ekki nema 200 mál af kast-
1092 tmmur salt-
aðar í fyrradag
á Húsavík
Húsavík í gær.
Frá fréttaritara. Þjóðviljans.
Saltaðar voru hér í gær 1092
tunnur. Mörg skip eru væntanieg
i dag og búumst við að. mikið
verði saltað.
Fyrsta síldin til
Seyðisfjarðar
Seyðisfirði í gær.
Frá fréttaritara Þjóðviljans.
Sjöstjarnan frá Vestmanna-
eyjum kom hingað með fyrstu
sildina í gær. Afli var 400 míl
og tunnur. Af aflanum fóru
100 tunnur i frystingu, 131
tunnur voru sáltaðar, og 150
mál fóru í bræðslu. Síidin
veiddist fjóra til fimm tinia
undan landi. Bátar sénniiega
norðarlega i dag, um Langa-
nes.