Þjóðviljinn - 20.07.1954, Page 6
6) — ÞJÓÐVTLJINN — Þriðjudagur 20. júlí 1954
þJÓOVIUINN
Wtgefandl: Sameinlngarflokkur alþýðu — Sósíalistaflokkurinn.
Rltstjórar: Magifús Kjartanssón (áb.), Sigurður Guðmundsson.
Fréttastjóri: Jón Bjarnason.
Blaðamenn: Ásmundur Sigurjónssor.. fijarni Benediktsson. GuB-
mundur Vigfússon, Magnús Torfi Ólafsson.
Auglýsingastjóri: Jónstéinn Haraldsson.
Ritstjóm, afgreiðsla, auglýsingar, prentsmiðja: Skólavörðustíg
19. — Sími 7500 (3 línur).
Áakriftarverð kr. 20 á mánuðl i Reykjavik og nágrenni; kr. 1T
annars staðar á landinu. — Lausasöluverð 1 kr. eintakið.
Prentsmiðja Þjóðviljans h.f.
Er stefrit aS þ m aí gera íslendinga að
ölmHsumönnam hernámsins?
Rösklega brír fjórðu af hinum afkastamikla togaraflota lands-
manna hefur nú vikum saman legið við landfestar og stöðvunin
vofir yfir þeim fáu togurum sem enn stunda fiskveiðar. Orsak-
ir þessa ófremdarástands eru kunnar allri þjóðinni. Arðrán
einokunarhringanna og milliliðanna er að sliga fjárhag togara-
útgerðarinnar og afkoma togarasjómanna er með þeim hætti
að togaraútgerðin er ekki samkeppnisfær um vinnuaflið við aðr-
ar atvinnugreinar í landinu.
Eigi að síður er það ómótmælanleg staðreynd að rekstur tog-
araflotans hefur verið og er ein þýðingarmesta og traustasta
undirstaða íslenzks atvinnulífs. Framleiðsluafköst nýsköpun-
artogaranna og dugnaður íslenzkra togarasjómanna skarar
fram úr öllu því sem þekkt er í þessum efnum með öðrum
íiskveiðiþjóðum. I raun og veru skilar togarflotinn stórfelld-
um gróða enda viðurkennt af öllum sem til þekkja að fiskfram-
leiðslan og fiskútflutningurinn sé grundvöllur þeirra fram-
kvæmda sem þjóðin hefur með höndum og undirstaða þeirra
lífskjara sem aimenningur býr við. En stór hluti þess gróða sem
togaraútgerðin skapar lendir á skökkum stað. Hann verður her-
fang fámennrar gróðaklíku sem tekur allt sitt á þurru landi og
kemur hvergi nærri áhættu og erfiði framleiðslustarfanna.
Fyrir nær þremur mánuðum fól Alþingi nefnd manna að
rannsaka hag og rekstur togaraútgerðarinnar dg gera tillögur
til úrbóta sem tryggt gætu heilbrigðan starfsgrundvöll skip-
anna. Það er vitað að í raun og veru hefur nefndin lokið störf-
itm og skilað áliti til ríkisstjórnarinnar. Samt sem áður líður
vika eftir viku án þess að frá ríkisstjórninni heyrist hósti eða
stuna. Hún heldur algjörlega að sér höndum meðan þeim skipum
fjöigar sem gefast upp og sjómennirnir leita sér í vaxandi mæli
annarar og arðvænlegri atvinnu. Og möguleikarnir á að takast
megi að framleiða upp í þá sölusamninga sem geröir hafa verið
eru í augljósri hættu.
Allt þetta ætti ríkisstjórninni og stjórnarflokkunum að vera
ijóst. Forustumenn stjórnarflokkanna eru engir óvitar sem ekki
sjá og skynja hvert stefnir með sama áframhaldi. En hvað er þá
að? Hver er raunveruleg orsök þess að ríkisstjórn landsins
hqrfir á það sljóum augum að ein helzta undirstöðuatvinnugrein
landsmanna leggist í rúst og að þeim hagstæðu og þýðingar-
miklu viðskiptasamningum sem gerðir hafa verið við aðrar þjóð-
ir sé stefnt í vfirvofandi hættu?
Skýringin virðist liggja í augum uppi. Núverandi stjcrnar-
flokkar líta ekki á sig sem ábyrga aðilja gagnvart íslenzkri
þjóð og framtíð hennar. Þeim liggur í léttu rúmi þótt sjálfstæðu
islenzku efnahagslífi blæði út og þjóðarinnar bíði í vaxandi mæli
hiutskinti ölmusumannsins sem er upp á aðra kominn með af-
komu sína alla. Þeir hafa fært þjóðina í viðjar amerísks her-
náms og skert nýfengið sjálfstæði hennar, sært heilbrigðan
metnað hennar og selt sóma hennar. Þeir vita sig seka gagn-
vart þjóð og sögu. Þeim er ljós djúp og heilbrigð andúð þjóð-
arinnar á atferli þeirra öllu og að þeim íslendingum fer sífellt
fjöigandi sem þrá að rísa upp og verða virkir þátttakendur í
þeirri baráttu sem ein getur leitt til þess að hemáminu verði
kHt af þjóðinni og að hún endurheimti full og óskoruð yfirráð
í öiium sínum málum.
Hernaðaráætlun ríkisstjómarinnar og stjcrnarflokkanna virð-
i vera sú að leggja íslenzkt atvinnulíf í rúst og beina vinnu-
afli þjóðarinnar sem allra mest í drápsframkvæmdir hernáms-
liðsins. Með öðru verður atferli hennar ekki skýrt. Þannig á að
koma þjóðinni í þá aðstöðu að hún sé upp á hemámsliðið komin
með atvinnu sína og fjárhagsafkomu. Ríkisstjcrnin treystir því
að þegar svo sé komið dragi úr heilbrigðri mótspyrnu fólksins
og kröfum þess um afléttingu hernámsins. Þannig virðist stefnt
að því vitandi vits að eyðileggja íslenzkt atvinnub'f til þess að
gera Islendinga að skríðandi ölmusumönnum hins ameríska her-
nárns. Ep þessi hernaðaráætlun spilltustu hernámsaflanna má
ekki og 'mun ekki heppnast. Sameinuð og sterk verður þjóðin að
rísa gegn þessum fyrirætlunum stjómarflokkanna og hindra að
þær nái fram að ganga.
Það er víst mál til komið að
minnast á fréttir útvarpsins
einu sinni enn. Fréttaaukar
þess eru oft með því ánaegju-
legasta, sem það býður. Jafnvel
þótt samtal sé stirt og sofanda-
legt, eins og var á þriðjudags-
kvöldið um skriðuföllin í
Skagafirði og á Öxnadalsheiði,
þá getur blær samtalsins verið
svo heimalegur og hlýr, þegar
gætt er tilgerðarleysis, að mað-
ur kemst í enn nánara samband
við atburðina, sem um er rætt,
heldur en þó flutt væri hið
greinilegasta erindi. Fréttaauk-
inn frá skriðuföllunum í Skaga-
firði og á Öxnadal var miklar
fréttir um atburði, sem ollu
miklu tjóni, ægilegir atburðir
þeim, er næstir bjuggu eða
komust á annan hátt í per-
sónulegt samband við þá.
En svo voru það önnur
skriðuföll í öðrum fréttaauka.
Og það voru miklu ægilegri
skriðuföll, sem grafið hafa mik-
ið af gróðurlendi landsins ekki
aðeins undir aurum og urðum,
heldur öðru enn verra, og ekki
aðeins gróðurlendið, sem við
höfum undir fótum, heldur eigi
síður andans gróðurlendi þess-
arar þjóðar, einnig margan
blettinn, sem mörg alúðarstund-
in hefir verið lögð við að rækta.
Og það var fréttaauki, sem
ekki átti heima í fréttum frem-
ur en persónulegt álit undirrit-
aðs á einum eða öðrum þætti
útvarpsdagskrárinnar.
Það voru fréttir, að yfirmað-
ur Atlanzhafsbandalagsins sé
kominn hingað til lands. Það
eru meira að segja mjög rniklar
fréttir og svo sorglegar fréttir,
að ástæða hefði verið að að-
vara með ‘sorgarlagi og gefa
einnar mínútu þögn á eftir til
bænahalds. Það gat líka heyrt
undir fréttir, hverjir lögðust
svo lágt hér á landi að sitja
með honum til borðs. Það lá
líka beint við að Iáta þess
getið, ef hann hélt ræðu. Þá
gat einnig verið rétt að geta
þess sem sérstaklega fréttnæms
atriðis, ef hann hefði sagt eitt-
hvað af viti, en hefði þó ekki
verið smekklegt athæfi. En
ræðu hans, fyrst á ensku, siðan
á íslenzku, slíkt heyrir ekki
undir fréttaflutning. Enn einu
sinni er verið að reyna að troða
því i.nn í þessa þjóð, að land
hennar sé til einskis nýtt nema
sem aðseturstaður manndráp-
ara með tilheyrandi tækjum og
það rökstutt með þeim raka-
leysum, sem við höfum hlýtt á
í meira en hálfan tug ára og
eiga engan sinn líka aniian en
lök úlfsins fyrir því að eta
lambið. Nú má enginn taka
orð mín svo, að ég sé að áfell-
ast Fréttastofuna fyrir að hlýða
fyrirskipunum um að taka
glæpsamlegan þvætting á sína
vegu, eins og manndómsástand
er nú yfirleitt á landi hér. En
ekki getur maður varizt að
spyrja út í geiminn, hve langt
þess muni að bíða, að svo verði
þrýstingurinn öflugur frá al-
menningsálitinu á íslandi, að
Fréttastofan sjái sér ekki ann-
að fært en að segja sem svo,
ef hún fær kröfu um að birta
svona ræðustúf í fréttaauka:
Þetta er ekki frétt og Frétta-
stofan má ekki af sínum tíma
sjá til áróðurs á sviði alþjóða-
mála fram yfir það, sem vér
tökum orðrétt frá Lundúnaút-
s í ó u slu viku
■■ ■- ■ • v -nt. : J
varpinu, en þar eru svona fyr-
irlestrar aldrei fluttir í frétta-
tíma, og væri það því brot á
hefðbundnum reglum vorum
um útvegun og birtingu frétta.
Verðum vér því að vísa frá ósk
um birtingu í fréttatíma. Og
svo þegar málið kemur fyrir út-
varpsstjóra, þá segir hann:
Atlanzhafsbandalagið er mjög
merkilegur félagsskapur og
mikið rannsóknarefni. Sumir
segja, að það haíi miklu góðu
til vegar komið og hafa þeir
mikið til síns máls. Aðrir segja
að það hafi verið, sé og muni
verða eingöngu til bölvunar, og
er ekki hægt að neita því, að
það eru miklar likur til, að þeir
hafi á réttu að standa. Og þar
sem við höfum nú hlotið heima-
stjórn fyrir atbeina Hannesar
Hafsteins, þá tel ég rétt, að
við frestum málinu, þar til
rannsókn hefur farið fram á
því, hvort það muni verða ís-
lenzku þjóðinni til blessunar,
eða hvort það muni rháske
verða henni til bölvunar, að út-
lendingar fái þetta land til
fullra umráða í því augnamiði
að tryggja það, að allir ís-
lendingar verði drepnir, ef tak-
ast mætti að koma á nýrri
heimsstyrjöld, en persónulega
er ég alveg á móti þvi, að verið
sé að stríða eins og ég mun
einhverntima hafa tekið fram.
Eg legg þvi til, að Útvarpsráð
biðji Hjörvar, ég meina Iielga
en ekki Daða Hjörvar, að
geyma þennan enska ræðustúf,
þar til rannsókn hefur farið
fram á þessa flókna, en á marg-
an hátt mjög merkilega máli,
sem varðar svo mjög velferð
þessarar þjóðar, einkum ef líf
hennar kynni að vera í veði. —
Svona bjartir hlutir geta vitr-
azt manni nú á tímum, enda
sagði Hannes Hafstein einu
sinni: „Sú kemur tíð, að sárin
foldar gróa“.
Þá vildi ég enn einu sinni
láta í Ijós mina botnlausu
hneykslun út af aumingjaskap
Fréttastofunnar í sambandi við
nafngiftir. Áður var þess getið,
að frelsishetjur Túnisbúa voru
kallaðir bófar í fréttum útvarps-
ins. Einn morgun þessarar viku
hétu þeir hryðjuverkamenn. Er
Fréttastofunni það eitthvert
metnaðarmál, að taka ekki
bendingum um að verða sér
ekki til skammar? Þá var þess
getið í fréttum vikunnar, að
Páll Robson hefði fengið frið-
arverðlaun kommúnista. Er
það Kominform, sem veitti hon-
um þessi verðlaun? Eða var
það eitthvert kommúnistariki
og þá hvert? Eða voru það ein-
hverjir ákveðnir nafnkenndir
kommúnistar, sem skutu sam-
an handa honum, og þá hverj-
ir? Eða var það kannske bara
heimsfriðarhreyfingin, s e m
veitti honum þessi verðlaun,
og hvernig mætti það þá ske,
að Fréttastofa Útvarpsins sé
ekki vandari að virðingu sinni
en það að fara ekki rétt með
nöfn heimsfrægra stofnana eða
vita ekki hvað hún er að segja?
— Benedikt Gröndal flutti er-
indið frá útlöndum. Erindið var
vel samið og efnislega viðun-
andi eftir atvikum.
Góð erindi þessarar viku
voru: Fyrra erindi Sigurbjörns
Einarssonar prófesors um Mú-.
hameð spámann. Sigurbjörn er
í hópi ágætustu fyrirlesara okk-
ar, þegar ekki þarf á öðrum
kostum að halda en fræði-
mennsku og ræðulist. Þá var
þáttur Steindórs Steindórssonar
um gróður landsins ágætur.
Standa fáir eða engir fræði-
menn Steindóri framar í Ijósri
og alþýðlegri framsetningu
fræða sinna. Er það hvort
tveggja, að gróður lands stend-
ur nærri áhuga almennings og
Steindór kann tökin á að leiða
fræðsluna út frá þeim punktum
sem tala þegar til hlýðandans.
— Ekki var ég fyllilega sam-
mála Baldri Bjarnasyni um
Lloyd George, en erindi hans
var skemmtilegt og væri æski-
legt, að Baldur kynnti fræga
menn útlandsins oftar en hann
gerir.
Samfellda dagskráin um svif-
flugið þótti mér takast vel.
Fréttir frá fulltrúaráðsfundi
Kvenréttindafélags íslands
veittu góða fræðslu um félags- '
samtök sem manni finnst
stundum að meira mættu láta
til sín taka, svo margt sem enn
er óunnið á vettvangi þess. ;—
Dagur og vegur var frísklegur
hjá Brodda Jóhannessyni og
kom hann víða við, sem vera
ber. En ekki var mér ljóst
hvert hann fór með eitur-
nautnaflugi sínu. Stundum
hlýtur maður ekki ómerkileg-
an fróðleik við að hlusta á
dóma hæstaréttar hjá Hákoni
Guðmundssyni.
Héraðslýsing Matthíasar frá
Kaldrananesi var mjög skýr og
látlaus. Hann hef ég með mestri
hófsemi heyrt ræða gegn hern-
aði og um kosti hirj-s íslenzka
sveitalífs og ást á fornum hátt-
um, en fáir hafa þó gert það á
áhrifameiri hátt. —- Stefán
námsstjóri heldur enn áfram
landafræði sinni og sögu í
barnatíma sunnudagsins.
Stundum nálgast hann það, að
vera fullhátíðlegur, en það er
eitthvað við flutning hans og
raddhreim, sem forðar því að
verða að sök. Hátíðleiki hans
er sneyddur því að vera upp-
gerð. — Kvæði Davíðs Áskels-
sonar voru góð, einlæg tjáning,
hugmyndalega sterk og vel
kveðin. Persónuleiki þessa
unga skálds virðist vera svo
sterkur, að honum ætti að vera
hættulaust að hlusta á kveð-
skap hinna yngstu ljóðskálda
og athuga, hvort ekki mætti
hann eitthvað af þeim læra,
er formi ljóða hans mætti
verða til bóta.
Heimur í hnotskurn hefur
runnið sitt skeið á eðlilegan
og farsælan hátt. í hennar stað
er kominn franskur gaman-
reifari, kominn til ára sinna, én
Sveinn Skorri Höskuldsson flyt-
ur hann rösklega og á allan
hátt vel við sögunnar hæfi.
Laugardagsins er að engu
getið að þessu sinni, en ekki
með öllu víst, nema hans kunni
að verða getið í næsta þætti.
G. Ben*