Þjóðviljinn - 01.09.1954, Side 6

Þjóðviljinn - 01.09.1954, Side 6
6) .— ÞJÓÐVILJINN — Miðvikudagur 1. september 1954 Iuóoviuinn öíjjeíand!: Samelnlrvgarflokkur alþýðu — Sósiallfltaflokkurlnn, HÍtstJórar: Magnúa Kjartanaaou (áb.), SigurOur Guto undsstm. IPréttastJórl: Jón Bjarnason. BlaOamenn: Áamundur Sigurjónssor.. Bjarni Benediktsson, OuO- tnundur Vigfússon, Magnús Torfl Ólafsson. Anglýsingastjórl: Jónsteinn Haraldsson. Ritstjórn, afgrelösla, auglýslngar, prentsmlOJa: BkólavörOustt# 1». — Síml 7600 (3 lxnur). JLskriftarverfl kr. 20 á mánuOi i Reykjavík og nágrennl; kr. 11 annars staöar á landinu. — LausasöluverO 1 kr. eintakiO. PrentsmiOJa jÞJÓOvilJans h.f. s Ibyrgð og ábyrgðarleysi Árum saman hafa afurðasölumál íslendinga verið eitt helzta viðfangsefni stjórnmálabaráttunnar, eins og eðli- legt er, þar sem sala framleiðslunnar er undirstaða at- vinnullífs og allrar afkomu þjóðarinnar. Hefur mjög skor- izt í odda milli sósíalista annarsvegar og stjórnarflokk- anna hinsvegar. Með marsjalláætluninni var íslandi flækt inn í kalda stríðið við lönd sósíalismans, viðskiptin aust- ur á bóginn skorin niður í algert lágmark en í staðinn reynt að koma afurðunum í verð meðal þeirra þjóða sem eru helztu keppinautar okkar á sviði fiskveiða. Sós- íalistar bentu þegar í upphafi á þaö að þetta væri stór- hættuleg stefna, markaðirnir !í Sovétríkjunum og Austur- evrópulöndunum væru hinir mikilvægustu fyrir íslend- inga, bæði öruggir og hagstæðir. Urðu oft mjög harð- vítugar deilur um þessi mál, bæöi blööum og á Alþingi, og munu flestir enn minnast þeirra ræðna sem Bjarni Benediktsson flutti um afurðasölumál ár eftir ár, þar sem hann kepptist við að svívirða viðskiptalönd okkar í Austurevrópu og taldi sjálfsagt að skera allar sölur þangað niður. Reynslan hefur nú á ótvíræöasta hátt skorið úr þess- um deilum. Marsjallstefnan leiddi algera kreppu yfir ís- lenzkan sjávarútveg, afurðirnar seldust ekki þrátt fyrir verðhrun, freðfiskurinn hrúgaðist upp í landinu, aftur og aftur greip stjórnin til þess ráðs að banna flotanum að stunda veiðar. Og í þokkabót urðum við fyrir hinni verstu viðskiptakúgun af ,,vinaþjóðum“ þeim sem flæktu okkur inn í marsjallkerfið, og náði hún hámarki sínu með brezka löndunarbanninu. Þessi lélegu viðskiptaár marsjalltímabilsins hafa haft af þjóðinni hundruö millj- óna króna í erlendum gjaldeyri, hærri upphæðir en hinar margrómuðu „marsjallgjafir". Þannig var reynslan og nú hafa stjórnarflokkarnir neyðst til aö draga af henni réttar ályktanir og fara inn á þá braut í viðskiptamálum sem sósíalistar einir bentu á. Hefur það að sjálfsögðu verið þungbær raun fyrir Bjarna Benediktsson og félaga hans, en árangurinn er ótviíræður; afurðasala íslendinga er nú ekkert vanda- mál; nú skortir á að hægt sé að fullnægja eftirspurn- inni sökum óstjórnarinnar í efnahagsmálum. En sósíalistar hafa ekki látið sér nægja aö rekja í ræðu og riti þá stefnu sem er í samræmi við hagsmuni íslend- inga; þeir hafa blátt áfram neytt stjórnarflokkanna til að taka upp skynsamlegri stefnu. Árið 1950 fór Einar Olgeirsson þannig til Austurþýzkalands og kom aftur með tilboð frá þarlendum stjórnarvöldum um að kaupa af íslendingum sjávarafurðir fyrir 30—40 milljónir króna. Var þetta fullkomið tilboö og mjög hagstætt ís- lendingum; það vantaði aðeins formlega undirskrift. Stjórnarvöldin íslenzku ætluðu þá vitlaus að verða og lýstu yfir því að engin slík viðskipti við Austurþýzka- land kæmu til greina, og skrifaði Bjarni Benediktsson tugi greina í Morgunblaðið af því tilefni. Þó voru þessi viðskipti komin á tveimur árum síðar! Og nú hefur sama sagan endurtekið sig. Þeir Lúðvík Jósepsson og Ársæll Sigurösson hafa flutt ríkisstjórninni mjög hagkvæmt tilboö frá Austurþýzkalandi um kaup á ísfiski fyrir þriðjungi hagstæðara verð en fékkst íí Vestur- þýzkalandi í fyrra. Og nú hafa'-stjórnarflokkarnir vitkast það mikið að ekki eru enn hafin nein geðbilunarskrif í íslenzkum blöðum og nefnd er komin austur. Er þess því að vænta að ekki líði tvö ár þar til þetta tækifæri er notað. Stjórnarblöðin birta stundum kynlegar greinar um það að þau vilji fá „ábyx’ga stjórnarandstöðu“. Ósennilegt má þó telja að fundin verði ábyrgari stjórnarandstaða en íslenzki Sósíalistaflokkurinn sem hefur aftur og aftur lagt hin hagstæðustu viöskiptatilboð upp í hendurnar á ríkisstjórninni. En á hitt hefur skort að stjórnarvöldin ættu til ábyrgöartilfinningu, þótt með harðri baráttu hafi nú tekizt að þoka þeim inn á skynsamlegri brautir. Þáttaskil í Vestur-Evrópu Fall Evrópuherslns afdrifarikur ósigur yfirdrottnunarstefnu Bandarikjasfjórnar Akvörðun franska þingsins að vísa frá með rökstuddri dagskrá samningnum um stofn- un Vestur-Evrópuhers táknar þáttaskil í sögu Vestur-Evrópu. Síðan heimsstyrjöldinni síðari lauk hefur æðsta úrskurðar- vald í málum meginlandsríkj- anna í vesturhluta Evrópu ekki verið í höndum ríkisstjórna þeirra og þinga heldur í utan- ríkisráðuneytinu í Washington. Ríkisstjórnirnar sern setið hafa þar að völdum síðan Marshall- áætlunin hófst, hafa í raun réttri verið f jarstýristæki stjórnarhferranna í Washington, notaðar til að koma Vestur- Evrópurikjunum inn á þær brautir, sem Bandaríkjastjórn hefur viijað vera láta á hverj- um tíma. Nú hefur fjarstýring- in farið úr skorðum í fyrsta skipti í sjö ár. Eftir nærri hálfs þriðja árs átök við erindreka Bandaríkjastjórnar í Frakk- landi, hefur skýlaus vilji frönsku þjóðarinnar orðið yfir- sterkari valdboðinu frá Wash- ington og komið Evrópuhernum fyrir kattarnef. Málalokin eru beizkur ósigur fyrir utanríkisstefnu Bandaríkjanna en í Evrópu er það páfastóllinn í Róm og stjórnmálafiokkar kaþólskra, sem orðið hafa fyrir þyngsta áfallinu. Þrír kaþólskir stjórn- máiaforingjar, Adenauer í Vestur-Þýzkalandi, De Gasperi á Ítalíu og Georges Bidault í Frakklandi, voru guðfeður hug- myndarinnar um sameinaða „Smá-Evrópu“, byggða á grunni Evrópuhersins. Hann átti að sameina Vestur-Þýzkaland, Frakkiand, Ítalíu og Niður- lönd, kjarnann úr hinu forna Heilaga þýzk-rómverska keis- araríki. Það hrófatildur liðað- ist í sundur, enda var það hvorki heilagt, rómverskt né ríki, svo notuð séu orð fyndins sagnfræðings. Evrópuherinn og Smá-Evrópa fæddust andvana. ekki fyrst og fremst vegna bess að sameina átti nokkurn hluta Vestur-Evrópu, heldur var banameinið það að þessi ríkja- samsteypa hefði orðið banda- rísk hálfnýlenda, útvarðstöð Bandaríkjanna í átökum við Sovétríkin. Sameining Eviópu er ísmeygilegt vígorð, en það gekk sér svo til húðar í bar- áttu Adolfs Hitlers gegn komm- únismanum að John Foster Duiles varð ekkert gagn að því í þágu sama málstaðar. Svo hefur atvikazt að Evrópu- herinn og einn af þrem að- ---------------------\ Erl e*n d tíðindi _________________:___/ al málsvörum hans fylgjast að í gröfina. Feigðarmerkin á hernum fengu svo mjög á Al- cide de Gasperi að þau drógu hann bókstaflega til dauða. Um fyrri helgi* þegar ráðstefna ut- anríkisráðherra Evrópuríkj- anna í Brussel var að hefjast, var De Gasperi loks orðið ijóst, að hverju fór. Þessi fyrrver- andi forsætisráðherra Ítalíu og forseti kaþólska flokksins sá óskabarn sitt komið á heljar- þröm. Hann vakti grátandi við símann alla nóttina og ræddi um það við vini sína, hvort ekki væri hægt að gera ein- hverjar björgunarráðstafanir. Þegar dagaði var De Gasperi orðinn magnþrota og áður en sól var af lofti hafði hann and- azt úr hjartabilun. Hann sprakk af harmi yfir afdrifum Evrópu- hersins. llfl'eð De Gasperi hefur ka- þólski flokkurinn á ftalíu misst frábæran foringja, sem með einstakri lægni og forystu- hæfileikum hélt hinum sundur- leita flokki saman og átti með því úrslitaþátt í því að hindra valdatöku verkalýðsflokkanna á ftalíu. En síðustu árin var það alitaf að verða ljósara, að leikni hans var ekki einhlít tí! lengdar. Kaþólski flokkurinn tapaði í hverjum kosningunum á fætur öðrum og De Gasperi hröklaðist úr forsætisráðherra- stólnum. Nú stendur flokkur- inn uppi án þessa einingartákns síns og samþykkt franska þingsins hefur kippt fótunum undan utanríkisstefnu ítölsku ríkisstjórnarinnar. Hún hafði treyst því að Smá-Evróoa myndi verða að veruleika og við það myndu leysast ýmis vandamál ftala, allt frá dci!- unni við Júgóslava um Trieste til þeirra úrlausnarefna, sem fylgja örri fólksfjölgun. Nú eru þær vonir úti. Við það bætist að ítaiska ríkisstjórnin má eiga von á því að missa alla banda- ríska hernaðaraðstoð. Ríkis- stjórnin hafði dregið nð knýja fram á þingi fullgildingu samn- ingsms um Evrópuher í þeirri von að það myndi verða fyrir- bafnerminna ef Frakkland fuHgiiti hann á undan. Nú hef- ur franska þingið^gert ítölsku stjórmnni þann grikk að fella srmninginn og hún má þvi þú- ast við að ákvæði bandarískra laga um að svipta baa riki hernrðaraðstoð, sem ekki i:afa fulJgilt samninginn fvrir r.æstu áramót, nái ekki síður ’.il ítalíu en Frakklands. TT'ndalykt Evrópuhersins mun " draga dilk á eftir sér viðar í Vestur-Evrópu en á Ítalíu. Fréttaritari brezka útvarpsins í Bonn komst svo að orði í gær, að úrslit atkvæðagreiðsíunnar í franska þinginu nálguðust- það að vera rothögg á Adenau- er forsætisráðherra og nánustu fylgismenn hans í Vestur- Þýzkalandi. Ástandið í beim herbúðum má nokkuð marka af því, að þingmaður úr flokki forsætisráðherrans, yfirmaður leyniþjónustunnar og aðrir á- hrifamenn í Vestur-Þýzkalandi hafa hver á fætur öðruui hlaup- izt á brott til Austur Þýzka- lands síðustu vikurnar. Þ-ir hafa þeir fordæmt undirlægju- hátt Adenauers gagnvart Bandaríkjunum og gerzt liðs- menn í baráttunni fyrir samt-in- ingu Þýzkalands með friðsam- legu móti. Ollenhauer, foringi sósíaldemókrata, helzta stjórn- arandstöðuflokksins, hefur lát- ið svo um mælt að atkvæða- greiðslan í franska þinginu hafi sýnt að utanríkisstefna rikis- stjórnarinnar sé komin í ógöng- ur. Breyta verði um stefnu án tafar. Eina færa leiðín fyrir Vestur-Þýzkaland sé að hvetja Vesturveldin til að taka boðl Sovétstjórnarinnar um nýjan fjórveldafund, þar sem rædd Framhald á 11. síðu. Steinm þeirea, 'hefur fmSiS shipforot Konrad Adenauer John Foster Dulles Georges Bidault

x

Þjóðviljinn

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Þjóðviljinn
https://timarit.is/publication/257

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.