Þjóðviljinn - 24.10.1954, Síða 1

Þjóðviljinn - 24.10.1954, Síða 1
VILIINN Sunnudagur 24. október 1954 — 19. árgangur — 242. tölublað Samningar undirritaðir um fullveldi Vestur-I>ýzkalands, hervæðingu þess og aðild að Atlanzhafsbandalaginu Adenauer og Mendés-France urSu á síSustu stundu ásáttir um málamiSlun til lausnar Saardeilunni Eftir fundi sem stóðu langt fram á fyrrinótt og íram efir degi í gær tókst þeim Mendés-France og Adenauer á síðustu stundu að finna Iausn á Saar- deilunni og var þá ekkert lengur til fyrirstöðu að undirritaðir væru þeir þrír samningar, sem gerðir voru í París í vikunni. Samningarnir öðlast fyrst gildi, þegar þing allra aðildarríkja þeirra hafa fuli- gilt þá. Samningarnir fjalla um 1) fullveldi Vestur-Þýzkalands, 2) hervæðingu þess og aðild að Bandalagi Vestur-Evrópu og 3) aðild þess að Atlanzhafsbanda- laginu. Langir fundir í fyrrakvöld voru ekki horfur á, að samkomulag myndi takast um lausn Saardeilunnar, en franska stjórnin hafði gert slíkt samkomulag að skilyrði fyrir því, að hún undirritaði samning- ana þrjá. Eden bauð þeim Mend- es-France og Aderiauer til kvöld- verðar í fyrrakvöld og reyndi að miðla málum. Að loknum. kvöld- verðinum komu Adenauer og Mendes-France saman á fund ásamt sérfræðingum sínum og stóð sá fundur fram til kl. þrjú um nóttina. í gærmorgun héldu þeir áfram viðræðum sínum á tveim fundum og náðist þá sam- komulag. Mendes-France gaf síð- an stjórn sinni skýrslu um niðurstöðuna, og féllst hún á þá lausn, sem fundin hafði verið. Lagt undir Bandalag Vestur- Evrópu Heiztu atriði samkomulagsins um Saar eru þessi: Héraðið verð- ur lagt undir Bandaiag Vestur- Evrópu. Ráðherranefnd banda- lagsins mun skipa landstjóra þess, sem verður að vera Evrópu- maður, en þó ekki franskur, þýzkur eða úr héraðinu sjálfu. Utariríkismál og landvarnamál héraðsins verða í höndum hans. Þýzkir flokkar leyfðir Þá gekk Mendes-France að þeirri kröfu vesturþýzku stjórn- í>---------------------------<$> Trúnaðar- manna- og futl- trúaráðsfundur n.k. miðvikudag Fundur verður haldinn í Fulltrúa- og trúnaðarmanna- ráði Sósíalistafélags Reykja- víkur n. k. miðvikudag, kl. 8.30 e. h. í Baðstofu iðnaðar- manna. Þar sem mörg áríðandi mál- efni liggja fyrir fundinum er þess vænzt að meðlimir beggja ráðanna fjölmenni. <S- ÆFII Munið fundinn í Góðtemplara- húsinu kl. 2 í dag. — Stjórnin. Sild á stóra svæði við Reykjanes Landhelgisgæzlan hefur látiö leita síldar undanfarið í Faxaflóa og við Suðurnes og fannst í fyrrinótt síld á stóru svæöi 5—10 sjómílur norður og vestur af Geirfugla- drang. af Geirfugladrang. Voru þau tekin eftir tvær klst, og fékkst stór og falleg síld. Net voru einnig lögð 10 sjójnílum vestar og fékkst þar einnig síld, en nokkru misjafnari en í fyrra skiptið. Þar vestur frá óð síld- in kringum skipið. Þarna fengu skipverjar einn- ig bæði ufsa og þorsk á færi, á 45 m dýpi. Víðar hefur verið leitað síld- ar. Dýptarmælir gaf t.d. til kynna miklar fisktorfur inn all- an Hvalfjörð, en engin síld fékkst þar í net og þegar til kom var þarna sandsíld á ferð. Síldarleit þessi var framkv. fyrir tilmæli Landssambands ísl. útvegsmanna. Var tilgang- urinn að reyna að komast að raun um hvort hægt væri að halda reknetaveiðunum áfram. Áður en norðanveðrið gerði á dögunum hafði leitarskipið fundið með dýptarmæli allmik- ið fiskmagn við Geirfugladrang, en ekki var þá hægt vegna veðurs að leggja net. I fyrrinótt fór leitarskip á þessar slóðir og fann með dýgtarmæli mikið fiskmagn á stóru svæði. Voru þá lögð net 5-7 sjómílur misvísandi norður arinnar, að hinum þýzksinnuðu stjórnmálaflokkum héraðsins, sem hingað til hafa verið bann- aðir, verði leyft að starfa. Þó er sleginn sá varnagli, að bannað verður að hafa í frammi áróður fyrir annarri skipun mála en ráð er fyrir gert í samkomulag- inu, þegar það hefur verið sam- þykkt af Saarbúum í þjóðarat- kvæðagreiðslu. Sú atkvæða- greiðslá á að fara fram innan þriggja mánaða. Samkomulagið verður aðeins í gildi, þar til gerðir verða endanlegir friðar- samningar við Þýzkaland og gildistími þess getur orðið skemmri ef stjórnir Vestur- Þýzkalands, Frakklands og Saar- héraðs koma sér saman um, að því þurfi að breyta. Frakkar afsala sér ítökum Saar verður áfram í gjaldmið- ils- og tollabandalagi við'Frakk- lánd og Frakkar halda enn ítök- um sinum í efnahagslífi Saar- héraðs, þó sleppa þeir sumum. Losað verður um eftirlit þeirra með kola- og stálframleiðslu og samgöngum héraðsins, og stjórn kolanámanna verður nú lögð í hendur stjórnar héraðsins, en Frakkar hafa hingað til rekið þær, en borgað leigu fyrir. Enn er eftir að ganga frá ýmsum á- kvæðum varðandi þessi atriði, og verður sérfræðingum falið að gera það. Þær fréttir, sem í gær höfðu borizt af þessu samkomulagi, bera með sér, að Mendes-France hefur orðið að láta undan mörg- um kröfum Adenauers, og þá fyrst og fremst þeirri, að sam- komulag, sem gert væri nú, mætti ekki vera endanlegt, held- ur yrði haldið opinni leið fyrir sameiningu héraðsins við Þýzka- land. Stjórn Mendes-France hef- Framhald á 5. siðu Dagsbrúnar- ' fundur annað 1 kvöld VerkamánnafélagiS Dagsbnin heldur fund í Iðnó annaðkvöld kl. 8:30. Þar verða rædd ýniis félagsmál, lagabreytingar, samn ingar félagsins ofl. Með þessum Dagsbrúnarfundt hefst vetrarstarf félagsins og er þess vænst að félagsmenn fjölmenni og taki þátt í um. ræðum og afgreiðslu þeirra mála sem á dagskrá eru. Ætl- ast cr til að menn hafi skýr- teini sín með og sýni þau við innganginn. Sr. Kristján Róbertssoii með flest atkvæði I gær fór fram talning at» kvæða í prestskosningunni á Akureyri. Úrslit urðu þau að sr. Krist- ján Róbertsson fékk flest at« kvæði, 1063, næstur var sr. Birgir Snæbjörnsson með 1043. Sr. Jóhann Hlíðar fékk 823, sr. Þórarinn Þór 264 og sr. Stefán Eggertsson 150. — Auðir seðl- ar voru 17 og ógildur 1. Kosn* ingin er ólögmæt. Á þetta að endurtaka sig? Það eru ekki liðin nema rétt rúmlega 15 ár, síðan pessi mynd var tekin að morgni 1. september 1939, pegar pýzk- ar hersveitir réöust gegnum hliðin á landamœrum Pól- lands og hófu par með heimstyrjöldina. Nú er œtlunin að fá peim mönnum, sem undirbjuggu pessa árás, aftur vopn í hönd, og peir hafa ekki farið didt með til hvers peir ætla að nota pau. Sovétstjórnin býður enn upp á samninga um Þýzkaland Rétt áður en utanríkisráðherrar Vesturveldanna sett- ust við’ borð í Paris til að undirrita samningana um end- urhervæðingu Vestur-Þýzkalands voru sendiherrum Bret- lands, Bandaríkjanna og Frakklands í Moskva afhentar samhljóSa orösendingar frá sovétstjórninni þar sem enn er lagt til, aö hafnir veröi samningar um sameiningu þýzku landshlutanna. ^ Þessar orðsendingar sovét- stjórnarinnar eru svar við orð- sendingu Vesturveldanna þriggja frá 10. september s. 1. Sú orð- sending var aftur svar við tveim orðsendingum sovétstjórnarinn- ar frá því I sumar og var í báð- um lagt til, að haldin yrði ráð- stefna um Þýzkajand og öryggis- mál Evrópu yfirleitt. í orðsend- ingu Vesturveldanna var lýst yf- ir, að þau væru fús til slíkra samninga, ef sovétstjórnin féllist fyrst á að undirrita friðarsamn- inga við Austurríki og leyfa í „frjálsar og óháðar“ kosningar í öllu Þýzkalandi, áður en samein- ing þess fer fram og saminn frið- ur við það. Hernámslið á brott í gærkvöld liafði þessi sið- asta orðsending sovétstjórnarinn- ar enn ekki verið birt, en vitað var um helztu atriði hennar. Last er til að stjórnir Banda- ríkjanna, BretJands, Frakklands og Sovétrikjanna haldi með sér ráðstefnu, þar sem fjögur mál verði á dagskrá: Sameining Þýzkalands, frjálsar kosriipgar í landinu, brottflutningur allra er- lendra herja úr þvi og öryggis- mál Evrópu. Ráðstefnan verði haldin i næsta mánuði. Mendes-France og Eden ræðast við Þegar eftir að orðsendingin barst til Parísar í gær koiru Eden og Mendes-Erance samart til að ræða hana. Búizt er við. að þeir Dulles og Eden muni fresta brottför sinni frá París vegna orðsendingarinnar. Klukkunni seinkað í nótt atti að seinka. klukkunni, bannin að kl. yrði hún flutt til kl. 1. Munduð bér eftir klukkunni?

x

Þjóðviljinn

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Þjóðviljinn
https://timarit.is/publication/257

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.