Þjóðviljinn - 24.11.1954, Blaðsíða 4
4)___ÞJÓÐVILJINN — Miðvikudagur 24. nóvember 1954
| Ódýrt! Ódýrt!
[ Haustvörurnar komn-
1 ar, mikið vöruúrval.
Gjaíverð
| Vörumarkaðurinn,
ílverfisgotu 74:
■■■■■•■*■•■■*■■■•■■••■■■■■■■
\"~—'Jf
°°Ur istf^
tÚHðl6€Ú0
si&uumoKroRSoa
Minningarkortin eru til sölu
í skrifstofu Sósíalistaflokks-
ins, Þórsgötu 1; afgreiðslu
Þjóðviljans; Bókabúð Kron;
Bókabúð Máls og menning-
ar, Skólavörðustíg 21; og í
B<fl averzlun Þorvaldar
Bjarnasonar í Hafnarfirði.
AllT
FYRiR
KjÖTVERZLAMtR.
’iuf H.Tciti»Or* GreUiSJotu 3. Jin*ií60360.
Skósalan,
Hverfisgötu 74.
im fengið nýjar birgðir
dýrum dömuskóm, inni-
m og karlmannaskóm.
SK6SALAN.
Hverfisgötu 74:
Samkvæmt ályktun bæjarstjérnar eru hér
með auglýstar til sölu
IB íbúðir
í Bústaðahverfi
Umsóknareyðublöö', þar sem greindir eru sölu-
skilmálar, veröa afhent í bæjarskrifstofunum,
Hafnarstræti 20 (Hótel Heklu), í dag (miðviku-
dag) kl. 5-7 e.h., og síðan daglega kl. 1-7 e.h. til
n.k. þriðjudags, og verða þar veittar nánari upp-
lýsingar.
Umsóknum skal skilað á sama stað fyrir kl. 7
e.h. þriðjudag 30. þ.m.
Umsóknir, sem þegar hafa borizt, þarf að end-
urnýja á eyöublööunum.
Skrifstofa borgarstjóra, 24. nóvember 1954.
Hlutaveltufargan — Pöddur í vinning — Verðmerk-
ingar í búðargluggum — Ólag á póstmálum
NÚ GENGUR mikill hlutáveltu
faraldur yfir bæinn. Það líð-
ur varla svo sunnudagur að
ekki séu hlutaveltur í mörg-
um bæjarhlutum. Krakkar
eru sérlega sólgnir í að fara
á hlutaveltur, þau búast að
heiman með alla aura sem
þau geta halað inn og búast
við að koma heim með fangið
fullt af dýrgripum, en oft fer
svo að þau koma einungis
heim með nokkra þvælda
bréfrniða, leið og vonsvikin.
Þetta eru happdrættismiðar.
Þeir virðast vera svo marg-
falt fleiri en hinir ómerkilegu
munir sem á borðunum liggja,
að varla eru dæmi til þess að
fólk komi með annað í hönd-
unum út af hlutaveltunum.
En þó brá svo við á sunnu-
daginn var að lítil táta kom
heim til sín með búðings-
pakka sem hún hafði dregið
á hlutaveltu. Og auðvitað átti
að búa til búðing með ananas-
bragði strax um kvöldið. En
þegar pakkinn var opnaður
reyndist innihaldið heldur ó-
félegt, pokinn með búðings-
duftinu allur myglaður og
skreið þar að auki út í pödd-
um. Það hefur verið mikill
höfðingi sem gaf þennan búð-
ingspakka á hlutaveltuna!
BÆJARPÓSTURINN hefur
verið beðinn að koma því á
framfæri við kaupmenn að
þeir geri meira af því en hing-
að til að verðmerkja glugga-
sýningarvörur sínar. Einu
sinni létu Neytendasamtökin
þetta mál til sín taka og verð-
launuðu kaupmann einn fyrir
verðmerkingar. En mikið
skortir á að verðmerkingar í
gluggum séu almennar. En
þetta er mikið hagsmunamál
fyrir neytendur að þurfa ekki
að fara inn í verzlun til að
spyrja um verð á gluggavöru,
þótt þeir hafi ef til vill ekki
í hyggju að kaupa hana. Það
er tímasparnaður fyrir fólk
sem er á hraðri ferð og það
ætti að ganga ríkar eftir því
að þetta sé gert.
LOKS kemur hér bréf um ó-
viðunandi fyrirkomulag á
póstmálum. — E.S. skrifar:
„Kæri bæjarpóstur. — Eg er
ein af þeim^ sem er svo lán-
söm að búa í einni smáborg-
inni út frá aðalborginni, með
öðrum orðum: einu úthverfi
Reykjavíkur. Ef nú svo illa
tekst til að ég þarf að póst-
leggja, þótt ekki sé meira en
eitt ómerkilegt bréfspjald,
verð ég að gjöra svo vei og
arka með það niður í bæ og
alla leið á sjálft aðalpósthús-
ið, séu frímerkPekki til í skrif
borðsskúffunni. — Óneitan-
lega væri það bæði tíma- og
peningasparnaður, gæti mað-
ur labbað sig út að næsta
götuhorni og póstlagt bréf
hvenær sem væri. Erlendis
þætti það fyrirkomulag sem
hér ríkir í póstmálum algjör-
lega óviðunandi, sem og einn-
ig er. Nú fara jól í hönd og
um leið mesti annatími hjá
starfsfólki pósthúsanna, og
veldur það viðskiptavinum,
sem oft eru tímabundnir,
miklum óþægindum. En þeim
óþægindum er ekki hægt að
komast hjá nema með því að
skipa póstmálunum í betra
horf. — Við skulum vona að
það verði fyrir jólin 1955. —
E.S.“
SJ.ES.
-s>
Léttum störf
húsmæðranna
Hrærivélar ... ....... kr., 2060,00
Suðuplötur ........... kr. 152,00
Suðuplötur ........... kr. 310,00
Vöfflujárn ........... kr. 262,00
Vöfflujárn ........... kr. 428.00
Saumavélamótorar .. kr. 365.00
Ryksugur ............. kr. 1050,00
Ryksugur ............. kr. 1190,00
Rafmagnsofnar ........ kr. 189,00
Bónvélar . ........... kr. 1208,00
Hraösuðukatlar ....... kr. 142,00
Hraðsuðukatlar ....... kr. 202,00
Hraðsuöukatlar ....... kr. 228,00
Hraðsuöukatlar ....... kr. 275,00
Hraðsuöukatlar ....... kr. 308,00
Hraðsuðukatlar ....... kr. 369,00
Rafmagnskaffikvarnir kr. 300,00
Skálar og þeytarar í Dormeyerhrœrivélar
Búsáhaldadeild
O
Bankastrœti 2 — Sími 1248
UPPBOÐ
verður haldinn við SVENDBORG í Hafnarfiröi í
dag og hefst kl. 1 e.h.
Þar veröa seld veiðarfæri o. fl.
Greiðsla fari fram við hamarshögg.
Bæjarfógetinn í Hafnarfiröi, 23. nóv. 1954.
Guðmundur í. Guðmundsson
Sinfóníuhljómsveitin
Ríkisútvarpið
Tónleikar
í Þjóðleikhúsinu föstudaginn 26. nóvember klukk-
an 7 síðdegis.
Stjómandi: RÓBERT A. OTTÓSSON
Einleikari: SHURA CHERKASSKY frá New York
VERKEFNI:
Debussy: „Ský“ (,,Nuages“ — Nocturne 1)
Mozart: Sinfónía nr. 41, K. 551, í C-dúr
(„ J úpiters-sinf óní an‘ ‘)
Tschaikowsky: Píanókonsert í b-moll op. 23.
Aðgöngumiöar seldir í Þjóðleikhúsinu.
Þjóðviljinn
ER BLAÐ ISLENZKKAE ALÞÍÐU — KAUPH)
HANN OG LESIÐ