Þjóðviljinn - 24.11.1954, Page 8
8)’ — ÞJÓÐVILJINN — Miðvikudagur 24. nóvember 1954
ÍÞRÓTTIR
RlTSTJÓRl FRtMANN HELGASON
Handknattleiksmótið:
/
Armann og Valur keppa
til úrslita í kvöld
' Handknattleiksmót Reykja-
VÍkur hélt áfram á sunnudag
og fóru þá fram þrír leikir.
Aðalleikurinn var milli Fram
og Vals. Var almennt gért ráð
fyrir nokkrum yfirburðum hjá
Valsmönnum en það var aðeins
í byrjun leiksins eða í fyrri
hálfleik, sem þeir héldu örugg-
um yfirburðum og lauk hálf-
leiknum með 10:7. En siðari
hálfleikur var mjög jafn og
endaði með aðeins eins marks
mun fyrir Val eða 14:13.
Framarar börðust af lífi og
sál og var Hilmar Ólafsson
höfuðstoð þeirra bæði í sókn
og vörn, og gerði hann 5 mörk-
in.
Valsmenn náðu ekki eins góð-
um leik og móti KR. Ef til vill
hefur þá líka munað nokkuð
um að hafa Val Benediktsson
ekki með en hann var ekki heill
heilsu.
ÍR-ingar byrjuðu allvel móti
Víkingi. Eftir 12 mín. voru
Getrannaspá
Islenzkar getraunir 38. Ieikvika
Leikir 27. nóvember 1954
Arsenal-Wolves 2
iBurnley-Tottenham 1
Cardiff-Blackpool 1
Chelsea-Portsmonth 2
Everton-Bolton 1(2)
Leicester-Sheffield W 1
Manch. City-Charlton (l)x
Newcastle-Huddersfield 2
Preston-Sunderland x 2
Sheff.Utd-Aston Villa x
W.B.A.-Manch.Utd 1(2)
Hull City-Fulham (1) 2
þau jöfn með 5:5 en úr því
fór að draga í .suhdur með
þeim því í hálfleik stóðu leikar
8:5, og leiknum lauk með sigri
Víkinga 17:10. Leikur Víkings
var oft léttur og leikandi er
á leið, en ÍR-ingar virðast ekki
sterkir í augnablikinu . Þorgo'r
Þorgeirsson var ekki með að
þessu sinni og veikti þetta lio-
ið nokkuð.
Síðasti leikur kvöldsins var
milli Ármanns og Þróttar. Ár-
menningar gengu rösklega til
leiks og með það fyrir augum
að skora eins og þeir gætu,
og léku oft létt og hressilega
og tókst oft skemmtilega vel
að komast í skotfæri við mark
Þróttar. Þetta var líka nauð-
synlegt fyrir Ármann með til-
liti til þess möguleika að þeim
tækist að sigra Víking þó með
litlum mun væri, og tækist
þeim svo að sigra Val í úrslita-
leiknum hefðu þeir hagstæðari
markatölu sem næði til vinn-
ings. Þróttur byrjaði vel, og
eftir 11 mín. í fyrri hálfleik
stóðu leikar 6:7 Ármanni í vil,
en Þróttarar stóðust ekki ákafa
Ármenninga. Bættu Ármenn-
ingar 4 mörkum við en Þrótt-
arar einu til leikhlés og þeir
héldu áfram í síðari hálfleik og
skoruðu 9 mörk en Þróttur að-
eins fjögur.
Ármann vann Víking 17:9
Á mánudaginn fóru þeir leik-
ir fram sem fresta varð vegna
rafmagnsleysis í Hálogalandi,
sunnudaginn 14. nóv. Leikur
Ármanns og Víkings fór svo [
að Ármann sigraði með yfir- [
burðum eða 17:9. Sigri Ár- [
mann því Val hafa bæði félög- [
in jafna stigatölu en Ármann [
betri markatölu, en Ármann ■
tapaði eins og áður hefur verið ■
frá sagt fyrir KR 13:11. Leik- [
ur KR og ÍR fór þannig, að ■
KR vann með aðeins eins *,
marka mun 13:12 og kom það
á óvart.
Úrslitin fara fram í kvöld og [
keppa þá Valur og Ármann — ■
Þróttur og IR — KR og Fram. j
10 rétta
■
:
■
Úrslit leikjanna í 37. leik- [
viku:
Aston Villa 1 — Preston 3 2 [
Blackpool 1 — Manch City 3 2 [
Bolton 2 — Newcastle 1 1 [
Charlton 5 — Everton 0 1 ■
Huddersfield 3 — WBÁ 3 x ■
Manch. Utd. 2 — Arsenal 1 1 ■
Portsmouth 1 — Cardiff 3 2 ■
Sheff. Wedn. 1 — Chelsea 1 x [
Sunderland 1 — Bumley 1 x ■'
Tottenham 5 — Leicester 1 1 ."
Wolves 4 — Sheff. Utd. 1 1 I
■
Doncaster — Stoke City fór [
ekki fram. — :
■
Bezti árangur reyndist 11 [
réttir, sem komu fram á ein- :
faldri fastri röð. Verður vinn- ■
ingurinn fyrir seðilinn 942 kr. ■
Næsti vinningur varð kr. 530 ■
fyrir seðil með 9 réttum j
í 2 röðum. Vinningar skipt- ■
ast þannig:
1. vinningur: 942 kr. fyrir [
10 rétta (1).
2. vinningur: 235 kr. fyrir [
9 rétta (4).
3. vinningur: 10 kr. fyrir 8 [
rétta (88). »
942 hr fyrir
s
Til skattgreiðenda í Reykjavík !
Skattgreiðendur í Reykjavík, athugið, að veru- [
leg vanskil eru orðin á greiðslu allra skatta frá •
árinu 1954, sem enn eru ógreiddir. Lögtök eru [
hafin til tryggingar sköttunum, og er skorað á É
menn að greiða þá hið fyrsta. .. [
•Atvinnurekendur bera ábyrgð á, að haldið sé eft- [
ir af kaupi starfsmanna upp í skatta við hverja
útborgun, einnig í desember.
■
■
■
u
Tollstj óraskrifstofan, Arnarhvoli,
19. nóvember 1954.
Ét sá dýrð hans, \
m
u
■
sýnd í Stjörnubíói sunnu- *
■
daginn 28. nóvember klukk- j
an 14.30. — Séra L. MUR- [
DOCH flytur erindi um j
efnið:
„Máttur kærleikans“
Einsöngur:
Guðmundur Jónsson,
óperusöngvari. j
■
■
■
■
' ■
Aðgöngumiðar eru afhentir ókeypis í Stjörnubíói og j
Ritfangaverzlun Isafoldar, Bankastræti 8, og er jafn- j
’y u
u
framt hægt að fá prentaða lýsingu á kvikmyndinni.
Skrifstofustúlka óskast
■
■
■
■
B
■
J ■
f ■
Stúlka vön vélritun og með nokkra málakunn- [
áttu (stúdentsmenntun) getur fengið vinnu í j
Landspítalanum strax eða um n.k. áramót.
Skriflegar umsóknir með upplýsingum um ald-
ur, menntun og fyrri störf sendist til yfirlæknis [
handlæknisdeildar Landsspítalans fyrir 1. des. n.k. [
■
•*— ■
■
Skrifstofa ríkisspítalanna.
Happdrætti íslenzkra getrauna
Vinningar samtals 201 sem geta orðið kr. 285.000,00
1 vinRÍngur minnst 50.000,00 gefur orðið 115.000,00 kr.
20 vinningar, sem hver getur orðið 5355,00 kr.
180 vinningar sem hver getur orðið 355,00 kr.
Happdrættismiðar fást hjá umboðsmönnum fslenzkra
getrauna og öllum íþrótta- og ungmennafél. landsins.
Söluverð er kr. 10,00. — Kaupið miða strax í dag!
Happdrættinu lýkur laugardaginn 18. desember 1954.
Allur ágóðinn rennur til íþróttastarfseminnar í land-
inu.