Þjóðviljinn - 24.11.1954, Blaðsíða 11
Miðvikudagur 24. nóvember 1954 — ÞJÓÐVILJINN
Benedikt Sveinsson
Framhald af 7. síðu.
Island hefur fullt drottinvald
yfir öllum sínum málum, en
viðskiptum landanna er skip-
að með samningum, er endur-
nýjast á fárra ára fresti.
'Hér af leiðir, að aldrei geti
komið til mála að gera Dani
jafnréttháa oss hér á landi
þótt þeir leyfi hið sama á móti,
því að þeir eru þrítugfjlt
fleiri en vér og auk þess miklu
auðugri. Þessar kröfur mun
þjóðin láta fram þera af sinni
hendi og eigi íeyfa að samn-
ingar takist, sé nokkurs í fátt.
En verði oss neitað um þessar
réttlátu og hóflegu kröfur, þá
gerum vér skilnað. (Ingólfur,
13. ágúst, 1906).
Islenzkri sjálfstæðisbaráttu
varð aldrei síðan hvikað frá
þeim miðum, sem hér voru
mörkuð, þrátt fyrir ýmis áföll
og riðl í fylkingunum. Sam-
fylking íslenzkra stjórnmála-
leiðtoga og alþýðunnar í land-
inu náði hámarki í hinum
sögufrægu alþingiskosningum
1908, er minnihlutaálit Skúla
Thoroddsen olli umskiptum í
kjósendafylgi flokkanna og
skipaði meirihluta þjóðarinn-
ar um þá kröfu, að ísland
yrði sjálfstætt ríki í konungs-
sambandi við Danmörku. Þá
urðu þáttaskil í íslenzkri þjóð-
arsögu — íslendingar höfðu
brennt skip sín: á braut
sjálfstæðisbaráttunnaf var
ekki önnur leið fær en leiðin
fram til fulls sjálfstæðis.
Benedikt Sveinsson greiddi
atkvæði gegn Sambandslögun-
um 1918. Ótti sá og áhyggja,
er hann bar í brjósti um
framkvæmd Sambandslaganna,
reyndist að vísu ástæðulaus.
Efnalegu og pólitísku sjálf-
stæði íslands stafaði ekki
hætta af Dönum. Óveðursský-
in hrönnuðu sig í annarri
himinátt. Benedikt Sveinsson
fekk að lifa þá stund, er Is-
land sleit síðustu tengslin, er
knýttu það við Danaveldi. Á
þeirri stundu mun honum hafa
hlegið hugur í brjósti.
Þegar rimmunni lauk með
Dönum og Islendingum 1918
breyttist allur grundvöllur
flokkaskiptingar í landinu.
Nýjar stjörnur svifu fram á
festingu íslenzkra stjórnmála.
Hinar gömlu hetjur sjálfstæð-
isbaráttunnar hverfa af víg-
vellinum, sumir fyrir aldurs
sakir, aðrir draga sig í hlé.
Þeir sem uppi stóðu urðu
flestir einmana í pólitískum
efnum, fengu lítt samið sig að fiokksins
hinum nýju stjórnmálahátt-
um. Benedikt Sveinsson var
einn í hópi þessara manna.
Þótt hann liyrfi ekki út úr
stjórnmálum, þá var sem
hann fyndi litla löngun til að
bregða sínum gamla brandi á
því vopnaþingi, sem nú var
háð.
Ég kynntist Benedikt Sveins-
syni lítið eitt á stríðsárunum
og næstu árum þar á eftir.
Sjaldan hef ég þekkt jafn
drengilegt ljúfmenni. Fáa
hefði grunað, sem ekki vissu
betur, að þar færi einn hvass-
yrtasti ræðumaður íslenzkrar
sjálfstæðisbaráttu. Þó kom
það fyrir, að honum hitn-
aði í skapi, þegar hann
minntist liðinna ára, og þá
varð brúnin aftur hvöss og
maður mátti heyra niðinn af
fallvötnum íslenzkrar sögu.
Sverrir Kristjánsson.
Þahhar- og niinningarorð
frá satn f erðantan n i "■
Rétt eftir aldamótin var fað-
ir minn á ferðalagi frá
Reykjavik til Seyðisfjarðár. Á
þeirri ferð kynntist hann ung-
um manni, er varð honum sam-
ferða á þessari leið. Á þeim
árum stóð baráttan milli Valtý-
inga og heimastjórnarmanna
um stjórnarbótamálið, og hvar
sem fundum manna bar saman
var sjálfstæðismálið jafnan
efst á baugi. Ræddi faðir minn
mikið við hinn unga samferða-
mann sinn m. a. um þetta mál,
sem báðir höfðu brennandi á-
huga á. Var faðir minn Váltý-
ingur en hinn ungi maður á-
kveðinn heimastjórnarmaður.
Föður mínum þótti maður þessi
óvenjulegur að gáfum og
glæsimennsku, og þegar heim
kom sagði hann mér frá honum
og viðræðum þeirra. En þessi
maður var Benedikt Sveinsson.
Frá því leið rúmlega áratug-
ur þangað til að ég kynntist
Benedikt Sveinssyni persórtu-
lega. En um þær mundir sem
faðir minn kynntist honum og
ég heyrði hans fyrst getið, var
hann að hefja sinn glæsilega
stjórnmálaferil. Eg fylgdist svo
sem unnt var með stjórnmála-
starfi hans og las með áfergju
hinar snilldarlegu ritgerðir
hans, er birtust í blöðum þeim,
sem hann veitti forstöðu á
þessum árum. Eg hreifst jafnt
af einlægri og drengilegri bar-
áttu hans fyrir sjálfstæði þjóð-
arinnar og máli hans, sem í
senn var þróttmikið og rammís-
lenzkt. Hann var ætíð í broddi
fylkingar og missti aldrei sjón-
ar á lokatakmarkinu, fullveldi
íslands. m
Fyrst var hann ásamt Einari
Benediktssyni og Einari Gunn-
arssyni í ritnefnd Landvarnar
1903, síðan 1905 til 1909 rit-
stjóri Ingólfs, en þá stóð bar-
áttan um Uppkastið 1908, er
endaði með sigri Sjálfstæðis-
á Heimastjórnar-
eða Uppkastsfylgj-
um verið aldavinir og hélzt sú
vinátta okkar æ síðan.
Eins og að ofan er ritað
voru kynni mín af Benedikt
Sveinssyni fram að 1914 óper-
sónuleg. Eg hafði til þess tíma
hvorki heyrt hann eða séð, ein-
ungis fylgzt með stjórnmála-
ferli hans úr fjarlægð. Þa'ð fer
oft svo að viðhorf þeirra, er
menn hafa haft ópersónuleg
kynni af, breytist mjög er þeir
kynnast þeim persónulega. En
svo varð ekki með kynni okk-
ar Benedikts. Hvort sem ítiaður
stóð við hlið hans eða horfði
á hann úr mikilli fjarlægð var
hann alltaf frábær drengskap
armaður og tigið glæsimenni
svo af bar.
Mál hans var jafn fagurt og
þróttmikið, er hann ræddi við
mann, og ritmál hans, en í
slíkan búning færa einungis
snillingar hugsanir sínar.
Eftir að ég flutti til Reykja-
víkur fyrir rúmum 30 árum
bar fundum okkar Benedikts
títt saman meðan heilsa hans
leyfði og á þeim fundum var
hann ekki einungis hrókur alls
fagnaðar heldur einnig fræðar-
inn sem hver maður varð að
hlusta ó vegna þróttmikils mál-
fars, drengilegs hugarfars og
heiðríkra sjónarmiða.
Þar bar aldrei skugga á.
Að lokum þakka ég Benedikt
fyrir kynninguna, fræðsluna
og drengskapinn. — Um leið
sendi ég ekkju hans Guðrúnu
Pétursdóttur, hinni mikilvægu
konu, og börnum þeirra, alúð-
arfyllstu samúðarkveðjur.
Reykjavik, 22. nóv. 1954.
Sigurjón Jóhannsson.
(frá Seyðisfirði).
MOLOTOFF
Framhald af 6. síðu.
staðfesting Parísarsamkomu-
lagsins mundi gera ástandið í
Evrópu alvarlegra og spilla
möguleikum til lausnar óleyst-
um vandamálum álfunnar, eink-
um Þýzkalands,
Endurhervæðing Vestur-
Þýzkalands og sameining
Þýzkalands á friðsamlegum og
lýðræðislegum grundvelli eru
ósamrýmanlegar. Samningaum-
leitanir um sameiningu Þýzka-
lands eru út í bláinn, ef Banda-
ríkin, Bretland pg Frakkland
hverfa ekki frá stefnu. sinni að
endurhei-væða Vestur-Þýzka-
land og flækja það í hernað-
arban'dalög og snúa í þess stað
aftur til þeirrar stefnu sem
tryggir friðsamlega þróun
Þýzkalartds og mörkuð hefur
verið með alþjóðasamningum.
Þetta sýnir hvers virði er sú
fullyrðing að staðfesting Par-
ísarsamkomulagsins standi
„ekkil végi fyrir frekari samn-
ingum vesturveldanna við Sov-
éríkin um óleyst vandamál Ev-
rópu“.
Spurning: Hvað álítið þér um
(l:T
'I
þá fullyrðingu sem komið hef-
ur fram í blöðum vesturveld-
anna að tillaga Sovétríkjanna
um ráðstefnu allra Evrópuríkja’
29. nóv. gefi svo stuttan frest
að ekki sé nægur tími til undir-
búnings ráðstefnunni?
Svar: Stjórn Sovétríkjanna
flutti tillögu um að stofna til
ráðstefnu allra Evrópuríkja 29.
nóv. sökum þess að í desember
hefjast umræður um staðfest-
ingu Parísarsamkomulagsins.
Þess skyldi minnzt að tillaga
um sáttmála allra Evrópuríkj-
anna um sameiginlegt öryggi
Evrópu var flutt. af Sovétríkj-
pnum á Berlínarráðstefnunni
pg birt fyrir 20 mánuðum. Til-
lagan um ráðstefnu allra Ev-
rópuríkj anna um saméiginlegt
öryggi Evrópu var flutt af
stjórn Sovétríkjanna fyrir fjór-
um mánuðum, 23. júlí. f síð-
ustu orðsendingu sinni birti
hún nánari tillögur um sam-
komudag ráðstefnunnar.
Auðvitað væri hægt að 'kom-
ast að samkomulagi um annan
dag til að kalla hana saman,
ef umræðum um staðfestingu
Parisarsamkomulagsins yrði
frestað.
T i 1
EDWIN ARNASON
1.INDAROÖTU 26 SÍMI 37A3
flokknum
endum.
Sem ritstjóri Fjallkonunnar
1910—1911 stefndi hann hik-
laust að markinu, fullu sjálf-
stæði landsins, þó margir aðrir
Sjálfstæðismenn biluðu. —
Hann gat aldrei orðið neinn
„Bræðingsmaður". Alla þá tíð
þótti mér meira til hans koma
en nokkurs annars, er þá var
á leiksviði íslenzkra stjórnmála.
Utan þings og innan, jafnt á
ræðustóli sem á ritvelli var
hann i mínum augum hinn
glæsilegasti framherji íslenzkr-
ar sjálfstæðisbaráttu. Vantaði
þó sízt, að ísland ætti mikið
mannval um þær mundir.
Persónulega kynntist ég
Benedikt Sveinssyni fyrst árið
1914. Var þá eins og við hefð-
Mjög glæsilegt órval
Tekið íram í dag.
MARKAÐURINN
Laugavegi 100
j
liggar leiSia
Minningarathöfn um
JÓN PÉTURSSON,
Kleppsveg 106, og
GEST SÖLVASON,
Suðurpól 4,
sem fórust með m.b. Áfram 22. október s.l., fer fram
í Laugarneskirkju fimmtudaginn 25. nóvember kl. 13.30.
Athöfninni verður útvarpað.
Aðstandeiulnr.
Nokkur eintök a£
eldri árgöngum
ritsins £ást enn á
afgreiðslunni.
Timaritið
VINNAN
OG VERKA-
LÝÐURINN
Skúlavörðustig 19
Simi 7500