Þjóðviljinn - 04.12.1954, Blaðsíða 4
4) — ÞJÓÐVTLJINN — Laugardagur 4. desember 1954
Framvarp um Gagnfræðaskóla
verkalýðssamtakanna á þlngi
Hsnnibal Valdimarsson flytur á Alþingi frumvarp um aðeins ein leið fær: Bætt lífs-
GagnfræSaskóla verkalýðssamtakanna, og er því ætlaö aö
verða nýr kafli í lögunum um gagnfræSaskólanám.
Er iagt til að einn af skólum
þessa fræðslustigs verði Gagn-
fræðaskóli verkalýðssamtakanna.
Skal hann starfa sex mánuði að
velrinum, frá 1. nóv. til 1. maí
ár hvert. Á sumrin getur skólinn
haft styttri eða lengri námskeið
til hvatningar og fræðslu og fer
kennslan þá aðallega fram í fyr-
irlestrum og frjálslegu náms-
hópastarfi.
Aðalnámsgreinar vetrarskólans
eru íslenzk tunga, íslenzkar bók-
menntir, fslandssaga, einkum
saga og þróun atvinnuveganna,
þjóðfélagsfræði, hagfræði, al-
þjóðamálið esperanto, enska og
eitt Norðurlandamál.
Auk þessara aðalnámsgreina
skal Gagnfræðaskóli verkalýðs-
samtakanna veita ýtarlega
fræðslu um sögu, stjórn og starf
verkalýðsfélaga, samvinnufélaga
og samtaka atvinnurekenda.
Einnig skal skólinn kynna nem-
endum rækilega meginatriði ís-
lenzkrar félagsmálalöggjafar,
sérstaklega vinnulöggjöfina. Þá
skal í öllu starfi skólans brýna
ræki,lega fyrir nemendum skyldr
ur þegnanna og réttindi í lýð-
ræðisþjóðfélagi.
Kenna skal fundarreglur og
fundarstjórn og leiðbeina nem-
endum í að setja fram skipulega
hugsanir sínar í ræðuformi.
Kennslan fari að nokkru fram í
fyrirlestrum. Söngur skal iðkað-
ur daglega í nánum tengslum við
alla kennslu og starfsemi skólans,
Yfirstjórn skólans skipar fimm
manna nefnd er stjórn Alþýðu-
sambands fslands kýs. Ræður
hún skólastjóra og kennara.
í greinargerð segir flutnings-
maður m. a.:
,,Hugmyndin um sérskóla
fvrir verkalýðshreyfinguna
mun vafalaust. koma einhverj-
um ókunnug’efra fvrir í fyrstu.
Ef til vill kann sumum að
finnast slíkt vera blátt áfram
f jarstæðukennd huggnynd. En
ef svo fer, er- því aðeins um
að kenna, að við höfum í þessu
efni dregizt lav,'Tt aftur úr öðr-
um menninaarhjóðum. Dönsk
verkalýðshreyfing hefur t. d.
alliengi átt aðgang að tveim-
ur s'íkum skólum, sem að
ejálfsögðu em kostaðir af rík-
inu eins og aðrir skólar. Þetta
eru lýðháskóiarnir í Hróars-
keldu og Esbjerg. Hliðstæðir
skóiar eru einni'g í Noregi og
Sviþjóð. Em heir ávallt yfir-
fullir og þvk.ia vera hinar
gagnlegustu menningarstofnan-
ir fvrir félagsfólk verkalýðs-
samtakanna og sérstaklega fyr-
ir trúnaðarmenn þeirra og for-
ustuménn.
1 þessum löndum er löngu
viðurkennt, að slíkt skólahald
sé ekkert sérmál verkalýðs-
stéttarinnar út af fyrir sig,
heldur sé slík fræðslustarfsemi
eðlilegur og þýðingarmikill
þáttur í skólakerfi þjóðarinnar.
Nú mæla öll rök með því, að
ríkið sjálft viðurkenni og kosti
kjör, aukið öryggi og víðtæk
þekking alþýðustéttanna á
þjóðfélagsmálum.
Eins og skýrt kemur fram
er skólanum ætlað að haga
námsgreinavali og kennslutil-
skóla verkalýðssamtakanna á högun með svipuðum hætti og
sama hátt og bændaskólar, hús-
mæðraskólar og aðrir skólar fá-
mennari vinnustétta (matsvein-
ar, vélstjórar o. s. frv.) eru að
meira eða minna leyti kostaðir
af ríkisfé. Eða hvers ætti fjöl-
mennasta stétt þjóðfélagsiiis að
gjalda, ef það teldist goðgá að
halda uppi myndarlegum skóla
henni til fræðslu og menntun-
ar?
Sú skoðun ryðúr sér æ meir
til rúms í heiminum, að lýð-
ræðið eigi allt sitt undir al-.
mennri þekkingu og menntun
þegnanna, einkanlega staðgóðri
þekkingu í þjóðfélagsmálum.
Vitrustu menn hafa þegar gef-
ið upp vonina um, að ofstæki
og einræði verði nokkurn tíma
útrýmt með þvingunarlöggjöf
eða fangelsunum. Til þess sé
gefiö hefur góða raun í sams
konar skólum verkalýðssam-
takarma á ' Norðurlöndum. Er
allt við það miðað, að trúnað-
armenn verkalýðsfélaganna á
vinnustöðvum og forustumenn
félaganna eigi þess kost að afla
sér þar praktískrar þekkingar
á félagsstörfum. Þess vegna er
áherzlan lögð á íslenzku, sögii,
hagfræði, félagsfræði og hag-
nýtt tungumálanám.
Skiptir það þjóðfélagið miklu,
að starfsmenn verkalýðssam-
takanna séu sem allra bezt und-
ir þann trúnað búnir, sem
þeim er falinn í fjölmennustu
og voldugustu samtökum þjóð-
félagsins. Þess vegna ber að
leysa" skólamál verkalýðssam-
takanna með almennri laga-
setningu.“
Þegar „dellur" leysast úr læðingi — Draumur upp
á stærsta vinninginn — „Barnakarl'' um hljóm-
plötur
SENNILEGA búa allir í hjarta
sínu yfir smádellu. Stundum
fær enginn nokkurn tíma að
vita hver sú della er, hún bíður
síns tíma og fær ef til vill
aldrei tækifæri til að komast
upp á yfirborðið. En svo gerist
eitthvað sem leysir delluna úr
iæðingi og maður getur ekki
leynt henni lengur. Og svona
hefur það verið með mína
dellu. Hún er nú komin upp á
yfirborðið og tilgangslaust fyr-
ir mig að sverja hana af mér.
Það afræðst í kvöld hvort hún
leggst í dvala að nýju eða fær
byr undir báða vængi. Því að
ykkur að segja er ég með dá-
litla happdrættisdellu. Síðon
ég fékk forláta rottugildru í
tombóluhappdrætti fyrir mörg-
um árum, hef ég haft lúmskan
grun um að ég ætti einhvern
tíma eftir að fá stóra vinning-
inn. Og í heilan mánuð hefur
dularfull rödd hvíslað að mér í
tíma og ótima að ég mundi fá
stærsta vinninginn í happdrætti
Þjóðviljans, sem sé 20 þúsund
króna húsgagnavinning. — En
fyrir nokkrúm dögum hitti ég
mann sem var jafnviss um að
hann ætti að fá þennan vinn-
ing, hafði meira að segja draum
upp á það. En ég hafði engan
draum, aðeins gömlu delluna
mína og nú mun næsti sólar-
hringur leiða úrslitin í ljós. En
þótt stærsti vinningurinn falli
í annars hendur eru samt eftir
99 vinningar sem hver um sig
eru miklu meira virði en rottu-
gildran sem kom dellunni af
stað í upphafi.
Síðustu póstferðir fyrir jól
Jólin nálgast og jólapósturinn því kominn á dagskrá,
en til þess að geta treyst því að jólapósturinn komist á
ákvöröunarstað á réttum tíma þurfa menn að koma hon-
um til flutnings í tæka tíð.
SVO KEMUR HÉR bréf frá á-
hyggjulausum „Barnakarli":
Þegar ég las grein „X“ í bæj-
arpóstinum á sunnudag var öll-
um mínum jólagjafaáhyggjum
aflétt. Ég afréð þegar að kaupa
grammófónplötur handa krökk-
unum.
Það er að vísu nokkuð erfitt
verk að velja sígildar plötur
handa æskufólki nú á tímum,
áhugi þess virðist takmarkaður
við jass. Þetta æskufólk athug
ar ekki að mörg dægurlög og
jasslög eru stolin úr sígildum
verkum.
Ég valdi samt nokkrar plötur
hjá Máli og menningu, ,sem ég
held að hljóti að falla æsku-
fólki vel í geð. Ég valdi fyrst
og fremst þær plötur, sem eru
fjörugar og taktfastar t. d.
Polonaise eftir Chopin, leikið af
Gílels, Ungversk Rapsodia nr. 2
eftir Liszt, leikin af Sinfóníu-
hljómsveit Moskvaútvarpsins,
Fantasia við tema úr „Carmen“
(Bizet-Sarasate) leikið á fiðlu
af Leonid Kogan með Sinfóníu-
hljómsveit Moskvaútvarpsins.
„Hér á eftir fer yfirlit, hve-
nær síðustu ferðir fyrir jól
verða frá Reykjavík til útlanda
og út um land, eftir því sem
bezt verður vitað, en þess ber
að gæta, að margar ferðir, þótt
áætlaðar séu (einkum ferðir
sérleyfisbifreiða og áætlaðar
flugferðir), geta fallið niður,
eða þeim seinkað, vegna ófærð-
ar og stirðrar verðáttu. Þess
vegna er áríðandi, að jólapósti
út um land sé skilað tímalega
til flutnings, svo hann nái eins
og til er ætlazt.
I. Póstferðir til útlanda
Skipaferðir:
6. des. Katla til Kaupmanna-
hafnar; 10. des. Brúarfoss til
Hull og Hamborgar; 16. des.
Dr. Alexandrine til Kaup-
mannahafnar.
Til Ameríku er síðasta ferð
Hljómleikar og
listdans í Þjóð-
leikhúsinu
Hljómsveit hernámsliðsins
efnir á mánudag til hljómleika
í Þjóðleikhúsinu til styrktar
barnaspítalasjóði Hrihgsins.
Verða þetta síðustu hljómleik-
ar hljómsveitarinnar.
Að þessu sinni leikur hljóm-
sveitin ekki jasslög, heldur létta
nútímatónlist. Eitt veigamesta
viðfangsefnið verður samt úr
hinni klassísku tónlist, konsert
fyrir slíðurhorn og hljómsveit,
eftir Rimsky-Korsakoff.
Baritónsöngvari, John Peck,
Jr., að nafni, kemur að þessu
sinni fram og syngur einsöngs-
lög úr þekktum nútímasöngleikj-
um, en píanóleikari hljómsveit-
arinnar, Richard Jensen, leikur
einleik á píanó.
Á milli atriðanna sýna ein-
dansarar Þjóðleikhússins Erik
Bidsted ballettmeistari, frú Lisa
Kæregaard, kona hans, og Paul
von Brockdorff, ballettatriði,
sem Bidsted hefur samið um tón-
list úr óperunni „La Gioconda“
eftir Amilcare Ponchielli.
Lenio Kogan hlaut 1. verðlaun
fyrir fiðluleik í alþjóðakeppni
í Brussel í hitteðfyrra. Þá eru
einnig Campanella eftir Paga-
nini leikið á fiðlu af Sitkovet-
sky og Adagio og Sverðdans úr
ballettinum- Gayane eftir Kat-
sjaturian, leikið af Leoníd
Kogan.
Auk þessa gaf ég sjálfum
mér Sinfoníu nr. 1 eftir Shosta-
kovitch og Sinfóníu nr. 3 (Ero-
ica) og Sinfóníu nr. 5 eftir
Beethoven.
Ég held að öll fjölskyldan
verði ánægð með þessar plötur
á jólunum. Ég þakka Máli og
menningu framtakið og.vona að
það takist að búa plötudeildinni
betri aðstæður síðar.
Barnakari.
fyrir jól 10. des. með Trölla-
fossi.
Síðustu flugpóstferðir til
útlanda:
.Frá Reykjavík til Kaup-
mannahafnar 18. des.; Til
Prestwick, London 20. des.;
Til Stavanger 19. des.; til New
York 19. des.
Frá Keflavík;
Til Prestwick, Oslo, Stock-
hólm, Helsinki 18. des.; Til
New York 19. des.
Athygli póstsendanda, sem
ætla að senda jólaböggla til
útlanda, skal vakin á því, að
útflutningsleyfi þarf fyrir öll-
um varningi, sem sendur er,
nema bókum og blöðum. Um
útflutningsleyfi ber að sækja
til innflutningsskrifstofunnar,
Skólavörðustíg 12, sími 7720,
og eru þau afgreidd daglega
kl. 10—12 og 13—15, nema
laugardaga 10—12.
II. Póstferðir innanlands.
Skipaferðir:
11. des. Skjaldbreið til
Breiðafjarðarhafna. 13. des.
Reykjafoss vestur um til Ak-
ureyrar.. 15. des. Herðubreið
austur um land til Bakkafjarð-
ar. 15. des. Hekla austur um
til Akureyrar. 16. des. Skjald-
breið vestur um til Akureyrar.
17. des. Skaftfellingur til Vest-
mannaeyja. 18. des. Esja til
Akureyrar. 20. des. Gullfoss til
Akureyrar.
Sérleyfisferðir:
Síðustu ferðir með sérleyf-
isbifreiðum fyrir jól, sem hægt
verður að senda jólapóst með
til dreifingar um héruðin og í
kauptúnin, eru sem hér segir:
1. Húnavatns-, Skagafjarðar-,
Eyjafjarðar- og Suður-Þingeyj-
arsýslur:
Síðustu ferðir út um héruðin
verða 14. og 21. des. frá
Reykjavík.
Hvammstangi, Blönduós.
Sauðárkrókur, Siglufjörður,
Akureyri, Dalvík, Ólafsfjörður
og Húsavík: Síðasta ferð frá
Reykjavík 21. desember.
2. Dalasýsla og Austur-Barða-
strandarsýsla: Síðasta ferð frá
Reykjavík 21. desember .
3. Strandasýsla: Síðustu ferð-
ir frá Reykjavík 14. og 21.
desember.
4. Snæfellness- og Hnappa-
dalssýsla: Síðustu ferðir út um
héraðið 17. og 21. des. frá
Reykjavík. Stykkishólmur og
Ólafsvík: Síðasta ferð frá
Reykjavík 21. desember.
5. Vestur-Barðastrandarsýsla:
Síðasta ferð frá Reykjavík 17.
desember.
6. Mýra- og Borgarfjarðar-
sýsla: Síðasta ferð út um hér-
aðið fer frá Reykjavík 22. des-
ember.
7. Akranes og nærsveitir: Síð-
asta ferð frá Reykjavík 22.
desember.
8. Vestur-Skaftafellssýsla: Síð-
asta ferð til Víkur 22. desem-
ber. Síðasta ferð til Kirkju-
ibæjarklausturs 21. desember.
Þai enx 100 vinnixtgar í hoppdrætti Þjóðvilfans
DREGIÐ í KVÖLD